Morgunblaðið - 16.12.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 37
LISTIR
Austfirsk ljóð
BÆKUR
Raddii' að austan
LJÓÐ AUSTFIRÐINGA
Útgefandi: Félag ljóðunnenda á
Austurlandi 1999. Ritstjóri Magnús
Stefánsson, ritnefnd: Aðalsteinn
Aðalsteinsson, Guðjón Sveinsson og
Magnús Stefánsson.
UM leið og Raddir að austan er
að vissu leyti ágæt hugarhressing
er tilurð bókarinnar verðug um-
hugsunar. Hún veitir fræðilegar
upplýsingar um andlegt menning-
arástand Austfirðinga. Þegar þess
er gætt að hér er aðeins um að
ræða skáld og hagyrðinga sem lífs
eru meðan söfnun í bókina stóð yf-
ir, þá aukast gáfur og andríki þeg-
ar hugsað er til þeirra Austfirð-
inga sem gengnir eru og hafa orðið
meira en þjóðþekktir á sviði ljóðl-
istar.
Geysimikil vinna hefur verið
lögð í að safna ljóðunum og velja,
enda segir í orðum til
lesenda að undirbún-
ingur útgáfunnar hafi
tekið tvö ár. Það er
Félag ljóðunnenda á
Austurlandi sem
stendur að útgáfunni,
en það var stofnað
1996.
122 Austfirðingar
eiga ljóð í bókinni. Sá
elsti 97 ára og tveir
hinir yngstu fæddir
1980.
Hér eiga ljóð lands-
þekktir menn, þekktir
rithöfundar, nokkur
þekkt ljóðskáld og ást-
sæl ljóðskáld s.s. Vil-
borg Dagbjartsdóttir og Gyrðir El-
íasson. Hagyrðingar eru margir,
en flest eru skáldin lítt þekkt. Að
gæðum er skáldskapurinn misjafn
eins og gengur. En verðleiki hans
felst, eins og áður er drepið á, í því
að hann er að segja merka sögu,
sem margt er hægt að lesa út úr,
er einnig varðar afkomu og skil-
yrði lífsgæða.
Auk þess er ástin á landinu og
fegurð náttúrunnar
rauður þráður, sem
gefur heildarsýn og
vekur virðingu les-
enda.
Ekki verður vikið
að sérstökum ljóðum.
En eftir lestur bók-
arinnar virðist full-
víst að hún á erindi
við alla þá er vilja
kynna sér skáldskap-
inn, finna til í honum
og leita hins þjóðlega
sem er dulið í flestum
Ijóðanna.
Hið unga, efnilejga
skáld, Steinunn As-
mundsdóttir, hefur
leitað móðurhaganna.
Ljósmyndir af skáldunum auka
gildi bókarinnar, sem er að öllu
leyti vönduð í útgáfu. Torfi Jóns-
son listamaður hannaði bókarkápu.
Svona í lokin, mikil andleg auð-
legð hlýtur að leynast með ungum,
austfirskum skáldum, sem koma
hér ekki við sögu.
Jenna Jensdóttir
Magnús
Stefánsson
Uppgjör hugans
BÆKUR
L j ó ð a b ó k
Á KVÖLDHIMNI
eftir Ivar Björnsson. Útgefandi: ív-
ar Björnsson, Reykjavík 1999.
SEM fyrr
kennir margra
grasa í ljóðum Ivars
Björnssonar. Hann
er vandvirkur,
stundum margorð-
ur, en umfram allt
ann hann íslenskri
tungu og vill reyn-
ast henni trúr.
Þú íslenska, kæra og
auðuga mál,
vorarfurfránor-
rænu kyni,
þúáttokkarhjarta
oghugaogsál,
við höfum öll reynt
þigaðvini.
Ljóð skáldsins gefa til kynna að
„kvöld“ er komið. Það lítur yfir far-
inn veg, en gleymir ekki samtíman-
um, sem tekur mikið rúm í skáld-
skapnum. Sennilega má sjá lífshlaup
góðs og mæts manns í ljóðunum. At-
hyglisvert er að stundum gætir
nokkurs sársauka, þá horft er til
manndómsára. En mjög roskinn
maður er sáttur við lífið.
Skáldið er vel kunnur hinum ýmsu
bragarháttum. Hér kemur
oddhend hringhenda.
Ástarljóðin eru góð
enn þau þjóðin metur.
Borið hróður heims um slóð
hjartans óðurgetur.
Ivar Björnsson ber ekki
bumbur við útkomu bókar
sinnar. Sjálfsagt er honum
ljóst að hún höfðar helst til
vina og ættingja og þeirra
er áhuga hafa á lífsferli
skálda.
Misgóð ljóð - já, en
hvergi er vikið frá vönd-
uðu málfari og frásagnar-
gleði er aðal þeirra.
Skemmtileg er kápum-
yndin, sem skáldið sjálft hefur tekið.
Jenna Jensdóttir
ívar
Björnsson
Veldu þann sem
þolir samanburð
Loftpúðar
Ilnakkapúðar
Fjarstýrð hljónitæki
Hátalarar
Þokuljós
Verð frá
Tegund
Avensis
Vectra
Passat
Laguna
Vélarstærð
160016v
1600 16v
1600 8v
1600 16v
I Iestöfl
110
101
101
107
ABS
nei
nei
nei
j»
nei
nei
nei
já
nei
nei
nei
já
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
1.678.000 kr.
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Staðalbúnaður: ABS bremsukerfi, 4 loftpúðar, Ijarstýrð samlæsing, öryggisbelti með
strekkjurum og dempurum, Qarstýrt hljómkerfi með geislaspilara og sex hátölurum, þijú
þriggja punkta belti í aftursætum, 5 höfuðpúðar, barnalæsing, útihitamælir,
þjófavörn/ræsivörn, þokuljós, samlitir stuðarar, litað gler, snúningshraðamælir o.m.fl.
RENAULT