Morgunblaðið - 03.01.2000, Side 99

Morgunblaðið - 03.01.2000, Side 99
1913 2000 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 99 Jerúsalem [ - gimsteinn allra helgidóma] eftir PÉTUR OTTESEN 1922 Jerúsalem er nú hröðum skrefum að breytast í nýtízkustórborg en ekkert getur raskað þeirri helgi, sem þar hvílir yfir fortíðinni.... Eg og ferðafélagar mínir fórum til Jerúsalem frá Tel-Aviv. Það er 70 km vegalengd milli þessara borga, fjölmennustu borgar lands- ins og höfuðborgarinnar. I Jerúsal- em, hluta Israels af borginni, eru 170 þús. íbúar. Þar hefur ríkis- stjórnin aðsetur sitt, og þar býr forsetinn. Þar er þjóðþingið háð. Þar hefur æðstu menntastofnun landsins, háskólanum, verið kjör- inn staður. Israelsmenn hafa sýnt þessari fornhelgu borg mikinn sóma og viðurkenningu með því að helga henni svo stóran hlut í lífi sínu og starfi í hinu endurheimta föðurlandi sínu. Leið sú, er vér fórum tO Jerúsal- em, liggur fyrst eftir jafnlendi, gróðurríkum lendum, alsettum byggðahverfum. En smám saman fer leiðin að liggja á brattann, því að Jerúsalem er 900 metra yfir sjávar- máli. - Neyzluvatn Jerúsalems- borgar er leitt um 50 km veg, og er vatnið tekið úr brunnum við rætur fjallanna skammt þar frá, sem leið vor liggur. Eru þar aflstöðvar mikl- ar, sem dæla vatninu til borgarinn- ar. Minjar um hildarleikinn Meðfram veginum upp hæðimar gefur að líta heldur óhugnanlega sjón. Það eru raðir af leifum skrið- dreka og brynvarðra bifreiða, sem liggja þar á víð og dreif á stóru svæði. Er ekki hirt um að fjarlægja þetta „brak“ - það er látið liggja þar, sem við það var skilið í önd- verðu, sem talandi tákn um þann grimma og vægðarlausa hildarleik, sem Gyðingar urðu að heyja við Araba, er þeir hófu árás á þá eftir valdatökuna. -Vegurinn upp hæð- irnar er nokkuð brattur sums stað- ar, en þó hvergi svo, að hann sé beinlínis óhægur fyrir umferð bif- reiða. AUs staðar ber fyrir auga handaverk mannanna til þess að klæða landið gróðri og auka grósku þess og frjósemi. En í fjallshlíðun- um er þetta verk erfiðara en á flat- lendinu, og verður að hafa annan hátt á. Þar eru búnar til láréttar, mismunandi breiðar skákir langs eftir fjallshlíðunum og grjótinu, sem rutt hefur verið úr landinu, hlaðið í garða milli skákanna. Sökum þess, hve lítið rignir í Israel, verður allt gróðurlendi að vera lárétt, svo rak- inn haldist betur í því. í brattlend- inu stöðvast regnvatn ekki. - Mikil ræktun er hafin í fjallshlíðunum og verður að flytja þangað vatn í píp- um langan veg frá öflugum dælu- stöðvum til þess að vökva þessar gróðurlendur. - Það liggur mikið starf og útsjónarsemi á bak við þetta allt saman, en þegar því er lokið, tekur náttúran við, hið milda loftslag og mikli sumarhiti, og vinn- ur verk sitt vel og trúlega og skilar íbúum landsins ríkulegum jarðar- gróða. Tákn fjandskaparins Það vekur hjá manni einkenni- legar tilfinningar að heimsækja þessa sögufrægu borg. I meðvit- und vorri renna saman frásagnir af því, hvernig þetta leit út í önd- verðu, þegar sagan var skráð, og hvernig þetta birtist nú fyrir sjón- um vorum. Enda þótt hér sé að sjálfsögðu orðin ærin bylting á - tímans tönn vinnur sitt verk, þótt skemmra sé um liðið - þá er það nú svo, að jafnskjótt og maður stígur fæti inn fyrir múra Jerúsalems- borgar, þá hefur maður gengið á vald hinna fomu sagna og lifir og hrærist í þeirri veröld, sem þær hafa mótað í huga vorum. Vér þurf- um beinlínis að skipta um skap til þess að geta gert oss grein fyrir síðari tíma byggingum á þessum stað, hversu rismiklar og skraut- legar sem þær eru. Það er hvort tveggja í senn öm- urleg og átakanlg sjón að koma að gaddavírsgirðingunni, sem klýfur borgina, þennan helgidóm, í tvo hluta. Landamærin