Morgunblaðið - 03.01.2000, Qupperneq 109

Morgunblaðið - 03.01.2000, Qupperneq 109
1913 2000 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1 09 v AP Suður-Afríka 19 91 • Aðskilnaðarstefna stjórnvalda setti lengi mikinn svip á Suður-Afríku. Myndin er tekin í maí; blökkumaður stingur annan til bana með spjóti á götu í Soweto, þegar barátta Inkatha frelsisflokks Zulumanna og stuðningsmanna afríska þjóðarflokks- ins var sem mest. Þjóðarflokkurinn fór með völd í 46 ár á tímum aðskilnaðarstefnunnar, allt þar til 1994 er Afríska Þjóðarráðið (ANC) vann stórsigur í lýðræðislegum kosningum. Blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela stjórnaði baráttunni gegn aðskiln- aðarstefnunni í Suður-Afríku í þrjá áratugi, lengst af úr fangaklefa sínum. Sú ákvörðun de Klerks forseta að leysa Mandela úr haldi í febrúar 1990 markaði tímamót í sögu landsins. Margir töldu að hann væri of aldraður og bitur til að geta leitt frelsisbaráttuna til farsælla lykta en það var öðru nær; hann tók strax að beita sér fyrir sáttum milli kynþáttanna og átti stærstan þátt í því að koma á fullu lýðræði í landinu án blóðsútheliinga eftir 350 ára ægivald hvíta minnihlutans. Mandela varð forseti 1994 og telst með mestu þjóðarleitogum aldarinnar vegna þess að með framkomu sinni og háttsemi eftir að hann var leystur úr haldi og alveg sérstaklega efitr að hann hafði tekið við æðstu völdum sýndi hann hinum mörgu og sundurleytu þjóðarbrotum í Suður- Afríku fordæmí umburðarlyndis og kærleika, sem gaf tóninn í samskiptum kynþáttanna. Mandela lét af forsetaembætti eftir kosningar í fyrra. g sje að tefla bæði fyrir Bandaríkin l| og Island. Þau eru að vísu viss um sigur, en þau þurfa samt á öllu að halda. M.a. telja þau sjer nauðsyn- legt að halda vináttu undirokuðu þjóðanna á meginlandinu. Þau vilja ekki gefa andstæðingum sínum færi á að rógbera sig fyrir, að í þeirra skjóli sjeu gerðar ráðstafanir, sem undirokuðu þjóðimar af einhverjum á ástæðum taki óstinnt upp. Bandaríkin hafa hervamir Is- jj lands með höndum og töldu því í| mögulegt, að Danir tæki bæði þeim og íslendingum óstinnt upp ógild- ing sambandslagasamningsins fyrir tilskilinn tíma, þ.e. árslok 1943, hvað sem öllum rjettarskoðunum liði. Eftir árslok 1943 telja Bandaríkin aftur á móti allar ástæður til hugsan- legrar gremju Dana brottu fallnar. : Þess vegna lyktaði orðsendingum Bandaríkjanna á þann veg, eftir að | Islendingar höfðu ákveðið að fresta 1 málinu um óákveðinn tíma, að hinn 14. okt. s.l. tilkynti sendiherra Bandaríkjanna hjer, að stjóm hans mundi alls ekkert hafa á móti því, að Island verði gert að lýðveldi 1944. Lýðveldisstofnun 1944 viðurkend Endalok þessara mjög vinsam- legu orðaskifta Bandaríkjanna og Islands urðu því þau, að annars veg- ar gafst íslendingum færi á að sýna, að þótt þeir mætu algert stjóm- | sldpulegt sjálfstæði sitt svo mikils, að þeir yndu illa öllum drætti þess, þá mátu þeir þó enn þá meira bar- áttuna fyrir því, að stjómskipulegt sjálfstæði smáríkjanna yrði í íram- tíðinni viðurkent og einhvers virði í reynd, en hins vegar lýstu Banda- ríkin viðurkenningu sinni á, að Is- land yrði lýðveldi 1944. Sumir kalla þetta raunasögu. Jeg kalla það stórfeldan ávinning í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. Einkum þegar athugað er, að af- nám konungdæmisins er einmitt hið eina atriði í öllu sjálfstæðismál- inu, sem efasamt er, hvort unnt er að framkvæma á strang formlegan hátt, þótt hins vegar verði eigi brigður á það bornar, að frumrétt- ur viðurkendrar fullvalda þjóðar sje að ákveða sjálf stjórnarfyrir- komulag sitt, og þar með hvort hún vill heldur