Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 97
1913 2000
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 97
112 SIÐUR B/C/D
!2J/
STOFNAÐ 1913
nr.tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1989
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Jóhannes Páll páff II krýpur á kné og kyssir islenska jörð við komuna til Íslands í gær.
Mtírgunhlaðið/RAX
sem þráir réttlæti og frið
- sagði Jóhannes Páll páfí II við komu sína
JÓHANNES Páll páfi II sagði við komu sína hingað til lands í gær að íslendingum bæri
að halda fast við þau háleitu gildi sem mótað hefðu sögu þeirra sem kristinnar þjóð-
ar. „íslendingar hafa því mikið að gefe heimi sem þyrstir í sannleika og vill setja rétt-
iaeti, frið og samkennd allra manna í iiásætið/' sagði páfi og kvað heimsbyggðina alla
standa frammi íyrir örlagaríkum ákvörðunum. Þetta er í fyrsta skiptí sem trúarléið-
togi kaþólskra manna kemur tíl Islands og fyrsta hirðisheimsókn páfa tíl Norður-
landa. Hans heiiagleiki mun dve^ja hérá landi í tæpan sólarhring og syngur messu í
ðag, sunnudag, við Kristskirkju i Reykjavík áður en hann heldur af landi brott um
hádegisbil.
Kaldir vindar blésu um Keflavíkurflug-
völl er Frónfari, Boeing 727 þota Flug-
éiða, lenti þar klukkan 12.48 í gærdag en
tingað kom Jóhannes Páll páfi. frá Tromsö
i Noregi, þar sem hann söng messu í gær-
rnorgun. Fiugvélin var skreytt fánum Páfa-
gatðs og fslands. Skömmu síðar gekk páfi
niður landganginn, kraup á kné og kyssti
íslenska jörð. Steingrímur Hermannsson for-
ssetisráðherra, Jón Baldvin Hannibalssori
utanríkisráðherra , Halldór Ásgrímsson
tórirjumálaráðherra, biskup íslands, hr. Pét-
ur Sigurgeirsson, og hr. A.lfred Jolson, bisk-
nþ kaþólskra hér á landi, tóku, ásamt fleir-
um, á móti páfa og buðu hann velkominn
til Islands. Með páfa í för er um 30 manna
fylgdarlið auk um 50 blaðamanna en alls
inunu um 100 erlendir blaðamenn fylgjast
með heimsókninni.
Steingrfmur Hermannsson flutti því næst
ávarp og sagði baráttu páfa fyrir friði og
bættum lífslqörum hafa vakið aðdáun íslend-
inga. „Við styðjum heilshugar baráttu yðar
gegn fátækt, hungrí og ofbeldi, og óskum
yður alls velfarnaðar í útbreiðslu hins kristna
orðs." í ávarpi stnu lagði Jóhannes Páll páfi
einkum áherslu á sögu kristinnar trúar á
íslandi, menningararfleifð þjóðarinnar og
nauðsyn þess að allir kristnir menn hlýddu
boði Guðs um sættir og samlyndi. „Verum
verkfærí í höndum Guðs sem vill sætta oss,"
sagði páfi og kvað íslendinga hafa mikið
fram að færa til þjóða heims sem þráða
réttlæti og samkennd allra manna og
kvenna. Lokaorð sín mælti páfi á íslensku
ér hann sagði „Guð blessi ykkur öll."
Um 250 manns fylgdust með athöfninni
utan girðingar en böm úr kaþólska söfnuðin-
um í Reykjavík fögnuðu páfa og héldu á
lofti fánum Páfagarðs, íslands og Póllands.
Hans heilagleiki. snart enni bamanna og
mælti til þeirra blessunarorð áður en hann
heilsaði sendimönnum erlendra ríkja hér á
landi.
Að móttökuathöfninni lokínni hélt bflalest
páfa til Bessastaða til fundar við frú Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta íslands. Forsetinn
ræddi einslega við páfa í um stundarfjórðung
en Jón Baldvin Hannibalsson átti fund með
Cassaroíi kardínála, sem gengur páfa næst
að völdum innan veggja Páfagarðs.
Frá Bessastöðum hélt páfi ásamt fylgdar-
liði til Reylcjavíkur til fundar við um 500
manns úr kaþólska söfnuðinum. Hr. Alfred
Jolson biskup kaþólskra bauð páfa velkominn
en hann mun gista í bústað biskups að
Landakoti.
Um klukkan 17.40 hófst samkirlquleg
guðsþjónusta á Þingvöllum þar sem. biskup'
Islands, hr. Pétur Sigurgeirsson, og Jóhann-
es Páll páfi fluttu báðir predikun. Guðs-
þjónustan fór fram á Efri Völlum en þangað
var gengið niður í gegnum Almannagjá.
Páfí snæddi kvöldverð í biskupsbústaðnum
að Landakoti en klukkan hálf nfu f dag,
sunnudag, syngur páfi messu við Landakots-
kirkju. Messan 'stendur f tæpa þijá klukku-.
tíma og fer fram á latínu, ensku og íslensku.
Messunni lýkur með altarisgöngu og bæn
og blessun páfa. Eftir messuna heldur páfi
til Keflavfkurflugvallar en næsti viðkomu-
staður hans er höfuðborg Finnlands, Hels-
inki. Þaðan heldur páfi á þriðjudag til Dan-
merkuren Norðurlandaförinni lýkur í Svíþjóð
næsta laugardag.
Sjá einnig fréttir um íslandsferð
Jóhannesar Páls páfa II á blað-
siðum 2, 12, 13, 14, 15, 20 og 36.