Morgunblaðið - 03.01.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.01.2000, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 PtogttttlWtoftlft 2000 Á tímamótum eins og þeim sem nú eru að ganga í garð horfa menn bæði fram og aft- ur. Ártalið 2000 gefur ímynd- unaraflinu lausan taum og eðlilegt að slíkt ártal kalli á margt það sem gæti verið hnýsilegt til skoðunar. Sam- tímaheimildum var ekki til að dreifa um þá atburði sem urðu á íslandi þegar árið 1000 rann upp, um þau efhi var skrifað síðar. Þá var Ólafur konungur Tryggvason í óða önn að kristna íslendinga, eins og kunnugt er, nú er engu slíku úl að dreifa og stóratburðir á við kristnitökuna ekki í augsýn. En leyndardómsfullur blær er yfir þessum ártölum báð- um, bundinn við trú og fyrirheit. Margs er að minnast þegar ártalið 2000 blasir við. Morg- unblaðið var stofnað 2. nóvember 1913 og er það gríðar- leg heimild um þá öld sem við erum nú að kveðja. Slíkri samtímaheimild var ekki til að dreifa fyrir þúsund árum. Það væri að æra óstöðugan að fjalla um alla þá atburði sem blaðið hefur sagt frá á þessari öld og greina frá hverju því sem athyglisvert er á þessum tímamótum. Það verður láúð framtíðinni efúr. Hér eru aftur á móti rifjaðar upp nokkrar þær greinar sem birzt hafa í blaðinu á þessu tímabili, þær eru valdar af handahófi og sem dálítil vísbending um efni blaðsins á þessum liðnu áratugum. Þessu er safnað saman í þeirri trú að lesendur hafi áhuga á ýmsu því sem blaðið hefur birt og því ekki frágangssök að rifja það upp. En á það skal lögð áherzla að hér er ekki um úrval að ræða, langt því frá, einungis súklað á stóru og sýnd dæmi sem enn mætú hafa af nokkra ánægju og fróðleik. Þessi sýnishom af efni blaðsins em eins og dropi í hafi, svo fjöl- breyúlegt og mikið að vöxtum sem blaðið er. Tæmandi sýnishom yrði efni margra blaða, svo að ekki sé talað um upprifjun allra þeirra atburða sem fjallað hefur verið ítar- lega um í Morgunblaðinu. Hin sfðari ár hefur blaðið auk þess verið einskonar samkomutorg þar sem þúsundir manna hafa láúð til sín heyra með ýmsum hætú, ekki sízt í bréfúm til blaðsins og aðsendum greinum og verða dæmin í þessu blaði því færri sem nær dregur samtímanum. Þetta blað sem lesendur fá nú í hendur fjallar hvorki um markmið né meginstefnur, eins og baráttuna fýrir skóg- rækt og umhverfisvernd, endurbætur á menntakerfinu á viðreisnarárunum, sjálfstæði, landvöm og gegn gjafa- kvóta, slíkt bíður betri tíma. Það er ekki heldur annáll né fréttayfirlit, þótt stiklað sé á nokkrum minnisstæðum at- burðum og þeir rifjaðir upp, einkum í myndum. Hér er einungis sýnishorn af efni Morgunblaðsins/Lesbókar á þessari öld, þótt unnt væri að fylla mörg blöð eins og þetta með forvitnilegu og heldur bitastæðu efni. En margt vantar - og þó einkum það sem varpað gæú ljósi á félags- leg áhugamál höfunda og þá ekki síður stjómmál. En stjómmálaskrif, t.a.m. prófkjörsgreinar, eiga erfitt upp- dráttar gagnvart veðmn og vatnsgangi tímans. Þegar nær dregur er efni Morgunblaðsins og Lesbókar orðið svo yfirgripsmikið að ógjörningur er að henda reiður á því af einhverju viti. Slíkt krefðist mikillar yfirlegu og óþrjótandi vinnu sem bfður seinni tíma. Margir munu því sakna minnisstæðra skrifa úr sópdyngju blaðsins, sem ekki em tök á að birta nú. Auk þess kemur gamalt efni, að mestu gleymt, meir á óvart en það sem nýrra er og í fersku minni; t.a.m. vekur það athygli að farið er að skrifa um tónlistarhús uppúr 1940 og flutning Reykjavíkurflug- vallar eftir 1950. Þá mega menn vel ígrunda þau orð að sýna eigi Þingvöllum þá auðmýkt sem staðnum sæmir, hann kallar á hljóðláta helgi og hátíðlega. Þá má einnig sjá að löngum hefur verið skrifað um varnarmál og sitt sýnist