milli Araba og Gyðinga í borginni eru mörkuð með þessum hrollvekjandi hætti. Okkur, sem þama voram á ferð, 19 7 4 # íslendingar héldu þjóðhátíð á Þingvöllum víð Öxará sunnudaginn 28. júlí til að minnast ellefu alda byggðar í landinu. Talið er að 55 til 60 þúsund manns hafi sótt hátíðina, eða nálega fjórðungur íslensku þjóðarinnar. Fundur var settur í sameinuðu Alþingi á Lögbergi klukkan 11 árdegis í glampandi sólskini. Þar var samþykkt með 60 samhljóða atkvæðum að verja á næstu fjórum árum þúsund milljónum króna tll gróðurverndar. ,----------------------------------------------------------------------- | Þjóðhátíð á Þingvöllum Morgunblaöið/Ólafur K. Magnússon rann til rifja að sjá saklaus börn vera að leika sér sín hvoram meg- in við gaddavírinn, þetta tákn fjandskaparins og hefnigirninnar, en mega ekkert hafa saman að sælda. Og að þetta skuli geta átt sér stað á þeim stöðvum, þar sem mannkyninu var fyrst fluttur boð- skapurinn: „Elska skaltu náungann sem sjálfan þig“. Við gröf Davíðs konungs A sjónarhæð, sem er þarna við landamærin, getur maður rennt augunum yfir merka sögustaði, sem eru á Arabasvæði borgarinn- ar. Þar sér maður Golgatahæðina, Olíufjallið, aðalhof Múhameðstrú- armanna, sem reist er á sama stað og höll Salómons konungs stóð í næsta nágrenni við grátmúrinn. Við komum í musteri Davíðs kon- ungs uppi á Zíonsfjalli. Aður en stig- ið er fæti inn í musteri þetta, verða þeir sem þangað leita að kaupa sér litskrúðugar kollhúfur til þess að bera á höfði sér meðan verið er þar innan veggja. Þetta er mikil höll. - Undir musterinu era miklar graf- hvelfmgar og er ekki öðram hent en þeim, sem vel kunnugir era að Minningarhátíð Jeanne d’7\rc eftir THORU FRHÐRIKSSON lg22 Ymsir þeir, sem vora viðstaddir hátíðahald- ið í Landakotskirkju fyrir Jenne d’Arc og ekki skyldu ræðu þá sem presturinn Le Roux flutti við það tækifæri hafa látið í ljósi ósk um að hún væri birt í þýðingu og hefur mjer því komið til hugar að biðja Morgun- blaðið fyrir útdrátt úr ræðunni sem þó að- eins getur orðið stuttur. Ræðumaður byijaði á að skýra frá að stjóm Frakklands fyrirskipaði í fyrra hátíða- höld 8. maímán. ár hvert tU minningar um meyna frá Orléans, sem dýrðling og þjóð- hetju. Gat hann þess, að innanríkisráðherr- ann hefði komist svo að orði í ræðu sem hann flutti við hátíðahöldin í París í fyrra: „Hinu helga nafni Jeanne d’Arc, hinum glæsilegu en þjáningarmiklu forlögum henn- ar og frábærlegu ímynd æskufegurðar hreinleika, sem hún var, eigum við að þakka þessa hátíðlegu og helgu stund, er í hjarta mikiilar þjóðar bærist ein og sama hugsjón." Því næst lýsti hann Jeanne d’Arc, hern- aðaryfirburðum og frábærlegum dygðum hennar. Sautján ára gömul kom hún til Chinon á fund konungs og bar þá vopn eins og vanur hermaður og fanst hertoganum af Alengon svo mikið um að hann gaf henni herfák, og kom þegar í ljós, þótt hún væri algerlega óvön, að hún kunni ágætlega að stjóma honum. En gat það þó komið til mála, að trúa henni fyrir heilum her? Þegar hún var spurð, hvort hún gæti fært nokkrar sönnur á ætlunarverk það, er hún þóttist hafa, svaraði hún: „Fáið mjer vopnaða menn og sendið mig til Orléans og jeg mun sýna yður kraftaverk þau, sem mjer er ætl- að að framkvæma." „Yður er ekki ókunnugt," mælti ræðu- maður: „hversu hikandi kirkjan var, er hún átti að dæma um hina helgu köllun Jeanne d’Arc, en hún viðurkenndi og samþykti í Poitiers, að henni væri það hlutverk falið, að frelsa Frakkland. Verður að taka það fram, að það er sá eini dómur sem sjálf kirkjan hefur lagt á gerðir Jeanne d’Arc á meðan hún lifði. Því að klerkur sá, sem átti sæti í dóminum í Rouen fór þar ekki með umboð hinnar kaþólsku kirkju. Þegar til Orléans kom, stóð hún oft eins síns liðs og á öðru máli en foringjarnir í hemum, en ávalt kom í ljós, að það var hún sem hafði á rjettu að standa. Að dómi þeirra, sem hemaðarþekkingu hafa, var vöm Orléans afreksverk frábærrar hernað- arsnildar.