Morgunblaðið - 11.02.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 59i
Málaferli vegna
gagnagrunns
GREIN mín
Morgunblaðinu 30.
janúar sl., „Lagaleg
álitaefni um gagna-
grunn“, hefur orðið
Jóhanni Tómassyni
lækni tilefni tU hug-
leiðinga sem fram
koma í grein hans í
sama blaði 4. febrúar
sl. f grein sinni segir
Jóhann að hann ætli
ekki að „þrátta" við
mig um lagalega hlið
málsins.
í niðurlagi greinar
minnar setti ég fram
þá skoðun að ég teldi
að málarekstur um
einstök lagaleg álitaefni í sambandi
við gagnagrunninn muni ekki skila
þeim árangri sem þeir vonast eftir
sem til hans hyggjast stofna. Þessi
skoðun mín er byggð á lögfræði-
legri athugun á málinu og rökin
fyrir henni eru lögfræðileg. Af-
skipti mín af gagnagrunnsmálinu
hingað til hafa ekki snúist um ann-
að en að setja fram
þau sjónarmið sem ég
tel lögfræðilega rétt,
hvort sem þau hafa
komið aðilum málsins
vel eða illa. Því stend-
ur ekki til að breyta.
Jóhanni verður ekki
að þeirri ósk sinni að
ég „þrátti“ við hann
um annað en lagalega
hlið málsins.
Rétt er einnig að
benda á að málarekst-
ur fyrir dómstólum, ef
af verður, mun ekki
snúast um annað en
lagalega hlið málsins.
í dómsalnum mun
verða krafist hirðusemi um stað-
reyndir, hófs í orðavali og vand-
aðra röksemda sem styðjast við
áreiðanleg gögn og viðurkenndar
lögfræðilegar aðferðir. Þessum
kröfum fullnægir málflutningur Jó-
hanns ekki. Þess vegna mun ekkert
af því sem hann segir í grein sinni
hafa sérstaka þýðingu í væntanleg-
Gagnagrunnur
Rétt er einnig að benda
á að málarekstur fyrir
dómstólum, segír Davið
Þór Björgvinsson, ef af
verður, mun ekki snúast
um annað en lagalega
hlið málsins.
um málaferlum, hver sem úrslit
þeirra kunna annars að verða. Þess
vegna er heldur engin ástæða til
þess að ég fjalli frekar um einstök
atriði í grein hans.
Höfundur, sem starfar tímabundið
við EFTA-dómstólinn f Lúxemborg,
er skipaður prófessor við lagadeild
H1 og formaður nefndar um starf-
rækslu gagnagrunns á heilbrigðis-
sviði.
:
°rnin@2000
Endurskrifan-
legir geisladiskar á ótrúlegu
verði. CDRW skrifarar með
hugbúnaði frá 17.990,-
Nýrri
tónlist, lægra verð a BT
útrýmingarsölunni.
Þú færð DVD myndirnar I BT.
^indesif
^Sjon^
er sögu
v ríkar! /
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020
BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500 • BT Kringlunni - S: 550-4499
H
ISLANDSFLUG
tj*?rh fl&irum nÖ fljittjn
Hirni B'/O 0090
' ÍPtl&nt IpsflUú