hverjum um listgagnrýni. Síðast en ekki sízt þá hafa skáld og rithöfundar látið mikið að sér kveða hér í blaðinu. Þeir eru því harla fýrirferðarmiklir í þessari útgáfu. Margar ágætar ljóðaþýðingar hafa birzt í Lesbók, en við þeim er ekki snert í þessu blaði. Til fróðleiks má geta þess að í skýringum við Jöklajörð Einars Benediktssonar segir í Ljóðmælum 1945 að kvæðið hafi ekki komið áður út á bók, en þess geúð að það hafi verið prentað í Lesbók Morgunblaðsins 9. ág. 1931, 6. árg. 31. tbl. bls 243. „Þá stóð sem hæst Græn- landsdeilan milli Norðmanna og Dana, þetta er síðasta kvæði skáldsins, svo kunnugt sé." Þá er ekki úr vegi að benda á, að Guðmundur Kamban gjörbreytti Vikivaka frá því sem hann birúst í Lesbók, t.a.m. lýkur honum svo í síðustu gerðinni: Rík var gjöf sú er gaf mér Drotúnn: að gleðjast vorlangan dag við liúa týsfjólu, túnin sprotún og ú'stað sólskríkjulag, en vetrarmorgun með marr á grundum sem magnar sérhveija taug, með hélu á rúðum og svell á sundum og sól í steingeitarbaug. Hvað er ártalið? Eitthvað lætur í eyrum mér, færist nær ... hjartað syngur, og hjartað grætur, og hjartað tryllist og slær. Heyrist jódynur heim að bænum, þau hóftök ein þekki ég - ég fer mér stillt eftir grundum grænum og gesú mínum í veg: Vantraust Guðrúnar, vonsvik Kjartans, með vopnum enda sinn fund. En þetta er vísan um vizku hjartans og vonglaða íslenzka lund ... Stína rakar, og Bjössi bindur, og bóndinn hirðir sinn arð. Nú er sólskin og sunnanvindur, og Sörli ríður í garð. Athygliverð eru ummæli Haralds Böðvarssonar, útgerð- armanns á Akranesi, þess efnis að hann biðji verkafólk sitt auðmjúklega afsökunar á mistökum í launagreiðslum eða eins og hann kemst að orði: „Eins og öllum er ljóst, þá fer ekki hjá því að fyrirtæki sem gefur út ógildar ávísanir, hlýtur að tapa verulega áliti, en ég vona að það vari ekki lengi í þessu úlfelli, vegna þess að þetta var óviljandi gert og leiðrétt strax með innlausn ávísananna og vil ég nota tækifærið til að biðja þá sem hafa orðið fyrir óþægindum af þessum sökum, auðmjúk- lega afsökunar. Hér efúr munum við ekki gefa út ávísanir nema innistæða sé örugglega fyrir hendi og síðan hlaupa- reikningi Útvegsbankans var lokað, höfum við opnað ávís- anareikning í Sparisjóði Akraness." Það er annar siðferðisgrundvöllur sem þessi ummæli eru reist á en það olnbogaæði sem nú tíðkast á markaðn- um þar sem margir sjást engan veginn fyrir og skara eid að sinni köku án nokkurs úllits til umhverfisins. Þess má þá einnig geta að samtal við Harald hér í blaðinu var kveikjan að ævisögu Guðmundar G. Hagalín um hann síð- ar. Samtöl við sr. Jón Auðuns urðu einnig til þess að hann skrifaði ævisögu sína allnokkru síðar. Þannig hefur Morgunblaðið komið víða við á langri veg- ferð um þessa hnígandi öld. Ýmsir eiga efúr að sakna efnis sem ástæða væri úl að rifja upp, en það verður að bíða betri tíma. Sem dæmi má nefna að þótt minningargreinarnar í Morgunblaðinu séu harla misjafnar að gæðum leynast þó góðar og merkar greinar innan um allt það efhi, án þess hreyft sé við því í þessu blaði. Þá er ekki tekin nein gagnrýni, þótt nafn- bundin sé, ekki heldur nafnlausar greinar eða ritstjórnar- greinar, erindi eða ræður (að einni undantekinni þ.e. ræða Bjama Benediktssonar, síðar forsætisráðherra, á Þingvöllum sem hann flutú blaðalaust, en þeir Valtýr Stef- ánsson, þá ritstjóri Morgunblaðsins, gengu svo frá til birt- ingar í blaðinu), heldur einungis greinar, ljóð og sögur, sem birzt hafa í Morgunblaðinu, eða Lesbók, undir nafni höfunda sinna.Stafsetningu er haldið, svo og fyrirsögnum. Það styngi í stúf nú á dögum að segja í fyrirsögn að talað hafi verið við Elenu, dóttur Krúsjeffs, eða Nasser hefði ver- ið hæfastur