Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Leikskóla- og grunnskólabörn heimsækja Grafarvogskirkju í desember Morgunblaðið/Þorkell Séra Vigfús Þór Ámason, sóknarprestur í Grafarvogi, talar við nemendur úr Engjaskóla sem heimsóttu Grafarvogskirkju í ga'rmorgun. Síðdegis komu svo nemendur úr Foldaskóla. Morganblaðið/Þorkell Nemendur taka sjálfir mikinn þátt í helgistundunum, lesa upp, syngja og sum flytja tónlistaratriði og helgileiki. Nærri sjö þúsund í helgi- stundum HÁTT í sjö þúsund leikskóla- og grunnskólanemendur heimsækja Grafarvogskirkju nú í desember en þar er þeim boðið til helgi- stundar á aðventu. Séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur segir að fyrsti hópurinn hafi komið í heimsókn 2. desember og sá síð- asti komi 21. desember. í Grafarvogshverfunum eru 10 leikskólar sem starfræktir eru á vegum Reykjavíkurborgar auk eins einkarekins og grunnskól- amir eru orðnir sjö. Á leikskól- unum eru hátt í eitt þúsund börn og á sjötta þúsund í grunnskólun- um sjö og lætur því nærri að um sjö þúsund börn heimsæki kirkjuna í jólamánuðinum. Séra Vigfús segir að börnin taki sjálf mikinn þátt í hclgistundunum, yngstu börnin flytji sjálf jólaguð- spjallið í helgileik og þau eldri lesi það og mikið er um söng og annan tónlistarflutning. Prestar Grafarvogssóknar skiptast á um að annast athafn- irnar en auk séra Vigfúsar Þórs Árnasonar eru það þau séra Anna Sigríður Pálsdóttir og séra Sigurður Arnarson. Útreikningar á arðsemi Fljótsdalsvirkjunar miðað við rekstur í 100 ár, 4-6% ávöxtunarkröfu, bjartsýna rekstrarspá og að ekkert se greitt fyrir umhverfíð Núvirt tap 530-3.280 millj ónir króna NUVIRT tap á rekstri Fljótsdals- virkjunar í eitt hundrað ár er á bilinu 530 til 3.280 milljónir króna miðað við 4-6% ávöxtunarkröfu og bjart- sýna spá um reksturinn og að ekkert sé greitt fyrir umhverfið. Tapið er enn meira eða 12-13 milljarðar kr. á sama tímabili miðað við raunsæjar forsendur, að því er fram kemur í grein eftir Guðmund Ólafsson, hag- fræðing og lektor við Uðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands, sem birt er á heimasíðu hans. í greininni segir að miðað við bjartsýna spá um reksturinn og að virkjunin selji 1.400 gígavattstundir frá fyrsta degi á 1 kr. kWst, sem sé ekki lítið frá stóriðju, sé fjárfestingin óhagkvæm. Ríkið styðjist gjarnan við ávöxtunarkröfuna 4-6% og núvirt tap á rekstrinum í 100 ár miðað við 4% ávöxtunarkröfu sé 530 milljónir króna og 3.280 milljónir króna miðað við 6% ávöxtunarkröfu. Miðað er við 25 milljarða króna fjárfestingu, sem er öll tekin að láni, þar sem 60% af- skrifast á 60 árum og 40% á 30 árum. í greininni segir að tvennt geti helst breytt þessari niðurstöðu. Ann- ars vegar hærra orkuverð en 1 kr. en það sé ólíklegt, þar sem meiri líkur séu á að orkuverðið verði lægra en í rekiniforsendunni. Hins vegar gæti aukin framleiðsla án verulegs kostn- aðarauka breytt niðurstöðunni, en þar kæmi til álita röð virkjana, sem gæti nýtt sér þær fjárfestingar sem áður væru komnar að verulegu leyti. Guðmundur reiknar einnig út arð- semi Fljótsdalsvirkjunar miðað við raunsæisspá, eins og sagt er, um rekstur virkjunarinnar. Þá er miðað við að kostnaður sé heldur hærri, eða 28 milljarðar króna, og er þá tekin með vegagerð og ýmis annar tengd- ur kostnaður sem ekki sé reiknaður með í virkjunarkostnaði. Þá er gert ráð fyrir að orkusalan verði 84% en ekki 100% og því 1,180 gígavatt- stundir og verðið fyiTr kWst verði 88 aurar, en það hafi sést sem hugsan- legt verð. Þá er núvirt tap á virkjun- inni 12-13 milljarðar króna og segir Guðmundur að hér sé ekki um sér- lega svartsýna spá að ræða, verri staða gæti komið upp. Guðmundur varpar því einnig fram hvort vatnsaflsvirkjanir á ís- landi séu ekki orðnar óhagkvæmar í samanburði við orku sem framleidd sé með kjarnorku, þar sem meðal- kostnaður sé jafnvel undir 50 aurum á kWst. Heildarkostnaður Lands- virkjunar hafi numið 8.777 milljónum kr. á árinu 1998 og hafi