Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Norðurpólsleiðangurinn komst 6,3 km á fímmtudag
Besti árangur
pólfaranna til þessa
NORÐURPÓLSFÖRUNUM Har-
aldi Erni Ólafssyni og Ingþóri
Bjarnasyni tókst að hækka dags-
meðaltalið hjá sér um 0,3 km í fyrra-
dag er þeir gengu
6,3 km sem er
nýtt met. Þeir
hafa nú gengið í
rétta viku og
komist 32,3 km
áleiðis. Með hin-
um góða árangri
sem náðist
fímmtudag hækkaði dagsmeðaltalið
þannig úr 4,3 km í 4,6 km. Þeir eru
nú tæpum hálfum km undir því sem
þeir töldu viðunandi fyrstu dagana
en leiða má að því líkur að óvenju
mikill lausasnjór hafi þrýst þeim nið-
ur fyrir 5 km takmarkið sem þeir
vonuðust eftir að ná daglega fyrstu
10 til 14 dagana.
Ingþór hafði orð fyrir þeim félög-
um í gær þegar þeir hringdu úr Irid-
ium-gervihnattasímanum í leiðang-
ursstjómina í versluninni Utilífi. A
síðustu dögum hefur athygli manna
beinst að þeim slæmu tíðindum sem
berast vegna yfirvofandi lokunar
Iridium-kerfisins. Vegna lokunar-
innar var gert ráð fyrir því að símtal-
ið í hádeginu í gær yrði það síðasta
við pólfarana í bráðina þar sem til-
kynnt var að kerfinu yrði lokað að-
faranótt 18. mars. Þrátt fyrir að
síma þeirra verði lokað með þeim af-
leiðingum að þeir muni ekki geta tal-
að beint við leiðangursstjómina hafa
þeir afþakkað talstöð til sín út á ís-
inn. Að sögn Ingþórs í samtali við
Morgunblaðið í gær vom nokkrar
ástæður fyrir því.
Ætlum að komast
á pólinn án aðstoðar
„Við ætlum að reyna að komast á
pólinn án aðstoðar," sagði hann.
„Þetta er líka spurning um þyngd og
svona talstöð sem rætt hefur verið
um er rúmlega fimm kíló og það er
mikið. Hvert gramm skiptir máli hér
úti á ísnum og við teljum okkur alveg
geta búið við það að vera símasam-
bandslausir. Við emm með Argos-
senditæki til að koma frá okkur upp-
lýsingum. Auk þess höfum við sinn
neyðarsendinn hvor,“ sagði Ingþór.
Hann sagði hins vegar slæmt að svo
stuttur fyrirvari væri á lokun Irid-
ium-kerfisins og sagði þá félaga vera
forviða á þeirri framvindu sem átt
hefði sér stað í málefnum Iridum-
fyrirtækisins að undanförnu. „Við
höldum hins vegar í þá von að kerfið
verði opnað aftur,“ bætti hann við.
Aðspurður hvemig þeim gengi að
rata rétta leið áleiðis að pólnum
sagði Ingþór að mjög erfitt væri að
halda réttri áttavitastefnu.
.Áttavitinn bregst mjög seint við
og segulsviðið er þannig að það er
mjög erfitt að halda honum á réttri
gráðu. GPS-staðsetningartækinu er
hins vegar að treysta. Við þurfum að
þræða mjög mikið á milli íshryggja
og ef við getum notið sólarinnar þá
er hún besta leiðsögutækið sem við
höfum. Þar sem við sjáum í hvaða átt
skuggar okkar vísa.“
Ingþór sagði að fimmtudagurinn
hefði verið erfiður til að byrja með
og sagði að þeir Haraldur hefðu
þurft að selflytja sleðana fyrstu tvær
loturnar yfir íshryggi. „Eftir það
lagaðist landslagið og við gátum
gengið einir með sleðana og það
bjargaði því að við komumst rúma
sex kílómetra. Þetta er kannski að-
eins að lagast því það er lengra á
milli íshryggja en áður. Það er þó
enn mjög mishæðótt og erfitt yfir-
ferðar. í gær var 36 stiga frost, en 37
16 kóðar
EF pólfaramir verða síma-
sambandslausir geta þeir sent
út skilaboð með Argos-
senditæki í gegnum gervi-
hnött til bakvarða-
sveitarinnar. Sleginn er inn
ákveðinn tölustafur á Argos-
tækinu, þar sem hver tölustaf-
ur hefur ákveðna þýðingu
Skilaboðin berast fyrst til
Maryland f Bandaríkjunum,
þaðan til höfuðstöðvar First
Air-flugfélagsins í Kanada og
þaðan til leiðangursstjómar á
Islandi. Unnt er að senda fleiri
en einn kóða til að gefa ítar-
legri upplýsingar.
