Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 67

Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 67
1913 2000 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 67 1 1 Hugsað til þriggja ára drengs eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN 1969 Hvítt hrímið og hrúðurkarlar Hún tók þig samt aldan sem átti enn hylja þanglaust grjót, vist eftir að slokkna við sker - þótt aðfallið afmái sporin hún brotnaði senn í brimið þar sem öldur gjálpa við fót. og barst inn í dauðann með þér. Við sáum hvar stígvélin stóðu En iðan þér skilaði aftur við steina, svo írosin og tóm með augu sem lokaða bók. og þú sem í allra augum Og aldrei k\dknar við kletta varst í ætt við sumar og blóm. | sú kvika sem hafið tók. ingar fyrstu skrefin á alþjóðavett- vangi sem fullvalda þjóð og nutu þar öruggs stuðnings Dana. Sama máli gegndi í ýmsum þáttum við- skipta og í menningarmálum varð Danmörk mörgum íslendingum mikilsverður áfangastaður á leið út í hinn stóra heim. Samkvæmt ákvæðum Sambands- lagasáttmálans skyldu Danh- fara með utanríkismál Islands allt samn- ingstímabOið, en landhelgisgæslu og æðsta dómsvald, uns Islendingar afréðu að taka þau mál í eigin hend- ur. Pað gerðu þeir með stofnun Hæstaréttar árið 1919 og á 3. og 4. áratug aldarinnar komst gæsla landhelginnai' smám saman í hend- ur Islendinga. Af ýmsum yfirlýsing- um íslenskra ráðamanna á þessu tímabili er einnig ljóst, að a.m.k. flestir þeirra hugsuðu sér að taka utanríkismálin í eigin hendur svo skjótt sem auðið yrði, og að krefjast þess að Sambandslagasáttmálinn yrði tekinn til endurskoðunar eða honum sagt upp árið 1943. Heimsstyrjöldin síðari breytti mjög öllum gangi þessara mála og er ekki ofsagt, að ófriðurinn hafi hrifsað alla stjórn á atburðarásinni úr höndum jafnt Islendinga sem Dana. Þjóðverjar hernámu Dan- mörku, sem kunnugt er, 9. aprfl 1940. Þá varð konungi ókleift að fara með það vald, sem honum bai' hér á landi samkvæmt Sambands- lögunum. Af þeim sökum var Al- þingi kvatt til fundar þegar næstu nótt og voru þá samþykktar tvær þingsályktunartillögur um samband Islands og Danmerkur. Með hinni fyrri var ríkisstjórn Islands falið að fara með konungsvald á Islandi „að svo stöddu“ og í síðari ályktuninni var því lýst yfir, að Islendingar tækju utanríkismál landsins í eigin hendur „að svo stöddu". Þai' með höfðu íslendingar í raun tekið við stjórn allra sinna mála, þótt svo væri látið heita að meðferð konungsvalds og utanríkismála væri aðeins til bráðbirgða. Þegar sýnt þótti, að konungur myndi ekki geta tekið við störfum sínum í bráð, var afráðið að búa enn betur um handhöfn konungsvalds í landinu og árið 1941 var Sveinn Björnsson kjörinn ríkisstjóri. Skyldi hann fara með konungsvald á Islandi, uns mál skipuðust á annan veg. Þegar hér var komið sögu, mun fáum hafa blandast hugur um að krafist yrði uppsagnar á Sam- bandslagasáttmálanum eins og ráð var fyrir gert í ákvæðum hans. Agreiningur í þeim efnum var fremur um leiðir en markmið. Fyrsta ákveðna skref Islendinga í átt til sambandsslita við Dani var stigið er Alþingi samþykkti 17. maí 1941 ályktun þar sem því var lýst yf- ir, að þingið teldi „Island hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita við Dan- mörk.“ _ Með þessari ályktun var stefna Islendinga í málinu mörkuð, en flestir töldu þó varhugavert að flýta sér um of, m.a. vegna þess að landið var hemumið af Bretum. Með hervemdarsamningnum, sem gerð- ur var við Bandaríkin árið 1941, var þeirri hindrun rutt úr vegi, en flestir Islendingar vora þó á einu máli um að rétt væri að láta Sambandslaga- sáttmálann gilda til ársloka 1943. Þá hefðu íslendingar uppíyllt. öll ákvæði hans og yrðu ekki með réttu sakaðir um samningsrof. A hinn bóginn þótti ekki ástæða til að bíða lengur og vor- ið 1943 lagði milliþinganefnd í stjómarskrármálinu fram írumvarp tO laga um stjómarskrá lýðveldisins Islands og tillögur um afnám Sam- bandslagasamningisins. Ari síðar var lýðveldisstofnun