Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 126

Morgunblaðið - 03.01.2000, Page 126
126 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 2000 Talað við Elenu, dóttur Krúsjeffs Marylin Monroe 19 5 4 • Norma Jane Mortenson, síðar Baker, en best þekkt sem Marylin Monroe, er eitt helsta kyntákn aldarinnar. Hún var ekki síður þekkt fyrir einkalíf sitt en sem leikkona. Monroe var gift hornabolta- stjörnunni Joe DiMaggio í níu mánuði árið 1954, og síðan leikskáld- Inu Arthur Miller frá 1956 til 1961. Hún lést 5. ágúst 1962, aðeins 36 ára, á heimili sínu í Los Angeles, eftir að hafa innbyrt ókjör af svefnpillum. Hér er hún við tökur á kvikmyndinni The Seven Year Itch; stendur á loftræsirist yfir neðanjarðarlest New York borgar. eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN 1964 Dætur Krúsjeffs, Júlía, eiginkona Gontars framkvæmdastjóra Kiev- ballettsins, og Elena, skruppu í gær- dag í stutta fiugferð með landhelgis- flugvélinni, og var m.a. flogið yfir Surt. Ymsir aðrir gestir voru með í ferðinni, sem tókst ágætlega að því leyti að eyjan sást vel og Surtur lét talsvert á sér kræla. Síðan var flogið yfír landið og aftur til Reykjavíkur, þar sem lent var skömmu eftir há- degið. Fréttamaður Morgunblaðsins spurðist fyrir um það í gær, hvort hægt væri að hitta systumar sem snöggvast að máli, en var sagt að þær mundu vera önnum kafnar við að skoða land og fólk. Meðal annars var ráðgert, að yngri dóttirin, Elena, færi upp að Gljúfrasteini, því Nó- belsverðlaunaskáldið hefði boðið henni í útreiðartúr um Mosfellssveit- ina. Var fréttamanni Morgunblaðs- inð boðið að slást í fórina uppeftir og tala við hana á leiðinni. I bílnum voru auk þeira Vladimir Jakob, túlkur, og Gontar, mágur Elenu. Elena sagðist varla treysta sér til að eiga blaðavið- tal í bíl, Jdví henni liði ekki vel, hvorki í bílum né flugvélum, eins og greini- lega hefði komið íram fyrr um dag- inn. Við spurðum hvað hefði gerzt í flugferðinni og þá svaraði hún: „Ég er ekki ennþá búin að ná mér eftir flugferðina, því ég var svo lasin þeg- ar flogið var yfír eldfjallið." „En hvemig leizt yður á Surt?“ spurðum við. Hún brosti eins og hún væri fegin því að Surtur væri liðið ævintýri í lífi hennar. Hún sagðist Mtið sem ekkert hafa getað notið útsýnisins úr flug- vélinni eða haft þá ánægju af ferð- inni sem til stóð. Mágur Elenu var aftur á móti ekkert miður sín. Hann lék á als oddi eins og venjulega og alla leið upp að Gljúfrasteini hafði hannekki við að biðja fréttamann Morgunblaðsins að skila þakklæti til ýmissa aðila hér á landi. Hann minntist á forsetann og ríkisstjómina, Þjóðleikhúsið, Kristin E. Andrésson, Halldór Laxness og Birgi Thorlacius. „Af hveiju eigum við að senda Birgi þakklæti?" spurðum við. „Vegna þess að hann stóð við hlið- ina á Elenu þegar hún fékk laxana í Elhðaánum í gær,“ svaraði hann. „Nú, hefði hún ekki getað dregið laxinn sjálf?“ spurðum við. „Jú, en....“ Elena hafði fylgzt með því sem fram fór, hún sneri sér við í sætinu og skaut inn í: „Ég hafði mjög gam- an af að draga laxinn, ég var ekkert taugaóstyrk," sagði hún. Og svo bætti hún því við, að hún hefði aldrei fyrr veitt físk, „en hver veit nema ég reyni það einhvem tíma aftur,“ sagði hún, og það var augsýnilegt að El- liðaárferðin hafði ná tilgangi sínum. Það var eins og dálitill sólargeisli brytist undan skýjaþykkni, þegar minnzt var á ámar og laxveiðina. Það leyndi sér ekki að hún var búin að fá „bakteríuna,“ enda sagði Þjóð- viljinn í gær - og allir vita, að Þjóð- viljinn er ekki að velta sér upp úr smámunum - „reyndir veiðimenn sögðu, að hún myndi „fljótt koma til“.