Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Glæpamenn
eru fágaðri
en áður
TVEIR sérfræðingar frá Bandarísku
alríkislögreglunni (FBI) eru staddir
á hér á landi í þeim tilgangi að þjálfa
íslenska rannsóknarlögreglumenn í
atferlisgreiningu afbrotamanna og í
rannsóknum og notkun á DNA-sönn-
unargögnum. Sérfræðingarnar, þeir
dr. Barry Brown og dr. William
Hagmaier, munu hitta íslensku rann-
sóknarlögreglumennina á námstefnu
Félags íslenskra rannsóknarlög-
reglumanna í Borgarnesi í dag.
„Þetta er lítill heimur og það er
mjög mikilvægt að menn í okkar fagi
deili með sér þeirri þekkingu sem
þeir hafa aflað,“ sagði Hagmaier,
sérfræðingur í atferlisgreiningu, á
blaðamannafundi, sem haldinn var
vegna komu sérfræðinganna í gær-
dag. „Því betur sem við þekkjum af-
brotamennina þeim mun betur get-
um við verndað hinn almenna
borgara.“
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagðist vonast til þess að
þessi samvinna á sviði lögreglumála
ætti eftir að auka hæfni og ekki síst
víkka sjóndeildarhring íslenskra lög-
regluliðsins. Hún þakkaði Barböru
Griffiths, sendiherra Bandaríkjanna
á Islandi, fyrir að hafa milligöngu um
að koma á lögreglusamvinnu á milli
ríkjanna.
Tók viðtöl við Ted Bundy
Hagmaier, sem hefur 22 ára
reynslu hjá FBI, hefur tekið þátt í
ótal sakamálarannsóknum á sínum
ferli, m.a. tekið viðtöl við Ted Bundy,
einn illræmdasta fjöldamorðingja í
sögu Bandaríkjanna. Hagmaier
sagði að þótt ísland væri lítið land
miðað við Bandaríkin ætti lögreglan
hér við mörg þau sömu vandamál að
glíma og lögreglan í hans heimalandi.
Hagmaier sagði að glæpamenn í
dag væru fágaðri en áður og að
glæpasérfræðingar hefðu sérstak-
lega orðið varir við mikia breytingu í
þessa veru á síðustu 4 til 5 árum.
Hann sagði að menn tengdu þessa
þróun almennt við þá upplýsinga-
byltingu sem Netið hefði valdið. Nú
gætu glæpamenn sótt sér upplýsing-
Morgunblaðið/Jim Smart
í dag munu tveir sérfræðingar frá Bandarísku alríkislögreglunni (FBI) halda fyrirlestra á námsstefnu Félags
íslenskra rannsóknarlögreglumanna. Frá vinstri: Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Sólveig Péturs-
dóttir dómsmálaráðherra, Barbara J. Griffiths, sendiherra Bandaríkjanna, og dr. William Hagmaier atferlis-
sálfræðingur hjá FBI.
ar um næstum hvað sem væri á Net-
inu, t.d. hvemig búa ætti til sprengju.
DNA-rannsóknir hafa ger-
breytt rannsóknum sakamála
„Glæpamenn nú eru gjarnan
skrefi á undan lögreglumönnum.“
Aðspurður hvort glæpir í dag
væru orðnir hrottafengnari en áður
sagði Hagmaier að líklega væri það
svo.
„Ég er hins vegar hættur að kippa
mér upp við hrottafengna glæpi enda
búin að vera i þessu lengi og sjá
flest.“
Að sögn Hagmaiers hafa rann-
sóknir á erfðaefnum, svokallaðar
DNA- rannsóknir, gerbreytt rann-
sóknarstarfi lögreglumanna í Banda-
ríkjunum, en niðurstöður DNA-
rannsókna eru svo nákvæmar að auð-
velt er að sjá hvort tiltekið lífsýni er
ættað frá hinum grunaða. Hagmaier
sagði að ef maður fremdi glæp í
Bandaríkjunum væru erfðaefni hans
sett í ákveðinn DNA-gagnabanka.
