Morgunblaðið - 18.03.2000, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Flestir leikskólar
lokaðir í sumar
Reykjavík
AF ÞEIM 72 leikskólum sem
reknir eru á vegum Reykja-
víkurborgar munu 16 bjóða
foreldrum upp á val um það
hvenær barnið fer í frí í sum-
ar. Hinir skólarnir munu
gera hlé á starfseminni í 2 til
4 vikur vegna viðhalds hús-
næðis eða vegna vöntunar á
reyndu starfsfólki.
Stjórn leikskólanna ákvað
fyrir 5 árum að freista þess
að bjóða foreldrum upp á val
varðandi frí barna á sumrin
en í flestum nágrannasveit-
arfélögum verður öllum leik-
skólum lokað vegna sumar-
leyfa í ákveðinn tíma yfir
sumarið.
Bergur Felixson, fram-
kvæmdastjóri Leikskóla
Reykjavíkur, segir að haldið
verði áfram að reyna að
bjóða upp á val varðandi
sumarleyfi, þrátt fyrir að
Reynt að bjóða
upp á val vegna
sumarleyfis
margt geri að verkum að erf-
itt sé um vik að halda þeim
möguleikum opnum fyrir for-
eldra.
„Við teljum að samningur
okkar við foreldra sé á þann
veg að við bjóðum leikskóla-
pláss fyrir börnin í ellefu
mánuði á ári. Hvað varðar
sumarfrí reynum við að gera
okkar besta í samráði við for-
eldra, en því miður tekst ekki
alltaf að fullnægja óskum
þeirra. Þá ákveðum við hve-
nær barnið fer í frí og það er
það sem fólk er ekki alltaf
ánægt með,“ segir Bergur.
Hann segir að ákvörðun
hafi verið tekin um það á sín-
um tíma að reyna að koma til
móts við þær óskir foreldra
að þeir hafi eitthvert val um
hvenær börnin fara í frí. Frá
þeim tíma hefur þó fjölgað
þeim skólum sem þurfa að
senda alla í frí á sama tíma
vegna viðhalds og viðgerða,
en heilbrigðiseftirlitið hefur
tekið harðar á því að verið sé
að vinna með hættuleg spilli-
efni í leikskólunum á meðan
starfsemin er í gangi.
I sumar verður 23 leik-
skólum lokað vegna viðgerða
eða þá vegna þess að könnun
meðal foreldra hefur leitt í
ljós að flestir vilja að fríið sé
á sama tíma. Síðan þarf að
gera hlé í 36 leikskólum af
þeirri ástæðu að starfs-
mannahald býður ekki upp á
það svigrúm að foreldrar geti
valið sér sumarleyfistíma
barnanna. Bergur segir að
stöðugleiki í starfsmanna-
haldi hafi þó verið að batna
og ný starfsmannaáætlun líti
betur út. í flestum skólanna
verður farið í frí frá miðjum
júlí og fram í ágúst.
Morgunblaðið/Golli
Fyrstu vorverkin við Miklubraut
ÓVANALEG snjóalög þessa
vetrar hafa gert mörgum
gramt í geði. BOýindi vikunn-
ar hafa þó létt á sköflum og
klakabrynjum á götum og
gangstéttum borgarinnar og
tækifæri gefast nú til að
sinna þeim fyrstu verkum
sem vorleg geta talist.
Þegar hlýindi og rigning
höfðu svipt hvítri ábreiðu
vetrarins af jörðinni, lagði
þessi starfsmaður borgar-
innar af stað til að hreinsa við
Miklubrautina það rusl sem
undan snjónum kemur og
ekki er talið til prýði á götum
og gangstéttum borgarinnar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Gönguhópur starfsmanna Landsteina í hádegisgöngunni í Elliðaárdal.
Vetraríþróttavika hófst í gær
Starfsfólk Land-
steina stóð upp frá
tölvuskjánum
HÓPUR starfsmanna hjá
Landsteinum ísland tók sig til
í hádeginu í gær, stóð upp frá
tölvuskjánum og teygði úr
sér, ýmist með því að fara í
röskan göngutúr eða í sund í
Árbæjarlauginni. Tilefnið var
nýhafin vetraríþróttavika
sem íþróttabandalag Reykja-
víkur stendur fyrir í samvinnu
við Menningarborg. Skorað
var á fyrirtæki að gefa starfs-
fólki lengra hádegishlé til
hreyfingar og þátttöku í
þessu átaki og stjómendur
Landsteina tóku vel í þá
áskorun.
