Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 84

Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 84
84 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM W MORGUN, föstudags- Akvöld, verður Quarashi með tónleika á Kaffí i Thomsen. Þetta eru V fyrstu tónleikar sveit- ^ arinnar í átta mánuði en hljómsveitin ákvað að taka sér frí í ágúst síðastliðnum, en hefur nú komið saman aftur og er að taka upp nýja plötu. - Af hverju ákváðuð þið að taka ykkur hlé frá spilamennskunni síð- asta sumar? „Við vorum búnir að spila stöðugt í eitt og hálft ár og vorum eiginlega þurrausnir. Við vildum víkka sjón- deildarhringinn og byrja svo aftur ferskir,“ segir Sölvi. - Hvað tók þá við? „Sölvi fór í pílagrímsferð til Suð- ur-Ameríku, ég fór til Chicago í Bandaríkjunum, Höskuldur fór til írlands og Bjössi fór til Ítalíu að búa til tölvuleik," segir Steini. I félagsskap Jóa kakkalakka - Það hefur aldeilis verið flakk á ykkur. Hvað varstu að gera í Suður- Ameríku, Sölvi? „Eg fór til Bogota í Kólumbíu og lék þar um sex mánaða skeið í sápu- óperu. Það kom mjög óvænt upp og ég ákvað bara að slá til og reyna fyrir mér í þessum bransa. En það átti ekki alveg nógu vel við mig því ég var ekki alveg nógu klár í tungumál- inu enda bara nýbúinn að læra j. spænsku," segir Sölvi. „Þátturinn heitir Confessiones sem þýðir Játningar og er talsvert vinsæll í Bogota. Þetta er hryllingssápuópera með geimfaraívafí og ég lék hvíta djöfulinn, eða el diablo blanco. Þetta var frábær reynsla fyrir mig. Ég var þama í sex mánuði og ég kom mikið út úr skápnum með það hver ég er og hvað ég vil.“ „Já, Sölvi kom út úr skápnum í þessari ferð,“ segir Steini hlæjandi en það er strax borið festulega til baka. - Varstu að ieita að sjálfum þér í ferðinni? „Já, ég var náttúrlega bara að reyna að slá í gegn. Var að reyna að búa mér til leiklistarferil, en það er svolítið erfítt í öðru landi.“ Sölvi segir að sápuóperan hafí verið mjög melódramatísk. Ekki lét Sölvi sér nægja að sýna leiklistar- hæfileika sína í Kólumbíu því hann fór einnig í ferð inn í Amazon-frum- skóginn. „Það var nú aðallega til að yfirvinna skordýrahræðslu," segir hann. - Var ferðin ein allsherjar atferl- ismeðferð? „Já, það má segja það.“ Blaða- maður er farinn að sjá Sölva fyrir sér á ferðalagi inn í innstu myrkur, nýbúinn að leika hvíta djöfulinn og hvem skyldi hann hafa hitt í fmm- skóginum? „Eg held hann hafí ekki hitt neinn Kurtz, nema kannski Kurtz í sjálfum sér,“ segir Höskuldur spek- ingslega. „Ég hef alltaf verið brjálæðislega hræddur við skordýr og þegar ég var kominn inn í skóginn og allt fullt af skordýmm alls staðar ákvað ég að skýra þau bara einhverjum Quarashi með fyrstu tónleikana eftir langt hlé Aftur saman eftir ævintýralegan vetur Ein vinsælasta hljómsveit síðasta sumars. Quarashi. tók sér langt hlé frá spilamennskunni og lagði land undir fót. Ddra Ósk Hall- dórsdóttir hitti hljómsveitarmeðlimi og innti þá frétta úr fríinu. heimilislegum nöfnum. Kakkalakk- inn hét Jói og tarantúlan Andri og þannig urðu þau bara eins og vinir mínir. Þetta er alveg frábær með- ferð við skordýrahræðslu og ég er ekkert frá því að ég muni koma þessu á framfæri í framtíðinni. Fólk getur verið svo ótrúlega hrætt við svona skordýr." Árás í Chicago -En hvað varst þú að gera í Chicago, Steini? „Ég var nú bara að slappa af. Systir mín á heima þama og ég ákvað að vera hjá henni. En ég var samt talsvert einn þarna enda mikill einfari í mér. Ég fór talsvert á blús- barina og kynntist fullt af skemmti- legu fólki. Reyndar var ég stunginn í fótinn meðan ég var og fékk áfalla- hjálp. Ég ætlaði að vera í tvo mán- uði en varð að vera í þrjá því ég var í mánuð í meðferð út af árásinni." -Hvað gerðist eiginlega? „Ég var á skemmtistað og það var ráðist á mig og ég var stunginn þrisvar í fótinn og blæddi næstum því út á staðnum. Það réðust á mig þrír svertingjar þegar ég sagðist QUARASHI. Frá vinstri: Biöm Tno-í Mo,W“bla«««rii ojafsson, ■Æjssssaar1'" w > Hættu að raka á þér fótleggina! Notaðu One Touch 4-6 vikna vaxmeðferð - One Touch á íslandi 112 ár. Svo einfalt er það Hitið vaxið í tækinu og rúllið því yfir hársvæðið. Leggið strimil yfir og kippið honum næst af. Húðin verður mjúk, ekki hrjúf! One Touch er ofnæmisprófað Fæst í apótekum og stórmörkuðum. ■■■nmBnMHHMHn| wwniiiwíiffffffiro vera rappari og kunnu greinilega ekkert að meta það. En ég vil samt taka það fram að ég hef ekkert á móti svörtu fólki, þrátt fyrir að þetta hafí gerst.