Morgunblaðið - 03.01.2000, Side 102

Morgunblaðið - 03.01.2000, Side 102
102 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 PtrpmMnMtr 2000 öldum saman nefnd undirgangurinn, og svo ætti að nefna þau nú, en í fomöld og fram eft- ir miðöldum voru þau kölluð forskáli. Þeirra er fyrst getið í því sambandi, er Orækja Snorrason fór með her manns heim á staðinn hinn 2. jan. 1242 og settist um kirkjugarðinn, þar sem Gissur Þorvaldsson hafði búizt um með allt sitt lið, en haustið áður hafði Gissur látið drepa Snorra Sturluson föður Órækju. Skálholtskirkjugarður hefur sýnilega verið hár og ætlaður til þess að nokkru leyti að þar mætti verjast, ef ófrið bæri á höndum. Svo er að orði komizt í Sturlungu, að Órækju menn „sóttu norður eftir forskálanum, þeim er til kirkju er”, og hafa þeir bersýnilega ætlað að nota hann sem brú upp á kirkjugarðsvegginn, en erfítt var að fóta sig á forskálaþekjunni, sem bæði var mjó og svelluð. Eftir þetta er undirgangsins ekki getið í varðveittum heim- ildum fyrr en í virðingu staðarins 1541, en á 17. og 18. öld er hans margsinnis getið. Al- mennar líkur mæla með því, að gangur þessi milli húsa og kirkju hafí verið á sama stað frá upphafi vega til hins síðasta. Lá hann frá bæj- arhúsunum í norðaustur til kirkju, og var þar gengið úr honum upp tröppur upp á kirkju- gólfið framanvert. Við fornleifagröftinn í Skál- holti var hann rannsakaður eftir því sem kost- ur var á. Hann hefur verið rösklega 20 metrar að lengd og um 1,25 metra breiður og sjálf- sagt það hátt undir loft, að vel væri mann- gengt. Gólf hans fannst óhreyft með öllu og var lagt hellum, en undir þeim er haglega út- búið lokræsi til að taka við veggjaruna og jarðvatni, sem þama getur látið mikið að sér kveða, því að vatni steypir af klöpp þeirri, sem allur austurhluti Skálholtskirkju stendur á, en göngunum hallar mikið frá kirkju til bæjar, sökum hæðarmismunar í landslagi. Auk gólfs- ins stóðu miklar leifar af veggjum gangsins, svo að enginn vafi er á, hvernig þetta hvort tveggja hafði verið. Allmikill salur er undir framanverðu gólfi hinnar nýju kirkju, og þótti rétt að gera hinn foma gang þannig úr garði, að hægt væri að ganga eftir honum frá hinu foma bæjarstæði og inn í þennan kirkjusal. Haustið 1958 var gangurinn því hlaðinn upp, hið gamla gólf látið haldast óbreytt og allt sem nýtilegt var af gömlu undirstöðunum, og síðan reist þar þak eftir því sem bezt varð við komið, og svo búinn er nú þessi fomi gangur til sýnis í Skálholti, gólf og veggir mjög eins og áður var, en þak öðru vísi upp gert af hag- kvæmdarástæðum. Þykir mörgum nokkurt ævintýri að ganga þennan langa gang úr kirkju eða í og stíga fótum á þær sömu hellur, sem frægðarmenn staðarins á fyrri öldum hafa gengið. Ef marka má þjóðsögur, hefur mönnum stundum ekki verið rótt innanbrjósts þegar þeir vom að paufast þennan skuggalega gang með lítið eða ekkert ljós, og sagnir em til um ýmislegt, sem þar á að hafa gerzt. Svo segir til dæmis séra Jón Halldórsson, er hann getur staðarbranans 1630, þó að Oddur bisk- up Einarsson geti þess raunar ekki sjálfur, að tildrög þessa hörmulega brana hafi verið þau, að allt fólk staðarins hafi verið í kirkju að hlýða messu, nema kerling sú, er Guðrún hét, síðar auknefnd brenna; átti hún að kynda kakaolfn í biskupsbaðstofunni, kveikti