Morgunblaðið - 27.08.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 29
Fulltrúum NATO mistekst að tala um fyrir Kosovo-Albönum
Mótmælaaðgerðir í
Orahovac halda áfram
Orahovac, Pristína. AP, Reuters.
FULLTRÚUM Átlantshafsbanda-
lagsins (NATO) og Rússlands
mistókst enn í gær að telja Kosovo-
Albana í bænum Orahovac í
Kosovo á að hætta mótmælum sín-
um og samþykkja að rússneskar
friðargæslusveitir leysi hollenskar
sveitir af í bænum. Albanarnir hafa
frá því á mánudag hindrað komu
rússnesku sveitanna til Orahovac
en þeir fullyrða að rússneskir
málaliðar hafi tekið þátt í ódæðis-
verkum Serba í Orahovac á meðan
á Kosovo-stríðinu stóð.
Norðaustur af bænum Gnjilane á
umráðasvæði bandarískra friðar-
gæslusveita stóð hópur Kosovo-
Serba sömuleiðis fyrir götumót-
mælum en þeir krefjast þess að
friðargæsluliðar finni tvo Serba sem
fullyrt er að Albanar hafi rænt í vik-
unni.
I Orahovac viðurkenndi Wolf-
gang Sauer hershöfðingi að ekki
hefði tekist að fá Kosovo-Albana til
að hætta aðgerðum sínum en hann
taldi þó miða í rétta átt. „Mikilvæg-
ur atburður átti sér stað í dag, því
þetta var í fyrsta skipti sem full-
trúar Serba og Albana hittust
augliti til auglitis,“ sagði Sauer.
„Þeir ræddu saman, án þess að
komast í geðshræringu, og ég er
afar ánægður með að báðir hópar
sögðust harma atburði undanfar-
inna mánaða í Kosovo."
Serbar sakaðir um
„kantóníseringu“
Á miðvikudag olli tillaga um af-
mörkun íbúðarsvæða Serba og Al-
bana í Kosovo, sem stjórnvöld í
Belgrad lögðu fram fyrir skömmu,
ósætti milli leiðtoga þjóðabrotanna.
Serbar, sem sakaðir eru um svo-
kallaða „kantóníseringu" í Kosovo,
vilja vernda landa sína gegn hefnd-
arverkum Albana með því að skilja
þjóðarbrotin að, en það stemmir
stigu við áformum um að skapa
sameinað samfélag í Kosovo.
Momcilo Trajkovic, yfirmaður
Endurreisnarhreyfingar Serbíu,
sagði blaðamönnum í gær að gagn-
tillaga Berndard Kouchner, yfii'-
manns svæðisstjórnar SÞ, um að
Serbar sameinuðust á landsvæðum
undir alþjóðlegri vernd, væri með
öllu óviðunandi. Kvartaði hann
einnig yfir því að Kosovo-Albanar
væru ekki einu sinni reiðubúnir að
ræða málið. Trajkovic hafnaði til-
lögunni vegna ákvæðis um að al-
þjóðasamfélagið færi með stjórn
Bosníu-Serbar reiðir vegna handtöku Talics
Fólk hvatt til að
ekki friðinn
rjúfa
Bai\ja Luka. AP.
VARNARMÁLARÁÐUNEYTI
Bosníu-Serba hvatti í gær opinber-
lega til þess að almenningur og her
lýðveldisins héldu stillingu sinni og
tækju ekki upp á neinu sem spillt
gæti friðnum, eftir að Momir Talic,
hershöfðingi hers Bosníu-Serba,
var tekinn höndum í Vín í fyrradag
og seldur í hendur Stríðsglæpa-
dómstól Sameinuðu þjóðanna í
Haag, ásakaður um aðild að stríðs-
glæpum í Bosníu-stríðinu sem háð
var 1992-1995.
En engu að síður fordæmdi
ráðuneytið í sömu yfirlýsingu
handtöku Talics og sagði hana
„forkastanlega aðgerð“. Lögð var
áherzla á að hershöfðinginn, sem
er yfirmaður herráðs hers Bosníu-
Serba, hefði verið í Vín sem gestur
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu, og austumskra
stjórnvalda.
landsvæðanna, en tillaga hans
hljóðaði upp á sjálfsstjórn Serba.
Kom umræðan Kouchner í mikið
uppnám en hann yfírgaf fundinn
áður en honum lauk með þeim orð-
um að honum félli orðalag um
„kantóníseringu" ekki í geð enda
minnti það á hörmulega atburði
sem ættu að vera öllum í fersku
minni.
Kosovo-Albanar í Orahovac hafa staðið fyrir mótmælum undan-
farna daga en þeir sætta sig ekki við að rússneskar hersveitir taki
við friðargæslu í borginni af Hollendingum.
Hvatti ráðuneytið til þess að
„fulltrúar alþjóðasamfélagsins"
sæju til þess að Talic yrði látinn
laus og að hann kæmist aftur til
Bosníu, „tafarlaust".
Áður hafði stjórn Bosníu-Serba
lýst yfir alvarlegum áhyggjum af
öryggi borgara sinna í kjölfar
handtöku Talics. I yfirlýsingu sem
forsætisráðherrann Miloslav Dodic
skrifaði undir er sagt vafasamt að
nokkur fulltrúi Bosníu-serbneska
lýðveldisins gæti tekið þátt í
nokkru milliríkjasamsarfí eftir
þetta.
Petar Djokic, forseti þings Bosn-
íu-Serba, lýsti yfir áhyggjum af
þætti ÖSE í málinu, en stofnunin
hefur neitað því að hafa átt
nokkurn þátt í handtökunni; henni
hefði verið ókunnugt um hina
leynilegu ákæru sem gefin hafði
verið út á hendur Talic.
STOR OG GOÐ
VIN N U AÐSTAÐA
ÞARF SKKI AÐ
KOSTA ÞIG MIKIÐ
1.249.799 kr. ánVSK.
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
27.724 kr. á mánuði
HyUNDAI H-1 stuttur
Fjármögnunarleiga
Útborgun 312.449 Ur.
19.269 kr. á mánuði
Rekstrarieiga er miðuS við 36 mánuði og 20.000 km á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 5 ár og 25% útborgun,
greiðslur eru án vsk. Vsk. leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi fær hann endurgreiddan sé hann með
skattskyldan rekstur. Öll verð eru án vsk.
Grjótháls 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225/575 1226
ATVINNUBILAR
FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
HYunoni
GOTT FÓIK • SlA