Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 108

Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 108
108 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 ll^rigmlíIWrttt 2000 „Rjett er og að geta þess, að alveg eins og fslendingar töldu vegna sinna hagsmuna varhugavert að slíta sambandinu fyrir fult og alt á meðan á hernáminu stæði, þá töldu Bretar það eigi heldur heppilegt vegna sinna hagsmuna.“ lögfræðing í eigin nafni daga í efa, að þær væru rjettar. Aiþingi Islendinga samþykti og þegar 17. maí 1941 ályktun, sem hvíldi á greindum kenningum hinna erlendu höfunda um riftingarrjett- ^ inn, og lýsti þess vegna yfir, „að það telur Island hafa öðlast rjett til fullra sambandsslita við Danmörk“. Ástæðan til þess ekki var rift Alþingi taldi rjett Islands ský- lausan en þótti samt ekki „að svo stöddu tímabært, vegna ríkjandi ástands, að ganga frá formlegum sambandsslitum og endanlegri stjómarskipun ríkisins, enda verði því ekki frestað lengur en til styrj- aldarloka", svo sem segir í ályktun- inni frá 17. maí 1941. Hvert var „hið ríkjandi ástand“, js. sem gerði það að verkum, að Al- þingi þótti eigi tímabært að ganga frá formlegum sambandsslitum þegar í stað, þótt rjetturinn til þess væri talinn tvímælalaus? Um það leyfi jeg mjer að vísa til ummæla minna í Andvara 1941, þar sem þetta mál er rakið á hlutlausan hátt, svo að eigi hefur verið að fund- ið. Par segir: „Þótti sumum sem varhugavert væri að gera úrslitaá- kvarðanir í þessu efni, á meðan er- lendur her væri í landinu og frelsi landsins því skert með enn alvar- legra hætti en sambandssamningi þeim, sem ætlunin var að losna við. Þeir, sem svo litu á, töldu m.a. hættu á því, að lítið mark yrði tekið > á þeim samþyktum, sem gerðar væru meðan svo stæði, enda viðbú- ið, að þær yrðu raktar til stórveldis þess, sem hjer hefur her, og einmitt þess vegna óvirtar af andstæðing- um þess.“ Jeg hafði og þegar árinu áður í Andvaragrein minni 1940 bent á, að gildi ákvarðananna 10. apríl 1940 væri „hins vegar miklu meira en ella vegna þess, að þær voru teknar fyrir hemám Breta en ekki eftir. Ef þá fyrst hefði verið hafist handa um ^ þær, þá hefði verið erfitt að sann- færa nokkum um, að þær væm ekki beinlínis gerðar að undirlagi Breta, meðal annars til ögmnar hin- um ófriðaraðiljanum." Pessar tilvitnanir, sem út af fyrir sig herma ekki frá minni skoðun heldur þeirra, er þá rjeðu málefnum landsins, sanna tvímælalaust, að menn töldu varhugavert að gera úr- slitaákvarðanir í sjálfstæðismálinu á meðan landið væri hemumið, og þess vegna þótti Alþingi ekki tíma- bært að slíta sambandinu formlega strax 1941. Rjett er og að geta þess, að alveg eins og Islendingar töldu vegna sinna hagsmuna varhugavert að slíta sambandinu fyrir fult og alt á meðan á hemáminu stæði, þá töldu Bretar það eigi heldur heppilegt vegna sinna hagsmuna. Einmitt af því að Bretar höfðu hemumið landið sneri breski sendiherrann sjer til íslensku ríkisstjómarinnar og rjeð frá því, að sambandinu væri slitið þegar í stað og ráðlagði í þess stað að halda sjer alveg að ákvæðum sambandslag- anna. Ráðlegging þessi er sem sagt skiljanleg af þeirri ástæðu, að Bretar vildu ekki að þeim yrði kent um, vegna hertöku landsins, að sam- bandinu væri slitið fyrir tilskilinn tíma, þ.e. árslok 1943. Hitt er annað mál, að Bretar urðu fyrstir til þess af erlendum þjóðum að viðurkenna í verki, að sambandslögin hefðu mist gildi sitt. Því að þeir höfðu strax 10. maí 1940 sent hingað sendiherra, sem var alveg óheimilt samkvæmt sambandslögunum. Hernáminu lýkur Ástæðan til þess, að sambandinu var eigi slitið strax 1941, var, sem sagt, sú, að landið var þá hemumið og fullveldi þess þar með skert. En hemámið stóð skemur en nokkurn hafði gmnað í maí 1941. Strax í næsta mánuði var gerður um það samningur milli Breta og Bandaríkjamanna annars vegar og Islands hins vegar, að hemámi Breta skyldi af ljett og þar með vera úr sögunni sú skerðing á full- veldi Islands, sem því hafði verið samfara. I stað þess samdi Island um það