Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 59
MINNINGAR
BJORG RANNVEIG
BÓASDÓTTIR
+ Björg Rannveig
Bóasdóttir
fæddist á Reyðar-
firði 15. febrúar
1911. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 9. maí sl. For-
eldrar hennar voru
Bóas Björnsson út-
vegsbóndi og María
Guðmundsdóttir.
Hún átti þijú systk-
ini, systumar Sig-
ríði og Oddnýju og
bróðurinn Karl.
Björg giftist Sig-
urði Sveinssyni bif-
reiðaeftirlitsmanni 28. desem-
ber 1931. Hann var sonur Sig-
ríðar Magnúsdóttur
og Sveins Hannes-
sonar. Sigurður lést
25. desember 1985.
Þau eignuðust sjö
börn, Oddnýju, hún
er látin, Sigríði,
Maríu, hún lést
vikugömul, Svein,
Maríu Þórdísi, Bóas
og Karl. Þau
bjuggu á Sæbóli á
Reyðarfirði og síð-
an á Túngötu 7.
Björg verður
jarðsungin frá
Fossvogskirkju
föstudaginn 14. maí næstkom-
andi kl. 15.
Við vorum um tíu ára systumar
þegar við fengum að dvelja „einar“
fyrir austan að sumri til. Við vorum
stelpur „að sunnan“, í nýjum, bláum,
útvíðum buxum (ullarefni, sem stakk
hryllilega). Og meiningin var að vera
sérlega dömulegar og fullorðnar.
Þegar við komuna til Reyðar-
fjarðar var ljóst að amma Björg
hlustaði ekki á að maður væri að
sunnan og léki sér aldrei úti og vildi
helst vera inni að lesa ástarsögur og
dönsku blöðin sem amma átti í
bunkum. Hún sagði „þið vitið að ég
á þvottavél, mér er sama þótt þið
komið drullugar inn. Þið megið
leika í ánni,“ og svo vorum við úti.
Þetta^ tímabil var helgað ævintýra-
leit. Óvissuferð upp á fjall að skoða
herminjar, að vaða í ánni, að sökkva
í dý. Allt hæfílega innan handar og
amma reiðubúin að mana okkur upp
í leitinni að ævintýrinu og finna
spaugilegu hliðamar á óförunum.
Eftir vinnu sína tók hún okkur með
í bílferð að eyðibýli hinum megin við
Reyðarfjörð, þar var hægt að fara í
alvöru búleik við alvöru eldavél. Ég
las auðvitað, nóg var að lesa, Nancy
og Tom Swift, en eina bók man ég
eftir að við ræddum um, það var
meira að segja um miðja nótt, þegar •
ég hafði ekld getað sofið og her-
bergið var bjart af miðnætursól.
Bókin var með Atlas líkamsræktar-
æfingum, hið mesta undur og mitt
uppáhald (að dönsku blöðunum
ólöstuðum). Það voru styttri sam-
ræður sem við áttum þegar hún
fann mig um miðja nótt inni í skáp
ofan á dönsku blöðunum með vasa-
ljós.
Það búa hetjur fyrir austan.
Denni frændi minn sagði mér að
hann hefði stungið sér í hylinn í
ánni og handsamað lax með hönd-
unum. Ég sá þetta ljóslifandi fýrir
mér og sagði ömmu frá þessu. Hún
hló lengi og dillandi hjartanlega og
sagði ekkert við því. Amma Björg
og afi, voru selskapsfólk, mann
langaði að vera skemmtilegur ná-
lægt þeim. Það var sérlega
skemmtilegt að geta skemmt
ömmu. Hún hafði léttan og bjartan
hlátur sem kom frá hjartanu og hún
gat séð margar óvæntar hliðar á
málum sem gerðu hverdaginn
skemmtilegan.
Fyrir um tíu árum fórum við
amma Björg í heimsókn á elliheimili
með séríbúðum, að kanna aðstæður.
Þegar við komum út sagði hún.
„Hér gæti ég ekki búið, hér býr
bara gamalt fólk.“ Og svo hló hún,
dillandi og prakkaralega, og eins og
svolítið hissa á að hún gæti sagt
svona. Það er ekki öllum gefið að
eiga karakter sem eldist ekki, en
þannig var amma Björg.
Björg Sveinsdóttir
ESTER
SVEINSDÓTTIR
+ Ester Sveins-
dóttir fæddist
að Kóreksstöðum,
Norður-Múlasýslu,
27. apríl 1914. Hún
lést á Landakoti 5.
maí síðastliðinn Est-
er var dóttir hjón-
anna Sveins Björns-
sonar og Guðrúnar
Jónsdóttur. Ester
var næstyngst fimm
systkina, en þau
voru Guðrún, Björn,
Þórína og Einar og
eru þau öll látin
nema Þórína. Eftir
að faðir Esterar lést giftist
móðir hennar Pétri Péturssyni
landpósti og átti með honum
fimm börn. Þau eru Hulda (lát-
in), Hjalti, Eiður (látinn), Asta
og Brynjar.
títför Esterar fór fram frá
Fossvogskapellu 10. maí.
fóstra sinn ásamt Jóni
fósturbróður sínum til
ársins 1936, en þá fór
hún að Skriðuklaustri í
vist til Gunnars Gunn-
arssonar skálds og
Fransisku konu hans.
Hún stundaði nám í
Húsmæðraskólanum í
Hallormsstað árin
1938-1941, þar sem
hún m.a. lærði vefnað
og ýmsar hannyrðir.
Eftir að hún hætti á
vefnaðarstofunni réðst
hún til starfa hjá Al-
bert í versluninni
Veiðimanninum og vann hjá honum
í tíu ár. Síðustu fimm ár starfsæv-
innar vann hún svo hjá Ama Arna-
syni i skóbúðinni í Suðurveri.
