Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 23
ERLENT
Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson.
Glófaxi VE drekkhlaðinn á leið af loðnumiðununi fyrir skömmu.
Loðnuvertíðin
í andarslitrunum
VEÐUR hefur að mestu hamlað
loðnuveiðum undanfarna daga og
hætta skipin nú veiðunum eitt af
öðru. Þannig eru stærstu skipin nú
að búa sig undir kolmunnaveiðar.
Mörg skipanna hafa þegar klárað
kvóta sína en um 90 þúsund tonn
eru þó enn eftir af heildarkvótanum.
Agæt loðnuveiði var í Breiðafirði
fyrr í vikunni en skipin hafa lítið
getað athafnað sig þar síðustu daga
vegna veðurs. Þau skip sem enn eru
að veiðum voru á fimmtudag komin í
Faxaflóa en fengu lítið að sögn
Gunnars Gunnarssonar, skipstjóra á
loðnuskipunu Svani RE, en skipið
var í gær að landa í Reykjavík og er
hætt veiðum á þessari vertíð. Ekk-
ert loðnuskip var að veiðum í gær
vegna veðurs. „Það er ekki mikið
magn á ferðinni og líklega er loðnu-
vertíðin í andarslitrunum, enda er
stærstur hluti loðnunnar búinn að
hrygna. Við gætum samt örugglega
verið að einhverja daga til viðbótar
ef við fengjum skaplegt veður,“
sagði Gunnar.
Frá áramótum hafa borist tæp
760 þúsund tonn af loðnu að landi,
þar af tæp 720 þúsund tonn af ís-
lenskum skipum. Mest hefur borist
til Hraðfrystihúss Eskifjarðar eða
tæp 73 þúsund tonn, en rúm 63 þús-
und tonn til Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað og um 62 þúsund tonn
til SR-mjöls hf. á Seyðisfirði.
Minni afli
í febrúar
FISKAFLI landsmanna síðastlið-
inn febrúarmánuð var 377.796
tonn, samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslans. Það er talsvert
minni afli en í febrúarmánuði árið
1999 en hann var 405.807 tonn.
Mestu munar um samdrátt loðnu-
afla, en hann var 338.676 tonn síð-
astliðinn febrúarmánuð á móti
361.884 tonnum í sama mánuði
1999. Fiskaflinn á fyrstu tveimur
mánuðum ársins var hinsvegar ríf-
lega 60 þúsund tonnum meiri en á
sama tíma í fyrra, vegna góðrar
loðnuveiði í janúar sl.
Botnfískaflinn dróst einnig sam-
an frá febrúarmánuði 1999, fór úr
40.928 tonnum í 36.658 tonn. Af
einstökum botnfisktegundum var
mestur samdráttur í veiðum á
karfa, 2.500 tonn, ýsu, 1.100 tonn
og grálúðu, 1.000 tonn. Þorskaflinn
jókst hins vegar um rúm 500 tonn
og ufsaafli um tæp 250 tonn.
Meiri afli á fyrstu
tveimur mánuðunum
Fiskaflinn í janúar og febrúar
var nokkru meiri nú en á árinu
Heildarafli íslenskra skipa
úr íslenskri lögsögu
700
600
500
400
300
200
100
0
janúar-febrúar 1997-2000
þús. tonn
515’5.Annar afli 5®®’1
Loó
Síld
525,3
na
263,0
B:
SSBSSZ9
1997 1998 1999 2000
1999, eða 586.084 tonn á móti
525.263 tonnum, sem skýrist að
langmestu leyti af auknum loðnu-
afla í janúar. Alls veiddust á þessu
tímabili rúm 426 þús. tonn árið
1999 en 493 þús. tonn á þessu ári.
Botnfiskaflinn dróst hins vegar
saman um rúm 4 þús. tonn. Skel-
og krabbadýraafli heldur áfram að
dragast saman. I janúar og febrúar
veiddust alls 5.127 tonn sem er
minna en helmingur þess sem
veiddist á sama tímabili árið 1997.
Metár í Grindavík
Grindavík. Morgunblaðið.
Á SÍÐASTA bæjarstjórnarfundi í
Grindavík var gengið frá ráðningu
hafnarstjóra sem er nýtt starf. Það
voru 8 umsækjendur um stöðuna en
það var Sverrir Vilbergsson sem
var hlutskarpastur. Morgunblaðið
hafði samband við Sverrir og óskaði
honum til hamingju með nýja starf-
ið. „Nýja starfið leggst vel í mig og
ég byrja formlega 1. apríl. Þetta
verður kannski ekki mikil breyting
frá þeim störfum sem ég gegni nú í
dag, allavega ekki til að byrja með,
en það kemur í minn hlut að móta
þetta starf að mestu leyti. Ég hef
verið viðloðandi bryggjuna ansi
lengi, fór fyrst á sjó 15 ára eftir að
hafa haft bryggjuna sem leikvöll.
