Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 16
16 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Úrslitakeppni í handbolta og körfubolta framundan
KA-menn og
Þórsarar
snúa bökum
Morgunblaðið/Kristj án
Þjálfarar KA og Þórs, Atli Hilmarsson og Ágúst Guðmundsson
taka höndum saman fyrir átökin framundan.
Fjárfestingar
og ráðgjöf
opna útibú
FJÁRFESTINGAR og ráðgjöf opn-
uðu útibú á Akureyri í gær og er það
til húsa að Hofsbót 4.
Fjárfestingar og ráðgjöf er löggild
vátryggingamiðlun sem sérhæfir sig
í fjárfestingartengdum tryggingum,
lífeyrismálum, líftryggingum, sjúk-
dómatryggingum, sjúkra- og slysa-
tryggingum, heilsu- og afkomu-
tryggingum, ásamt óháðri alhliða
fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga og
fynrtæki.
í frétt frá félaginu segir að það
starfi sjálfstætt og óháð öðrum fé-
lögum í leit að hagstæðustu leiðum
fyrir umbjóðendur sína. Verksvið
fyrirtækisins sé einkum að meta
þörf, undirbúa útboð, koma á samn-
ingu við það félag sem fyrir valinu
verður og gæta hagsmuna viðskipta-
vinarins. Hjá fyrirtækinu starfa 32
starfsmenn, en á Akureyri eru
starfsmenn 5. Arni Þór Freysteins-
son er svæðisstjóri á Norðurlandi.
---------------
Verslunarráð íslands
Hádegisfundur
um hlutabréfa-
markað
BJARNI Armannsson, forstjóri
FBA, og Þorsteinn Már Baldvinsson
verða ræðumenn á hádegisverðar-
fundi Verslunarráðs Islands sem
haldinn verður á Fosshótel KEA á
þriðjudag, 21. mars, frá kl. 12. til
13.30. Á fundinum verður rætt um
hlutabréfamarkaðinn, þróun hans og
mikilvægi, reynslu fyrirtækja og
efnahagslífsins af hlutabréfamark-
aðnum og hvaða breytingar séu
æskilegar.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir-
fram til Verslunarráðsins.
---------------
Safnahúsið á Húsavfk
Sýning á verk-
um eftir Gunn-
laug Scheving
SÝNING á verkum eftir Gunnlaug
Scheving verður opnuð í Safnahús-
inu á Húsavík í dag, laugardaginn 18.
mars,og stendur hún fram til 26.
mars næstkomandi. Sýningin er frá
Listasafni íslands og verður hún op-
in alla sýningardagana frá kl. 14 til
19. Þessi sýning er liður í dagskrá
vegna 50 ára afmælis kaupstaðar-
réttinda Húsavíkurkaupstaðar.
saman
HANDKNATTLEIKSLIÐ KA og
körfuknattleikslið Þórs eiga fyrir
höndum erfiða leiki í úrslita-
keppnum efstu deilda í handbolta
og körfubolta karla á næstunni.
Af því tilefni hafa þjálfarar og
leikmenn félaganna ákveðið að
snúa bökum saman og sýna hver
öðrum stuðning í leikjunum fram-
undan. Jafnframt skora þjálfarar
liðanna, þeir Atli Hilmarsson þjálf-
ari KA og Ágúst Guðmundsson
þjálfari Þórs, á alla Akureyringa
að gera slíkt hið sama og mæta á
leikina sem framundan eru og
styðja við bakið á heimamönnum.
Þórsarar leika gegn Haukum í
Iþróttahöllinni á Akureyri sunnu-
daginn 19. mars kl. 20 í úrslita-
keppninni í körfubolta og ætla
KA-menn að fjölmenna á leikinn
og styðja við bakið á þeim. KA-
menn leika sinn fyrsta Ieik í úr-
slitakeppninni 25. eða 26. mars og
þá ætla Þórsarar að fjölmenna í
SIGURÐUR Halldórsson sellóleik-
ari kemur fram á tónleikum Tónlist-
arfélags Akureyrar sem haldnir
verða í Akureyrarkirkju annað
kvöld, sunnudagskvöld, 19. mars kl.
20.30.
Þar mun hann flytja sellósvítur
Johanns Sebastians Bachs, nr. 3, 4,
og 5, en í ár eru 200 ár liðin frá and-
láti hans og er þess minnst víða um
heim.
