Morgunblaðið - 16.12.1999, Side 13

Morgunblaðið - 16.12.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 13 Landlæknir sendir heilbrigðisráðherra ábendingu Eflingheimahjúkr- unar mikilvæg SAMVINNA stóru sjúkrahúsanna, stefnumótun um hlutverk smærri stofnana, efling heimahjúkrunar og uppbygging sjúkrahótela eru meðal ún-æða sem landlæknir bendir á að íhuga þurfi vegna fjárhagsvanda stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík í gi-einai-gerð til heilbrigðisráðherra. Landlæknir sendi ráðherra grein- argerðina í gær en þar dregur hann saman niðurstöðm’ frá stjómendum stóm sjúki-ahúsanna um stöðu spítal- anna og mat þeima á því hvaða áhrif fjárhagserfiðleikar sjúki’ahúsanna gætu haft á starfsemina. í greinargerð Sigurðar Guð- mundssonar landlæknis kemur fram að stjórnendum sjúkrahúsanna þyki víða pottur brotinn og skorta aðstöðu og úrræði til bættrar þjónustu. „Hins vegar er alveg ljóst að sú þjónusta sem sjúklingar fá er almennt mjög góð og fyllilega sambærileg við ná- grannalönd. Afköst hafa aukist, bið- listar styst, kærumálum hefur ekki fjölgað gegn spítölunum, nýjungar em teknai’ upp, o.s.frv. Þjónustan er ekki í hættu á þessu stigi, starfsfólk sinnir störfum sínum af metnaði og umhyggju. Ekkert hefur komið fram sem bendir til að starfsfólk sé að braðla með almannafé í þeim verkum sem sinnt er á sjúkrahúsunum. Allt bendir til að við fáum það fyrir fjár- muni okkar sem við ætlumst til,“ seg- ir landlæknir. I samtali við Morgunblaðið segir landlæknh’ að í árlegri umræðu um fjárhagsvanda sjúkrahúsa gleymist þessi atriði oft, þ.e. að þar sé unnið frábært starf og undanfarin ár hafi biðlistar verið að styttast og afköst aukist. Ekki hafi komið fram að braðlað sé með fjárveitingar og hann segh- um launamálin að þar komi fleiri að en starfsmenn sjúkrahúsa. Alþingi hafi ákveðið að mæta núver- andi vanda og í framhaldi af því sé rétt að íhuga ýmis úrræði. Þá segir hann að færa megi rök fyrir því að laun heilbrigðisstarfsfólks, einkum lækna og hjúkranarfræðinga á stóru sjúkrahúsunum, hafi fyrir aðlögunar- samninga verið úr tengslun við hlið- stæð laun annai’s staðar í þjóðfélag- inu og við störf sömu stétta utan sjúkrahúsanna. Sigurður bendir á að óljóst sé að hve mildu leyti unnt sé að auka að- hald í rekstri frekar en nú sé gert áð- ur en þjónusta skerðist og megi draga þá ályktun að þanþol starfs- fólks gagnvart meira aðhaldi sé orðið lítið sem ekkert. Landlæknir segir einnig að heilbrigðisþjónustan sé ekki dýi’ari en í öðram löndum. „Eigi að síður er nauðsynlegt að leita leiða til að veita aukna þjónustu fyrir sama fé. Það verður vart gert nema með tilfærslu á verkefnum og verkaskiptingu milli stofnana auk þess sem ástæða er til að íhuga verk- efnatengdar fjáiveitingar,“ segir landlæknir. Meðal úrræða nefnir hann vera samvinnu stóra sjúki-ahúsanna og segir hann kosti samvinnu og verka- skiptingar marga. Sérhæfð bráða- þjónusta yrði á sama stað, einingar væra stærri sem leiða myndi til auk- inna tækifæra til þróunar, auðveld- ara væri að afla nýrra tækja og nýt- ing hagkvæmari og fágætar og nýjar sérgreinar nýttust betur. Einnig væra meiri möguleikar á sérhæfingu starfsfólks, aðstaða til rannsókna og kennslu batnaði og unnt væri að spara í stjórnun. Þá bendir landlækn- h- á nauðsyn stefnumótunar smænn stofnana, eflingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu, uppbyggingu sjúki’a- hótela, eflingu dagdeilda og 5 daga deilda, þróun sérfræðistarfa utan spítala og að íhuga þurfi breytt fyrir- komulag fjáiveitinga með tengsl við verkefni og afköst í huga. Dýralæknar staðfesta sjúkdóm í Dölum Lungna- pest drepur sauðfé LUNGNAPEST kom nýlega upp á bænum Gunnarsstöðum í Hörðudal í Dalasýslu. Tíu kindur á bænum drápust af völdum sýkingarinnar , en fé hefur nú verið bólusett. Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, segir ræktun hafa staðfest að um lungnapest var að ræða. Bakterían nefnist pasteurella haemolytika og er sú sama og greindist á bænum Kalmans- tungu í Hvítársíðu í Borgar- firði nú í vor. Búið er að bólusetja allt fé á bænum og segir Sigurður fé á nærliggjandi bæjum einnig verða bólusett. Óvíst hvernig sjúkdómur- inn barst í bæinn „Við áttum okkur ekki á því ennþá hvernig sýkingin hefur borist á bæinn,“ segir Sigurð- ur. Hann segir þó vitað að kindur sem taki smitið í sig veikist ekki endilega, heldur geti gengið með sýkilinn og dreift smiti í nær hálft ár. „Þannig að kindur sem veikj- ast að vori geta smitað þegar þær koma í hús að hausti,“ útskýrir Sigurður. Ekki hefur komið upp sýk- ing annars staðar í Dalasýslu svo vitað sé að sögn Sigurðar. Féð verður bólusett í tvígang til að reyna að koma í veg fyrir útbreiðslu pestarinnar, sem fyrst varð vart hér á landi í Borgarfirði í vor. Að sögn Sigurðar verður fylgst vel með framvindu mála mála á svæðinu á næstu vikum. Sif Konráðsdóttir lögfræðingur Ekki tekið á kæruatriðum SIF Konráðsdóttir héraðsdómslög- maður segir að í úrskurði siðanefnd- ar Læknafélags Islands um kæru á hendur Högna Óskarssyni lækni sé ekki tekið á þeim kæraatriðum, sem umbjóðandi hennar bar undir stjórn Læknafélagsins. Óskað var eftir úrskurði siðanefndar vegna skýrslu læknisins en í henni var lagt mat á skýrslu sálfræðings, sem lögð var fram í dómsmáli í Hæstarétti um hvort kærandi í dómsmálinu væri haldinn áfallastreitu. Sif segir að í úrskurði siðanefndar sé tekið á þremur atriðum, sem nefndin sjálf hafi ákveðið að taka upp. „Eins og fram kemur ákveður siðanefndin að fjalla ekki um faglegt mat á umfjöllun og efnistök læknis og vísar í því sambandi í lög um læknaráð. Þangað getur einstakl- ingur ekki skotið máli, einungis yf- irvöld heilbrigðismála, dómstólar og ákæruvald," sagði hún. Stjórnin taki afstöðu „Nú er málið hjá stjórn Læknafé- lagsins, eins og því var upphaflega vísað af mínum skjólstæðingi. Stjórnin hlýtur að taka afstöðu til þess hvaða atriði hafi ekki fengið umfjöllun og þá til þess hvað stjórn- in vill gera í því sambandi. Þetta eru grundvallaratriði um siðareglur.“ Andlát HALLDOR GÍSLASON HALLDÓR Gíslason íyiTverandi skipstjóri er látinn 100 ára að aldri. Árið 1941 bjarg- aði hann ásamt skipsfé- lögum sínum 33 mönn- um af ms. Beaverdale, sem skotið vai’ niður út af Suðvesturlandi. Einn af skipbrotsmönnunum kom hingað til lands á dögunum til að þakka Halldóri björgunina og varð fundui’ þeirra á Hrafnistu fjölmiðlaefni hér á landi og í Bret- landi. Halldór fæddist í Reykjavík 19. ágúst árið 1899, sonur Gísla Einars- sonai- sjómanns og Vilborgar Hall- dórsdóttur. Hann hóf sjómennsku á fermingaraldri á skútum með föður sínum og lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum árið 1919. Eftir það vai’ hann á toguram og varð skip- stjóri á bv. Gulltoppi árið 