Morgunblaðið - 16.12.1999, Page 92

Morgunblaðið - 16.12.1999, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Kristinn Umfangsmikill viðbúnaður vegna 2000-vandans Eingreiðslur fyrir vinnu á nýársnótt HUNDRUÐ Islendinga verða við vinnu á nýársnótt til að tryggja að ár- þúsundaskiptin gangi snuðrulaust fyrir sig. Rafiðnaðarsamband íslands hefur mælst til að félagsmönnum þess verði greidd fastagreiðsla auk launa fyrirvikið. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að um tvenns konar vinnufyrirkomulag sé að ræða. I sumum tilfellum séu menn á bakvakt, tilbúnii- að mæta komi eitt- hvað upp á, en eins séu aðiir sem þurfi að eyða nýársnótt á vinnustað. Algengt er, að sögn Guðmundar, að greiddur sé 20.000 króna bónus fyrir þessa bakvakt auk bakvaktarálags. Peir sem verði í fullri vinnu geti hins vegar valið milli 50.000 króna ein- greiðslu eða vikufrís á föstum laun- um. Rafiðnaðarmenn hafa samið við fyrirtæki eins og Landsvirkjun, Landssímann, Isal og Rarik. Þær fjárhæðir sem Rafiðnaðarsambandið mælir með eru þó eingöngu til leið- beiningar og kveðst Guðmundur ekki vita um hvað sé samið hjá hveiju fyr- irtæki fyrir sig. Greiða skal stórhátíðarálag Hjá Landsvirkjun og Landssíman- um fengust þær upplýsingar að samið hefði verið við starfsmenn um ein- greiðslu. Ekki fékkst þó uppgefið hver sú greiðsla yrði. A milli 50-60 manns verða á vakt hjá hvoru fyrir- tæki fyrir sig þetta kvöld. Ríkið mun greiða þeim starfs- mönnum sínum sem verða á vakt á nýársnótt samkvæmt kjarasamning- um og fengust þær upplýsingar hjá fjármálaráðuneytinu að fyrirspum Bandalags háskólamanna hefði verið svarað á þá leið að starfsmenn ríkis- stofnana og -fyrirtækja sem verða á vakt á nýársnótt hljóti ekki greiðslur umfram stórhátíðai'álag og ákvæði kjarasaminga. Um 40% ríkisstarfs- manna sé í vaktavinnu og því ekki óeðlilegt að fólk sé í vinnu á þessum tíma. ■ Umfangsmiklar/ 46 VOXTKSLtiKlR Lánshæfí ríkisins óbreytt að mati erlendra fyrirtækja Ofþenslu efnahags- lífsins þarf að hemja Vetrar- verkí skamm- deginu KULDI og trekkur hafa minnt landsmenn á tilveru Kára konungs í skammdeginu undanfarið. Verkamennimir við Vestur- landsveg láta það þd ekki á sig fá og halda ótrauðir áfram störfum sínum í skugga hraðaviðvörunar, ^sem er vel við hæfi íþeirri hálku sem gjarnan fylgir þessum árstíma. Það styttist þó í vetrarsólstöður sem verða þann 22. desember, en þá tekur sól að hækka á lofti og bið- in eftir sumri getur hafist á ný. LÁNSHÆFI íslenska ríkisins er óbreytt samkvæmt bandarísku matsfyrirtækjunum Moody’s og Standard & Poor’s, sem kynntu nýtt lánshæfismat fyrir íslenska ríkið í gær. Standard & Poor’s boð- ar að fyrirtækið hækki lánshæfis- mat íslenska ríkisins á næstunni, náist tiltekin markmið við stjórn efnahagsmála. „Fyrirtækin tvö staðfesta sitt fyrra mat og álit um horfurnar. Mat Moody’s er einu þrepi hærra en mat Standard & Poor’s. Síðar- nefnda fyrirtækið boðar hækkun matsins á næstunni, en þó því að- eins að það takist að hemja ofþenslu í efnahagslífinu og draga úr við- skiptahalla. Enn fremur vekur at- hygli að fyrirtækið leggur áherslu á að lokið verði einkavæðingu ríkis- banka,“ segir Ólafur ísleifsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabankans. „I skýrslum matsfyrirtækjanna er sagður kostur og löstur á stöðu mála. Annars vegar er farið viður- kenningarorðum um stöðu ríkisfjár- mála og hagstjórn hér á landi á undanfömum árum. Eins er okkur styrkur að pólitískri samstöðu um meginstefnu í efnahagsmálum. Hins vegar er varað við ofþenslunni, vax- andi verðbólgu og viðskiptahalla, auk vaxandi skuldasöfnunar þjóðar- búsins á sama tíma og ríkið hefur greitt niður sínar skuldir,“ segh' Ól- afur. Moody’s lýsir áhyggjum af að skorta muni aðhald í launamálum, sérstaklega í komandi kjaraviðræð- um. Bent er á að erlend skuldahlut- fóll hafi versnað þó að þjóðarfram- leiðsla og útflutningur hafi vaxið ört. Vöxtur erlendra eigna hafi þó vegið upp vöxt erlendra skulda sem valdi því að hreinar erlendai- skuldir séu nú minni en þær voru árið 1994. Launahækkanir hafa áhrif á mat Moody’s segir að ef ekki takist að hemja launahækkanir í komandi kjaraviðræðum kunni horfur um lánshæfismat að versna. Standard & Poor’s telur til þrjú atriði undir mat sitt og jákvæðar horfur þess. Þetta era sterk staða opinberra fjármála, skynsamleg hagstjórn og það þriðja er langvar- andi félagslegur og stjórnmálalegur stöðugleiki. Mikil erlend skulda- byrði þjóðarinnar, veik erlend lausafjárstaða og smæð og opnun hagkerfisins eru hins vegar þættir sem takmarka lánshæfismatið. ■ Óbreytt mat/D2 Fj ölskyldugarður Starfsfólk tekur við rekstri BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur gert þjónustusamning til fimm ára við rekstrarstjóra og starfsfólk Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins og tekur samning- urinn gildi eftir áramót. Ingvar Sverrisson, formaður rekstrarstjómarinnai', sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að samningurinn væri sennilega sá fyrsti sem borgin gerði við eigin fyrirtæki. Hann væri þó að nokkru leyti byggður á samn- ingum sem ríkið hefði gert við nokkur fyrirtæki, t.d. Kvenna- skólann í Reykjavík. Ingvar sagði að með samningnum yrði rekstur garðsins frjálsari og möguleikar myndu skapast á að ná fram auknum tekjum. Hugs- anlegum hagnaði verði varið í uppbyggingu garðsins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segist telja að með nýju rekstrarumhverfi verði auðveldara að fá kostunaraðila til samstarfs og þannig opnist nýir möguleikar á að auka fjöl- breytni starfseminnar. ■ Borgin f ramselur/15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.