Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 65

Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 65
1913 JMur^awMíilíllí 2000 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 65. Forslag til De af Danraarks Regering og Rigsclag og af Islands Althing Forliandling om Landenes indbyrdes Stilling nodsatto Udvalg liar enstcnnnig samiet sig om det nedonstaaonde Forslag til Dansk- Islandsk Forbundslov, hvilkct indstiilcs til Godkcndelsc af do to Landcs Regcringer og iovgiveude Forsamlinger. Naar Forslagct cr vcdtaget saavci af Danmarks Rigsdag som af Islands Altliing og at Islands Voelgere vcd don i Islands For- fatningslov No. 12 af 19. Juni 1915 § 21 paabudnc Arstcmmiug, og naar dct saaicdcs vcdtagnc Forslag har opnaaet Kongcns Stad- fœstelsc, vil Loven med Indledning Iyde saalcdes: V i Ch r i' s t i a ti d en' T i en d c o. «. v. Oiire villerligt: Danmarks ltigsdag og Isiands Althing og Vœlgerc liar paa forfatningsmícssig Maade vcdtagot, og Vi ved Vort allerhöjeste Samtykke stadfœstet Dnnsk-Islnndsk Forbunðslov. I. § 1- Danmnrk og Island er frio og suveræne Stater, forbundne ■med fœlles Konge og ved den i denue Forbundsiov indeholdte ■OverenskoniBt. I Kongens Titel er begge Staters Navne optagne. . § 2' Tronfölgen er den i Tronfölgeloven af 31. Juli 1S53 Art. I og II fastsatto. Tronfölgen kan ikko œndrea uden bcgge Staters Sam- tykke. § 3. De for Danmark nugældende Bestemmclser med Hensyn til Kongens Rcligion, hans Myudighed og Kongemagtens Udövelse i Tilfselde nf Kongcns Sygdom, Umyndighed eller Ophold udenfor begge Stater skal ogsaa vrore grcldende for Islaud. § 4- Kongen kan ikko uden Danmarks Rigsdags og Islands Althings Samtykkc vcore Regent i andre Lande. § 5. Hver af Staterne for sig trœffer Bestemmelse om Statsydelser itil Kongen og Kougekuset. Frumvarp tii dansk-íslenskra ssimbandslaga. Nefndir þær, scm skipaðar liafa verið af stjórn og rikisþingi Danmerkur og alþiligi íslands til þcss að semja um stöðu landanna sín A milli, liafa i cinu hljóði orðið Asáttar um frumvarp það til dansk-islonskra sambandslaga, scm hjcr fer á crtir, og leggja til, að stjórnír og löggjafarþing beggja landa failist á það. Þcgar frumvarpið hefir náð samþykki bíeði rikisþings Dnn- merkur og alþiugis íslands og islenskra kjóscndn við atkvrcða- greíðslu, scm fyrirskipuð er i 21. gr. stjórnarskipunarlaga Islands nr. 12, 19. júni 1915, og þegar frumvnrpið, þannig samþykt, lieflr hlotið staðfestingu konungs, verða Jögin ásamt inngangi á þcssa leið: Vjer Chrietian hinn Tiundi o. s. frv. Gjörum Tcunnugt: Rikisþing Danmerkur og alþingi Íslands og kjósendur hafa á stjórnskipulegan hátt fallist á og Vjcr staðfest með aUrahrestu sam- þykki Voru eftirfarandi DansK-fslensk sambandslög. I. 1. gr. Danmörk og íaland eru frjáls og fulívalda riki, i sambandi um einn og sama konung og um saraning þann, er felst i þessum sambandslögum. Nöfn beggja rikja eru- tekin I heiti konungs. 2. gr. Skipun konungserfða er bú, er segir í 1. og 2. gr. konungs- erfðalaga frá 31. júli 1853. Konungserfðum má ekki breyta, nema samþykki beggja rikja komi til. 3. gr. Ákvteði þau, er gilda nú i Danmörku um trúarbrögð konungs og lögræði, svo og um meðferð konungsvalds þegar konungur er sjúkur, ólögráður eöa staddur utan beggja rikjanna, skulu einnig gilda á Íelandí. 4. gr. Konungur getur ekki verið þjóðhöfðingi i öðrum löndum án samþykkis rikisþings Danmerkur og alþingis íslands. 