Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 77

Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 77 BRÉF TIL BLAÐSINS Frá Sigurði F. Sigurðarsyni: NÚ ÞEGAR kosningarnar eru yíír- staðnar er gaman að heyra í for- mönnum stjórnmálaflokkanna. Þeir segja hver á eftir öðrum að þeir hafi unnið sigur, sumir stóra sigra aðrir minni. Samfylkingin byrjaði á að til- kynna að þeir væni sigurvegarar kosninganna en þegar leið á nóttina varð Óssuri að orði að þeir hefðu kannski ekki unnið heldur hefðu þeir náð mjög góðum árangri því að þeir væru með einn flokk núna í stað margra áður. Eg verð að segja það að ég missti örugglega af einhverju því að þegar Samfylkingin var stofn- uð voru sameinaðir fjórir flokkar og komst Samfylkingin þá á koppinn en ekki núna eftir kosningar. Kjósend- ur voru ekki að kjósa á milli þess að hafa fjóra flokka eða einn. Það var búið að stefna fjórum flokkum í einn áður en til kosninganna kom. Því hlýtur það að hafa verið stefna Sam- fylkingarinnar að ná sem flestum þingmönnum og sem hæstri pró- sentu á landsvísu en ekki að sækjast eftir blessun landsmanna á Samfylk- ingunni því að þeir hafa áður sagt að það hafi verið búið að blessa sam- starf sem þetta viða um land í sveit- arstjórnarkosningum 1998. Maður spyr því hver voru hin eiginlegu markmið Samfylkingar. Fyrst voru það 38% svo aðeins minna og loks eru þau um 27%. Fyrst ætlaði Sam- fylking að sigra Sjálfstæðisflokkinn en endaði með því að miða sig við vinstri græna og hafði þá betur. Hefði verið kosið eftir mánuð hefði Samfylkingin sjálfsagt miðað sig við Kristilega framboðið eða Anarkista því að húmanistar með 742 atkvæði hafa sjálfsagt verið of stórir þá. Það er ekki að spyrja að hugdirfsku Sigur Sam- fylkingar- innar? þeirra samfylkingarmanna að ögra Sjálfstæðisflokknum en hopa svo eins og hræddir hérar og finna ein- hvern flokk sem líklegt væri að myndi ekld uppskera eins mikið og þeir. Eitt má þó Steingrímur J. Sig- fússon eiga, hann vissi hvað hann sagði og sagði það sama alla kosn- ingabaráttuna og það er meira en hægt er að segja um talsmann Sam- fylkingarinnar sem hvorki vissi hvað hún sagði, hvenær hún sagði hvað og var afskaplega lítið samkvæm sjálfri sér. Eg vona að hún verði formaður þessa stjómmálaflokks, hún sem var formaður Aiþýðubandalagsins og missti Steingrím frá sér og næstum alla alþýðubandalagsmennina með honum. Hvernig stendur hún sig sem formaður Samfylkingarinnar ef Sighvatur ákveður að yfirgefa fylk- inguna? Þá hefur hún hvorki alþýðu- bandalagsmenn né alþýðuflokks- menn en er með kvennalistakonur með sér alla vega þær sem ekki eru enn famar í fylu, komnar úr fylu eða eru þarna mitt á milli. Eg vildi óska þess að íþróttamenn væru svona ánægðir með sig þegar þeir steinliggja á íþróttavellinum, þá væra hvorki þjálfarar reknir né dómarar skammaðir. Ég er hræddur um að þjálfari Samfylkingarinnar væri látinn fjúka hjá hvaða meðal íþróttafélagi sem væri en það er jú meiri metnaður hjá íþróttamönnum Pappírsfargan og vitleysa Frá Eggerti E. Laxdal: VIRÐISAUKASKATTURINN er klafi á þjóðinni, hann er bara papp- írsfargan og tóm vitleysa, sem skilar engum umtalsverðum tekjum í þjóð- arbúið, þegar innskattur hefur verið dreginn frá. í sumum tilfellum fæst hann allur endurgreiddur, eins og t.d. í bygg- ingariðnaði. Það er undarlegt háttarlag að krefjast peninga, sem síðan eru end- urgreiddir. Þetta er bara kostnaður og umstang. Harkan er mikil við innheimtu þessa skatts. Mér er kunnugt um