Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 21
VERULEGAR breytingar urðu á
starfsumhverfi Pharmaco á sviði
umboðs- og heildsölu á árinu.
Athyglisverðast er þar kannski að
fyrirtækið missti dreifingarsamning
fyrir Delta sem ákvað að rifta samn-
ingum sem giltu milli fyrirtækjanna
og ganga til samstarfs við Lyfja-
verslun. Þetta er auðvitað nokkur
blóðtaka þar sem Delta hefur verið
stærsti birgir Pharmaco frá því að
framleiðsludeild Pharmaco var klof-
in frá fyrirtækinu og gerð að sjálf-
stæðu dótturfyrirtæki. Áhrifa þessa
gætir minna í afkomu en veltu þar
sem dreifíngarsamningar gefa eðli-
lega minna af sér fyrir Pharmaco en
umboðsþjónusta," að því er fram
kemur í skýrslu stjórnar Pharmaco
sem kynnt var á aðalfundi félagsins
í gær.
Á hinn bóginn fékk Pharmaco ný
umboð á árinu sem urðu til fyrir
samruna tveggja stórfyrirtækja,
annars vegar AstraZeneca og hins
vegar Aventis. Þessi tvö fyrirtæki
eru í dag á meðal 5 stærstu lyfjafyr-
irtækja í heiminum. Þá er nýlokið
stríði um Warner Lambert þar sem
American Home og Pfizer tókust á.
Niðurstaðan varð sú að Pfizer
keypti Warner og verður þar með
einnig eitt af 5 stærstu fyrirtækjun-
um í lyfjageiranum.
„Með þessu hefur staða Pharm-
aco á lyfjamarkaðinum styrkst
verulega því eins og áður hefur
komið fram er erfitt að sjá fyrir
hvaða áhrif samrunar geta valdið.
Það er ástæða til að ætla að stærstu
fyrirtækin muni frekar kaupa upp
smærri fyrirtæki en að fara í sam-
runa í framtíðinni sem er áhættu-
minna fyrir okkur sem umbjóðend-
ur,“ að því er fram kemur í
skýrslunni.
Áætlað að hagnaður ársins nemi
240 milljónum króna
Pharmaco keypti á árinu snyrti-
vöru- og matvörudeild Rolfs Johan-
sen. Snyrtivörudeildin var sameinuð
snyrtivörudeild Pharmaco en mat-
vörudeildin er rekin við hliðina á Is-
lenskum matvælum og er ætlað að
verða hluti þess rekstrar.
Rekstur Islenskra matvæla gekk
þokkalega á árinu og jókst velta fyr-
irtækisins um 13% og varð 296
milljónir króna og nokkur hagnaður
af rekstri. Það hefur verið stefna
Pharmaco að Islensk matvæli verði
sjálfstæð rekstrareining en ekki
rekið sem deild innan Pharmaco.
Nokkrar þreifingar hafa verið í
þeim efnum sem gætu skýrst fljót-
lega.
Fyrirtækið keypti á árinu hluti í
nokkrum fyrirtækjum, mest í Baugi
íyrir um 150 milljónir og í nýju fjár-
Nýtt félag
um rafræn
viðskipti
NÝTT félag, Span hf., sem mun ein-
beita sér að smíði lausna fyrir raf-
ræn viðskipti milli fyrirtækja (busin-
ess-to-business e-commerce, B2B)
og rekstri sérstakrar viðskiptamið-
stöðvar, sem hleypt verður af stokk-
unum síðar á árinu, var stofnað í
gær.
Stofnendur Spans hf. eru: Kögun
með 30% hlutafjár, FBA og Lands-
sími íslands með 15% hlutafjár hvort
félag, Vilhjálmur Þorsteinsson og
Örn Karlsson með 7,5% hvor og
BYKO og Orkuveita Reykjavíkur
með 5% hlut hvort. Að auki eru 15%
hlutafjár frátekin fyrir lykilstarfs-
menn og tiltekna samstarfsaðila.
f fréttatilkynningu kemur fram að
viðskiptamiðstöð Spans mun gera
viðskiptavinum mögulegt að eiga
viðskipti með vörur og þjónustu sín á
milli. Kerfið mun jafnframt halda ut-
an um útboð og uppboð, greiðslu-
miðlun og miðlun hvers kyns við-
skiptaskjala. Öll viðskipti og færslur
eru rafrænar og kemur enginn papp-
ír við sögu nema þar sem lög og
reglur krefjast. Miðstöðin mun jafn-
framt bjóða sérstaka rekstrarvöru-
deild í samvinnu við lykilfyrirtæki á
þeim markaði.
Skýrsla stjórnar á aðalfundi Pharmaco
Blóðtaka að
samning við
festingarfyrirtæki, íkonsjóðnum,
fyrir um 175 milljónir, sem er 48%
eignarhlutur í honum.
íkonsjóðurinn var stofnaður utan
um fjárfestingu í búlgarska fyrir-
tækinu Balkanpharma. Eins og áð-
ur hefur verið kynnt var Balkan-
pharma heildverslun í einkaeign
sem náð hafði kauprétti á meirihluta
ríkisins í þremur lyfjaverksmiðjum í
Búlgaríu. „Til þess að fjármagna
kaupin leitaði Balkanpharma til
Deutsche Bank um aðstoð við að
kynna fyrirtækið og finna fjárfesta.
Endirinn varð sá að Deutsche og
íkonsjóðurinn skiptu 90% hlut í
missa
Delta
Balkanpharma á milli sín.
Balkanpharma keypti verksmiðj-
urnar þrjár í lok júní og samstæðu-
uppgjör er gert fyrir seinni hluta
ársins. Afkoma Balkanpharma fyrir
hálft ár nam 1,6 milljónum USD eft-
ir skatta og minnihluta (nettó hagn-
aður) og varð nokkuð betri en áætl-
að hafði verið. Áætlanir fyrir 2000
gera ráð fyrir að velta Balkan-
pharma verði USD 115 milljónir og
afkoma um 10 milljónir USD. Það er
óhætt að segja að hlutabréfamark-
aðurinn tók þessari frétt um Balk-
anpharma vel eftir kynningarfund
sem haldinn var um miðjan desem-
ber. Gengi hlutabréfa hafði reyndar
hreyfst lítið allt árið en tók á rás og
hækkaði frá byrjun árs til loka úr
12,60 í 19,60, eða um 56% tæp. Síðan
þá hefur gengið enn hækkað og er
nú í 34 og hefur hækkað um 73% frá
áramótum," segir enn fremur í
skýrslu Pharmaco.
Áætlanir ársins 2000 gera ráð fyr-
ir að velta fyrirtækisins verði svipuð
og í fyrra, þ.e. um 3.500 milljónir.
Áætlað er að hagnaður félagsins eft-
ir skatta nemi um 240 milljónum
króna.
Ertua
feröinni ?
SS Ostapylsa
með lauksalati
og 0,4 I gos
Mars King Size
og 0,5 Itr Coca-Cola
í plasti
& íívöííííSfod
ö
Alltafferskt... SBleCt