verið fram- leiddar 5.811 GWst. Meðalkostnaður hjá fyrirtækinu sé því ríflega 1,51 kr. á kWst og spurning sé hvort ekki sé rétt að draga úr umsvifum þessa fyr- irtækis. Ríkið miðar við 4-6% arðsemi Guðmundur sagði í samtali við Morgunblaðið að fram hefði komið í riti fjármálaráðuneytisins um arð- semi að ríkið miðaði við 4-6% arð- semi af fjárfestingum sínum og þess vegna hefði hann lagt hana til grund- vallar í útreikningum sínum. I fyrra tilvikinu væri miðað við að allt gengi upp í rekstrinum frá fyrsta degi, en í síðarara tilvikinu styðjist hann við raunsæjari spá um reksturinn. I því sambandi sé rétt að hafa í huga að þessari virkjun sé eingöngu ætlað að framleiða orku fyrir stjóriðju, en all- ar fyrri vh'kjanir hafi byggst á orku- framleiðslu fyrir almennan markað og stóriðja hafi einungis verið hluti kaupenda orkunnar og þannig gert virkjanaframkvæmdir auðveldari en ella. Það hafi verið styrkur íslenski’a virkjana til þessa. Aðspurður hvort ekki væri óskyn- samlegt að ráðast í virkjunina miðað við þessá útreikninga, sagði Guð- mundur að það færi eftir því hvort fleiri virkjanir yrðu byggðar á svæð- inu. Ný virkjun gæti nýtt sér þau uppistöðulón sem fyrir væru, vega- kerfi og annað og þar af leiðandi yk- ist tilkostnaður ekki í hlutfalli við aukningu framleiðslunnar. Þá væri hins vegar verið að tala um allt annað dæmi en væri til umfjöllunar á Al- þingi nú. „Ef ekki stendur neitt ann- að til en virkja bara þessa einu virkj- un þá jafnast þetta á við það að gefa hverjum Austfirðingi í eingreiðslu eina milljón," sagði Guðmundur enn- fremur. Perlur íslenskrar sagnalistar Sagnaþættir Tómasar Guðmundssonar sameina skáldlegt innsæi, fagran stíl og sagnfræðilega nákvæmni. Þjóðlegur fróóleikur eins og hann gerist bestur. Mrtl og msnnlngftJI nmlogmsnnlrtg.ii «p|l Laugavegi 18 • Slmi 515 2500 • Síöumúla 7 • Sfmi 510 2500 Tekjuhlið fiárlaga hækkar um 5 milljarða við 3. umræðu Kostnaður við stækkun flug- stöðvarinnar er 3,6 milljarðar SAMKVÆMT endurskoðaðri áætl- un um stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru horfur á að kostn- aður við framkvæmdina verði 3,6 milljarðar, en eldri áætlun gerði ráð fyrir 3 milljarða kostnaði. Þetta kemur fram í framhaldsnefndaráliti fjárlaganefndar Alþingis. Breytingatillögur fjárlaganefndar við þriðju umræðu um fjárlög gera ráð fyrir að útgjöld lækki um 435,3 milljónir frá þeim tillögum sem lágu fyrir við aðra umræðu og að tekjur ríkissjóðs aukist um 4,9 milljarða. I endurskoðaðri áætlun er gert ráð fyrir að flatarmál nýbyggingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar verði 13.800 fermetrar í stað 10.500 fer- metrar. Stækkunin skýrist af stærra svæði til útleigu og meira rými til að flokka farangui*og fyrir sprengjuleitarbúnað. Fjárlaganefnd gerir tillögu um að lántökuheimild flugstöðvarinnar verði hækkuð úr 1,2 milljörðum í 2,4 milljarða. Framlag til LÍN lækkar í tillögum fjárlaganefndar er einnig gert ráð fyrir að framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna lækki um 100 milljónir og nemi 1.910 milljónum. Samkvæmt endur- skoðaðri áætlun sjóðsins er gert ráð íyrir minni útlánum, aðallega vegna fækkunar lánþega frá fyrri áætlun. Fjárlaganefnd gerir jafnframt til- lögu um að 24 milljónum verði varið til áframhaldandi vöktunar á Eyja- fjallajökli. Þetta er gert í ljósi jarð- hræringa á svæðinu. Fjárlaganefnd gerði við þriðju umræðu tillögu um að framlag til byggingar stafkirkju í Vestmanna- eyjum yrði hækkað um 11,5 milljón- ir og verði 29,5 milljónir á þessu ári. Alþingi samþykkti í fyrra að veita 20 milljónir til verkefnisins á þessu ári. Endurskoðun fjármálaráðuneyt- isins á lífeyrisskuldbindingum ríkis- sjóðs leiðir til 600 milljóna króna lækkunar á gjaldfærslu á næsta ári. Greiðslur í sjóðinn hækka aftur á móti um 1.880 milljónir þar sem nú er ekki gert ráð fyrir að viðbótarið- gjöld verði dregin frá lífeyrisupp- bótum stofnana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.