Ég byrja síðan sem vigtarmaður
1987 og sem vaktstjóri 1995,“ sagði
Sverrir. Þá sagði
Sverrir frá því að
nú þegar væri
orðið metár í
loðnulöndun og
vonaðast hann til
að alls yrði meira
en 50.000 tonn-
um landað áður
en vertíð lyki.
„Ég man eftir ári
þar sem ársaflinn
var 46 þúsund tonn
og við erum þegar komnir í 48.350
tonn á þessari vertíð. Þeir voru
hérna í byrjun siðustu viku beint út
af höfninni en annars hefur vertíðin
hjá öðrum bátum verið misjöfn, fínt
á línunni undanfarið en netin verið
ansi rysjótt,“ sagði Sverrir.
Sverrir
Vilbergsson
Tólf sviptir
veiðileyfí
FISKISTOFA svipti 12 báta veiði-
leyfi í síðastliðnum febrúarmánuði.
Flestir voru sviptir leyfinu vegna
vanskila á frumritum aíladagbókar-
eyðublaða.
Fjóiir bátar voru sviptir veiðileyfi
vegna afla umfram heimildir og gild-
ir svipting þar til aflamarksstaða
þeirra hefur verið lagffærð. Þetta
voru Sveinn Sveinsson BA 325, en
hann fékk leyfið að nýju hinn 21.
febrúar, Kristján ÓF 51, Adólf Sig-
urjónsson VE 182 og Brekey BA 236.
Eftirtaldir bátar voru sviptir veiði-
leyfi í tvær vikur vegna vanskila á
frumriti afladagbókareyðublaða:
Haukur GK 25, Svavar Steinn GK
206, Guðmundur Péturs ÍS 45, Guð-
bergur Sig. GK 317, Mávur BA 311
og Sævaldur VE 360.
Sæljós ÁR 11 var svipt leyfi til
veiða í atvinnuskyni í þrjár vikur frá
og með 29. febrúar til og með 20.
marz, vegna þess að bátnum hafði
verið haldið til fimm veiðiferða án
þess að hafa nægilegar aflaheimildir.
Með úrskurði sjávaiútvegsráðuneyt-
isins var sviptingartími styttur í
tvær vikur.
Loks var Berghildur SK 137 svipt
veiðileyfi í tvær vikur frá og með
fyrsta mai-z þar sem afli skipsins,
sem landað var 16. nóvember síðast-
liðinn var ekki vigtaður á hafnarvog
þegar við löndun aflans, svo sem
skylt er samkvæmt lögum.
---------------
Yottað
í Astralíu
VOTTUNARSAMTÖKIN Marine
Stewardship Council hafa loks vott-
að að veiðar á tveimur fisktegundum
uppfylli skilyrði um sjálfbærar veið-
ar. Um er að ræða sérstaka humar-
tegund í Ástralíu, sem er mikilvæg-
asta einstaka fisktegundin þar.
Hann stendur undir um 20% heildar-
verðmætis útfluttra sjávarafurða. Þá
hefur svokölluð Thames-síld í Bret-
landi einnig fengið vottun.
Ný ríkisstjórn tekin við í Noregi
Aðallega
skipuð Evrópu-
sinnum
Ósló. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRN Verkamanna-
flokksins undir forystu Jens Stolt-
enbergs tók við völdunum í Noregi
í gær. Söfnuðust nokkur hundruð
manns saman til að fagna hinum
nýja forsætisráðherra, þeim
yngsta í sögu Noregs, en hópur
umhverfisverndarsinna mótmælti
valdatökunni.
Ríkisstjórn Kjells Magnes
Bondeviks sagði af sér í síðustu
viku vegna ágreinings um smíði
gasorkuvera en stjórnin var andvíg
henni af umhverfisástæðum.
Verkamannaflokkurinn og Hægri-
flokkurinn báru hins vegar stjórn-
ina ofurliði á þingi og samþykktu
að slaka nokkuð á hinni ströngu
umhverfislöggjöf í Noregi.
Gasorkuverin eru mikið hitamál
og einnig innan Verkamanna-
flokksins. Endurspeglast það í
skoðanakönnun, sem birt var í
gær, en samkvæmt henni hefur
fylgi við Verkamannaflokkinn
minnkað um 4,7 prósentustig og er
nú 30,2% en aukist við Kristilega
þjóðarflokkinn, flokk Bondeviks,
um 6,7% og er 17,1%.