ljóðskáld, sem réðst í það fyrirtæki að gefa út bók með ljóðum sínum. Honum var sagt að honum bæri ekki að greiða virðisaukaskatt vegna þess að ágóðinn væri svo lítill. En viti menn, dag nokkurn sá hann í DV að íbúð hans væri komin á uppboðslista vegna vangoldins virðisaukaskatts að upphæð 15.000 kr. Þetta var skil- greint sem eftirstöðvar. Hann var sem þrumu lostinn og vissi ekki sitt rjúkandi ráð, íbúð hans var í veði. Hann sá þvi ekki annað úr- ræði en að leita til lögfræðings og hann bjargaði málinu á síðustu stundu. Þetta kostaði skáldið auðvit- að, því lögfræðiaðstoð er ekki ókeypis. Það skýtur skökku við að ausa út fé til menningarmála, en taka það síðan til baka með virðisaukaskatti. Matvörar eru nógu dýrar, þó að virð- isaukaskatturinn yrði afnuminn af þeim. Hvers konar listir og menning- arstarfsemi á nógu erfitt fyrir, þótt þessi skattur yrði afnuminn. Burt með virðisaukaskattinn sem alh-a fyrst og engan nýjan skatt í staðinn, það yrði jöfn kjarabót fyrir alla, ríka sem fátæka, og myndi draga úr úlfúð á launamarkaðinum. EGGERT E. LAXDAL, Hveragerði. LAGERSALA á Lausavegi 96 (við hliðina á Stjörnubíói) Gerið góð kaup BALLY-skór, 40-50% afsl. Stök pör í grindum kr. 500 en hjá stjórnmálamönnum þessa lands. Sverrir Hermannsson kom fersk- ur á sjötugsaldri inn í kosningabar- áttuna og skaut til hægri og vinstri og hleypti svolitlu lífi í þessa annars litlausu kosningabaráttu. Þeir stjórnmálamenn sem urðu fyrir barðinu á honum urðu svolítið sárir því venjulega þurfa þeir ekki að veija gerðir sínar þegar þeir fara fram á endurkjör heldur segja ein- ungis frá því góða sem hefur áunnist en Sverrir hjó og fékk þá til að tár- ast örlítið. Þeir hugsa sig þá kannski tvisvar um áður en þeir gera eitt- hvað tvísýnt næst, en þó varla, þeir eru flestir það siðblindir að þeir vita ekki lengur hvað er rétt og hvað er rangt í þeirra eigin heimi. Kjartan var góður, kannski of góð- ur, það trúir því enginn að það sé hægt að bæta lífið hér á Fróni á fjór- um áram frá því sem er því að það halda allir að verkalýðsfélögin berj- ist fyrir auknum tekjum og betri lífs- skilyi-ðum á Islandi. Hvers vegna hafa þá verkalýðsforingjar ekki laun sem taka mið af lægstu launum fé- laga í sínu verkalýðsfélagi. T.d. Hall- dór Bjömsson er með mánaðarlaun langt yfir lágmarkslaunum Dags- brúnarfélaga í stað þess að binda þau við t.d. 2,5 sinnum þau laun sem félagi í Dagsbrún gæti haft að lág- marki á mánuði. Þá myndi Halldór sennilega vilja hækka lægstu launin til að hann fengi launahækkun. Þannig ætti líka að binda laun stjórnmálamanna og fleiri manna sem ráða launum landsmanna. Með sigurkveðju til allra, SIGURÐUR F. SIGURÐARSON, Torfufelli 25, 111 Reykjavík. Hækkum bílaskatta! Frá Magnúsi Bergssyni: SÍÐASTA vetrardag, 21. apríl, kom Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, fram í fréttatíma Stöðvar 2 og ræddi um að ríkið væri að skatt- pína bifreiðaeigendur. I raun er það alveg einstakt að fjölmiðill skuli leyfa slíka umræðu án þess að koma með spurningu þess efnis, hver ætti að bera kostnað við umhverfis- og náttúravernd. Þetta endurspeglar fánýta umræðu um þessi mál. Ékki er langt síðan að Þjóðhag- stofnun birti útreikninga þess efnis að beinn kostnaður samfélagsins af bílaeign þjóðarinnar væri svipaður og tekjurnar. Það hlutfall mun vænt- anlega ekki breytast þó svo að tekjur ríkissjóðs muni vafalaust aukast með aukinni bílasölu. í útreikningum Þjóðhagsstofnunai’ var aðeins leitast við að sýna beinan