Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 12
12 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skýrsla starfshóps borgarstjóra um kosti í rekstri og þjónustu almenningssamgangna
Rekstur Strætis-
vagna Reykjavík-
ur yrði boðinn út
FARIÐ gæti svo að rekstur Strætis-
vagna Reykjavíkur yrði aðskilinn
frá stjórnun þeirra og boðinn út, en
borgarráð hefur samþykkt að fela
borgarstjóra að láta meta hvort
æskilegt sé að skilja milli stefnumót-
unar og þjónustukaupa almennings-
samgangna í borginni.
Helgi Pétursson, formaður stjórn-
ar SVR, kynnti skýrslu starfshóps
borgarstjóra um tiltæka kosti í
rekstri og þjónustu almenningssam-
gangna á borgarstjórnarfundi á
fímmtudag og sagði ljóst að bæta
þyrfti núverandi strætisvagnakerfi.
„Strætisvagnakerfið eins og það
er núna hér í Reykjavík er í megin-
dráttum eins og það var árið 1995 og
hafa borgaryfirvöld ekki staðið við
stóru orðin varðandi forgang al-
menningssamgangna í umferðinni,"
segir Helgi Pétursson í samtali
við Morgunblaðið. „Farþegum
fækkar jafnt og þétt af ýmsum or-
sökum og það er auðvitað staða sem
við getum ekki sætt okkur við. Einn
valkosturinn í þeirri stöðu sem blas-
ir við, er að aksturinn og öll fram-
kvæmdin yrði boðin út. Mér hugnast
þessi aðferð, enda hefur hún verið
reynd í nágrannalöndum okkar með
mjög góðum árangri.“
Umferð á höfuðborgarsvæðinu
mun aukast um 50% á 20 árum
I skýrslu starfshópsins er bent á
að miðað við óbreytta þróun muni
umferð á höfuðborgarsvæðinu auk-
ast um allt að 50% á næstu 20 árum,
sem kalli á að minnsta kosti 40 millj-
arða fjárfestingu á stofnbrautakerf-
inu á því tímabili, miðað við óbreytt
þjónustustig. Helgi segir þessa for-
sendu liggja til grundvallar þeirri
niðurstöðu starfshópsins að efla
þurfi almenningssamgöngur.
Farþegum Strætisvagna Reykjavikur fækkar jafnt og þétt og til að sporna við þeirri þróun er verið að leita
leiða til að bæta þjónustu þeirra.
í skýrslunni er bent er á að breyta
megi núverandi rekstri SVR með
því að skilja á milli stefnumótunar
og reksturs og breyta þannig SVR
úr rekstrarfyrirtæki í stjórnsýslu-
einingu. Öll framleiðsla þjónustunn-
ar, eins og akstur, rekstur skipti-
stöðva og biðskýla yrði þá í höndum
verktaka eða annarra sjálfstæðra
aðila samkvæmt sérstökum samn-
ingum.
Þetta fyrirkomulag er talið hafa
marga kosti í för með sér og er talið
að þjónusta muni batna ef stuðlað
yrði að samkeppni með því að bjóða
akstur út til sjálfstæðra verktaka.
Einnig er talið kostur að borgarsjóð-
ur losni undan þeirri fjárbindingu
sem felst í núverandi fyrirkomulagi,
en verðmæti eigna SVR var metið
um 2 milljarðar króna í árslok 1998.
Formaður áfengis- og vímuefnanefndar Akureyrar um unglingadrykkju
Miskunnarlausum áróðri
beint að unga fólkinu
Morgunblaðið/Kristján
Kristín Sigfúsdóttir formaður áfengis- og vímuvarnarnefndar Akureyr-
arbæjar.
VAXANDI áfengisdrykkja ung-
menna hefur mikið verið til umræðu
á Akureyri síðustu daga og hafa m.a.
kennarar við Menntaskólann á Ak-
ureyri, skólameistarar framhalds-
skólanna og fleiri vakið athygli á
málinu. Bent hefur verið á greiðan
aðgang ungs fólks að áfengi m.a.
með kynningum á vínveitingahúsum,
m.a. á fimmtudagskvöldum sem hef-
ur í för með sér að margir mæta
framlágir í skólann daginn eftir.
Afengis- og vímuvarnanefnd Akur-
eyrar hefur beint þeim tilmælum til
bæjarstjórnar að hún beiti sér fyrir
því að eftirlit með sölu áfengis á vín-
veitingahúsum verði hert svo koma
megi í veg fyrir sölu til of ungra
neytenda.
Bæjarráð hefur samþykkt að veita
meiri peningum til forvarnarstarfs
en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl-
un bæjarins fyrir þetta ár og skipað-
ur verður á næstunni starfshópur
sem ætlað er að móta, samræma og
efla varnir gegn áfengis- og vímu-
efnaneyslu á Akureyri.
Kristín Sigfúsdóttir, formaður
áfengis- og vímuvarnanefndar Akur-
eyrar og kennari við Menntaskólann
á Akureyri, sagði það sína skoðun að
lengri afgreiðslutími vínveitinga-
staða sem og breytingar á heildsölu
áfengis skipti verulegu máli í þessu
sambandi. „Það er afar óskammfeilið
og rangt að beina miskunnai'lausum
áróðri að unga fólkinu. Þetta keyrði
um þverbak þegar afgreiðslutími
vínveitingastaðanna varð frjáls og
breyting varð á heildsölu á áfengi,“
sagði Kristín.