5. gr. Hvort riki fyrir sig setur ákvæði um greiðslu af rikisfje til konungs og konungsættar. þau höfðu verið samþykkt á Alþingi árið 1902, var þing rofið og boðað til nýrra kosninga. Þær voru haldnar sumarið 1903 og í kjölfarið kom þing aftur saman síðar um sumarið. Þar voru heimastjórnarlögin sam- þykkt öðru sinni og greiddi aðeins einn þingmaður atkvæði gegn þeim, sr. Sigurður Jensson í Flatey, bróð- ursonur Jóns Sigurðssonar forseta. Rök hans fyrir andstöðu við frum- varpið voru þau, að með ríkisráðsá- kvæðinu væri verið að lögfesta inn- limun Islands í danska ríkið. Seta Islandsráðherra í ríkisráðinu byggðist á dönsku stjórnarskránni, sem þar með hefði öðlast gildi á Is- landi. í ríkisráðssetunni fælist, að ráðheiTa Islands yrði í raun ráð- herra í dönsku ríkisstjóminni og yrði að fara frá völdum um leið og aðrir ráðherrar í ráðuneytinu, jafn- vel þótt hann nyti fyllsta trausts Al- þingis. Vai’ð það enn tii að styrkja málflutning þeirra, sem þannig litu á, að þegar Hannes Hafstein var skipaður ráðherra, undirritaði Deuntzer, forsætisráðherra Dan- merkur, skipunarbréfið. Þá töldu andstæðingar Hannesar og ríkis- ráðsákvæðisins ekki þurfa frekari vitna við: Hannes væri ráðherra í ráðuneyti Deuntzers, búsetan á Is- landi skipti þar engu máli. A Alþingi árið 1903 var sr. Sig- urður Jensson eini fulltrúi nýrrar en ört vaxandi stjórnmálahreyfing- ar: Landvarnarmanna. Helstu for- ingjar hennar, auk Sigurðar, vom bróðir hans, Jón Jensson, Bjami Jónsson frá Vogi, Guðmundur Hannesson læknir og Einar Bene- diktsson skáld. Baráttan gegn ríkis- ráðsákvæðinu vai’ í fyrstu helsta stefnumál hreyfingarinnar, en ekki leið á löngu, uns hún varð helsti málsvari þeirra, sem lengst vildu ganga í sjálfstæðismálinu. Arið 1904 stofnuðu Landvarnarmenn tvö dag- blöð í Reykjavík, Landvöm og Ingólf, og voru þau helstu málgögn flokksins ásamt blaðinu Dagfara, sem gefíð var út á Eskifírði. Fyrst í stað naut Landvamar- hreyfingin einkum stuðnings ungra menntamanna en eftir því sem á leið snemst æ fleiri stjórnarand- stæðingar, utan þings sem innan, til liðs við hana. Átti það ekki síst við um ýmsa þá, sem á áranum 1897-1904 höfðu fylkt sér undir merki dr. Valtýs Guðmundssonar. Hlutverki Valtýskunnar í íslenskum stjórnmálum var í raun lokið með tilkomu heimastjórnarinnar og því urðu Valtýringar að marka sér nýja stefnu. Árið 1905 tóku þeir upp nafnið Þjóðræðisflokkurinn, en margir úr forystusveit hans aðhyllt- ust stefnu landvarnarmanna í æ rík- ari mæli. Þeirra á meðal vora Skúli Thoroddsen og Bjöm Jónsson, rit- stjóri ísafoldar, en þeir höfðu verið meðal nánustu stuðnings- og sam- verkamanna Vaitýs. Á áranum 1905-1906 varð samstarf þjóðræðis- og iandvarnamanna enn nánara og sumarið 1907 héldu flokkamir sam- an fund á Þingvöllum. Þar samein- uðust þeir í einn flokk, sem hlaut nafnið Sjálfstæðisflokkurinn (eldri) og samþykktu ályktun, sem fól í sér ýtrastu kröfur íslendinga í sjálf- stæðismálinu. Heimastjórnarmönnum þótti mörgum illt að sitja undir gagnrýni andstæðinganna á ríkisráðsákvæð- inu og öllum var ljóst, að Stöðulög- in frá 1871 voru með öllu ófull- nægjandi. Því var það að er Hann- es Hafstein hélt til Danmerkur snemma árs 1906 til að fylgja Kri- stjáni konungi IX. til grafar, hóf hann viðræður við nýja konunginn, Friðrik VIII., og fór þar fram á, að ný lög yrðu sett um ríkisréttarlegt samband Islands og Danmerkur. Konungur tók máli hans vel og bauð alþingismönnum til Dan- merkur þá um sumarið. Þar