Svítur Bachs fyrir selló voru skrif-
aðar u.þ.b. 1720, en það ár samdi
hann einnig 6 sónötur og partítur
fyrir einleiksfiðlu. í þessum verkum
sýnir Bach m.a. hæfni sína í að nota
hljóma, tvígrip og einstaka laglínur
til þess að gefa til kynna tvær eða
fleiri sjálfstæðar raddir. Þó að Bach
hafi með þessum verkum bundið
endahnútinn á gamla einleiksformið,
þá gefur hann einnig tóninn með
þeirri hugmynd að víkka út
mjög knappt form eða skapa heila
veröld með hjálp eins hljóðfæris,
hugmynd sem er eins og rauður
KA-heimilið. Þjálfarar liðanna
sögðu að markmiðið væri að fylla
bæði húsin og mynda stemmningu
sem eftir yrði tekið og báðir voru
þeir sammála um að framundan
væri spennandi tími. Aðsókn að
heimaleikjum liðanna í vetur hef-
ur verið frekar dræm en þó farið
þráður í gegnum þróun einleiks-
verka fyrir strengjahljóðfæri á 20.
öld.
Sigurður Halldórsson hefur starf-
að sem einleikari og kammertónlist-
armaður í rúman áratug, eða frá því
að hann lauk námi frá Guildhall
School of Music í Lundúnum. Hann
hefur sérstaklega lagt sig eftir að
flytja tónlist 20. aldar og tekið þátt í
fjölda hljóðritana á þeirri tónlist. Á
næstu vikum kemur út hljómdiskur
þar sem hann leikur
einleiksverk, m.a. eftir Hafliða
Hallgrímsson og Z. Kodály. Sigurð-
ur hefur leikið með Daníel Þorsteins-
syni píanóleikara síðan 1983, flutt og
hljóðritað fjölda verka fyrir selló
og píanó og farið í tónleikaferðir til
Evrópu og Ameríku auk íslands.
Hann hefur leikið á barokkselló í
Bachsveitinni í Skálholti síðan
1995 og hefur einnig komið fram sem
einleikari með henni. í júlí n.k. mun
hann leika allar 6 sellósvítur Bachs á
Sumartónleikum í Skálholtskirkju.
vaxandi.
Lokaumferðin í 1. deildinni í
handbolta fer fram á morgun,
laugardag, og þá mætir KA Val í
KA-heimilinu kl. 17.00. Atli sagði
að leikurinn væri mjög mikilvæg-
ur og hann vonast eftir góðum
stuðningi áhorfenda.
Stórutj arnaskdli
Söngfélagið
Sálubót með
skemmtun
SÖNGFÉLAGIÐ Sálubót heldur
skemmtun og dansleik í Stórutjama-
skóla á laugardagskvöld, 18. mars og
verður þar einnig boðið upp á 25 rétta
fiskhlaðborð. Þar verður að finna ým-
islegt sem ekki er daglega á borðum
manna eins og kúttmaga, steiktan
rauðmaga, djúpsteiktan og pönnust-
eiktan smokkfisk, saltfiskrétti af
ýmsu tagi, langlúru og skrápflúru. Þá
verða einnig á borðum kjötréttir. Yf-
irkokkur er Gunnar Smári Björgvins-
son.
Fjöldi skemmtiatriða verður á dag-
skrá og koma fram ýmsir þekktir
skemmtikraftar úr Þingeyjarsýslu
auk þess sem Söngfélagið Sálubót
tekur lagið. Veislustjóri verður sr.
Pétur Þórarinsson sóknarprestur í
Laufási. Að loknu borðhaldi leikur
Kross-field drengjakórinn fyrir dansi.
Samkoman er haldin til fjáröflunar
vegna söngferðalags sem Sálubótar-
félagar hyggja á til Eistlands. Stjóm-
andi Sálubótar er Eistlendingurinn
Jaan Alavere, tónlistarkennari við
Stóratj amaskóla.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Umræðu-
fundur verður í Safnaðarheimili í
dag, laugardag frá kl. 11 til 13 um
kristniboð og safnaðarstarf. Skúli
Svavarsson framkvæmdastjóri SÍK
flytur erindi. Sunnudagaskóli verð-
ur í Safnaðarheimilinu kl. 11 á
morgun. Guðsþjónusta verður í
kirkjunni kl. 14 á morgun. Heim-
sókn úr Grenjaðarstaðaprestakalli,
sameinaðir kórar prestakallsins
syngja og sr. Þorgrímur Daníel
sóknarprestur predikar og þjónar
fyrir altari. Fundur Æskulýðsfé-
lagsins verður í kapellu kl. 17 á
morgun. Biblíulestur verður í Safn-
aðarheimili kl. 20 á mánudagskvöld,
Skúli Svavarsson kristniboði fjallar
um kristniboð í Jóhannesarguð-
spjalli. Morgunsöngur verður í Ak-
ureyrarkirkju kl. 9 á þriðjudags-
morgun. Mömmumorgunn verður í
kirkjunni frá kl. 10 til 12 á miðviku-
dag. Sigfríður Inga Karlsdóttir ljós-
móðir ræðir um andlega líðan eftir
fæðingu og svarar spurningum um
það efni. Föstuvaka verður í
kirkjunni næsta miðvikudagskvöld.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11 á
morgun, sunnudag. Vilberg Alex-
andersson skólastjóri flytur hug-
leiðingu og börn úr Glerárskóla
flytja þátt um kristnitökuna. Bama-
kór Glerárkirkju syngur. Foreldrar,
afar og ömmur hvött til að mæta
með börnunum. Fundur æskulýðs-
félagsins verður kl. 20 annað kvöld.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10
á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12
til 13 á miðvikudag, orgelleikur, fyr-
irbænir og sakramenti, léttur há-
degisverður í safnaðarsal á vægu
verði að stundinni lokinni.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag, bænastund kl. 16.30, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20 um kvöldið. Heimila-
samband kl. 15 á mánudag. Hjálpar-
flokkur fyrir konur kl. 20 á
miðvikudagskvöld, krakkaklúbbur á
fimmtudag kl. 17.30 fyrir 6-10 ára
börn og 11 plús fyrir 11-12 ára börn
á föstudag kl. 17.30. Flóamarkaður
á föstudögum.
HRISEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Stærri-Árskógs-
kirkju kl. 11 á morgun. Sunnudaga-
skóli í Hríseyjarkirkju kl. 11 á
morgun.
HVÍ TASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning kl. 20 í kvöld, laug-
ardagskvöld. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar kl. 11.30 á morgun,
sunnudag. Kennsla úr Orði Guðs
fyrir alla aldurshópa. Yngvi Rafn
Yngvason kennir. Léttur málsverð-
ur að lokinni samkomu. Almenn
vakningarsamkoma kl. 16.30 á
morgun, vitnisburðir og fyrirbæna-
þjónusta, boðið upp á barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11 í kirkjunni við Eyr-
arlandsveg 26.
KFUM og K: Kristniboðssam-
koma í félagsheimilinu í Sunnuhlíð í
kvöld kl. 20.30. Ræðumaður verður
Skúli Svavarsson, kristniboði og
sýnir hann einnig myndir frá Kenýu
þar sem hann hefur starfað undan-
farin ár ásamt konu sinni Kjellrúnu
Langdal.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa í Gmndarkirkju á morgun,
sunnudag kl. 13.30. Skúli Svavars-
son, kristniboði predikar. Vænst er
þátttöku fermingarbarna. Sama dag
verður messa á Kristnesspítala kl.
15.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Messa í Glæsibæjarkirkju á morg-
un, sunnudag kl. 14. Sálmar, 6 - 193
- 338 - 345 - 527. Organisti verður
Birgir Helgason. Stutt stund fyrir
börn í messulok.
----------------
Aglowfundur
AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda fund í félagsmiðstöðinni Víði-
lundi 22 á Akureyri næstkomandi
mánudagskvöld, 20. mars kl. 20.
Sheila Fitzgerald, útvarpsstjóri
Lindarinnar, flytur ræðu kvöldsins.
Þá verður á dagskrá söngur, lofgjörð
og fyrirbænaþjónusta. Allar konur
eru velkomnar á fundinn.
VERKEFNASJOÐUR AFE
TwÉ
Wf Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr Verkefnasjóði
W AFE. Umsóknareyðublöð, ósamt leiðbein-
■ ingablaði, fóst ó skrifstofu AFE, Strandgötu
29, hjó bæjarritaranum í Ólafsfirði og ó
Dalvík og sveitarstjóranum ó Grenivík.
Einnig er hægt að nólgast eyðublöðin ó
heimasíðu félagsins afe.is
Nónari upplýsingar eru veittar ó skrifstofu
AFE í síma 461 2740 eða netfangi „bene-
dikt@afe.is" Umsóknarfrestur er til 31. mars
2000. Öllum. umsóknum verður svarað
fyrir 30. apríl 2000.
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
ímpra
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
(rumkvöAla og fyrlrt«k|a
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
Fyrirtækjastefnumót í Danmörku
___________8.0B 9. júní_________________________
Markviss ieið til að ná árangri erlenflis
Kynningarfundur á vegum Evrópumiðstöðvar Impru og Atvinnu-
þróunarfélags Eyjafjarðar verður haldinn í fundarsal Atvinnu-
þróunarfélagsins á Strandgötu 29, Akureyri, mánudaqinn 20.
mars nk. kl. 10.00.
Á Europartenariat fyrirtækjastefnumótinu munu um 400 dönsk
fyrirtæki og um 2.500 fyrirtæki frá 60 öðrum löndum leita sam-
starfs á sviði viðskipta, tækni, þróunarstarfs og á fleiri sviðum.
íslensk fyrirtæki geta tekið þátt í mótinu, sér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Berglindi Hallgrímsdóttur
hjá Evrópumiðstöð Impru, Iðntæknistofnun, sími 570 7100,
beralindh@iti.is og Bjarna Þórólfssyni hjá Atvinnuþróunarfélagi
Eyjafjarðar sími 461 2740, biarni@afe.is.
Tónlistarfélag Akureyrar
Sigurður Halldórs-
son leikur á selló