0. AUtílagi.
1. Höldum kyrrn fyrir
2. Miðar hægt vegna færis.
3. Þurfum talstöð.
4. Þurfum matarbirgðir.
5. Þurfum eldsneyti.
6. Þurfum sleða.
7. Þurfum skíði.
8. Fallhlífaaðflutnings óskað.
9. Þurfum að láta sækja okk-
ur - góð flugbraut.
10. Þurfum að láta sækja okk-
ur - engin flugbraut.
11. Gott veður.
12. Vont veður.
13. Eigum birgðir til fímm
daga.
14. Munum komast á pólinn -
heíjum undirbúning.
15. Felldum hvítabjöm
(óstaðfestur kóði).
stiga frost í dag [föstudag]," sagði
Ingþór.
Fallegt um að litast
„Það er skýjað í dag, [föstudag],
og sér aðeins í sólroðann í austri
núna þegar klukkan er rétt um sjö
að morgni hjá okkur. Það er mjög
fallegt um að litast og landslagið er
stórfenglegt. Það eru ístoppar og
hryggir sem standa víðast hvar upp
úr. Ruðningar hafa hrannast upp og-
em eins og úfið hraun, nema að það
er bara hvítt. Við höfum ekki séð til
lands síðustu tvo daga. Hér er ekk-
ert lífsmark að sjá, engir fuglar eða
dýr. Hér er algjör þögn,“ sagði hann.
Hann sagði að þeir Haraldur væra
við hestaheilsu og þeir þjáðust ekki
af neinum álagsmeiðslum. Lundin
væri létt, eins og hann orðaði það
sjálfur.
Utanríkisráðuneytið beitir sér í
fjarskiptamálum pólfaranna
íslenska utanríkisráðuneytið hef-
ur beitt sér í máli því sem varðar lok-
un Iridium-kerfisins. Ráðuneytið
hefur sent fyrirspurn um málið til
bandarískra stjórnvalda og leitað
Ljósmynd/Ólafur Öm Haraldsson
Norðurpólsfaramir era nú að mjaka sér út úr ísruðningum og eru við
góða heilsu úti á ísnum. 32 km eru að baki á um 800 km langri leið að
norðurpólnum.
eftir skuldbindingum fyrirtækisins
gagnvart notendum sínum.
Þeir Haraldur og Ingþór geta
ekki vitað hvort sendingin úr Argos-
tækinu kemst til skila því tækið get-
ur ekki móttekið skilaboð, eingöngu
sent frá sér merki. Ákveðið hefur
verið að ef bakvarðasveit leiðan-
gursins hér á landi heyrir ekkert frá
pólföranum í 48 klukkustundir verð-
ur send kanadísk flugvél til leitar.
Franska lestarfyrirtækið Alstom vill ræða forsendur
járnbrautar milli Keflavíkur og Reykjavfkur
Hyggjast kynna kosti
fyrir borgaryfírvöldum
TALSMAÐUR franska lestarfyrir-
tækisins Alstom segir það stefnu
þess að kynna ávallt kosti jám-
brauta og jámbrautarlagningar
hvar svo sem þörf er á almennings-
samgöngum. Oliklegt sé þess vegna
að fram hafi farið sérstök könnun af
hálfu fyrirtækisins á hagkvæmni
þess að leggja jámbraut milli
Reykjavíkur og Keflavíkur, jafnvel
þó að fulltrúar þess hafi boðað komu
sína til íslands til viðræðna um borg-
aryfirvöld um hugsanlega jámbraut-
arlagningu.
Á borgarstjómarfundi í fyrradag
greindi Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans, frá því
að fulltrúar Alstom hefðu óskað eftir
fundi með borgarfulltrúum um hugs-
anlega lagningu járnbrautar milli
Reykjavíkur og Keflavíkur. Era þeir
væntanlegir til skrafs og ráðagerða
við borgaryfirvöld á næstu vikum, að
sögn Ásgeirs Eyjólfssonar, fram-
kvæmdastjóra Samvirkis, sem er
umboðsaðili Alstom á íslandi.
Fram kom hjá bæði Ásgeiri og
talsmanni Alstom í Frakklandi að
þessi mál væra hins vegar á algeru
byrjunarstigi, en Ásgeir tók þó fram
að fulltrúar Álstom byggju að öllum
líkindum yfir ákveðnum grandvall-
arapplýsingum, t.d. um árlegan
fjölda farþega í gegnum flugstöð
Leifs Eiríkssonar og annað þess
háttar.