Þar væru þau borin saman við erfða-
efni sem fundist hefðu í öðrum
óleystum sakamálum og þannig væri
búið að leysa mörg mál. Éinnig sagði
hann að gagnabankinn nýttist við
rannsóknir á nýjum sakamálum.
Sólveig sagði notkun DNA-rann-
sókna í sakamálum á íslandi væri í
stöðugri þróun og að reynsla banda-
rísku sérfræðinganna kæmi sér vafa-
laust vel fyrir íslensku lögregluna.
Hún sagði að nefnd á vegum dóms-
málaráðuneytisins, sem hefði það
hlutverk að vinna að undirbúningi
reglna um DNA-rannsóknir, myndi
skila tillögum í lok mánaðarins og þá
kæmi m.a. í ljós hvort grundvöllur
væri fyrir því að búa til sérstakan
DNA-gagnabanka á íslandi.
Ný gjörgæsla tekin i notkun á Landspítalanum í Fossvogi
Morgunblaðið/Sverrir
Gjörgæsludeild Landspitalans í Fossvogi hefur verið bætt og stækkuð
og er tækjakostur þar af fullkomnustu gerð.
Geysisgos hjá klúbbnum Geysi
Opið hús og tónleikar
Gjörgæslu-
rúmum
fjölgar
NÝ gjörgæsla var tekin í notkun á
Landspítalanum í Fossvogi í gær, en
með henni er öll aðstaða fyrir sjúkl-
inga og starfsfólk bætt til muna.
Gjörgæslan er að hluta til á sama
stað og áður, á 6. hæð, en stækkar
verulega með viðbótarrými í
nýbyggingu og fjölgar gjörgæslu-
rúmum því úr 9 í 11.
Gjörgæslan var tekin í notkun að
viðstöddum fjölda gesta og flutti
heilbrigðisráðherra m.a. erindi í til-
efni dagsins og í lok athafnarinnar
blessaði prestur sjúkrahússins gjör-
gæsluna að nýju.
I fréttatilkynningu frá Landspíta-
lanum segir að gjörgæslan sé að
miklu leyti hönnuð samkvæmt hug-
myndum starfsfólks og að hún sé af
fullkomnunustu gerð hvað varði alla
aðstöðu og tækjakost. Gott rými sé
við hvert rúm og tækjasúlur með
fullkomnum búnaði til að fylgjast
stöðugt með líkamlegu ástandi
sjúklingsins. Þá kemur fram að
hægt sé að fylgjast með tækjunum
við hvert rúm, en einnig í sérstöku
eftirlitsherbergi, þar sem sömu upp-
lýsingar komi fram á einum stað.
Gjörgæsludeildin í Fossvoginum
tók til starfa árið 1970 og því verður
hún 30 ára á þessu ári. Á þessum 30
árum hefur hún þjónað um 14 þús-
und sjúklingum, en um 5% allra
sjúklinga sjúkrahússins koma á
gjörgæsluna og lætur nærri að 20%
þeirra séu þar eftir slys. Um 75
starfsmenn, læknar, hjúkrunar-
fræðingar, sjúkraliðar, ritarar o.fl.
starfa á gjörgæsludeildinni.
Rafiðnaðar-
sambandið
Samið við
Islenska út-
varpsfélagið
GENGIÐ var frá nýjum kjara-
samningi milli Rafiðnaðar-
sambandsins og íslenska út-
varpsfélagsins í gær. Gildir
samningurinn til 28. febrúai'
2003.
Samkvæmt upplýsingum
Rafiðnaðarsambandsins felur
samningurinn í sér almennar
breytingar, leiðréttingar á
launakerfi til samræmis við
launaþróun og tæplega 13%
launahækkun á samningstím-
anum.
Samningurinn verður borinn
upp nk. þriðjudag.