Guðjón Auðunsson fram-
kvæmdastjóri mundi eftir því
að taka með sér gönguskóna í
vinnuna þennan daginn. Hjá
Landsteinum Island vinna um
60 manns, en Guðjón sagði að
margir væru að störfum við
að þjónusta fyrirtæki um borg
og bæ, þannig að ekki ættu
allir þess kost að slást í hóp
göngu- og sundfólks. Hann
sagði svona framtak vera auð-
velt í framkvæmd enda starfs-
menn flestir ungir að árum og
þátttaka yfirleitt mjög góð i
uppákomum starfsmannafé-
lagsins.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þau Guðrún, Bjartey, Halldóra, Bryndís, Sveinn Áki og El-
íza Ieggja af stað í sund í Arbæjarlaugina.
Guðjón sagði fyrirtækið
hvetja fólk til að stunda ein-
hvers konar líkamsrækt og
greiðir m.a. niður kostnað
þeirra starfsmanna sem
stunda sund, golf og annað
sport til að efla líkamlegt at-
gervi. Hann telur það enda
skila sér í betri vinnukröftum
og búið er að setja ákvæði um
líkamsrækt í starfsmanna-
handbók Landsteina.
„Það er bara staðreynd að
fólk sem vinnur í þessu um-
hverfi og situr við tölvur allan
daginn verður að fá pásu til að
standa upp og hreyfa sig.“
Flestir þeirra starfsmanna
sem fóru af stað í hádeginu
völdu að fara í göngutúr. I
upphafi var ætlunin að ganga
umhverfis Rauðavatn, en þeg-
ar til átti að taka þótti það of
langt og einn starfsmanna
stakk upp á að ganga í Elliða-
árdalinn. Fámennari hópur
ákvað hins vegar að stefna á
Arbæjarlaug enda freistaði að
setjast í heitu pottana eftir
sundsprettinn.
Garðabær samþykkir að
taka þátt í Knatthúsum
Gardabær
BÆJARSTJÓRN Garða-
bæjar samþykkti á fundi á
fimmtudaginn að gefa vilja-
yfirlýsingu í þátttöku í
Knatthúsum, félagi með að-
ild sveitarfélaganna sunnan
Reykjavíkur, um uppbygg-
ingu sameiginlegs knatt-
spyrnuhúss. Garðabær er
fyrst sveitarfélaganna til að
staðfesta viljayfirlýsingu um
þátttöku.
„Þessi viljayfirlýsing felur
í sér að Garðabær er reiðu-
búinn að stuðla að uppbygg-
ingu knatthúss með félaginu
á þeim forsendum að það sé
gert ráð fyrir að Garðabær
leggi til 15 m.kr. hlutafé á 3
árum og skuldbindi sig til að
leigja tíma í knatthúsinu
fyrir fjárhæð sem nemur um
6 m.kr. á ári,“ sagði Ingi-
mundur Sigurpálsson bæjar-
stjóri í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Knatthús ehf. hefur sent
Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ,
Kópavogsbæ og Bessastaða-
hreppi viljayfirlýsingu með
beiðni um staðfestingu. Þar
kemur fram að sveitarfélög-
in skuldbindi sig til að
leggja fram samtals 50 m.kr.
hlutafé og tryggja 31 m.kr.
leigutekjur á ári.
Ingimundur sagði talað
um að íþróttafélögin sex í
sveitarfélögunum fjórum
fengju í staðinn í heild 60%
af nýtanlegum tímum í
íþróttahúsinu, þ.e. 38 klst. á
viku.
Skuldbinda sig ekki til
að Iegg til lóð
Gengið hefur verið út frá
staðsetningu húss Knatt-
húsa í Vetrarmýri í Garða-
bæ en Ingimundur sagði að
bæjarstjórnin hefði ekki
skuldbundið sig til að leggja
til lóð. „Með þessari sam-
þykkt eru bæjarfirvöld að
lýsa því yfir að þau eru til-
búin til að stuðla að því að
það sé hægt en það á eftir
að fara í gegnum skipulag-
sferilinn allan. Þar er fyrsta
skrefið að ganga frá deili-
skipulagi á þeim reit sem
um er að ræða og ef til
þessa kemur fer það fyrir
skipulagsnefnd og bæjar-
stjórn og í tilheyrandi
auglýsingar og kynningu."