“ Én Elena sjálf var ekert hátíð- leg yfír þessu, hún sat hin rólegasta í framsætinu með þykku gleraugun sín og virti fyrir sér fjöllin. „Hvemig lízt yður á landið?" spurði fréttamaður blaðsins. „Höfð- uð þér nokkuð heyi-t af því áður?“ „Já,“ svaraði Elena Krúsjeffsdótt- ir. „Ég hafði gert mér í hugarlund hvemig landið liti út, en nú hef ég séð það með eigin augum og það hef- ur ekki valdið mér vonbrigðum. Áhrifín hafa verið góð og þægileg." „Og hvað fínnst yður fallegast af þvi sem þér hafið séð hér á landi?“ „Gullfoss," sagði Elena án þess að hugsa sig um. „Mér fínnst Gullfoss tignarlegastur og fallegastur." „Fannst yður erfitt að veiða lax?“ spurðum við. „Nei.“ „Hún var mjög róleg,“ skaut Gontar inn í, „en ég var taugaóstyrk- ur, þegar hún setti í stærsta laxinn. Auðvitað missti hún hann. Hann strikaði niður ána og út í ósinn og þar stóð einhver ljósmyndari, sem var lítill veiðimaður og gat ekki náð honum, og auðvitað missti hún hann svo.“ „Var hún ekki leið yfír því?“ Elena hristi höfuðið. Hún er aug- sýnilega mjög rólynd stúlka og lætur ekkert „fara í taugamar á sér“ eða koma sér úr jafnvægi. Líklega er hún líkari móður sinni en föður sín- um að því leyti. Og svo hefur hún ekki eins gaman af að tala og hann. Gontar sagði að Jakob túlkur væri mjög slæmur veiðimaður. Aftur á móti þýddi hann ágætlega bækur úr íslenzku. Við spurðum Elenu enn að því, hvað hefði komið henni mest á óvart á Islandi, að Gullfossi undan- skildum. Hún sagði: „Ég hef mest hrifízt af gestrisni fólksins og náttúrufegurðinni. Kannski er ekki hægt að segja, að það hafi komið mér á óvart, en hvort tveggja er skemmtilegt ævintýri.“ „Vorað þér hræddar þegai- þér fluguð yfír Surt?“ spurðum við var- fæmislega. „Nei, ég var bara veik, það er allt og sumt.“ „Gaus Geysir meðan þér stöldrað- uð þar við?“ „Nei,“ svaraði hún stutt og laggott. Og það var ekki eins og sá gamli syndaselur og hrekkaljómur hefði haft nein sérstök áhrif á hana. En Strokkur gaus. Við fórum út í aðra sálma. Við vor- um á leiðinni heim að Gljúfrasteini og nú átti hún að fá að fara á bak ís- lenzkum hesti og því ekki úr vegi að spyija, hvort henni þætti gaman á hestbaki. Hún kvað það vera. Hún sagði, að foreldrar sínir ættu búgai'ð íýrir utan Moskvu. „Þar eigum við marga vini,“ sagði hún, „og þeir bjóða mér oft og tíðum á hestbak. Mér þykir mjög gaman að fara í út- reiðartúra." Að öðru leyti sagðist hún ekki hafa alizt upp í sveit. Hún þekkir raunar lítið til sveitalífsins og til dæmis hefur hún ekki komið í samyrkjubú, svo orð sé á gerandi. Okkur skildist, að þessi dóttir sov- ézka forsætisráðherrans væri borg- arbam fram í fmgurgóma, en hefði gaman af þeim lystisemdum sem fögur náttúra og sveitalíf hafa upp á að bjóða. Við spurðum hana næst að því, hvort henni hefði þótt gaman af að fara með foreldram sínum til Norð- urlanda. Hún svaraði því játandi og sagðist hafa haft mikið yndi af ferða- laginu. „Hveijum líkjast Islendingar mest?“ spurðum við. „Norðmönnum," svaraði hún hik- laust. „Norðmenn og Islendingar eru kannski dálítið minna glaðir en Danir og Svíar, en ég hef á tilfinn- ingunni, að þeir séu áreiðanlegri. Það er hægt að treysta því sem þeir segja.