Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 1 3
Þingmenn
vilja bæta
fjarskipti
ámið-
hálendinu
SEX þingmenn úr fjórum þing-
flokkum hafa lagt fram á Alþingi
tillögu til þingsályktunar um að
dómsmálaráðherra skipi nefnd sem
geri tillögur um aðgerðir til að
auka öryggi þeirra sem ferðast um
hálendi íslands að vetrarlagi.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu á fimmtudag er í greinar-
gerð m.a. vísað til þess að stórar
gloppur séu í dreifikerfi fjarskiptíi
NMT og GSM og telja þingmennirn-
ir að bæta megi fjarskiptin á há-
lendinu þannig að þau nái til al-
gengustu ferðamannastaða þar.
Á meðfylgjandi myndum sem
fengnar eru frá Símanum gefur að
líta dreifikerfi GSM annars vegar
og NMT hins vegar. Eins og sjá má
nær NMT yfir mun stærra svæði en
GSM en samkvæmt upplýsingum
frá Símanum er dýrara að setja upp
GSM-dreifikerfið en NMT. Þá skal
vakin athygli á því að ekki næst
samband þegar komið er í dali eða í
hvarf frá næsta sendi.
Fíkniefni
á Fjólunni
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Akureyri heíúr haft í nógu að
snúast en síðustu daga hafa komið
upp tvö fíkniefnamál í bænum þar
sem talsvert magn fíkinefna hefur
verið gert upptækt.
I vikunni voru sjö menn handteknir
vegna fíkniefnamáls og í kjölfarið
voru þrír þeirra úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Fjórum mönnum var hins
vegar sleppt að lokinni yfirheyrslu en
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins eru tveir mannanna vistmenn á
Áfangaheimilinu Fjólunni á Akureyri
sem Norðurlandsdeild SÁÁ rekur.
Jafnframt að við húsleit á Fjólunni
hafi fundist einhver fíkniefni.
Engar upplýsingar fengust af mál-
inu hjá rannsóknardeild lögreglunnar
og forstöðumaður Fjólunnar vildi
heldur ekki tjá sig um málið.
------t-H-------
Tekinn með 15
grömm af hassi
LÓGREGLAN á ísafirði handtók
rúmlega þrítugan karlmann á
fimmtudag sem grunaður var um að
hafa fíkniefni undir höndum. Við leit
á honum og í farteski hans fundust
tæp 15 grömm af hassi. Maðurinn
viðurkenndi að eiga efnið og að hafa
keypt það í Reykjavík. Efnið ætlaði
hann til eigin nota.
Að lokinni yfirheyrslu hjá lögreglu
var manninum sleppt úr haldi og
telst málið að fullu upplýst og verður
sent lögreglustjóra til meðferðar.
Leyndur galli
af völdum
veggjatítlna
HÆSTIRETTUR komst að þeirri
niðurstöðu í dómi sínum á fimmtu-
dag, að kaupandi timburhúss í Hafn-
arfirði, sem veggjatítlur höfðu valdið
stórfelldum skemmdum á, ætti rétt
á afslætti af kaupverði hússins úr
hendi seljanda. Var seljanda því gert
að greiða kaupanda þrjár milljónir
króna vegna leynds galla í húsinu.
Húsið var flutt burt fyrir um
tveimur árum og brennt undir eftir-
liti yftrvalda en nýtt hús var reist á
steinsteyptum kjallara þess.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
seljanda til að greiða kaupanda 3,2
milljónir króna en Hæstiréttur
lækkaði greiðsluna um 200 þúsund
krónur m.a. vegna þess að í viðgerð
á húsinu samkvæmt fyrirsögn dóm-
kvaddra matsmanna hefði verið falin
veruleg nýsmíði.
GSM-svæðin í árslok 1999
Útbreiðslumörkin eru áætluð og miðuð við notkun 2W síma
GSM svæði
Landsímans í upphafi ársins 2000
Gerrit Schuil segir upp
hjá Islensku óperunni
GERRIT Sehuil hefur sagt upp
starfi sínu hjá Islensku óperunni.