arabaleiðtoga eins og samtalið við Ben Gurion, forsætisráðherra fsraels, er kynnt, samt lýsti hann því yfir að hann væri reiðubúinn að hitta Egyptalandsfor- seta og þannig varð þetta fréttasamtal í Morgunblaðinu að heimsfrétt. Þá birtist einnig í Morgunblaðinu frásögn af Þingvallaför Ben Gurions og stefnumóú þeirra Ólafs Thors þar, en hún er ekki endurprentuð hér, þótt sá atburður hafi eins og ýmislegt annað sem hér vantar, verið harla minnisstæður og á margan hátt sögulegur. En það vörðu- brot er á sínum stað á þessari löngu vegferð Morgun- blaðsins um þessa svipmiklu öld. En á þessum erfiðu dög- um kalda striðsins þótti það nógu fréttnæmt að hitta dótt- ur Krúsjeffs, sovéska einvaldsins, og það notað í fyrirsögn, þótt Elena skýrði frá þeim merku ú'ðindum, að foreldrar hennar hefðu áhuga á að heimsækja ísland, ef þau kæmu því við. Samtalið við Elenu fékkst vegna persónulegra tengsla fréttamanns við sovéska túlkinn, Vladimir Jakob, sem var með í förinni. Þá þóttu ummæli Ben Gurions um Nasser óvænt og raunar einstæð og nægilegt tilefni til fyrirsagnar. Margir slíkir stórviðburðir sóttu i'sland heim á kalda- stríðsú'munum og fylgdist Morgunblaðið rækilega með þeim öllum, hér í blaðinu voru t.a.m. samtöl við Furtsevu, menntamálaráðherra Sovétríkjanna, Mikojan aðstoðarfor- sætisráðherra, Gromykó utanríkisráðherra, fyrsta geimfar- ann, Gagarin, og höfundur samtalsins við Elenu sótti heimssögulegan fréttamannafund með Krúsjeff í París á sínum ú'ma (1960), skýrði frá honum í blaðinu og var lýs- ing á því sem gerðist í einu af páskablöðum Morgunblaðs- ins. Þá hafa birzt stór samtöl hér í blaðinu við ýmsa erlenda listamenn sem helzt hafa komið við sögu á öldinni eins og Arthur Miller, William Faulkner, Ellu Fitzgerald, Louis Armstrong, Menuhin, W.H. Auden, Steven Spender og mörg samtöl við andófsmanninn og listamanninn Ash- kenazy, auk margra annarra samtala við lista- og andófs- menn á borð við Brodský, Sinjavský, Rostropovits, Tarsis og Búkovský. Þá skal þess einnig getið að í þessa syrpu vantar að mestu ýmsar ágætar greinar efúr blaðamenn Morgun- blaðsins gegnum tíðina og væri ekki úr vegi að taka saman úrval úr þeim, svo margir ffamúrskarandi blaðamenn sem hafa unnið við blaðið, sumir látnir eða hættir störfum, aðrir í fullu fjöri. Framan af skrifuðu konur lítið í Morgunblaðið og er hlutur þeirra því rýrari en æskilegt hefði verið. Hvað sem öðru líður, heyrir allt þetta efni til öldinni sem nú er óðum að líða, það er staksteinar sem stiklað er á og ættu að gefa einhverja hugmynd um íslenzkt samfé- lag 20. aldar. Fyllri mynd og betri verður að bíða þeirra sem lifðu ekki þessi aldahvörf, en eiga einhvern tíma í framtíðinni eftir að horfa um öxl og sjá þessa fortíð svip- uðum augum og þeir sem skrifuðu atburði 9. og 10. aldar inn í sagnfræði, sögur og skáldskap. Þetta blað kemur út á fyrsta rúmhelgum degi ársins 2000, mánudeginum 3. janúar. í þvf felst engin vísbending um mánudagsútgáfur Morgunblaðsins, þótt að þeim sé unnið. Ritstjórn Morgunblaðsins hefur valið þrjá helztu inn- Iendu atburði aldarinnar og einnig þrjá helztu erlendu at- burðina og er um þá sérstaklega skrifað. Allir marka þessir atburðir þáttaskil og söguleg ú'mamót; þeir eru heima- stjórn 1904, fullveldið 1918 og lýðveldisstofnun 1944, heimsstyrjöldin fyrri, 1914-1918, heimsstyrjöldin síðari, 1939-1945, og loks lending mannsins á tunglinu 1969 (sbr. forsíðu), en ekkert sýnir betur en hún þekkingarleit okkar og þau ótrúlegu vísindalegu afrek sem unnin hafa verið á öldinni. Landlæknir mun skrifa um helztu afrek læknis- fræðinnar á öldinni og birtist grein hans hér í blaðinu á morgun. Ritstj. Fyigt úr hlaði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.