“ Lýsti ræðumaður glögglega hugprýði hennar og hyggindum og hvernig henni iðu- lega tókst að rjetta við aftur bardagann, þegar herforingjunum hafði orðið á einhver mistök. En þrátt fyrir miklar áhyggjur sínar og erfiðleika brást aldrei að hún væri glöð og gæti haft gamanyrði á vörum. Þegar hún eitt sinn tók eftir því, að hertoginn af Alengon ljet á sjer sjá ótta fyrir vopnum Englendinga, kallaði hún til hans: „Ertu hræddur göfugi hertogi, veistu ekki, að jeg hefi heitið konunni þinni því, að þú skulir koma heim aftur heill á húfi.“ „Hún er guðdómleg í hegðun sinni, bæði að sjá hana og heyra,“ ritar hertoginn af Alengon. Já, hún var guðdómleg og eins og drottinn vor Jesús Kristur gerði hún að eins guðs vilja; sem hún mundi í rósemi bænarinnar. Hún var helg fyrirmynd fyrir hermennina, svo að hersöngur þeirra breyttist í lofsönginn „Veni creator" („kom skapari heilagur, andi“). Guðlast heyrðist ekki meðal þeirra og henni tókst jafnvel að venja gamla hershöfðingjann La Hire af því að blóta. Hertogann af Alengon og fjelaga hans leiddi hún að borði drottins og fjekk því til vegar komið, að sunnudagurinn var helgur haldinn í herbúðunum og bænagerð- ir hafðar um hönd. Ræðumaður minntist á, að oft hefði kom- ið fyrir í veraldarsögunni, að skírlífar meyj- ar hefðu þannig sýnt æðri köllun til þess að vemda þjóð sína og taldi ýms dæmi þess. Því til þess að vera góður hershöfðingi, þarf að hafa glögt auga, og meyja með hreint hjarta, er fljót og glögg að sjá. Engin þoka er í sál hennar eða ástríður í hjarta hennar, sem skyggja fyrir henni Ijósið frá hæðum. Ræðumaður sagðist ekki þurfa að rekja þrautarferil hennar. Rógborin, svikin, ofur- seld, dæmd til dauða og brend hefur hún getið sjer rjett til að vera heiðrað af öllum, og um allan aldur mun blessuð verða minn- ing meyjarinnar frá Orléans. En til er annað en mærin frá Orléans, sem einnig er rógborið feykilega, rækilega og smánarlega rógborið. Það er Frakkland. Upp á það hefur verið borið að böm þess væra orðin veikluð og úrkynja og að þjóð- inni væri nauðsyn á nýrri og kröftugri kyn- slóð. Þeh' sem hafa sagt þetta hafa farið með lýgi. Blóð sona þinna, Frakkland, hróp- ar hátt, að þú átt hetjur þúsundum saman. Það hefur verið borið upp á þig, að þú hafir glatað trú feðra þinna, að þú hafir varpað í sorp gjálífsins krónu skímar þinn- ar, og að lofsöngur bænarinnar væri hættur að hljóma frá kirkjum þínum. Þeir sem hafa sagt þetta, hafa farið með lýgi. Bænin hefur verið vopn þitt í orastun- um og stoð þín í þrautum hins langa ófriðar. I þessi fjögur ár skelfingar og angistar, hef- ur bænin hljómað í söng barna og andvörp- um mæðra og ekkna og stigið upp frá djúp- um skotgröfum og flugvjelum hátt í loft uppi. Her þinn hefur verið rægður, föðurland mitt, ómerkir rithöfundar hafa viljað gera lítið úr ættjararást hermanna þinna og gera ekki úr henni annað en dýrslegt æði. Hver sem það segir fer með lýgi. Nöfn hetjanna frá Dixmude, frá Ypres, frá Marne og Ver- dun mun sagan geyma frægðarljóma. Hvorki forarleðja skotgrafanna, nje aurkast rógberanna mun geta látið neitt falla á and- lega yfirburði þeirra. Látum okkur þá ákalla meyna frá Or- léans og bijða hana að gegna enn köllun sinni og eyða róginum. - Og vjer, synir Frakklands spillum því ekki með trúar- skorti voram og andleysi, að sífelt megi endurtaka sig það kraftaverk sem ávalt hef- ur komið í Ijós, að Frakkland reis við aftur þótt það sýndist dauða nær.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.