1930-1945. Halldór var síðan skip- stjóri á ýmsum togur- um fram til ársins 1947 og þar á meðal á m.bv. Kópanesi, sem hann átti hlut í. Arið 1947 tók hann við nýsköpunar- togaranum Keflvíkingi og var með hann fram til ársins 1955. Eftir það var hann með bv. Röðul 6n árið 1956 fór hann með ýmsa togara frá Reykjavík, Norður- og Austurlandi í 1-2 veiði- ferðir. Einnig með er- lend skip í rannsóknar- og vísindaleið- angra við ísland og Grænland. Hann var síðast hjá Hafrannsóknarstofnun- inni með bv. Þorstein þorskabít, en hætti allri sjómennsku árið 1963. Halldór var einn af stofnendum Hampiðjunnar hf. og átti sæti í stjóm hennar um skeið. Hann var sæmdur heiðursmerki Sjómannadagsins í Reykjavík árið 1970. Rúnar Gunnarsson ráðinn dagskrár- stjdri innlendrar dagskrár Hefur starfað hj á Sj ónvarpinu frá upphafi ÚTVARPSSTJÓRI hefur ráðið Rúnar Gunnarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóra Sjónvarpsins, í stöðu dagskrárstjóra inn- lendrar dagskrár frá og með 1. janúar nk. Rúnar hefur starfað nær óslitið hjá Sjón- varpinu frá stofnun þess árið 1966, þar af sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri sl. ell- efu ár. Rúnar er lærður ljósmyndari frá Brokks institute of photograpy í Banda- ríkjunum og Studio Guðmundar hér á landi auk þess sem hann nam kvikmyndagerð við Dramatiska institutet í Svíþjóð. Hann starfaði fyrst sem kvikmyndatökumaður við Sjónvarpið þegar hann hóf þar störf, síðan útsendingarstjóri frétta, dagskrárgerðarmaður, deildarstjóri íþróttadeildar og að- s(oðarframkva*mdas(jóri. „Ég er búinn að vera nær ellefu ár aðstoðarframkvæmdastjóri og hafði áhuga á að færast nær sjálfri dagskrárgerðinni og framleiðsl- unni,“ sagði hann. Rúnar sagðist myndu leggja fram hugmyndir að dagskrá fyrir útvarpsráð en að ráðið legði meg- inlínur varðandi dagskrá sjónvarps og útvarps. Síðan væri það út- varpsstjóra að fela honum fram- haldið. Hyggst þétta kvölddagskrána „Auðvitað hefur sá sem gegnir stöðu dagskrárstjóra innlendrar dagskrár ákveðið svigrúin," sagði Rúnar. Benti hann á að útvarpsráð hefði samþykkt að breyta ramma dagskrárinnar 3. jan- úar nk. Meðal annars hefði verið ákveðið að 15-20 mín. um- ræðuþáttur um dæg- urmál yrði í beinni út- sendingu úr myndveri strax á eftir fréttum kl. 19.35 og að seinni fréttir í sjónvarpi yrðu færðar fram til kl. 22. „Auk þess má segja að reynt verði að þétta þennan kjör- tíma milli kl. 20-22 í Sjónvarpi," sagði hann. „Þetta er byrj- unin en samþykktur rammi fyrir vetrar- dagskrána að öðru leyti mun gilda út þennan vetur. Svo verður að koma í ljós hvað mér og öðrum samstarfsmönnum, framkvæmda- stjóra, útvarpsstjóra og útvarps- ráði dettur í hug, en ég mun starfa mjög náið með þeim.“ Sluppu ómeidd úr árekstri TVÖ börn, tveggja og fimm ára, sem sátu í barnabílstól og barnabílsæti bifreiðar, sluppu ómeidd úr árekstri tveggja bifreiða á gatnamótum Höfðabakka og Bíldshöfða í gær- morgun skömmu fyrir klukkan ell- efu. Fjarlægja þurfti skemmdar bif- reiðirnar af vettvangi með krana- bifreið og sex voru fluttir á slysa- deild með sjúkrabifreið, þar af ellefu ára gamalt barn með eymsli og börn- in tvö sem fóra í fylgd foreldra sinna. Rúnar Gunnarsson Tilvaltn jolagpf Leðurgönguskór Vandaðir gönguskór með Gri-tex öndunarefni Jólatilboð 5.990 kr. HÚSASMIDJAN Slmi 525 3000 • www.husa.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.