samþykkt í þjóðar- atkvæðagreiðslu og síðasta skrefið á ferlinu var stigið á Þingvöllum við Öxará 17. júní 1944. Þá var lýðveldið Island formlega stofnað og Sveinn Bjömsson kjörinn íyrsti forseti þess. íoJ íqI Iqí H I B Y L I FASTEIGNASALA SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • VEFFANG HIBYLI@HIBYLI.IS SÍMI 585 8800 • FAX 585 8808 Ólafur Stefánsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali, Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. Margra ára reynsla í fasteignaviðskiptum. Hér erum við í hjarta borgar- innar rétt við Ráðhúsið Ertu í fasteignahug- leiðingum? Margra ára reynsla í fasteignaviðskiptum. Bjóðum viðskiptavini velkomna á nýrri öld. Óskum eftir öllum stæröum og gerðum eigna á söluskrá. -r, Kaupendur á skrá aö ýmsum gerðum húsnæöis. w, j ■ Skoðum og verömetum samdægurs. j Í Osturinn verður fyrst tii í Miðausturlöndum - fyrir tilviljun segir þjóðsagan. Hómer ritar Odysseifskviðu. Þar má meðal annars finna uppskrift að Feta-osti, nauðalíka þeirri sem er notuð enn í dag. Elstu ritaðar heimildir um Gráöaost eru rómverskar. Rómverjar stunduðu vísindalega ostagerð og höfðu gjarnan sérstakt ostaeldhús til ostagerðar í hýbýlum sínum. A miðöldum voru það einkum munkar sem fengust við að gera osta. Hjá þeim voru föstur tíðar - kannski eiga þær sinn þátt í því að þeir finna upp marga af þekktustu og Ijúffengustu ostum heims. 23^ Gouda er lítið hollenskt þorp. Á litlu sveitabæjunum í nágrenninu eru búnirtil gómsætir samnefndir ostar. Karlamagnús bragðar Brie-ost á ferð sinni um Brie-hérað og hrífst svo að hann lætur senda ostinn til sín reglulega upp frá því. •S ■I Ifií ijf Mysuostur er talinn elstur allra osta á Norðurlöndum. Víkingar hafa hann með sér á ránsferðum sínum því þeirtelja hann auka hugrekki og úthald. Port Salut kemur fram á sjónarsviðið í samnefndu frönsku klaustri. Emmentaler er orðinn til en fær ekki það nafn fyrr en 250 árum seinna. Árið 1972 birtist hann svo á íslandi undir nafninu Óðalsostur. Hollenski Edam-osturinn fær rauðu skorpuna sína. Hér er komin fram fyrirmynd okkar heittelskaða Brauöosts! TZEŒMM Ostur og smjör eru mikilvægir gjaldmiðlar í viðskiptum þartil alþjóðleg bankaviðskipti taka við. Parmesan er algerlega ómissandi í veislum hirðfólks í Evrópu. > Ræktun tómata og kartaflna hefst í Evrópu. Það fer að verða mögulegt að gera ýmsa spennandi ostarétti! Dom Pérignon finnur upp kampavíniö. Skál! Hvareru ostapinnarnir? > Samlokan slær í gegn! Sandwich lávarður er svo ástríðufullur fjárhættuspilari að hann finnur upp samlokuna svo hann geti fengið sér að borða án þess að þurfa að standa upp frá spilaborðinu. Eina með osti, takk! Camembert verður til í núverandi mynd í Normandie í Frakklandi. Hin danska frú Hanne Nielsen býr til Havarti en íslenskir afkomendur hans eru Búri og Húsavíkur-Havarti. • Pizzan eins og við þekkjum hana sést í fyrsta sinn. Þetta er Pizza Margherita, gerð til heiðurs Margheritu, drottningu Umbertos I Ítalíukonungs og skreytt ítölsku fánalitunum: Tómötum, basilíku og mozzarellu. Ritz-kex kemur á markað í útlöndum. Sérlega gott með osti! > Gráðaostur fæst nú á íslandi. Fyrir eru brauðostur og mysuostur. • íslenskur Camembert verður til. > Vöruþróun eykst. Tilsitter og Port Salut bætast við úrvalið. • Ostneysla á íslandi er lítil á alþjóðlegan mælikvarða en á eftir að breytast næstu árin þegar farið er að véipakka osti hjá Osta- og smjörsölunni. Við það eykst úrvalið enn. Áhugi á matseld fer vaxandi og ostur er notaður í ýmsa framandi rétti. Dí > Óðalsostur er kynntur til sögu. WM Fjöldi nýrra íslenskra ostategunda kemur nú á markað á hverju ári og almenningurtekur þeim fagnandi. • Samkvæmt neyslukönnun Hagvangs borða 96% landsmanna ost! > íslendingar kunna vel að meta ostana sína. íslenskar ostategundir eru nú yfir 90 talsins. Ostneyslan er með því mesta sem gerist í heiminum. Við nálgumst óðum Frakka en þeir eiga heimsmetið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.