KLÚBBURINN Geysir stendur
fyrir Geysisgosi nú um helgina.
Opið hús verður í nýju húsnæði
klúbbsins við Ægisgötu 7 milli
klukkan 12 og 18 í dag og á morg-
un, sunnudag, verða svo haldnir
styrktartónleikar fyrir klúbbinn í
Langholtskirkju.
Anna Valdemarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri klúbbsins, segir að
með Geysisgosi sé ætlunin að
vekja athygli á klúbbnum og því
sem hann stendur fyrir svo að sem
flestir sem þurfi á honum að halda
viti hvar hann er að finna. Hún
segir klúbbinn vettvang fyrir fólk
sem eigi við geðræn vandamál að
stríða og eitt af meginmarkmiðum
hans sé starfsmiðlun út á al-
mennan vinnumarkað. Klúbburinn
nái bæði til fólks sem hafi verið í
einhverskonar meðferð og eins til
þeirra sem hafa dottið út úr skóla
eða vinnu og vilji ná sér á strik.
Fólk gangi í klúbbinn af frjálsum
vilja og bendir hún á að hann sé
ekki meðferðarstofnun heldur við-
SVEITARSTJÓRINN í Vestur-
byggð og skólastjóri Örlygshafnar-
skóla munu eiga fund í dag þar sem
rætt verður hvað hægt sé að gera
fyrir böm vitavarðanna og veðurat-
hugunarfólksins í Breiðavík í Vestur-
byggð sem hafa ekki komist í skólann
í samanlagt 5 vikur frá áramótum
vegna ófærðar eins og kom fram í
Morgunblaðinu á miðvikudaginn.
Jón Gunnar Stefánsson, sveitar-
stjóri Vesturbyggðar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að þetta væri erfitt
landsvæði og veturinn nú hefði verið
óvenju harður.
„Það er ekki auðhlaupið yfir heiðar
hér frá degi til dags,“ sagði Jón
Gunnar. „Kannski er ekki nóg að
gert þama. Kannski þurfa menn að
bót við það sem sé í boði innan
geðheilbrigðiskerfisins.
Fjöldi einsöngvara ásamt leik-
urum úr Englum alheimsins
Anna segir að gengið hafi mjög
vel að gera upp húsnæðið við Æg-
isgötu og að klúbbfélagar hafi
lagst á eitt við að mála, skrúbba,
pússa og bóna. Hún segir þau afar
ánægð með húsið og ítrekar að
allir séu velkomnir í heimsókn í
dag.
Arnesingakórinn stendur svo
fyrir styrktartónleikunum á
sunnudag en auk hans koma fram
Karlakór Reykjavíkur, kór Nýja
tónlistarskólans, einsöngvararnir
Inga Backman, Bergþór Pálsson,
Signý Sæmundsdóttir og Egill Ól-
afsson. Meðleikarar þeirra eru
Jónas Ingimundarson og Jónas
Þórir. Auk þess mun Einar Már
Guðmundsson rithöfundur lesa
upp og aðalleikararnir í kvik-
myndinni Englar alheimsins
kynna dagskrána.
taka til skoðunar að gera betur og þá
fyrr en seinna svo þetta þurfi ekki að
vera með þessum hætti til lang-
frama.“
Jón Gunnar sagði að stefnt væri að
því að halda fund með skólastjóra Ör-
lygshafnarskóla í næstu viku til þess
að ræða vanda bamanna í Breiðavík.
„Ætli það verði ekki reynt að finna
einhverjar leiðir til að moka þetta
oftar, en það er mjög dýrt, einn
mokstur yfir fjallveginn kostar svona
200 þúsund.
Við verðum að koma okkur upp
einhverjum nýjum vinnureglum og
þurfum að hafa samband við Vega-
gerðina varðandi þau mál. Þá er
mjög brýnt að þetta verði gert á sem
hagkvæmastan hátt.“
Vesturbyggð
Vegurinn til Breiða-
víkur mokaður oftar