Morgunblaðið - 11.02.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 39
LISTIR
Nýjar bækur
• NORRÆNAR ráðleggingar um
næringarefni eru nú gefnar út á
íslensku í fyrsta sinn og er bókin
ætluð stúdentum og öðrum þeim
sem áhuga hafa á næringarfræði.
Ráðleggingar um næringarefni
byggjast á vísindalegri þekkingu
um æskilega samsetningu fæðisins
og neyslu næringarefna. Þær eru
þannig fræðilegur grunnur al-
mennra leiðbeininga um hollt mat-
aræði og henta vel fyrir skipulag á
samsetningu fæðis sem viðheldur
heilsu og kemur í veg fyrir sjúk-
dóma.
Norrænar ráðleggingar um nær-
ingarefni ganga út frá þeim að-
stæðum sem fyrir eru á Islandi og
í Skandinavíu hvað varðar matar-
æði, heilsufar og tíðni sjúkdóma.
Þær hafa að markmiði að stuðla að
bættri heilsu almennings í þessum
löndum.
ISBN: 9979-54-401-5 Bókin er
237 bls. í kilju Verð kr. 2.100.
Verknúmer: U199935
• HÁSKÓLAÚTGÁFAN hefur
sent frá sér bókina Afbrot og
refsiábyrgð I eftir Jónatan
Þórmundsson lagaprófessor. Bók
þessi er fyrri hluti yfirgripmikils
fæðirits um hinn almenna hluta
refsiréttar. Höfundur byggir á
rannsóknum sínum um langt árabil
á íslenskum og erlendum refsirétti.
I þessum hluta ritsins er m.a. fjall-
að ítarlega um afbrotahugtakið,
gerður er samanburður á helstu
brotategundum refsilaga og þær
flokkaðar eftir ýmsum einkennum.
Fjallað er um tilraun til afbrota
og afturhvarf svo og um hlutdeild
og samverknað. Þá er gerð rækileg
úttekt á réttarheimildafræði refsi-
réttar og skýringu refsilaga.
ISBN: 9979-54-403-1 9979-54-
374-4 Bókin er í kilju og innbundin
304 bls. Verð kr. 3500. / 4500.
Verknúmer: U199938
Ránsfengi
nasista skilað
Raleigh, Norður-Karólínu. AP.
MÁLVERK 16. aldar flæmska
málarans Lucas Cranach hins eldri
af guðsmóðurinni með frelsarann,
sem er til sýnis í Listasafni Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum, hefur
undanfama mánuði fallið í flokk
þeirra verka sem deilt hefur verið
um og það sagt hluti af ránsfeng
nasista.
Listasafnið viðurkenndi nú ný-
lega að Gestapo hefði haft verkið af
austum'skum viðskiptajöfri, Philipp
von Gomperz, fyrir 60 árum. Safna-
yfirvöld vonast engu að síður til að
núverandi eigendur og erfingjar
von Gomperz leyfí myndinni að
hanga áfram í safninu, enda er það
með merkari verkum í vörslu safns-
ins. Erfingjamir hafa hins vegar
ekki gert upp hug sinn og hafa
safnayfírvöld nú leitað til þeirra
gyðinga sem styðja safnið og beðið
þá að mæia sínu máli við erfingjana.
Að njóta leiklistar
FÉLAG íslenskra háskólakvenna stendur í 6. sinn fyr-
ir námskeiði undir yfirskriftinni „Að njóta leiklistar“.
Efni námskeiðsins að þessu sinni eru öll íslensku leik-
ritin sem eru á fjöium Þjóðleikhússins í vetur, Vér
morðingjar eftir Guðmund Kamban, Gullna hliðið eftir
Davíð Stefánsson, Hægan Elektra eftir Hrafnhildi
Hagalín Guðmundsdóttur og Landkrabbinn eftir
Ragnar Amalds. Tvö síðartöldu leikritin verða
frumsýnd á næstu vikum.
Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 15. febrúar kl.
20 og fer fram í húsnæði Háskóla íslands í Odda. Það
stendur í fjórar vikur, vikulega á þriðjudagskvöldum
og stjómandi þess er Jón Viðar Jónsson leikhúsfræð-
ingur.
Innritun og nánari upplýsingar fást hjá formanni fél-
agsins, Geirlaugu Þorvaldsdóttur. Námskeiðið er öll-
um opið.
tír sýningru Þjóðleikhússins á Gullna hliðinu. Edda
Heiðrún Backman, Pálmi Gestsson og Erlingur
Gfslason i hlutverkum si'num í sýningunni.
SKÚLAGÖTU 51 2. HÆÐ
Öndunarjakkar verð áður 18.500.-
Útsöluverð 7.900.-
Barnaúlpur verð áður 6.500.
Útsöluverð frá 1.900.-
Öndunarbuxur verð áður 15.990.-
Útsöluverð 9.900.-
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Flísfatnaður
Vinnufatnaður
og margt fleira
Sími: 511 100 Opið frá 9 -18 virka daga og 10 - 14 laugardaga.