Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 117
1913 JtorgpmM&Mlt 2000
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 117
Á 300 ára
afmæli Handels
eftir ATLA HEIMI
SVEINSSON
1988
Margt gerir það að verkum að
mér finnst erfitt að átta mig á
Hándel og verkum hans, núna á
þrjú hundruð ára afmæli hans. I
fyrsta lagi þekki ég aðeins lítinn
hluta verkanna. Hándel var einkum
óperutónskáld, en óperur hans eru
varla fluttar lengur svo nokkru
nemi. Ég sá einu sinni óperu eftir
Hándel, - í Hamborg að mig minnir,
- annaðhvort var það Giulio Ce-
asare eða Serse, - alla vega var það
drepleiðinlegt leikhúskvöld. En mér
telst til að hann hafl samið fjörutíu
óperur auk fjölda pasticci, ieikdans-
verka og grímuballa, samkvæmt
áreiðanlegum verkaskrám. Ekkert
af þessu þekki ég. Að vísu sér mað-
ur í sönglagaheftum, byrjendabók-
um eða aríuheftum eina og eina aríu
á stangli úr öllu þessu mikla óperu-
verki, t.d. Ombra mai fu úr Xerxes
Persakonungi, sem er eitt og hið
sama og Largo, slagari allra alda,
sem jafnt dugar við bamaskírnir og
jarðarfarir. En textinn fjallar um
skuggsælt iimandi tré.
Einhverjar fleiri aríur eru
sprellifandi í námsskrám tónlistar-
og söngskóla, en hvergi nema þar.
Þær eru yfirleitt settlegar og virðu-
legar, hljómagangur er fastskorðað-
ur, laglína sem hrynjandi í full-
komnu jafnvægi. En þetta er þurr-
leg músik fremur en safarík, ekki
demónísk og óútreiknanleg heldur
hefur þessi höfundur allt sitt á
þurru eins og mislukkaðir bissness-
menn segja.
Og maður getur sagt að bókhaldið
í þessari tónlist sé í fullkomnu lagi.
Hér er ekki verið að selja svikna
vöru eða svindla á neinum eins og al-
gengt er í dag, einkum í nafhi hefð-
arinnar. Og þessi músík er líka falleg
ef menn sækjast eftir því í músík. Og
þá er aðeins eftir einkunnagjöfin,
sem sumir kalla tónlistargagnrýni og
enginn tekur mark á: nokkuð fallegt
- ekki óáheyrilegt, lætur vel í eyrum
og svo framvegis - allt eru þetta inn-
antóm og merkingarlaus lýsingarorð
„Hándel var
endalaust stældur
meðviðtað og
ómeðvitað, og
hafði þess vegna
ótrúleg áhrif á
næstu kynslóðir
tónskálda.“
illa menntaðra, óskrifandi og öfund-
sjúkra kritikera. Hvað er þetta? Fal-
legt eða glæsilegt eða hvort tveggja?
Barokkóperan er dauð og senni-
lega steindauð, með öllu sínu
maskineríi og effektum. Geldingar
spranga ekki lengur um óperusviðið
og prímadonnumar hafa misst reisn
sína, elskhugar þeirra þora ekki
lengur að láta sjá sig með þeim og
aðdáendurnir heyja ekki lengur ein-
vígi vegna þeirra.
Þetta stórkostlega apparat, sem
Hándel skrifaði fyrir, er ekki lengur
til og þær kröfur sem menn gera til
leikhúsverka eru allt aðrar nú held-
ur en í þá daga. Okkur eru framandi
þær goðumbomu og hugsjónaríku
persónur, sem Hándel leiddi fram á
sviðið. Háleitar hugsjónir og hetju-
lund fomaldar era tortryggilegar
tölvufólki, sem hugsar á forritunar-
máli í „bits og júnits“. Óperar
Hándels hafa ekki haft þann sveigj-
anleika eða hæfileika til að aðlaga
sig hinu rómantíska og nútímaleik-
húsinu. Sumir segja, og eflaust með
réttu, að mörg óperatónlist hans sé
mjög fögur, jafnvel áhrifarík, en það
litla sem ég þekki finnst mér vera
einkennilega sótthreinsað. Og þó
list sé óaðfinnanleg þarf hún ekki að
vera genial, eins og miðlungsmenn í
listinni á öllum öldum hafa fundið.