upp í honum og fór síðan upp í kirkju til þess að hlýða nokkru af predikuninni, settist við und- irgangströppumar, en þá fór ekki betur en svo, að hún féll í svefn. Vissi enginn fyrri til en kirkja fylltist af reyk og staðurinn var alelda. Steinþró Páls biskups Salur sá, sem undirgangurinn opnast nú inn í, verður eins konar fomgripasafn eða minja- safn staðarins. Er þar mestur gripur og virðu- legastur steinþró sú hin mikla eða steinkista, sem fannst í dómkirkjugrunninum 1954, eins og flestum er kunnugt. Hún fannst þar sem verið hafi suðurstúka í miðaldakirkjunni. Kista þessi er steinþró sú, sem sagt er frá í sögu Páls bisk- ups Jónssonar, að hann hafi sjálfur látið út- höggva ágæta haglega og verið í lagður eftir andlát sitt. Páll biskup var sonur Jóns Lofts- sonar í Odda og systursonur og eftirmaður Þor- láks biskups helga, mikill höfðingi og glæsi- menni. Hann andaðist árið 1211. Steinþró Páls biskups er einsteinungur, höggvin í móberg og yfir henni þykkt lok úr svipuðu efhi. Hún er 210 sentimetrar að lengd og vegur með lokinu 735 kíló. Hún er breiðust framan við miðju, en dregst mikið að sér aftur eftir og bogadregin fyrir báða enda. Fremst á henni eru tveir myndarlegir sívalir stuðlar, sem líklega hafa í senn verið til hagkvæmra nota, er færa þurfti þróna úr stað, og til fegurðarauka. Ekkert skrautverk og engin áletrun er á þrónni, en formið er fagurt, hreint og stórt í sniðum. Víða sjást meitils- eða axarfór, sem bera vitni um gott handbragð steinhöggvarans, hver sem hef- ur verið, en án efa er þróin úthöggvin heima á staðnum. Ekki er nú til á Norðurlöndum nein stein- kista frá miðöldum, er jafnazt geti við þessa, og meðal íslenzkra minja mun nú naumast hægt að benda á áhrifameira sögulegt tákn en þetta hvflurúm hins glæsilega Oddaverja frá gullöld Islands. Þrónni er nú þannig fyrir komið í Skálholti, að hún blasir við og nýtur sín vel hvort sem að ofan er komið inn í sal- inn, ellegar að framan úr undirganginum. Legsteinar Með veggjum á þrjá vegi í minjasalnum era reistir upp iegsteinar sex Skálholtsbiskupa og tveir að auki, annað miðaldasteinn með áhöggvinni krossfestingarmynd, og kann hann að hafa verið legteinn, þótt ekki sjáist nú á honum letur, og hinn legsteinn Sigfúsar Þórðarsonar staðarráðsmanns, sem andaðist árið 1702. Af biskupalegsteinunum sex er steinn Odds biskups Einarssonar elztur eða frá því um 1630. Hann er ekki heill, en hefur verið úr íslenzku grágrýti og með íslenzku verki mjög snotru. Grafletrið er á latínu og fylgja nokkrar ritningargreinar úr Davíðs- sálmum: Lát sál mína lifa, að hún megi lofa þig. Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi minum. Hinir steinamir era allir mjög stórir, útlendir að efni og verki. Lítið sem ekki skemmdir. Það era steinar biskupanna Þórðar Þorlákssonar, Jóns Vídalíns, Jóns Amasonar, Finns Jónssonar og Hannesar Finnssonar. A þremur elztu steinunum era grafletrin á lat- ínu og mærðarmikil, svo sem siður var, en á steinum þeirra feðga, Finns og Hannesar, sem vora síðastir Skálholtsbiskupa, eru letrin á íslenzku. Grafskrift Hannesar biskups hefur Magnús Stephensen samið, enda er steinninn jafnframt yfir fyrri konu Hannesar, frú Þór- unni, systur Magnúsar. A steininn er þetta höggvið meðal annars: „Hann var lærðra ljós / Islands unan / allra góðra sómi / því mun og angrátt / Island spyrja / að líka hans / en lengur þreyja. / Hún var honum samvalin / að hvörri dygð / og at- gjörvi öllu / jöfn að ástsæld og eftirsýnd / - Báðum lík ekkjufrú / biskups Hannesar / Val- gerður Jónsdóttir / vífa prýði / vonar að hvfla / hér við hans síðu / undir þessum / úthöggna steini / sem hún þeirra / setti moldum. - Sú von rættist þó ekki. Ekkjan frú Valgerður giftist síðar Steingrími Jónssyni, sem seinna varð sjálfur biskup og einn af ágætustu mönn- um sinnar tíðar eigi síður en Hannes Finns- son, og hún hvílir við síðu hans. - Allir era þessir legsteinar fallegir og virðulegir gripir, sem vel sóma minningu þeirra merkismanna, sem þeir era helgaðir, og þeir njóta sín vel í minjasalnum undir gólfi hinar nýju kirkju. I þeim sal verða annars, þegar fram líða stundir, fleiri minjar um Skál- holt og sögu þess, þótt enn sé þar ekki annað en það, sem nú hefur verið talið, enda er það í sjálfu sér ærið til að gera þennan sal að merkilegum viðkomustað allra þeirra sem láta sig sögu vora einhverju varða. Gripir dómkirkjunnar Ekkert land stendur Islandi jafnfætis að sögulegum heimildum um búnað kirkna sinna á miðöldum, og er þar einkum átt við hinn mikla fjölda máldaga, sem varðveitzt hefur úr biskupsdæmunum báðum. Þeim mun hastar- legra er það, að sjálf Skálholtskirkja skuli á þessu sviði hafa goldið hið mesta afhroð. Engir máldagar eða aðrar skrár era til um gripi hennar fyrir siðaskipti. Um skrúða og gripi Hóladómkirkju era hins vegar til miklar og merkar heimildir. Þær sýna, að ótrúleg auð- legð var þar saman komin í ýmsum góðum gripum, og má öruggt te\ja að Skálholtskirkja hafi sízt verið ver búin. Ber þess þó reyndar að minnast, að tveir kirkjubranar hafa höggvið stór skörð. En þrátt fyrir allt er óhugsandi, að ekki hafi verið í Skálholtskirkju fjöldi kirkju- legra listaverka í skrúða og gripum, þegar siðaskiptin gengu í garð. Þegar fram líða stundir og farið er að telja upp eigur dóm- kirkjunnar í afhendingarbókum biskupa, sjá- um vér enn töluvert eima eftir af hinum fyrri auði. I bókum þessum er síðan hægt að fylgja gripunum eftir alla 17. og 18. öld, og þegar á allt er litið er ekki hægt annað en viðurkenna, að biskupar þessara tíma hafi haldið fast utan um þessar eigur dómkirkjunnar. Einn og einn gripur hverfur, enda margir hverjir lítt not- hæfir til kirkjulegrar þjónustu, aðrir koma í staðinn, nýir. Það er ekki fyrr en undir lok 18. aldar, þegar biskupsstóll er fluttur úr Skál- holti, að sú upplausn hófst, sem grandaði mörgum góðum hlutum kirkjunnar eða dreifði þeim út um allar jarðir, svo að ekki er nú hægt um vik að rekja ferfl þeirra. Þarflaust er að kasta steinum að neinum í þessu sambandi, það er hin sögulega rás viðburðanna, sem þama var að verki og réði atgerðum einstakra manna. Og á 19. öld týndust fáir hlutir í Skál- holti, þótt þess séu að vísu dæmi. Eftir að Fomgripasafnið var stofnað í Reykjavík árið 1863, vora nokkrir gripir teknir með biskups- leyfi úr kirkjunni og gefnir eða seldir safninu, og nú era í Þjóðminjasafninu allmargir hlutir frá Skálholti, sumir merkir og lítt skemmdir, aðrir leifar einar. Tiikomumestur þeirra er stór gylltur silfurkaleikur, sem stundum var kallaður kaleikurinn góði, og talinn er frá um 1300. Hann