hittu þeir danska ríkisþingmenn að máli og ákveðið var að konungur kæmi í heimsókn til Islands árið eftir. I þeirri heimsókn flutti Friðrik kon- ungur fræga ræðu á Kolviðarhóli, þar sem hann talaði m.a. um „ríkin sín tvö“, Danmörku og Island. Is- lendingar tóku þeim ummælum fagnandi, en ýmsum dönskum stjórnmálamönnum í fylgdarliði konungs brá illa í brún og þótti hann hafa gengið of langt til móts við sjónarmið Islendinga. Á meðan konungur dvaldist í Reykjavík sumarið 1907 skipaði hann nefnd danskra og íslenskra þingmanna til að semja uppkast að lögum um samband landanna. Þeir J. C. Christensen, forsætisráðherra Danmerkur, og Hannes Hafstein voru sjálfkjömir í nefndina, en auk þeirra áttu sæti í henni tólf Danir og sex Islendingar. Islensku fulltrúam- ir vora Láras H. Bjamason, Jón Magnússon og Steingrímur Jónsson, tilnefndir af Heimasijómarflokki, Skúli Thoroddsen, Jóhannes Jó- hannesson og Stefán Stefánsson, til- nefndir af Þjóðræðisflokki. Land- vamarmenn neituðu að tilnefna menn í nefndina, en hún var skipuð fyrir Þingvallafundinn, sem áður var getið. Sambandslaganefndin settist á rökstóla í Kaupmannahöfn í febrúar 1908 og stóðu samningaviðræður yf- ir fram í júní. Þá hafði loks náðst samkomulag um uppkast að nýjum sambandslögum og voru allir nefnd- armenn því samþykkir nema einn: Skúli Thoroddsen. Hann bar fram breytingartillögu, þar sem þess var krafist, að Island yrði viðurkennt sem fullvalda ríki í konungssam- bandi við Danmörku, að Island féngi sérstaklan farfána út á við, að taka mætti samkomulagið til endur- skoðunar að tuttugu áram liðnum og slíta mætti öllum sameiginlegum málum, öðrum en konungssam- bandinu, eftir þrjá áratugi. Þessi til- laga hlaut lítinn hljómgrunn meðal annarra nefndarmanna og því greiddi Skúli atkvæði gegn sam- bandslagauppkastinu. Ekki leikur á tvennu, að „Upp- kastið“, sem Danir og Islendingar náðu samkomulagi um árið 1908, fól í sér miklar réttarbætur fyrir Is- lendinga, og sýnt er, að Danir komu í mörgupi atriðum til móts við óskir þeirra. I texta „Uppkastsins" sagði, að Island væri sjálfstætt og frjálst land, sem eigi yrði af hendi látið, að Island og Danmörk væru í ríkja- sambandi og að nafn Islands skyldi tekið upp í titii konungs. Þá voru talin upp þau mál, sem sameiginleg væra báðum löndum og Danh- skyldu stýra, og voru það m.a. her- vamir, utanríkismál og landhelgis- gæsla. Fjárhagslegum tengslum landanna skyldi ljúka með því að ríkissjóður Danmerkur greiddi ís- lendingum eina og hálfa milljón króna, og loks var kveðið á um að Ríkisþing Danmerkur eða Alþingi gæti krafist endurskoðunar á sam- bandinu að 25 áram liðnum. Ef ekki næðist samkomulag gæti konungur þá ákveðið með tveggja ára fyrir- vara hvort sambandinu skyldi slitið að nokkru eða öllu leyti. En þótt „Uppkastið" fæli í sér miklar réttarbætur, þótti mörgum þeirra, sem lengst vildu ganga í sjálfstæðiskröfunum, þær allsendis ónógar. Kosningar áttu að fara fram haustið 1908 og varð „Upp- kastið“ helsta málið í kosningabar- áttunni. Þar héldu sjálfstæðis- flokksmenn því fram, að yrði „Upp- kastið" samþykkt þýddi það al- gjöra innlimun Islands í danska ríkið næstu 30-40 árin. Urslit kosninganna urðu þau að Sjálf- stæðisflokkurinn vann mikinn sig- ur og þegar þing kom saman árið 1909 var „Uppkastið" fellt, Hannes Hafstein sagði af sér ráðherradómi og Björn Jónsson tók við. Danir undu þessum úrslitum ► >
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.