“ „Erað þér ekki orðnar þreyttar eftir ferðalagið?" „Jú,“ sagði Elena ákvðið og sneri sér enn við í sætinu. Það var hægt að sjá að hún naut sín ekki til fulls. Hún var talsvert tekin til augnanna og all- þi'eytuleg. Þegar við komum að Grafarholti benti hún á skýin framundan og sagði aðeins eitt orð: „Rigning.“ En svo þegar við komum lengra upp í Mosfellssveitina var komið sólskin og hlýr andvari, og þá sögðum við til að hressa upp á skapið og andagiftina: „Nú er komin sól.“ Sú athugasemd fékk heldur dauf- ar undirtektir. Þeir virðast nefnilega ekki kalla allt sól í Sovétrílqunum. Svo var förinni haldið áfram, og samtalinu. Jakob túlkaði eins og hershöfðingi, enda munaði minnstu að hann næði þeirri tign í stríðinu. Gontar stríddi honum og sagði að hann væri lítill hestamaður en Jak- ob sagist skyldu sýna honum það, hann hefði verið riddaraliðsforingi í lok síðari heimsstyrjaldar og setið sína klára með sæmd á vígstöðvun- um, bæði í Póllandi og Þýzkalandi. Þeir gerðu að gamni sínu um þetta og köstuðu bröndurum á milli sín, grófum og hrikalegum, og þá komumst við loksins að merkilegri niðurstöðu: Jakob Vladimir túlkur hefur lært íslenzku af Þjóðviljan- um. Að hugsa sér, húmor Magnús- ar Kjartanssonar er orðinn útflutn- ingsvara. Um þetta hugsuðum við stundarkorn, meðan þeir voru að „Hvar sem tveir á fjalli fundust.. eftir LEIF SVEiNSSON 1985 „Hvar, sem tveir á tjalli fundust, ferðin Nnnsens bar á góma“ Þannig komst W.C. Brögger að orði í Noregi, þegar þeir Friðþjófur Nansen og Hjalmar Johansen unnu það einstæða afrek að komast þann 8. apríl 1895 á 86° 14’ breiddarstig, 320 km norðar en nokkur maður hafði áður stigið fæti. Afrek þeirra hratt af stað þjóðarvakningu í Noregi. Æska landsins tók svo eftirminnilega við sér, að enn í dag sér þess merki, því Norðmenn eru með mestu íþrótta- og afreks- þjóðum heims. En Nansen var meira en landkönnuður og frækinn íþróttamaður, hann var einnig frá- bær vísindamaður á sviði hafrannsókna, dýrafræðingur var hann líka, og loks var hann einnig mannvinurinn, sem með ein- stæðu starfí bjargaði milljónum flóttamanna eftir heimsstyrjöldina 1914-18. Árið 1922 varð til hið kunna „Nansens- vegabréf'. Vegabréf þessi fengu þeir einstak- lingar, sem heimsstyrjöldin fyrri hafði rænt bæði heimili og föðurlandi og ekki gátu talist borgarar neins ríkis. Á næstu áram viður- kenndu 52 þjóðir gildi þessa vegabréfs. Mér kom Nansen í hug þessa daga, því á sínum tíma fékk ég ævisögu hans í fermingar- gjöf. Engin bók hefur haft meiri áhrif á mig en þessi ævisaga, enda er fermingaraldurinn sá aldur, þegar hugurinn er næmastur íyrir áhrifum. Nansen var slíkur jfírburðamaður, að hann hefði getað orðið heimsfrægur á þrem sviðum, hafrannsókna, landkönnunar og fyrir starf sitt að mannúðarmálum. En hann var þetta allt í senn, slík era fá eða engin dæmi. Margir hallast að þeirri skoðun, að kær- leikshugsjón Krists hafí náð hæst á Norður- löndum og er ég einn þeirra. Verðugir arftak- ar Nansens vora Folke Bernadotte og Dag Hammerskjöld er létu líf sitt í þágu friðar- starfa. Daninn Hartling er nú forstöðumaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og svo má lengi telja. Samhjálp er almennari á Norðurlöndum en annars staðar og tryggingarkerfí fullkomn- ara. Ég hef lesið margar ævisögur síðan ég las sögu Nansens og oft velt því fyrir mér, hvaða menn hafí haft mest áhrif á mig og komist að þeirri niðurstöðu, að þeir Friðþjóf- ur Nansen og Abraham Lincoln hafí rist dýpst í vitund mína. Ég tel ævisögur slíkra manna holla lesn- ingu, jafnt unglingum sem fullorðnum, því enn stendur óhaggað: „Þar sem góðir menn fara, þar eru Guðs vegir.