Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 78

Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 78
... 78 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Hundalíf Ljóska BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Iþróttamaður ársins 1999 Frá Anders Hansen: SENN líður að því að íþróttafrétta- menn velji þann íþróttamann sem helst er talinn verðskulda heiðurs- nafnbótina íþróttamaður ársins 1999. Að venju verða margir kallað- ir enda jafnan margra góðra afreka að minnast þegar litið er um öxl til síðustu tólf mánaða, þótt vissulega vanti oft herslumuninn eins og ís- lenskir íþróttaunnendur verða oft að sætta sig við þegar att er kappi við erlent afreksfólk. í einni grein skorti þó ekkert á; engan herslu- mun vantaði, heldur var um glæsi- lega sigurgöngu að ræða. Hér er átt við íslenska hestaíþróttamenn, sem gerðu góða ferð á Heimsleika ís- lenskra hesta í Þýskalandi sl. sum- ar. Þar voru unnin góð afrek og margir sætir sigrar, enginn þó eins sætur og hjá hinum kunna afreks- manni, Sigurbirni Bárðarsyni, sem vann tvo heimsmeistaratitla og setti nýtt heimsmet að auki. Mikill mannfjöldi _ sótti þessa heimsleika og forseti íslands ásamt fleira stórmenni heiðraði mótið með heimsóknum. Enginn vafí er á að Sigurbjörn Bárðarson er best allra íþrótta- manna kominn að titlinum íþrótta- maður ársins 1999, og fullyrða má að hefði hann unnið sambærileg af- rek í öðrum íþróttagreinum, svo sem sundi, frjálsum íþróttum, júdó eða nánast hverju sem er, væri eng- inn vafi á hver titilinn hlyti. En margir unnendur hestaíþrótta hafa af því nokkrar áhyggjur að hesta- íþróttir sitji ekki við sama borð og aðrar íþróttir hjá íþróttafréttari- turum stóru fjölmiðlanna. Þar er greinilegt að töluvert skortir á skilning á eðli og umfangi hesta- íþrótta. Þó er þetta tómstunda- íþrótt hundruð þúsunda manna víða um heim, hörð keppnisíþrótt bæði áhugamanna og atvinnumanna og síðast en ekki síst rammíslensk íþrótt sem borið hefur hróður ís- lands lengra og víðar en flestar aðr- ar. Lítinn skilning á hestaíþróttum má til dæmis sjá í umfjöllun dag- blaða, útvarpsstöðva og sjónvar- psstöðva. Þar heyrir nánast til und- antekninga ef úrslit hestamóta eru birt samdægurs. Einnig var mjög áberandi að stuttur þáttur um Heimsleika íslenska hestsins var fyrst sýndur í Sjónvarpinu mánuð- um eftir að mótinu lauk! Þó var þátturinn styttri en sem nemur hálfum knattspyrnuleik! Þegar litið er til þeirra klukkustunda og jafn- vel daga sem erlendir viðburðir fá í sjónvarpi er þetta varla boðlegt. Knattspyrna í Englandi, Italíu, Þýskalandi, nær alltaf án þátttöku nokkurs Islendings fær ríflegan skerf af dagskránni, hið sama á við um leiki bandarískra körfuboltaliða að ekki sé nú minnst á kappakstur og golfviðburði, þar dugir ekkert minna en heilu og hálfu sólarhring- arnir og jafnvel fréttir látnar víkja! Enn má minna á, að þeir blaða- menn, sem sinna fréttum af hesta- mótum hafa ekki atkvæðisrétt í kjöri um íþróttamann ársins! Það vekur nokkra furðu, þar sem hesta- íþróttir eru innan vébanda Iþrótta- sambands íslands og eru opinber- lega viðurkenndar íþróttagreinar. Sjálfsagt þurfa hestamenn að auka þrýsting á íþróttafréttamenn og forráðamenn fjölmiðla til að ná fram hugarfarsbreytingu enda skipta þrýstihópar hvers kyns sí- fellt meira máli. Hvað sem því líður munu hestaáhugamenn fylgjast grannt með þegar kjörinn verður iþróttamaður ársins. Þar eru margir góðir íþrótta- menn í kjöri, en aðeins einn vann tvo heimsmeistarartitla á árinu og setti heimsmet að auki. Það gerði hestaíþróttamaðurinn Sigurbjörn Bárðarson. ANDERSHANSEN Árbakka, 851 Hellu. Morgunblaðið, konur og áramót Frá Sigríði Logadóttur: ÁRAMÓTIN nálgast, meira að segja árþúsundaskipti og jafnvel aldamót. Eitt að því sem skapar mér ánægju um áramót er að lesa Morg- unblaðið troðfullt af umfjöllun um at- burði líðandi árs. En þessi ánægja á það til að breytast í gremju þegar ég kem að þeim hluta blaðsins þar sem viðtöl við frammámenn þjóðarinnar birtast. Fyrirsögnin í þessum hluta blaðsins er iðulega „Hvað segja þeir um áramót?“ Ég get ekki munað eft- ir áramótamogga þar sem fyrirsögn- in hefur verið „Hvað segja þau um áramót“ einfaldlega vegna þess að Morgunblaðið hefur eingöngu rætt við karlmenn. Nú kann það að vera svo að konur séu fámennar fremst í þeim flokki manna sem kallast fram- mámenn atvinnulífsins og þjóðarinn- ar. Því verður þó ekki breytt að kon- ur eru helmingur þjóðarinnar, þær taka þátt í atvinnulífinu af fullum þunga og eiga því allan rétt á því að skoðanir þeirra og viðhorf til líðandi árs og aldar birtist í víðlesnasta blaði landsins. Ég vona að mér takist að lesa Moggann minn um áramótin með gleði og ánægju án nokkurrar gremju, sérstaklega þegar ég kem að þeim hluta blaðsins sem bera mun fyrirsögnina „Hvað segja þau um áramót.“ SIGRÍÐUR LOGADÓTTIR, Markarílöt 21, Garðabæ. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.