við Bandaríkin, að þau skyldu taka að sjer hervamir lands- ins til ófriðarloka. Samningsgerð þessi er um margt merkileg. Sjálf sýnir samningsgerðin svo ótvírætt sem verða má, að Bretland og Bandaríkin töldu, að sambands- lögin væru ekki í gildi, a.m.k. þegar samningurinn var gerður, því að hefði svo verið, þá var með öllu óheimilt að gera slíkan samning við íslensku ríkisstjómina í Reykjavík, heldur hefði orðið að gera hann við danska utanríkisráðherrann og kon- unginn í Kaupmannahöfn. Þá er það rækUega tekið fram í samningunum, að bæði þessi stór- veldi viðurkenni „algert frelsi og fullveldi íslands", og um það samið, að Bandaríkin og Island skiptist á diplomatiskum sendimönnum, sem beinlínis brýtur í bág við fyrirmæli sambandslaganna. Að sjálfsögðu voru samningar þessir skUdir af Islendingum á þann veg, enda beinlínis orðaðir með það fyrir augum, að Bretland og Banda- ríkin viðurkendu, að höft þau, sem verið höfðu á frelsi Islands vegna samandslaganna annars vegar og hemámsins hins vegar væm úr sög- unni. Fullveldisskerdingin úr sögunni En vom þá ekki nýjar viðjar á landið lagðar með hervömum Bandaríkjanna? Enn í dag tala ýmsir m.a.s. þeir, sem betur ættu að vita, svo sem hemámið haldist enn og á því hafi engin breyting orðið frá 10. maí 1940. Oþarfi ætti að vera að fara mörgum orðum um slíkt fávisku- hjal. Að vísu em enn hermenn í landinu. En þeir era hjer ekki, eins og á meðan á hemáminu stóð, gegn beinum mótmælum íslendinga, heldur með ským samþykki þeirra. Frá alda öðli hefur það tíðkast, að á ófriðartímum hafi ríki kallað á eða tekið á móti herafla annars ríkis, sjer til vamar. Bandaríkin hafa nú bæði herafla og herstöðvar, sjálf- sagt enn öflugri en hjer, víðsvegar í breska heimsveldinu og í Bretlandi sjálfu. Engum dettur í hug að halda því fram, að fullveldi Breta sje skert með hersetu þessari. Aðstaðan er ólík, segja sjálfsagt þeir, sem bitið hafa sig fasta í, að landð sje enn hemumið. Víst er það, að Bretland mundi öflugra til varn- ar, ef Bandaríkin ætluðu að nota herafla sinn þar til skerðingar frels- is þess og fullveldis, en Island mundi, ef svo færi hjer. En rjettar- munurinn er enginn. Rjettarstaðan er hin sama hjer og þar. Og hverjum er það til góðs að vera með bollaleggingar um, að Bandaríkin kunni að ganga á gerða samninga? Enn hafa þau staðið við alla sína samninga við Islendinga. Til hvers hefðu þau og átt í þessari samningagerð, ef þau ætluðu sjer ekki að halda þá? Trúir nokkir því, að Bretland og Bandaríkin hefðu ekki getað flutt hingað bandarískt lið án okkar samþykkis, ef þessi voldugu stórveldi hefðu viljað? Það er einmitt vegna þess, að Bandarík- in vildu ekki og ætluðu sjer ekki að skerða frelsi eða fullveldi landsins, að hervamarsamningurinn var gerður. Ný utanríkisstefna En hervamarsamningurinn hafði einnig mikil áhrif að öðm leyti og braut í bága við sambandslögin enn frekara en áður var á drepið. Með honum varð gerbreyting á utanrík- isstefnu Islands. Þangað til höfðu Islendingar stranglega fylgt því fyrirmæli 19. gr. sambandslaganna, að Island lýsti ævarandi hlutleysi sínu. Af þessari stefnu leiddi algert athafna- leysi í utanríkismálum, öðram en þeim, sem varða verslun og við- skifti. Reglan var sú ein, að bíða og sjá hvað setti. Með hervamarsamningnum var í fyrsta skipti og á eftirminnilegan hátt horfið frá þessari reglu. Hlut- leysisyfirlýsingin í 19. gr. sam- bandslaganna var brotin. E.t.v. ekki þegar í stað, en að því stefnt, þar sem allir bjuggust við, að Bandarík- in mundu áður en lyki lenda í ófriðnum, svo sem brátt varð. Eigi verður um það deilt, að horf- ið var frá hinu algera hlutleysi af ríkri nauðsyn. En þama er enn eitt dæmi þess, að straumur tímans ber í brott hvert fyrirmæli sambands- laganna af öðra, og að þessu sinni áttu Bretland og Bandaríkin beinan hlut að. Mikilsverðara er þó hitt, að at- burðirnir höfðu kent íslendingum, að einangrun þeirra var úr sögunni. Þeir urðu að taka upp athafnasemi í utanríkismálum. Sjá landi sínu borgið með samningum við