hafa konungsríki eða lýðveldi. Nú er fengin ótvíræð við- urkenning voldugasta lýðveldisins fyrir réttmæti ákvörðunar Islend- inga um þetta eina umdeilanlega atriði. Þetta er því þýðingarmeira sem samhliða þessu var samþykt stjóm- arskrárbreyting, er stórlega greiddi fyrir stofnun lýðveldis og afnámi sambandslaganna. Aður en síðari stjómarskrárbreytingin á árinu 1942 öðlaðist gildi, þurfti til þessara ákvarðana samþykt tveggja þinga með þingrofí og almennum kosning- um á milli, þjóðaratkvæði og stað- festing konungs eða handhafa kon- ungsvalds. Samkvæmt hinum nýju stjórnarskrárfyrirmælum nægir samþ. einungis eins þings og stað- festing þeirrar samþyktar með þjóðaratkvæði. I þessu er m.a. fólg- ið það mjög mikilsverða nýmæli, að ekki þarf samþykki konungs eða handhafa valds hans á afnámi kon- ungdæmisins, heldur er það þjóðin sjálf, sem endanlega kveður á um þetta, svo sem vera ber. Milliþinganefndin einhuga um sambandsslit 1944 Síðari hluta ársins 1942 horfði sjálfstæðismálið því svo við, að úr sögunni virtist vera sá ágreiningur, sem um skeið hafði verið um það, hvort fara skyldi svokallaða hrað- fara eða hægfara leið. Allir, eða svo nær, voru horfnir frá því að láta sambandsslit og stofnun lýðveldis taka gildi fyr en eftir árslok 1943 nema því aðeins, að bæri að höndum sérstök atvik, sem sjálfsagt gerðu að skjótara yrði við brugðið, og höfðu menn um það einkum í huga, ef ófriðarlok yrðu fyrr en við var búist. Hinu hafði þá um langa hríð enginn haldið fram á almannafæri, að draga bæri sambandsslitin leng- ur en eitthvað fram á árið 1944, þegar þau voru heimil eftir ótvíræð- um ákvæðum sambandslaganna sjálfra. I milliþinganefndinni í stjómar- skrármálinu reyndist og svo, að þar urðu allir sammála. Höfðu einstakir nefndarmenn þó á sínum tíma, þ.e. fyrri hluta árs 1941, verið mjög ósammála um, hvort hægt eða hratt skyldi farið. Undir öruggri forystu Gísla Sveinssonar, forseta samein- aðs Alþingis, varð nefndin nú í vor einhuga um að leggja til, að sam- bandinu yrði slitið og lýðveldi stofn- að hjer á landi eigi síðar en 17. júní 1944. Um minni-háttar atriði ríkti smá- vægilegur ágreiningur. Meiri hluti nefndarinnar vildi, að forsetinn yrði fyrst um sinn kosinn af Alþingi til fjögurra ára í senn. Allir lögðu til, að vald hans yrði sem líkast valdi konungs, þó svo, að hann fengi ekki skilyrðislausan rétt til synjunar lagafrumvarpa. Að öðru leyti er stjómarskránni ekki breytt nema að því leyti, sem beinlínis leiðir af sambandsslitum, enda er ráð fyrir því gert, að nefndin starfi áfram til frekari endurskoðunar stjórnar- skrárinnar. Tillögur nefndarinnar era í sam- ræmi við síðari stjórnarskrárbreyt- inguna 1942. Er það og höfuðnauð- syn að halda þessum breytingum stjórnarskrárinnar alveg sér og blanda eigi sjálfri stofnun lýðveldis- ins inn í önnur minni háttar atriði, sem verða mættu til sundranar þjóðinni og tafar málinu. Geta menn og væntanlega nú glögglega greint, hvort það hefði orðið til fyrir- greiðslu sambandsslita, ef þau hefðu t.d. átt að tengjast við svo umdeilt atriði sem breytingu á kjör- dæmaskipun landsins. Undanhaldsómur Ef nokkuð mátti marka fyrri yfír- lýsingar og afstöðu, varð að ætla, að allir Islendingar yrðu sammála um tillögur nefndarinnar og ekki síst þá, að stofna skyldi íslenskt lýð-þ- ^ ! I I FLÍSASKERAR ' OG FLÍSAS AGIR FLÍSASKERAR 'OG FLÍSASAGIR Færum okkur fljótlega að Stórhöfða 21 (við Gullinbrú) Stórtiöfða 17, Wð Gulönbrú, sími 5é7 4844 OG FLÍSASAGIR Stórhöfða 17, við Guillnbíti, sími 567 4844 - plolriiiriJ M HCtíJt, ■■ m r* '' tu ■■ t ■I tm ■ <
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.