Hefur átt í viðskiptum við
rafveitur hér á landi
Sagði talsmaðurinn að Alstom
ætti á hverjum tíma í viðræðum við
yfirvöld íjölda borga víðs vegar um
heim um þá kosti og galla sem fylgdu
járnbrautum. Þar væri einungis um
að ræða kynningarviðræður, farið
væri yfir þá kosti sem í boði væra og
Alstom kynnti hvaða lausnir fyrir-
tækið gæti fyrir sitt leyti boðið upp
á. Þetta væri tímafrekt ferli og oft
kæmust borgaryfirvöld á endanum
að þeirri niðurstöðu að annað form
almenningssamgangna hentaði þeim
betur.
Ásgeir bætti því einnig við að verk
af þeirri stærðargráðu sem hér um
ræðir þyrfti væntanlega að bjóða út
á Evrópska efnahagssvæðinu, þar
sem Alstom myndi eiga í samkeppni
við önnur fyrirtæki ef til þess kæmi.
Samvirki hefur verið umboðsaðili
fyrir Alstom á íslandi um margra
ára skeið, að sögn Ásgeirs. Fyrir-
tækið er ekki aðeins stærsti lesta-
framleiðandi í heiminum heldur
framleiðir það einnig alls kyns há-
spennubúnað og hefur t.d. átt í við-
skiptum við rafveitur hér á landi.
Meira en 25 þúsund manns vinna í
yfir 40 löndum á vegum Alstom og
rúmlega 40 stórborgir hafa byggt
neðanjarðarlestakerfi sitt upp á lest-
um frá Alstom. Meðal nýlegra verk-
efna, sem Alstom hefur sinnt, var
lagning fluglestar frá miðborg
Stokkhólms til Arlanda-flugvallar.
Deilt um verðmæti 67
smaragða í sakamáli
AÐALMEÐFERÐ og málflutning-
ur fóra fram í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær í sérstæðu máli lögreglu-
stjórans í Reykjavík gegn Eilífi
Friði Edgarssyni. Hann er ákærðtíí**'
fyrir tollalagabrot er hann flutti inn
67 smaragða til landsins í október
1997.
Eilífur er fæddur í Kólumbíu og
tók sér nafnið Eilífur Friður Ed-
garsson er hann hlaut íslenskan rík-
isborgararétt fyrir nokkrum árum.
Kólumbískt nafn hans er Jorge R.
Cabrera Hidalgo og hefur hann búið
hérlendis undanfarin tólf ár.
Hann var með ungri dóttur sinni
er hann kom frá Kólumbíu en þar
keypti hann steinana á 200 dollara.
Hann taldi að ekki þyrfti að fram-
vísa steinunum við tollayfirvöld
enda væru þeir langtinnan þess toll-
kvóta sem þau feðginin máttu hafa
meðferðis, um 50 þúsund krónur.
Ákæmvaldið telur að steinarnir
séu niún meira virði en sem nemi
20tF TOlhtt-uröjjuni;Jjyrágund krón-
um) á grundvem'vnmrJætatnats -hjá.
gullsmiði sem virti þá til tæþrá'83
þúsund króna. Þá leggur ákæra-
valdið það m.a. til grundvallar sak-
fellingu að tollkvótinn sé ekki fram-
seljanlegur og Eilífi hafi verið'
óheimilt að telja með tollkvóta dótt-
ur sinnar enda hafi barnið ekki lagt
neina fjármuni í steinakaupin ytra.
Lögmaður Eilífs krefst sýknu fyr-
ir hönd skjólstæðings síns og leggur
það m.a. til grandvallar að rannsókn
málsins hafi verið í molum. Gagn-
rýnir hann þau vinnubrögð að aldrei
hafi verið tekin skýrsla af ákærða og
éhann krafinn nánari skýringa á mál-
inu. Viðskiptaverð steinanna, 200
dollarar, sem ákærði hafði kvittun
upp á, skipti þá höfuðmáli en ekki
Ekki væri byggjandi á verðmæta-
máti 'gullsmiðsins sem virti þú til
tæpra 83 þúsund króna, þar sem
hann hefði miðað matið við verðgildi
smaragða erlendis. Upplýst hefði
verið að gullsmiðurinn keypti sjálfur
flesta sína steina frá Evrópu og
e.t.v. væra slíkir steinar dýrari þar.
Þetta og fleira bæri merki um ófull-
nægjandi gagnaöflun ákæruvalds
sem ekki mætti bitna á ákærða.
Dómur í málinu verður kveðinn upp
5. apríl.