er stærstur þeirra miðaldakaleika, sem varðveitzt hafa á Islandi, og er aðeins einn af mörgum, sem dómkirkjan átti fyrram. Prédikunarstóll og altari En þrátt fyrir allt sem glatazt hefur og allt sem varðveitt er í Þjóðminjasafni, er þó hitt ali- nokkuð, sem aldrei hefur úr kirkjunni farið og hefur nú fengið virðulegan stað í hinni nýju kirkju. Brynjólfur biskup Sveinsson reisti hina síðustu dómkirkjubyggingu í Skálholti um 1650 og var að búa hana að gripum það sem hann átti eftir embættistíðar sinnar, en hann andað- ist 1675. Þessi kirkja var merídlegt hús, þótt ekki væri hún eins mikil og hinar eldri dóm- kirkjubyggingar. Þessari kirkju sinni útvegaði biskup marga góða gripi til viðbótar þeim sem áður vora til. Prédikunarstólinn í kirkjuna og reyndar sitt hvað fleira gaf Islands Compagnie, þ.e. Islandsverzlunarfélagið danska. Hann er enn lítt skemmdur og hefur verið lagfærður og settur sem prédikunarstóll í nýju kirkjuna. Ur þessum prédikunarstóli hef- ur meðal annars meistari Jón flutt þær ræður, sem áhrifamestar hafa heyrzt í íslenzkri kirlqu. Altarið úr kirkju Brynjólfs biskups er einnig í nýju kirkjunni, en ekld sem háaltari, heldur aukaaltari í norðurstúku, sem samsvarar norð- urstúku gömlu kirknanna, þeirri, sem kölluð var Maríustúka. A lofti þeirrar stúku hafði Biynjólfur biskup bókasafn sitt. Altari þetta er íslenzk smíð og í ágætu standi, á sinn hátt engu verri gripur en prédikunarstóllinn nema síður sé. Það er allt smíðað úr þykkri eik, og mun fyrst hafa verið málað um 1690, en þá málaði Hjalti Þorsteinsson, síðar prestur og prófastur í Vatnsfirði, margt í dómkirkjunni. Utan af alt- arinu hefur nú verið losuð ósmekkleg málning frá seinni tíð, og kom þá í ljós græn og rauð málning, mjög lífleg, þótt nú sé harla slitin. En hún fer þessum gamla hlut vel og gaman er að hafa þama þessi merki eftir handaverk séra Hjalta. Altarisstjakar og Ijósahjálmar I kirkjunni era tveir mjög veglegir altaris- stjakar úr kopar, gefnir af Islands Compagnie 1651, og stór og mikill Ijósahjálmur úr kopar, með 16 örmum í tveimur hvirfingum. Þennan Ijósahjálm lét Brynjólfur biskup steypa í Kaupmannahöfn upp úr ýmsum brotnum gömlum koparhlutum, sem til voru í kirkj- unni, en honum þótti vera tii einskis gagns. Nútímamenn mundu ef til vill fúslega skipta á þessum ljósahjálmi og hinum gömlu og brotnu koparhlutum, sem til hans var varið, en samt er hjálmurinn ágætur gripur og sómir sér vel, enda er hann beinlínis smíðaður til að vera í stórri kirkju. A tímum Brynjólfs biskups var barokkstíllinn í algleymingi á Norðurlöndum, og allt sem smíðað var í Skálholti á hans dög- um eða lagt til kirkjunnar af listgripum, var að sjálfsögðu mótað af þeim stíl. Þannig er ljósahjálmurinn og stjakamir, þannig er það litla sem til er af útskurði úr dómkirkju Brynjólfs, enda var yfirsmiður hennar Guð- mundur Guðmundsson eini lærði fullgildi meistari á barokk hér á landi. Klukkur I turni nýju kirkjunnar eru ásamt nýju klukkunum þrjár gamlar klukkur, tvær sem keyptar voru handa dómkirkjunni 1726, steyptar í Kaupmannahöfn, og hin þriðja merkileg miðaldaklukka, sem borizt hafði héðan af landi til Noregs einhvem tíma á þessari öld, en var fyrir nokkrum áram keypt af Norðmanninum Johan Faye og gefin til Skálholtskirkju. Leiða má að því nokkrar