Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 119
1913 ptargpmiMrilr 2000
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 119
Almenningur á að eiga
og reka stórfyrirtækin
[Hugleiðingar um
almenningshlutafélög
eftir EYJÓLF
KONRÁÐ JÓNSSON
19 59
Grein þessi birtist í síðasta hefti
tímaritsins Stefnis og þykir Morgun-
blaðinu rétt að endurprenta hana
vegna rangfærslna Þjóðviljans í gær.
A Sambandsþingi 1957 gerðu
ungir Sjálfstæðismenn samþykktir
um stofnun opinna hlutafélaga og
almennan verðbréfamarkað. Lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins á liðriu
vori staðfesti síðan þetta stefnu-
skrárákvæði yngri mannanna sem
stefnu Sjálfstæðisflokksins.
En ótrúlega lítið hefur samt sem
áður verið ritað um þetta merka
mál. í eftirfarandi hugleiðingum
verður leitazt við að gera því nokk-
ur skil, ef það mætti verða til þess,
að einhverjir íhuguðu það frekar.
En hvað er þá átt við með al-
menningshlutafélagi, og hvað er al-
mennur verðbréfamarkaður? I fá-
um orðum mætti segja að almenn-
ingshlutafélag væri félagsskapur
stofnaður í atvinnuskyni með þátt-
töku sérhvers, sem leggja vildi fram
fé til að eignast hlut í félaginu í von
um hagnað. Og hinn almenni verð-
bréfamarkaður hefði síðan því hlut-
verki að gegna að annast kaup og
sölu hlutabréfanna og skrá verð
þeirra frá degi til dags eftir fram-
boði og eftirspum, rekstrarafkomu
fyrirtækisins, hagnaðarvoninni. Á
þann hátt gætu menn skipt á bréf-
um sínum fyrir önnur, selt þau, ef
þeir þyrftu á fé að halda til eigin
nota og svo framvegis.
Rétt er að staldra hér við og játa,
að ekkert er því til fyrirstöðu í dag
að stofna og reka opin hlutafélög,
enda þekkja menn það, að slík félög
hafa verið stofnuð með almennu
hlutafjárútboði. Á sama hátt mætti
svo segja, að hlutabréf í slíkum fé-
lögum væri heimilt að selja hverj-
um, sem hafa vildi og til þess þyrfti
engan verðbréfamarkað.
Gallinn er bara sá, að skattalög
eru með þeim hætti, að naumast er
nokkrum manni ætlandi að leggja fé
sitt í slíkt félag, nema þá af öðrum
hvötum en hagnaðarvon. Þannig er
það fyrst og fremst skattalöggjöfin,
sem breyta þarf í þeim tilgangi að
greiða fyrir stofnun almennings-
hlutafélaga og gera þátttöku í þeim
arðvænlega, þó að hlutafélagalög-
gjöfin sé einnig gölluð og þarfnist
endurbóta í sama skyni.
Gildi verðbréfamarkaðarins ætti
svo að verða ljóst af því, að hann
skráir verð bréfanna eins nærri
sannvirði og komizt verður og
tryggir þannig, að hinn almenni
hluthafi sé ekki hlunnfarinn, þótt
allir eigendur hljóti að sjálfsögðu að
taka ófyrirsjáanlegu tapi á sama
hátt og þeir njóta hagnaðarins.
Jafnframt gæti verðbréfamarkaður-
inn svo sinnt öðrum mikilvægum
hlutverkum, t.d. sölu annarra verð-
bréfa, útgáfu veðskuldabréfa, sem
hann ábyrgðist og gengið gætu
kaupum og sölum á sama hátt og
ríkisskuldabréf, o.s.frv.
Hagkvæmur rekstur
Á þessum vettvangi ætti ekki að
þurfa að fara mörgum orðum um
það, að einkafyrirtæki séu betur
rekin en ríkis- eða bæjarfyrirtæki.