Ástæður uppsagnarinnar útskýrir
hann í greinargerð sem hér er birt
óstytt:
„Hér með segi ég upp hverri
þeirri stöðu minni hjá íslensku óp-
erunni sem ég hafði eða hafði ekki.“
Þetta er efni stysta og dapurlegasta
bréfs sem ég hef nokkurn tíma
skrifað.
Eg lít á það sem skyldu mína að
skýra fyrir unnendum tónlistar og
óperuflutnings á íslandi hvers
vegna ég varð að stíga þetta skref.
Snemma árs 1999 var staða „óp-
erustjóra" íslensku óperunnar
auglýst laus til umsóknar. í auglýs-
ingunni voru tíundaðar þær kröfur
sem umsækjandi þyrfti að uppfylla
og sótti ég um starfið þar sem ég
uppfyllti þær allar.
Sú skynsamlega ákvörðun var
tekin að deila starfinu á milli fram-
kvæmdastjóra og listræns stjórn-
anda. Samkomulag náðist um að ég
tæki við starfi listræns stjórnanda
og aðalhljómsveitar-
stjóra, og þannig var
skýrt frá málinu í
fjölmiðlum í byrjun
maí.
Hinn 1. júlí tók ég
til starfa og á fyrstu
vikunum voru gerðar
áætlanir um allt það
sem flutt hefur verið á
fjölum fslensku óper-
unnar til þessa dags.
Framkvæmdastjórinn
hóf störf hinn 1. októ-
ber.
ítrekað fór ég fram
á það við stjórn ís-
lensku óperunnar að
gengið yrði frá ráðn-
ingarsamningi við mig, en upphaf-
lega höfðu verið lögð fyrir mig drög
að samningi sem höfðu að geyma
ýmis atriði sem ég gat ekki fallist á.
ítarlegra útskýringa og umræðna
var þörf til þess að gera stjórninni
ljóst í hverju starf listræns stjórn-
anda er almennt falið. Skilningur á
því virtist þó vera fyrir
hendi að umræðum
loknum, og lét ég þar
við sitja.
Eftir nálega níu mán-
aða starf við íslensku
óperuna hafði ég enn
ekki fengið neinn samn-
ing. Á sama tíma átti sú
furðulega áherslu-
breyting sér stað að
starfsheitið „óperu-
stjóri“ var veitt fram-
kvæmdastjóranum að
kröfu hans.
Þegar sýningum á
óperu Benjamins Britt-
en, „The Rape of
Lucretia" lauk, þótti
mér fyllilega tímabært að ganga úr
skugga um hver staða mín við óper-
una væri. Tímunum saman voru
málin rædd og reynt að komast að
samkomulagi. Niðurstaðan er í
stuttu máli þessi: Síðasta orðið í öll-
um ákvörðunum hefur fram-
kvæmdastjórinn sem hefur verið
veittur titillinn „óperustjóri". Jafn-
framt er hlutverk listræns stjórn-
anda skorið niður við trog, þannig
að honum er eingöngu ætlað að vera
listrænn ráðunautur með leyfi til að
koma með tillögur og uppástungur.
I slíku hlutverki væri nafn mitt
bundið sérhverju tónlistarstarfi ís-
lensku óperunnar burtséð frá því
hvort það samræmdist metnaði
mínum og sjálfsvirðingu sem tón-
listarmanni. Á því hlutverki hef ég
engan. áhuga þar sem það er af-
skræming á starfi listræns stjórn-
anda og mér ekki samboðið.
Það er sorglegt að verða vitni að
því að meirihluti stjórnar íslensku
óperunnar telur ráðlegt að fela allar
lokaákvarðanir manni sem vissu-
lega býr yfir mörgum góðum kost-
um en hefur hvorki menntun á sviði
tónlistar né faglega þekkingu á
söng, óperu eða leikhúsi. Niður-
stöðu meirihlutans get ég aðeins
túlkað sem vantraust á mér og starfi
mínu og á ég því ekki annarra kosta
völ en að kveðja Islensku óperuna."
Ég var ráðinn til að
stjórna þessu fyrirtæki
„ÉG harma þessa niðurstöðu ,“ sagði Bjami
Daníelsson óperustjóri í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Aðspurður hvort málið hefði átt sér langan að-
draganda sagðist Bjami búast við að nokkur
óvissa hefði ríkt um ábyrgð og verkaskiptingu frá
upphafi.
