Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
66. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skýr skilaboð dönsku stjórnarinnar um færeyskt sjálfstæði
Lengri aðlögunartími
en 3-4 ár útilokaður
Kaupmannaliöfn. Morgunblaðið.
„ÞETTA er ögrandi tilboð,“ sagði Hogni
Hoydal, sjálfstæðismálaráðherra Færeyinga,
eftir spennuþrunginn blaðamannafund Pouls
Nyrups Rasmussens, forsætisráðherra Dana, í
Kaupmannahöfn í gær. Nyrup gaf skýrt til
kynna að Færeyingar yrðu að axla fulla efna-
hagslega ábyrgð ef þeir fengju sjálfstæði. í því
fælist að danska stjórnin væri ekki til viðtals um
meira en þriggja til fjögurra ára aðlögunartíma
að brottfalli fjárstyrksins, sem Danir leggja eyj-
unum til árlega, en það er um milljarður danskra
króna, um 10 milljarðar íslenskra króna.
Hoydal sagði í samtali við Morgunblaðið að
sjálfsagt væri að Færeyingar öxluðu ábyrgð, en
ómaklegt væri að þeir fengju styttri aðlögunar-
tíma en íslendingar og margar aðrar nýfrjálsar
þjóðir hefðu fengið. Viðræðurnar í gær áttu að
marka upphaf sem búist var við að lyki með
samningi fyrir sumarið. Hann átti síðan að
leggja í þjóðaratkvæði í Færeyjum í haust.
„Færeyska landstjórnin hefur kynnt okkur til-
lögur sínar að nýjum sáttmála landanna. Við vilj-
um svara skýrt,“ sagði Nyrup. „Við leggjumst
ekki gegn sjálfstæði Færeyja.“ Hann bætti síðan
við að fullu sjálfstæði hlyti að fylgja full ábyrgð
og því myndu Danir hætta að leggja Færeying-
um til fé um leið og Færeyingar bæru fulla
ábyrgð á eigin efnahagsstefnu.
„Eins og ég hef sagt áður hafa allir valkostir
ákveðnar afleiðingar," sagði danski forsætisráð-
herrann. Aðspurður vildi Nyrup ekki fara ofan í
það reikningsdæmi hvernig Færeyingar ættu að
geta komið á sjálfbærum fjárhag á 3-4 árum án
Anfínn Poul Nyrup
Kallsberg Rasmussen
danska milljarðaframlagsins. „Okkur finnst
heiðarlegt að koma með skýr skilaboð strax í
upphafi viðræðnanna,“ sagði hann.
Rafmagnað andrúmsloft
Andrúmsloftið í danska forsætisráðuneytinu
var rafmagnað í gær. Færeysk-dönsku viðræð-
unum átti að ljúka um kl. 16 og þá með sameig-
inlegum blaðamannafundi Pouls Nyrups og An-
finns Kallsbergs, lögmanns Færeyja, en um kl.
18 birtist Nyrup einn með töluverðum snúð og
lýsti ofangreindri afstöðu dönsku stjórnarinnar.
Það vakti athygli viðstaddra blaðamanna hve
þungt var í Nyrup og færeyskir blaðamenn
gripu andann á lofti yfir þessum köldu kveðjum.
Eftir stuttaralegan blaðamannafund sinn
hvarf Poul Nyrup á brott. Um hálftíma síðar
kom færeyska viðræðunefndin. Þótt fulltrúarnir
reyndu sitt besta til að draga úr vægi yfir-
lýsingar Nyrups var greinilegt að andrúmsloftið
í viðræðunum hafði hvorki verið gott né þeir við-
búnir afstöðu Nyrups.
Anfinn Kallsberg vildi ekki kannast við að til-
boð dönsku stjórnarinnar um þriggja til fjögurra
ára aðlögunartíma hefði komið á óvart, því sömu
hugmyndir hefðu heyrst frá dönsku stjórnarand-
stöðunni undanfarna daga. Hins vegar sagði
hann það koma á óvart að Nyrup hefði strax
dregið upp efnisatriði, því Færeyingarnir hefðu
álitið umræðurnar nú aðeins byrjunarviðræður,
þar sem kynna hefði átt tímasetningu og koma
sér saman um gang viðræðnanna.
Færeyingar hafa sjálfir gert sér vonir um að
fá allt að 15-20 ára aðlögunartíma. Það hefur frá
upphafi verið stefna Kallsbergs að sjálfstæði
ætti ekki að bitna á lífsskilyrðum eyjaskeggja.
Færeyingar skiptast í tvær nokkurn veginn
jafnstórar fylkingar með og á móti sjálfstæði og
augljóst virðist að skilyrði um svo stuttan aðlög-
unartíma mun ekki efla vinsældir sjálfstæðis-
hugmyndarinnar. Mátti heyra á færeysku sendi-
nefndinni í gær að ekki kæmi til greina að bera
upp tillögu um þriggja til fjögurra ára tímabil
heima fyrir.
Á heimasíðu Dimmalætting sagði í gær að
færeyska samráðsnefndin hefði verið gripin í
bólinu og greinilega ekki átt von á þessum ögr-
andi skilaboðum frá dönsku stjórninni.
BMW um söluna
á Rover
Sterkt
pund og
óvissa um
evruna
Frankfurt. AP
JOACHIM Milberg, forstjóri BMW,
sagði í gær að hátt gengi á breska
sterlingspundinu og óvissa um aðild
Breta að Evrópska myntbandalag-
inu ásamt minnkandi sölu hefðu
valdið því að Rover-verksmiðjurnar
voru seldar.