stór- veldin og þora að velja á milli. En þetta hlaut að leiða til þess, að íslendingum sýndist tímabært að Tvennir tímar - einstök gæði AEG AEG-tækin voru í fremstu röö heimilistækja á fjóröa áratugnum og AEG mun áfram leiöa þróun heimilistækja á nýrri öld BRÆÐURNIR ORMSSON ÉHF Lágmúla 8 • Sfml 530 2800 koma stjómarskipun sinni ög utan- ríkisþjónustu í fast horf. Þingflokkarnir telja sambandsslit tímabær Að öllu þessu athuguðu var það sjálfsagt mál, að allir þingflokkamir urðu sammála um það sumarið 1942, að þá væri tímabært að ganga frá formlegum sambandsslitum við Danmörk og endanlegri stjómar- skipum Islenska ríkisins. Þessu varð þó ekki svo skjótt lok- ið, sem fyrirhugað hafði verið, því að fyrir tOmæli Bandaríkjastjórnar var þessu frestað um sinn. Skal sú saga ekki rakin að öðra leyti en því, að skýrt skal frá því, hvað kom fram af hálfu Bandaríkjanna um rjettar- stöðu landsins, því að málaleitanir þeirra hafa verið affluttar á hinn freklegasta hátt. í fyrstu orðsendingu Bandaríkja- stjómar, sem er dagsett 31. júlí 1942, er að því vikið, að á íslandi sjeu uppi ráðagerðir um ógildingu sambandslagasamningsins milli Is- lands og Danmerkur fyrir tilskilinn tíma og þess farið á leit, að vegna hagsmuna beggja, Islands og Bandaríkjanna, sje frá því horfið, að samningurinn sje nú einhliða ógilt- ur, gagnstætt ákvæðum sambands- laganna í þessu efni. Annað og meira en þetta segir ekki um rjettarstöðuna. Ljóst er, að lögð er áhersla á, að einhliða ógilding samningsins fyrir tilskil- inn tíma er talin geta haft óheppi- leg áhrif. En hvergi er að því vikið, hvort ógildingin eða riftingin sje heimil eða óheimil smkvæmt al- mennum reglum þjóðarjettarins. Um rjettarstöðuna skifti þetta þó mestu. Islendingum var að sjálf- sögðu ljóst, að samkvæmt bókstaf sambandslaganna var ógilding þeirra óheimil á árinu 1942. Þeir bygðu riftingarrjettinn á alt öðrum reglum, en eigi síður viðurkendum í þjóðarjettinum. Hvort skilyrði til riftingar sjeu fyrir hendi sam- kvæmt þeim er, sem sagt, látið liggja á milli hluta í fyrstu orðsend- ingu Bandaríkjanna. Rjettur íslands viðurkendur Þessu næst var af Islands hálfu í ítarlegri orðsendingu m.a. gerð grein fyrir á hverju íslendingar byggðu riftingarrjett sinn. Eftir að ríkisstjórn Bandaríkj- anna hafði, að eigin sögn, „íhugað gaumgæfilega" þessa orðsendingu svarar hún með annari dags. 20. ágúst 1942, hinni fyrri sýnu ítar- legri. Þar er ekki, gagnstætt hinni fyrri, vikið einu orði að því, að Is- lendingar ætli, gagnstætt ákvæðum sambandslagasamningsins að ógilda hann fyrir tilskilinn tíma. Nú segir aftur á móti orðrjett: „Ríkisstjórn Bandaríkjanna við- urkennir, að ógilding samningsins og sambandsins og hinar fyrirhug- uðu breytingar á grandvallaratrið- um í stjórnarfari Islands, sjeu mál, sem íslenska þjóðin ætti á friðar- tímum að taka ákvörðum um, eftir eigin óskum sínum og þörfum. - Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefir ekki minstu löngun til þess að skerða á nokkurn hátt athafnafrelsi íslensku þjóðarinnar í þessu máli - ___U Meira er ekki um rjettarstöðuna sagt í þessari orðsendingu, enda geta Islendingar vart óskað skýrari viðurkenningar á rjetti sínum en þarna kemur fram. Getur nokkram dottið í hug, að ríkisstjórn Banda- ríkjanna viðurkendi beinlínis beram orðum, að íslendingar ættu að taka ákvörðun um rjettarbrot gegn Dan- mörku „eftir eigin óskum sínum og þörfum“? Eða hún talaði um „at- hafnafrelsi" íslensku þjóðarinnar til að fremja brot á alþjóðalögum? Hvorki menn nje ríki hafa frelsi til lögbrota. Það, að maður sje frjáls að einhverju, merkir einmitt að honum sje það heimilt, að það sje löglegt. Ástæður afsklfta Bandaríkjanna En úr því að Bandaríkin fallast á skoðun íslendinga um rjettarstöð- una, hvemig stendur þá á afskiftum þeirra? Nú era ekki friðartímar, heldur ófriðar. Ekki tímar ijettarins, held- ur rægivaldsins, a.m.k. á megin- landi Norðurálfu. Bandaríkin eru í ófriði, þar sem þau telja, að um alt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.