Einar Sveinbjörnsson
bæjarfulltrúi lagði fram til-
lögu á bæjarstjórnarfundi í
fyrradag um að málinu yrði
frestað og tíminn m.a. nýtt-
ur til að ná samkomulagi við
hin sveitarfélögin um endur-
gjald til bæjarins fyrir nið-
urfellingu gatnagerðar-
gjalda af knatthúsinu. Sú
tillaga var felld.
Ingimundur sagði að ekki
hefði verið rætt um gatna-
gerðargjöld en ekki væri um
að ræða að bærinn greiddi
hlutafé sitt með eftirgjöf
gatnagerðargjalda heldur
yrðu greiddar 15 m.kr. í
hlutafé. Hugsanlegt endur-
gjald fyrir gatnagerðargjöld
gæti þá komið til viðbótar
en það yrði rætt á síðari
stigum.
Eins og fyrr sagði er við
það miðað að sveitarfélögin
fái gegn framlagi sínu af-
notarétt yfir 60% tíma
íþróttahússins eða samtals
38 klst. á viku. Ingimundur
vísaði á forsvarsmenn
Knatthúsa spurningu um
hvernig húsið yrði nýtt að
öðru leyti. „Ég reikna með
að þeir hafi í hyggju að
leigja öðrum íþróttafélögum
og hverjum sem vill nýta
húsið,“ sagði hann. Ekki
lægi heldur fyrir hve stóran
eignarhluta í húsinu 50
m.kr. hlutafjárframlag færði
sveitarfélögunum. „Þeir eru
fyrst og fremst að beina
þessu erindi til sveitarfélag-
anna til að hafa á þessu upp-
hafspunkt. Það er styrkur
fyrir hugmyndina að sveit-
arstjórnirnar séu með í
þessu verkefni. Þeir kynntu
okkur málið þannig að í
framhaldi af viljayfirlýsingu
frá sveitarfélögunum yrði
farið af stað með að safna
hlutafé hjá öðrum aðilum.
Ég hef ekki heyrt hugmynd-
ir um heildarhlutafé."
15 m.kr. hlutafé
Að því er fram kemur á
heimasíðu skuldbinda
Garðabær, Hafnarfjarðar-
bær og Kópavogsbær sig til
að greiða 15 m.kr. hlutafé
hver, með undirritun viljayf-
irlýsingarinnar, en hlutur
Bessastaðahrepps verður kr.
5 m.kr. Ingimundur segir að
hlutur Garðabæjar í leigu-
tekjum hússins verði 6 m.kr.
á ári en skuldbindingin er til
25-30 ára.
Ingimundur sagði að í til-
lögum Knatthúsa væri lagt
upp með 510 m.kr. einangr-
að hús. Gert er ráð fyrir að
rekstrarkostnaður hússins
verði 23,6 m.kr. á ári en 37-
38 m.kr. þurfi árlega til
greiðslu stofnkostnaðar og
fjármagnskostnaðar eða
samtals rúmlega 60 m.kr. á
ári. Með leigutekjum frá
sveitarfélögum fáist 31 m.kr.
í tekjur en að öðru leyti afli
fyrirtækið sér tekna. „Það
er ekki okkar áhyggjuefni á
þessu stigi,“ sagði bæjar-
stjóri. „Ég held að það sé
ekki nokkur vafi á að það
verður þörf fyrir 2-3 knatt-
spyrnuhús til þess að þjóna
knattspyrnufélögunum hér á
svæðinu. í mínum huga er
ekki vafi á að í framtíðinni
verður mikil eftirspurn eftir
tímum í þessum húsum. Ég
reikna með að knattspyrnu-
menn hér í Garðabæ yrði til-
búnir að nýta húsið miklu
meira en þetta er sú upp-
hæð sem Garðabær er til-
búinn að setja í þetta.“
Ingimundur sagði að
knattspyrnuvöllur í húsi
eins og um væri rætt væri
gríðarlega stór. „Fjórðung-
ur af þessu húsi er um 1.800
fermetrar, jafnstór og tveir
handboltavellir. Það er hægt
að gjörnýta sér þetta og það
geta margir flokkar verið í
húsinu í einu,“ sagði Ingi-
mundur.