kostnað samfé- lagsins af bílaflotanum s.s. af slys- um, dauðsfóllum, vegagerð o.s.frv. Hins vegar gleymdist alveg að taka með í reikninginn gríðarlegan kostn- að vegna umhverfis- og náttúru- spjalla sem aukinn bílafloti hefur í fór með sér. Auk þess var ekki tekið með tilfinnanlegt tjón þeirra sem ör- kumlast í umferðinni eða þeirra sem misst hafa sína nánustu í umferðar- slysum. Hvað værir þú, lesandi góð- ur, til í að borga mikið tU að fá að halda lífi eða heUbrigði um ókomin ár? Ef stjórnvöld tækju raunvera- legan skaða á umhverfinu af völdum bUamengunar með í útreikningana og hver um sig bætt við þeirri upp- hæð sem hann metur líf sitt á þá kæmi í ljós raunveralegur kostnaður við bfiaflota landsmanna. BUlinn er /T f í MARIA m LOVISA FATAHÖNNUN SKÓ1.AVORÐUSTÍG 3A • S S62 6999 vissulega þægilegt atvinnu- og flutn- ingstæki en mikil misnotkun einka- bfisins, sérstaklega hér á landi, end- urspeglar aðeins allt of lág bifreiða- og eldsneytisgjöld. Það ætti að vera verulegt áhyggjuefni í ljósi þess að ef aUir jarðarbúar ætla að verða jafn sjálfselskir og skammsýnir og við Is- lendingar í málefnum umhverfis og náttúru er ekki von á góðu. Stjóm- völd ættu nú þegar að hafa rænu á því að setja á umhverfisskatta og nota þá til að stýra neyslu lands- manna til betri vegar þar sem hags- munir umhverfis og náttúra verða hafðir í fyrirrúmi. Þannig munu þeir borga sem menga. Á sama tíma gætu aðrir séð möguleika til sparn- aðar. Það er líka orðið tímabært að hækka bfiprófsaldurinn, til að byrja með upp í sjálfræðisaldurinn 18 ár, því að hvað hefur heilbrigður ung- lingur að gera með bfl? Móðir nátt- úra skapaði hann með tvo fætur sem kalla hreinlega á hreyfingu. Reyndar höfum við klúðrað skipulagi borgar- innar með víðáttumiklum umferðar- mannvirkjum svo það verður seint hægt að benda ofvemduðum nú- tímaunglingi á að hlaupa milli A og B. En þá má benda á að nota mætti almenningsvagnana, eða reiðhjól, sem er og verður eitt vistvænsta far- artækið sem mannshöndin hefur skapað. MAGNÚS BERGSSON, raívirki, Miklubraut 20, Reykjavík. Hugsaðu um húðina er frábært á sjukrahúsínu og enn betra heima! Fæst í flestum apótekum Dreifing T.H. Arason sf., fax/sími 554 5748 og 553 0649 >• A m Sjómarniadagurinn J Laugardagur 5. júní w' 61. afmœliíhóf íjómannadajíiní Dagskrá: Húsiö opnab kl. 19:00. Guömundur Hallvarösson, formaöur sjómannadags- ráös setur hófiö. Sjávarútvegsráðherra flytur ávarp. Kynmr kvöldsins: Geirmundur Valtýsson. Fjöldi glæsilegra skemmtiatríða. Verðlauna- afhendingar. Prímadonnur, söngskemmtun: Glæsileg skemmtun, meö söngvurum framtíöarinnar. Hljómsveitarstjórí: Gunnar Þóröarson. Kvöldiö er tileinkaö sjómannskonunni! Glæsilegasta hlaðborö landsins. Verð í mat og skemmtun kr. 5200. Hljómsveit Geirmundar i Valtýssonar leikurfyrír dansi til kl. 03:00. 9 ö Birbri Stnlund #1« ..œCÁ:* 9 t ríi Nililii Coli Ollvli Nnvtsn John Tlm Turnir Einróma fof gesta! Sýning sem slær í jjfgn Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur undir hjá Prímadonnum frægustu lög Arethu Franklin, Barböru Streisand, Celine Dion, Diönu Ross, Gloriu Estefan, Glorlu Gaynor, Madonnu, Mariah Carey, Natalie Cole, Oliviu Newton John, Tinu Turner, og Whitney Houston. - Sviðssetning Kadri Hint. RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI Skoðabu vefinn okkar, m.a.veisluþjónustuna, Veffang: www.broadway.is simi 53311001 E-mail: broadway®simnet.is Fa« 5331110 (
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.