Mikill og góður vinskapur tókst
með henni og móður minni, sem
hélst alla tíð á meðan móðir mín lifði
og minnist ég Esterar sem trausts
fjölskylduvinar. Hún var föst á
skoðunum sínum og gat verið dálítið
sérsinna, en hún var sérlega góð-
hjörtuð og mátti ekki neitt aumt
sjá. Hún og móðir mín áttu sameig-
inlegt áhugamál, sem var að lesa
dönsku vikublöðin og þótti móður
minni vænt um hvað Ester var dug-
leg að útvega henni þau blöð. Eg
minnist m.a. fjölskylduferðalaga
sem Ester tók þátt í eins og skíða-
ferðar í Stíflisdal og eftirminnilegar
voru berjaferðimar að Króki í
Grafningi, þar sem haninn á bænum
byrjaði að gala kl. fimm á morgnana
og varð að setja hann í poka svo
gestirnir gætu sofið. Ester giftist
aldrei og var bamlaus, en hún var
bamgóð og nutu bömin mín þess
þegar þau hittu hana í heimsóknum
hjá ömmu sinni. Með aldrinum fór
heilsu hennar að hraka og fór að
bera á Alzheimersjúkdómi, sem hún
að lokum varð að hopa fyrir. Ég
þakka Ester góða viðkynningu og
blessuð sé minning hennar.
Guðmundur Einarssou.
Mig langar með nokkmm orðum
að minnast Esterar Sveinsdóttur,
en henni kynntist ég árið 1942 þeg-
ar hún réð sig til starfa hjá móður
minni, Karólínu Guðmundsdóttur,
sem rak vefnaðarstofu á Asvallagöt-
unni. Þegar mest var unnu þar tíu
stúlkur hjá henni. Sú vinna virðist
hafa fallið Ester vel því hún starfaði
í farsæl fimmtán ár hjá móður
minni, enda var hún lærður vefari
og mikil hannyrðakona, nákvæm og
samviskusöm. Ester missti föður
sinn þegar hún var tveggja ára og
var alin upp hjá fósturforeldrum
sinum þeim Þórami Jónssyni og
Guðrúnu Magnúsdóttur í Jórvík,
Norður-Múlasýslu. Þórarinn var
góður vinur Sveins föður hennar en
hann og Guðrún áttu fimm böm,
þau Ragnhildi, Steinunni, Magnús,
Jón og Guðbjörgu. Eftir andlát
Guðrúnar annaðist Ester Þórarinn
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN JAKOBSSON
fv. framkvæmdastjóri,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 14. maí kl. 13.30.
Þórdís Björnsdóttir, Ruggero Cortellino,
Árni Haukur Björnsson, Þórey Bjarnadóttir
og barnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KETILSSON
mjólkurfræðingur,
Starengi 4,
Selfossi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands, Sel-
fossi, sunnudaginn 9. maí, verður jarðsunginn
frá Selfosskirkju laugardaginn 15. maí kl. 13.30.
Jón Grétar Guðmundsson, Hildur Guðmundsdóttir,
Kristín Anna Guðmundsdóttir, Bogi Karlsson,
Helgi Guðmundsson, Margrét Sverrisdóttir,
Álfheiður Sjöfn Guðmundsdóttir, Hlöðver Ólafur Ólafsson,
Eydis Katla Guðmundsdóttir, Jón Hlöðver Hrafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
ÞORSTEINN ÁSGRÍMSSON
frá Varmalandi,
Öldustíg 1,
Sauðárkróki,
lést laugardaginn 8. maí sl. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 15. maí
kl. 14.00. Jarðsett verður á Reynistað.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeir sem vilja minnast hans, láti Byggðasögu
Skagafjarðar njóta þess. Bankareikningur nr. 310-13-136000 í Búnaðar-
bankanum á Sauðárkróki.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Ásgrímur Þorsteinsson, Anne Melén,
Ólöf Þorsteinsdóttir,
Steinar Mar Ásgrímsson, Þorsteinn K. Ásgrímsson.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ESTER SIGURÐARDÓTTIR
frá Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 15. maí kl.14.00. Þeim, sem vildu minn-
ast hennar, er bent á kvenfélag Sjúkrahúss
Siglufjarðar.
Sigfús Steingrímsson, Sædís Eiríksdóttir,
Ólöf Steingrímsdóttir, Jónas Jónsson,
Sólveig Steingrímsdóttir, Jón Bjargmundsson,
Sigurður Steingrímsson, Sólveig Þorkelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR KRISTMUNDSSON,
Skipholti,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 11. maí.
Jarðsett verðurfrá Hruna laugardaginn 15. maí
kl. 14.00.
Kristrún Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, afabörn og langafabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærs föður míns,
tengdaföður, afa og fósturföður okkar,
ÞORGEIRS ÞÓRARINS ÞORSTEINSSONAR,
Grund,
Skorradal.
Áslaug Þorgeirsdóttir, Ragnar Önundarson,
Þorgeir Ragnarsson,
Önundur Páll Ragnarsson,
Bjarni Pétursson, Magnea K. Sigurðardóttir,
Guðrún Pétursdóttir,
Davið Pétursson, Jóhanna Guðjónsdóttir,
Jón Pétursson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför
INGIMUNDAR REIMARSSONAR,
Árbliki,
Ölfusi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinunn Hermannsdóttir.
Lokað
Rannsóknarstofa í faraldsfræði taugasjúkdóma verður lokuð á
morgun, föstudaginn 14. maí, vegna útfarar prófessors
GUNNARS GUÐMUNDSSONAR.
Ingibjörg Einarsdóttir,
verkefnisstjóri.