“ Við andlát Friðþjófs Nansen mátti lesa þessa setningu í ritinu Simplicissimus: „Nor- egur ól hann, mannkynið missti hann.“ Tvær ræður ber hæst á ferli Abrahams Lincoln, Gettysborgarávarpið, sem hann flutti 19. nóvember 1863, og ræða sú, er hann flutti þegar hann var settur inn í forsetaemb- ættið hið síðara sinni, 4. mars 1865. Lincoln samdi Gettysborgarávarpið kvöldið fyrir vígslu hermannagrafreitsins, í borginni Gett- ysburg. Aðalræðumaðurinn við vígsluna var Edvard Everett, einn frægasti ræðusnilling- ur Bandan'kjanna, fyrram utanríkisráðherra og rektor Hai-vardháskóla. Ræða Everetts stóð í tvo tíma, en síðan flutti Lincoln ávarp sitt, sem tók tvær mínútur: „Fyrir áttatíu og sjö árum skópu áar vorir nýja þjóð í þessari heimsálfu. Hún var fædd í frjálsræði og helguð þeirri hugsjón, að allir menn væru jafnbornir." Lincoln lauk ávarpi sínu með þessum orðum: „Oss ber að vígjast því há- leita marki, sem fram undan er. Veri oss minning þeiira, sem með drengskap dóu, áminning um aukinn þegnskap við þá hug- sjón, sem þeir fórnuðu öllu, og strengjum þess heit, að hinir horfnu skuli ekki hafa til einskis dáið, að þessi þjóð megi með guðs hjálp öðlast endurfætt frelsi, og að stjórn fólksins, á fólkinu byggð, fólksins vegna til, skuli ekki líða undir lok.“ Dómar dagblaða í Bandaríkjunum um ræðu Lincolns voru ákaflega misjafnir. New York Times og New York Tribune gátu þess aðeins að forsetinn hefði sagt þarna nokkur vel valin orð. Chicago Tribune skildi þó, að ræða Lincolns mundi lifa um aldur og ævi, en keppinautur þess, Chicago Times, sakaði for- setann um fáfræði og ruddaskap, enda hefði hann svívirt minningu hinna látnu. Hins veg- ar skrifaði Everett Lincoln bréf, þar sem hann sagði, að hann vildi óska, að sér hefði tekist á tveim klukkustundum að komast jafn nálægt því, sem þarna átti að segja og Lincoln tókst á tveim mínútum. I síðari inn- setningarræðu sinni 4. mars 1865 sagði Lincoln undir lok ræðunnar hin fleygu orð, sem enn lifa á vöram hundrað milljóna: „Án óvildar til neins, með góðvild til allra...“ Thorolf Smith lýkur bók sinni um Abraham Lincoln á þessa leið: „Fyrir Lincoln vakti auk- ið frelsi fólkinu til handa. Hann hélt þeim kyndli á loft, sem lýsa mun mannkyninu um alla framtíð. Bandaríkjaþjóðin dáir Abraham Lineoln og blessai- minningu hans. Enginn annar sonur þeirrar þjóðar á slík ítök í hugum allra þjóða. Állar þjóðir eiga hlutdeild í Abra- ham Lincoln. Hann er sameign vor alfra.“ Við skulum vanda til þess lesefnis, sem við veljum æsku landsins á ári æskunnar, ég held að í gamla daga hafí barna- og unglingabæk- ur verið betri bókmenntir en nú á dögum. Á 4. áratugnum man ég eftir ævisögum manna eins og Edisons og Fords, þetta þótti okkur strákunum feiki góð lesning. Nú hafa Superman og Batman tekið við hlutverkum þeirra. Það eru vond skipti. Bókin á í harðri samkeppni við útvarp, sjónvarp og myndbönd. Ef við eigum að bera heitið mesta bókaþjóð heims, þá megum við aldrei sofna á verðinum. Það er skömm fyrir íslensku þjóðina að hverfa frá gullaldarbók- menntum til afþreyingarlesefnis. Hefjum bókina til vegs að nýju.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.