Á hinn bóginn kynnu menn að ætla,
að almenningshlutafélögin væru að
því leyti millistig hins venjulega
einkarekstrar og opinbers rekstrar,
að fjöldi hluthafanna væri svo mikill
og hagsmunir hvers einstaks svo
litlir, að engir hefðu nægilega hvöt
til að veita stjómendum nauðsyn-
legt aðhald með þátttöku í kosning-
um innan félagsins og heilbrigðri
gagnrýni á fundum þess. Mundi
þannig sæta þeirra ágalla, sem hvað
mest ber á hjá stærri samvinnufé-
lögum.
Þessi hætta á þó ekki að vera
raunveruleg og ber þar margt til. í
fyrsta lagi felst mikið aðhald í hinni
daglegu verðskráningu hlutabréf-
anna og birtingu reikninga, sem
endurskoðaðir ættu að vera af full-
trúum verðbréfamarkaðarins, og
nákvæmum skýrslum um rekstur-
inn. Eftir þessu taka ekki einungis
hluthafar, heldur líka þeir, sem í leit
eru að góðum stjómendum annarra
fyrirtækja. I annan stað em þeir
fjölmargii-, sem leggja mundu það á
sig að mæta á aðalfundi eða senda
sitt atkvæði til að kjósa nýja stjóm-
endur, ef illa væri með fjármuni
þeirra farið, þótt litlir væru, enda
eiga menn þar ekkert undir velvild
stjórnendanna, heldur einungis
efnahag fyrirtækisins. En loks er
svo líklegt, að allmargir hluthafar
ættu verulega hluti í félaginu, svo
að þá skipti máli hver ársarðurinn
yrði.
Er raunar fremur ástæða til að
óttast að í einstökum félögum, ►
QieÖíieQt ifijtt M
Yfirbreiðslurnar frá Sófalist
hafa gefið mörgum sófanum og stólnum nýtt og
fallegt útlit d liðnu dri ogþökkum frdbœrar móttökur.
Við fógnum nýju dri með enn meira úrvali af
efhum og sem fýrr Idnum við yfirbreiðslurnar
heim til að mdta.
Einnig púðaver
og úrval af
skemmtilegri
gjafavöru.
S ó f a li s t
Laugavegi 92 sími 551 7111.
Verið ávalt velkomin.
■P
nelfang: faat&l ccm
Mfföte. fyaibl. ccMt
'7Ztíðu* alþfóðleqt, •fcfóléreytt óg
ske.MMtUc.0t náM í
AjésHtifttia St
tísku’foóÝÍun
^k*ánlng stenbn* tffil*.
~öó*i>nn hefist
11. /^anúa*. n.k.
ó*t pú klá* tyf+L* nsestn Stb?
Síiití 588 7575
Bifreiðastj órar
Hafið bílabænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þig akið.
Drottinn Guö, veit mér
vernd þina, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bifreiö.
í Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2,
Reykjavík, Hljómveri og
Shellstöðinni v/Hörgárbraut,
Akureyri, Litla húsinu,
Strandgötu 13B, Akureyri.
Verð kr. 200.
Orð dagsins, Akureyri
FRÁ Sálar-
rannsoknar-
félagi íslands
Miðlarnir og huglæknornir Bjorni Kristjóns-
son, Guðrún Hjörleifsdóttir, Hofsteinn Guð-
björnsson, Kristín Korlsdóttir, Lóro Holla Snæ-
fells, Morío Sigurðordóttir, Þórunn Muggý
Guðmundsdóttir og Skúli Lórentzson starfo
hjó féloginu og bjóðo upp ó einkutimo.
Friðbjörg Óskorsdóttir leiðir og heldur uton
um bæno- og þróunorhópu.
Upplýsingor, bókonir og tekið ó móti fyrir-
bænum í símu 551 8130 frú kl. 9-15 ollu
virko dugo. Eftir það eru veittor upplýsingor
og hægt er oð skiljo eftir skiloboð ó simsvoro
félogsins.
Við viljum vekja athygli ó oð hægt er að
senda okkur tölvupóst með fyrirspurnum og
fyrirbænum. Póstfongið er: srfi@isholf.is.
Við viljum þukko félögum fyrir tryggð sino og
öðrum sem boft hofo somskipti við félogið um
leið og við óskum þeim og öðrum landsmönn-
um blessunor og heillo ó nýrri öld
SRFÍ.
Guðlaugur A.
Macinússon, l/i'Pif.
K