„Því miður sjáum við æ fleiri dæmi
þess að áfengi er haldið mjög stíft að
ungu fólki.“
Ósmekklegt að efna
til drykkjukeppni
Hún nefndi að á dögunum var á
einum af vínveitingastöðum bæjar-
ins efnt til eins konar drykkjukeppni
sem fólst í því að drekka sem flesta
snafsa á sem skemmstum tíma.
„Þetta er afar ósmekklegt," sagði
Kristín sem hefur kært athæfið. Þá
sagði hún algengt að fyn-i hluta
kvölds væri ungt fólk lokkað inn í
vínveitingahúsin þar sem veitt væri
ókeypis bjór eða áfengi í kynningar-
skyni og svo þegar liði á væri byrjað
að selja. Margir héldu áfram jafnvel
þar til húsin væru lokuð og það segði
sig sjálft að fólk væri ekki til stór-
ræðanna eftir jafnvel tíu tíma törn.
Rristín leggur áherslu á að sem
fyrst verði tekin upp flokkun
skemmtistaða og að næturklúbbar
þyrftu að gangast undir ströng skil-
yrði og að þar væri ströng gæsla.
„Dyravörsluna þarf almennt að efla
og halda námskeið fyrir dyraverði,"
sagði Kristín.
Að sögn Kristínar er forvarnar-
starf í framhaldsskólunum til fyiir-
myndar og foreldrar í bænum hafi
staðið sig vel, m.a. með því að halda
úti svonefndri foreldravakt, en meira
þyrfti gi-einilega til að koma. Hún
kvaðst binda vonir við að á vegum
Akureyrarbæjar yrði áfram unnið
þróttmikið forvarnarstarf, en mikið
hefði verið lagt upp úr slíku starfi.
Meðal annai's var á dögunum opnuð
unglingamóttaka í Heilsugæslustöð-
inni og þá væri öflugt starf unnið á
vegum Kompanísins. Höfuðmarkmið
bæjarins væri að grunnskólinn væri
vímulaus og er unnið eftir ákveðinni
áætlun varðandi það, m.a. væru for-
varnarteymi starfandi í tveimur
grunnskólum bæjarins, sem reynslu-
verkefni og starfsdeild við Brekku-
skóla. Þá er unnið að svonefndu Mai'-
itaverkefni í grunnskólum bæjarins.
Mikilvægt að breyta viðhorfum til
unglingadrykkju.
„Það er afar mikilvægt að viðhorf
til unglingadrykkju taki breytingum,
það á ekki að vera sjálfsagt mál að
börn og unglingar drekki áfengi. Ef
við gætum búið betur að börnum
okkur ættu meðferðarheimili fyrir
börn undir 16 ára aldri að vera óþörf.
Eg klökkna í hvert sinn sem þarf að
opna ný meðferðarheimili fyrir börn.
Það er hryllilegt til þess að hugsa að
dauðadrukkin börn þvælist úti á göt-
unum í kulda og trekki og ég er
sannfærð um að ef um skepnur væri
að ræða myndi slíkt flokkast undii'
illa meðferð. Er nema von maður
spyrji, hvers konar þjóð það er sem
lætur svona lagað viðgangast," sagði
Kristín.
Hún sagði forvarnarstarf í raun ei-
lífðarverkefni en að því þyrfti mark-
visst að vinna og vitanlega skiptu
foreldrar þar mestu máli. Unga fólk-
ið ætti framtíðina fyinr sér, það væri
frjótt, duglegt og skemmtilegt, „en
við verðum að gera allt sem í okkar
valdi stendur til að forða því að þau
fari sér að voða,“ sagði Rristín.
KRINGLUKAST
Tilboð:
Joe gallabuxur 1.630 690
Emmalot legg. 990 690
Scuba bolur 1*690 990
Gallop bolur 1.990 1.290
Rack buxur 2,490 1.690
Scoopy jogg.sett 2,990 1.990
o.fl. tilboð
Nýtt kortatímabil
Opið sunnudag
í Kringlunni
EXIT
Laugavegi 95 - Kringlunni
Morgunblaðið/Kristján
Hlýtt á eríndi í háskólanum
ÞINGFLOKKUR Samfylkingari n n-
ar hefur verið á ferð um Norður-
lands eystra og var haldinn þing-
flokksfundur á Hótel Húsavík á
fimmtudagskvöld. Þá skoðuðu
þingflokksmenn fyrirtæki á Húsa-
vík á föstudagsmorgun, m.a. fs-
lenskan harðvið og heimsóttu Heil-
brigðisstofnunina. Þá lá lciðin til
Akureyrar þar sem víða var komið
við, m.a. í framhaldsskólunum,
Menntaskólanum á Akureyri og
Verkmenntaskólanum á Akureyri
og einnig brugðu þeir sér í Háskól-
ann á Akureyri þar sem þessi mynd
var tekin en hér hlýða þeir á erindi
Steingríms Jónssonar, haffræðings
á Hafrannsóknastofnun á Akureyri,
en hann ræddi m.a. um vistfrseði í
Eyjafirði. Á myndinni má sjá Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur, Svan-
fríði Jónasdóttur, Össur Skarphéð-
insson og Jóhann Árssælsson.
Morgunblaðið/Kristján