Hann sagði á fréttamannafundi í
Múnchen að hátt gengi á pundinu
gagnvart evrunni hefði vegið þyngst
er ákveðið var að selja bíla-
verksmiðjurnar breska áhættufjár-
festingarfyrirtækinu Alchemy
Partners. Gengið hefði valdið því-að
framleiðslan var dýr og útflutningur
erfiður. Þá sagði hann að stöðug
óvissa um hvort Bretar ætluðu sér að
ganga í myntbandalagið og taka upp
evruna hefði flýtt fyrir ákvörðuninni.
Hefði legið fyrir að Bretar hygðust
sækja um aðild, hefði niðurstaðan
hugsanlega orðið önnur.
Talsmaður Tony Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í gær að
Blair hefði reiðst ákaflega er hann
frétti af sölunni á Rover enda hefði
BMW ekki upplýst ríkisstjórnina um
hana fyrirfram. Hefði verið haft sam-
band við stjórn BMW og henni tjáð
óánægja Blairs og stjórnarinnar.
■ Ford kaupir/25
Cohen varar Kína við að hóta
Taívönum vegna forsetakjörs
Dregið verði
úr orðaskaki
Taipei, Peking, Tdkýd. AP, AFP.
VARNARMÁLARÁÐHERRA
Bandaríkjanna, William Cohen,
sagðist í gær ekki sjá nein merki þess
að stjómvöld í Peking hygðust gera
alvöru úr hótunum sínum um að ráð-
ast með hervaldi á Taívan. Forseta-
kosningar eru í eyríkinu í dag og hafa
Kínverjar látið í það skína að verði
Chen Shui-bian fyrir valinu geti svar-
ið orðið innrás. Chen hefur mælt með
því að Taívanar lýsi yfir sjálfstæði en
hefur þó verið nokkru varkárari í
ummælum sínum að undanfómu.
Talið er að sigurlíkur Chans hafi
aukist síðustu daga en allir hafa
frambjóðendurnir hvatt kjósendur til
að hafa viðvaranir Kínastjómar að
engu. Verðbréf á markaði í höfuð-
borginni, Taipei, hafa hins vegar fall-
ið síðustu daga.
Kínverski herinn hefur verið með
mikinn viðbúnað á ströndinni and-
spænis eyríkinu en her Taívana er
mun nýtískulegri en vopn Kínverja
og yrði því ekki auðvelt fyrir megin-
landsríldð að sigra í slíkum átökum.
Auk þess treysta Taívanar því að
Bandaríkjamenn myndu koma þeim
til aðstoðar ef til úrslita drægi. Cohen
hefur sagt að Bandaríkjamenn muni
ekki bregðast en þeir hafa í hálfa öld
átt trygga bandamenn á Taívan.
Cohen sagði í Tókýó í gær að ef
meiri harka færðist í orðaskak Kín-
verja gegn Taívönum myndi þrýst-
ingur aukast í öldungadeild þingsins í
Washington á að Taívanar fengju að
kaupa meira af nýtísku vopnum þar í
landi. Hann var spurður hvort hann
teldi hættu á að Peking-stjómin
drægi rangar ályktanir og teldi
Bandaríkjastjórn ekki reiðubúna til
að verja Taívan. Hann sagðist ekki
sjá að verið væri að undirbúa innrás.
„Það sem við emm vitni að er orða-
skak,“ sagði ráðherrann.
Kínastjórn lítur á Taívan sem
hluta ríkisins, en eftir sigur komm-
únista í borgarastríðinu á fimmta
áratugnum settust þjóðernissinnar
að á Taívan og gerðu framan af tilkall
til yfirráða í öllu Kína.
Síðustu árin hefur ríkt lýðræði að
vestrænni fyrirmynd á Taívan, lífs-
kjör þar eru með þeim bestu í allri
Ásíu. Leiðtogar Taívana sétja sem
skilyrði fyrir sameiningu að lýðræði
verði einnig komið á í Kína.
■ Lítill munur/26
>\W VfttíV Y!
Kjötbanni aflétt
Stoltenberg
tekur við
Nýr forsætisráðherra Noregs,
Jens Stoltenberg, við konungs-
höllina eftir fyrsta stjórnarfund-
inn í Ósló í gær. Á spjöldum
andstæðinga áformanna um
gasorkuver stendur meðal
annars: „Gasorka er ekki kyn-
æsandi“ og undirskriftin er:
Stúlkur á móti Jens.
■ Adallega skipuð/23
Berlín, London. Reuters, AFP.
EFRI deild þýzka þingsins, Bund-
esrat, samþykkti í gær að létta inn-
flutningsbanni af brezku nautakjöti.
Bannið hefur verið í gildi í 4 ár, eða
allt frá því vísbendingar komu fram
um að tengsl væru á milli kúariðu,
sem er landlæg í Bretlandi, og
heilahrörnunarsjúkdóms í mönnum.
Nick Brown, landbúnaðarráðherra
Bretlands, fagnaði í gær niður-
stöðunni. Mun brezkt nautakjöt aft-
ur koma í þýzkar verzlanir í apríl,
en forsenda þess að banninu var af-
létt er að hinar brezku afurðir verði
vel merktar.
MORGUNBLAÐK) 18. MARS 2000