Sama er að segja um óratóríum-
ar, en þær eru náskyldar óperan-
um. Þær era um 20 að tölu og engin
lifir góðu lífi í dag, nema Messías,
meistarastykki Hándels. En á
Englandi er raunar ekki litið á
verkið, sem listaverka eða músík,
heldur „tradition" og mér lærðari
menn verða að skýra út hvað það
orð merkir á ensku.
Niðurtaðan er sú að Hándel er
nær óþekktur á tuttugustu öld. En
samt lifir hann. Hándel er almennt
álitinn einn hinna „stóru“ í tónlist-
arsögunni og gjarnan spyrtur sam-
an við Bach. Þeir voru samtíma-
menn en áttu lítið annað sameigin-
iegt. En dómur sögunnar er aldrei
endanlegur, heldur í sífelldri end-
urskoðun, goðum steypt af stalli og
önnur upphafin. Bach og Hándel
eru kannski elstu tónskáldin, sem
höfða til breiðs áheyrendahóps
vorra daga. Ótvíræður stórsnilling-
ur eins og Heinrich Schútz er nær
óþekktur utan Þýskalands. Palest-
ína er nær eingöngu fluttur og
meðtekinn í kaþólskum löndum.
Hvað þá eldri snillingar, eins og
Josquin des Prés, sem var eins
konar Schubert endurreisnarinnar,
- hvað með svaninn frá Padúa,
Luca Marrenzio, eða Gesualdo,
furstann af Venosa, - Orlando
Lassus, - Dufay svo aðeins sé
minnst á örfáa. Allir þessir snill-
ingar eru aðeins þekktir og metnir
af þröngum hóp, list þeirra er ars
reservata.
En svo var aldrei með Hándel.
Hann naut óvanalegra vinsælda um
sína daga og líka síðar. Mozart dáði
hann, endurútsetti m.a. Messías og
bætti þar við klarinettum, nýju
hljóðfæri og óþekktu á dögum
Hándels. A unglingamáli: poppaði
hann upp. Beethoven, sem flest var
betur gefið en aðdáun á starfsnaut-
um sínum lífs og liðnum (enda hafði
hann efni á því), segir um Hándel:
„Hann er mesta tónskáld allra tíma.
Ég mundi bera höfuð mitt og
krjúpa á gröf hans.“
Og menn þekktu einkum óratórí-
umar, því óperarnar var löngu hætt
að sýna á nítjándu öld, þær rykféllu
á söfnum og í bókakompum leikhús-
anna. Það hefur aldrei heppnast ►
Bogi Pétursson Bárður Tiyggvason Þórarinn M. Friðgeirs. ísak Jóhannsson Guðfinna Sverrisdóttir
sölumaöur sölustjóri sölumaður sölustjóri, atv. húsn. ritari, sölum.
Gsm. 897 4868
Þökkum viðskrptavinum okkar ánægjuleg
viðskipti á liðnum árum.
Óskum ykkur ánægjulegra stunda á komandi öld
VALHDLLr Síðumúla 27 - Sími 588 4477 - Fax 588 4479 -
1 fasteignasalaI Hetfanghttp://mbl.is/valholl/oghttp://habil.is
Rita
SKUVERSLUN
Bæjarlind 6, s. 554 7030
Eddufelli 2, s. 557 1730
Ríta tískuverslun er með fatnað fyrir konur á öllum
aldri. Til okkar geta komið ömmur, mömmur og
dætur og allar fengið fatnað við sitt hæfi. Við leggj-
um áherslu á að vera með allar stærðir, 36—56,
og sanngjarnt verð.
Verslunin leggur metnað sinn i persónulega og
góða þjónustu.
Ríta hefur verið starfrækt frá árinu 1982 í Eddu-
felli 2, Reykjavík. Opnuð var ný verslun í Bæjarlind
6, Kópavogi, í október 1999.
Eru nú verslanirnar tvær.
Ós£um öfltim oiðsÁipiavinum
oy fancfsmönnum öflum
gfeðflegs ars!
Á nýrri öld þakkar Fcisteignamiðlun öllum
viðskiptavinum sínum, nær og f]ær,
fyrir traust og góð viðskipti á liðinni öld.
* ■« R.
FASTEIGNA
m
Síbumúla 11, 2. hœb • 108 Reykiavík
Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505
Veffang: www.fastmidl.is
Netíang: sverrir@fastmidl.is
Sverrir Kristjánsson lögg. fasteignasali
BODYSLIMMERS
NANCY GANZ
Línurnar
<.