lík- ur, að hún kunni jafnvel að hafa verið ein af þeim fjölmörgu klukkum, sem til vora á sínum tíma í Skálholti sjálfu, en fullvíst er þetta ekki. Til er sitthvað fleira af gömlum kirkjugrip- um í Skálholti, smærri í sniðum og ómerkari, enda skal nú ekki hafa upptalninguna lengri. Þegar hinn gamla góði fræðimaður Brynjólf- ur Jónsson frá Minnanúpi lýsti Skálholti árið 1904 komst hann svo að orði: „Staupasteinn er nú hið eina, að kalla má, sem minnir á hinn foma Skálholtsstað.” Þarna mun Brynjólfur hafa átt við staðinn sjálfan, staðarhúsin, enda mun væntanlega vera ljóst af því sem hér hef- ur verið sagt, að enn er í Skálholti ýmislegt, sem rældlega minnir á dómkirkjuna og hina gömlu Skálholtsbiskupa. Við uppbyggingu staðarins nú hefur verið reynt að halda öllu til haga, sem eitthvert gildi hefur fyrir sögu hans. Allir sem hlut eiga að máli, haft vakandi skiln- ing á því að taka varð fullt tillit til hinna gömlu minja og leitazt við að fella þær smekklega og virðulega inn í þá nýju umgerð, sem staðurinn hefur nú fengið. Hið nýja setur að sjálfsögðu allan svip á staðinn, en við nánari kynni sést hvernig hið gamla á einnig sinn ríka þátt. Á þvílíkum stað, sem Skálholt er, veltur á miklu að vel takist sambúð hins gamla og hins nýja, og að því hefur verið stefnt. Nýja kirkjan er minnisvarði, reistur á 20. öld og bar vitni um list og tækni hennar, en minnisvarðinn stendur á traustum granni hinnar fomu dómkirkju, og hinar sýnilegu minjar, sem nú hefur verið lýst, munu gera sitt til þess að hinn forni staður með sínum nýju mannvirlqum, hljóti í vitund þjóðarinnar þann sess, sem honum ber meðal sögustaða landsins. I-------------------------------------1 Reykjavík er ekki bara... eftir KRISTJÁN ÞÓRÐ HRAFNSSON 199 5 Nokkrar snjóþungar götur sem bílar með erfiði aka, auðnarleg portin og vindbarið Lækjartorg, íbúðarhús þar sem einungis myndböndin vaka að enduðu hversdagsins vafstri. Nei, lifandi borg. Þar sem Tómas Guðmundsson gekk um í ljúfum trega, í Garðastrætinu snillingar þáðu mat, og Halldór Kiljan lét klippa sig vikulega, með kaffi á Skálanum Steinn Steinarr hugsandi sat. Og leikhúsin setja upp Shakespeare og Bubbi rokkar, og Sigurður Pálsson á bókmenntahátíðum ies, James Joyce er þýddur og Þórarinn Eldjám skokkar, og Þorsteinn Gylfason ræðir um Sókrates. Ekki einungis steypa og malbik og málmur og gler, heldur menning og tunga og þess vegna lifum við hér. ------------------ Á æðra plani eftir ELÍAS MAR 19 94 aftanvið ingólfsstyttu rís arkítektónískt hrós aðsetur æðstaréttar eiturgræn kopardós tölvurnar tafsa i blöðin sitt tæknimálfar: þós- vo þrengi að húsum það mun koma í ljós að kúnstverkið jafnast á við heilt korpúlfsstaðafjós og verður upphaf að vins- ælu viðfangi tívísjós tautar þá geirþrúður grýta galvösk framliðin drós: rós errós er rós -------♦-♦“♦------- Stokkseyri séð frá hlirði eftír ÍSAK HARÐARSON Í9'9’4 Húsin þrýsta sér inn úr þokunni í augum skerfuglsins; hann fælist ga ga ga gargandi út í kólguna undan árás strandarinnar Landið kemur brunandi á haf út og brimið rýkur um þorpið í safni lands sem leitar nýrrar hafnar Svört rafmagnslaus uppljómuð húsin, siglingaljós augu skjóta aftureldingum inn í þokuna I_____________________________________I
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.