“ Steini segir að ferð hans til Bandaríkjanna hafi verið gerð á svipuðum forsendum og hjá Sölva og greinilegt að strákarnir em ekk- ert að taka lífinu spurningalaust. „Þetta er hin andlega leitj“ segir Höskuldur og hinir hlæja. „Ég hefði nú eiginlega þurft tvo mánuði í við- bót úti til að finna mig alveg,“ segir Steini. „Já, við þurfum að senda hann reglulega í bandaríska sendi- ráðið svo hann sé í lagi,“ segir Sölvi við mikla kátínu hinna. Ofstopamaðurinn í sveitinni Bjöm er búinn að vera frekar þögull það sem af er viðtalinu og því ákveðið að beina nokkrum spurn- ingum til hans. Þú varst ekki í hljómsveitinni áður? „Nei, en á síðasta ári hringdi Höskuldur í mig og ég spilaði með þeim á Prodigy-tónleikunum." „Prodigy vildi ráða hann en við sögðum honum ekki frá því,“ segir Höskuldur. „Já, ég er núna fyrst að frétta það,“ segir Björn og hjá strákunum upphefjast miklar sögur um hvernig þeir hafi sagt hinum einstaklega ljúfa Keith í Prodigy að Björn væri slíkur ofstopamaður að ekki væri hreinlega verandi nálægt honum. Bjöm tekur undir þessi orð með fá- dæma ró og ljóst að æði djúpt er á ofstopanum í karli. - Hvað hefurðu verið að gera? „Ég er að útskrifast úr Verslunar- skólanum núna, en undanfarið er ég búinn að vera að hanna tölvuleik fyr- ir Sinclair Spectmm. Ég hef mikla trú á þessari gömlu tölvu og PC og Macintosh mega bara fara að vara sig.“ - Hvernig leikur er þetta? „Þetta er svona ævintýraskotleik- ur. Ég er ennþá að þróa leikinn. „Þessi leikur er algjör snilld,“ segir Sölvi og látæði sveitarmeðlima er þesslegt að blaðamaður veit ekki hvort allt sem fram hefur komið sé hrein ímyndun frekar en gallharður raunveruleiki svo ákveðið er að snúa sér að Höskuldi sem stundar núna nám í íslensku í Háskóla Islands. Féiagi Paul „Ég fór í fyrirtíðarbrúðkaupsferð til írlands með minni verðandi og hitti þar marga merkistónlistar- menn eins og Bono og Edge. Ann- ars heitir Bono réttu nafni Paul Hughes, en ég kalla hann Paul,“ segir Höskuldur grafalvarlegur. „Eg var aðalsprautan í því að Bono hélt þessa tónleika milli andstæðra fylkinga í stríðinu sem á sér núna stað milli sambandssinna og kaþ- ólikka á írlandi. Hann hringdi í mig og sagðist þurfa á ráðum og halda og ég sagði: Já, hvað Paul. Þá sagð- ist hann vera í vanda staddur út af ástandinu. Þá sagði ég: Haltu tón- leika, Paul. Tónlistin er alþjóðlegt tungumál. Það er nú kannski rétt að það komi fram að aðdragandi þess að við tókum okkur hlé síðasta haust var að ég fékk taugaáfall á Akur- eyri,“ segir Höskuldur. „Það var búin að vera mikil pressa á okkur allt sumarið, eða eiginlega miklu lengur og ég bara þoldi það ekki lengur.“ - Var mikið sukk á ykkur? „Nei, nei, ekkert meira en gerist og gengur hjá hljómsveitum," segir Sölvi. „En núna er önnur tíð. Ég fer til dæmis reglulega í jóga með mömmu,“ bætir hann við. -Hverju má fólk búast við frá ykkur á tónleikunum á föstudaginn? Bera lögin ferðalögunum vitni og heyrast þarna salsataktur, ítalskar ballöður, blús og írsk þjóðlög í bland við rappið? „Fólk má búast við óvenjulegustu tónleikunum sem við höfum haldið til þessa,“ segir Steini. „Þetta verð- ur bara mjög skemmtilegt," segir Höskuldur. „Við notum svolítið mik- ið af nýjum hljóðum, en ég veit nú ekki með salsataktinn og hitt,“ segir hann, „en það getur vel verið að ferðalögin komi þarna einhvers staðar inn. Hver veit?“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.