„Það dróst að gera ráðningarsamning við
Gerrit Schuil og þegar farið var að vinna í því
máli kom þetta í ljós.“
í yfirlýsingu frá Gerrit Schuil segir að starf
listræns stjómanda hafi „verið skorið niður við
trog þannig að honum er eingöngu ætlað að vera
listrænn ráðunautur með leyfi til að koma með
tillögur og uppástungur."
„Aiiðvitað snýst þetta líka um prinsippafstöðu
um hvemig eigi að reka óperahús. Hvort hinn
listræni stjórnandi eða rekstrarstjóri eigi að haí'a
úrslitaatkvæði. Mér finnst þó réttara að skoða
þetta frá því sjónarmiði hvort stefnumörkun og
áætlanagerð séu ein heild eða hvort listræn
stefnumörkun og áætlanagerð séu sérstakur ein-
angraður þáttur. Ég hef litið svo á að rekstur og
starfsemi þessa húss væra óaðskiljanleg tvennd
sem yrði að sjá sem eina heild og reka í ljósi þess í
hvaða umhverfi stofnunin er og listræn ákvarð-
anataka yrði að vera hluti af heildarstefnumörk-
un.“
Hafa listænar ákvarðanir nokkurt vægi ef
þeim fylgir ekki fjármálalegt ákvörðunarvald
líka?
„Það er ekki óeðllilegt að draga slíka ályktun.
En þessu ákvörðunarvaldi er misjafnlega fyrir-
komið eftir því hvert er litið. Á Norðurlöndunum
er misjafnt hvort þeir sem gegna stöðu ópera-
s
Agreiningur
um verka-
skiptingu
„ÞAÐ hefur verið ljóst um nokkurt skeið að
ekki rfkti einhugur um verkaskiptingu list-
ræns stjórnanda og óperustjóra og þrátt fyrir
að bæði stjórnin og sljórnendurnir hafi ítrek-
að reynt að ná samkomulagi um þetta þá hefur
það ekki tekist,“ segir Guðrún Pétursdóttir,
formaður sljómar Islensku óperunnar, um
uppsögn Gerrits Schuils.
„Stjórn íslensku óperunnar þykir mjög mið-
ur að mál skuli hafa þróast með þessum
hætti,“ segir Guðrún, „og bæði stjórn og
starfsmenn íslensku ópemnnar þakka Gerrit
frábær störf f þágu Óperunnar og óska honum
heilla í framtíðinni."
stjóra fara með hvoratveggja; rekstrarstjóm og
listræna stjóm. Ég var ráðinn til að gera heildar-
áætlanir um starfsemi hússins og bera ábyrgð á
rekstri þess. Sem þýðir einfaldlega að ég var ráð-
inn til að stjóma þessu fyrirtæki. Sá sem er ráð-
inn til að stjóma hann gerir það.“
Snýst ekki ágreiningurinn um nákvæmlega
þetta? Að þið hafið ekki verið sammála um hvor
ykkar væri ráðinn til að stjóma?
„Það er ein leið til að líta á málið. Eða hvort
listrænar ákvarðanir eiga að vera einangraðar og
sjálfstæðar eða hluti af heildarstefnumörkun um
rekstur og starfsemi. Síðan fylgir þessu óvissa
um hvar landamæri hinnar listrænu stjómunar
og rekstrarlegu stjórnunar liggja."
Getur þetta hvílt nema á einum herðum?
„Það má segja það. Ég er ráðinn á þeim for-
sendum að það sé einn skipstjóri á skipinu og á
því hefur aldrei leikið neinn vafi. Ég var ráðinn
upp á þau býti, “ segir Bjarni Daníelsson, ópera-
stjóri Islensku óperannar.
Aðspurður hvort hann myndi nú taka að sér
listræna stjórn óperannar kvað Bjami nei við því.
„Ég mun ekki gera það. Það verður rætt
hvernig eigi að standa að listrænni stefnumótun í
framtíðinni. Það má segja að við þessi leiðinlegu
tímamót skapist jákvæðir möguleikar sem er
sjálfsagt að skoða og fá eins mikið út úr og hægt
er.“