Stoltenberg er eins og fyrr segir
yngstur allra fyrirrennara sinna á
forsætisráðherrastóli í Noregi, 41
árs, og meðalaldur ráðherranna 18,
10 karla og átta kvenna, er 43,3 ár.
Annað, sem einkennir stjórnina,
er, að allir nema einn ráðherranna
vilja aðild Noregs að Evrópusam-
bandinu. Stjórn Bondeviks var
hins vegar fyrst og fremst skipuð
Evrópuandstæðingum. Ekki er
búist við, að nýja stjórnin hreyfi
mikið við Evrópumálunum að
sinni.
Stjórn Stoltenbergs hefur 65
menn af 165 á þingi og er því
minnihlutastjórn eins og ríkis-
stjórnir í Noregi hafa lengi verið.
Þar er óheimilt að rjúfa þing nema
á fjögurra ára fresti. Verður nýtt
þing kosið í september að ári.
Stjórnarandstaðan sagði um
nýju stjórnina, að hún virtist vel
skipuð og kvaðst mundu takast á
við hana með málefnalegum hætti.
Ráðherralistinn
Ráðherralisti nýju stjórnarinnar
er þessi:
Jens Stoltenberg forsætisráð-
herra; Thorbjörn Jagland utanrík-
isráðherra; Björn Tore Godal varn-
armálaráðherra; Grete Knudsen
viðskipta- og iðnaðarráðherra;
Jörgen Kosmo atvinnumálaráð-
herra; Karl Eirik Schjött-Pedersen
fjármálaráðherra; Sylvia Brustad
sveitarstjórnarráðherra; Tore
Tönne heilbrigðisráðherra; Ellen
Horn menningarmálaráðherra;
Guri Ingebretsen félagsmálaráð-
herra; Terje Noe Gustavsen sam-
gönguráðherra; Otto Gregussen
sjávarútvegsráðherra; Anne Krist-
in Sydnes samstarfs- og þróunar-
ráðherra; Siri Bjerke umhverfis-
ráðherra; Bjarne Haakon Hanssen
landþúnaðarráðherra; Hanne Harl-
em dómsmálaráðherra; Karita
Bekkemellem Orheim fjölskyldu-
ráðherra; Olav Akselsen olíu- og
orkumálaráðherra og Trond Giske
menntamálaráðherra.
Hin nýja ríkisstjórn Noregs fyrir utan Konungshöllina í Ósló í gær.
Leiðtogar deiluaðila á N-Irlandi
Clinton hvetur
til samninga
Washington. AP, AFP.
BILL Clinton B andaríkj aforseti
hvatti í gær ákaft til þess að stjórn-
málaleiðtogar sambandssinna og
kaþólskra á Norður-írlandi endur-
reistu samsteypustjórnina sem leyst
var frá störfum vegna innbyrðis
ágreinings fyrir skömmu. Forsetinn
talaði á um þúsund manna kvöld-
verði í tilefni dags heilags Patreks í
Hvíta húsinu. Þeir David Trimble,
leiðtogi helsta flokks sambandssinna
og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
voru meðal gesta.
Forsetinn sagðist vera hreykinn
af því að hafa lagt hönd á plóginn í
friðarferlinu. Hann minnti á að „nú
mælast vopnahlé í árum, ekki vik-
um“. Peter Mandelson, ráðherra N-
Irlandsmálefna í bresku stjórninni,
sagðist á blaðamannafundi vera orð-
inn óþolinmóður. Hann væri samt
fremur bjartsýnn á að deiluaðilar
myndu aftur ná saman. Ráðherrann
leysti stjórnina upp í febrúar vegna
þess að Írski lýðveldisherinn, IRA,
neitaði að koma til móts við sam-
bandssinna og afhenda vopn sín en
afhendingin er sögð mikilvægt tákn
um að IRA vilji raunverulega frið.
„Hættið að nefna hvor annan
ónefnum. Hættið að skiptast á ásök-
unum um sekt,“ sagði Mandelson.
Bertie Ahern, forsætisráðherra ír-
lands, sagði að menn yrðu að leggja
hart að sér ef takast ætti fyrir páska
að uppfylla ákvæði samningsins sem
kenndur er við föstudaginn langa
1998. Bandarískir embættismenn
vöruðu við því að gera sér vonir um
að samkoman í Washington myndi
valda því að skyndilega næðust sætt-
ir. Gert var ráð fyrir að Mandelson
myndi ræða við utanríkisráðherra
írlands, Brian Cowen, í Washington.
Breska stjórnin hefur m.a. ákveð-
ið að fækka í herliðinu á N-írlandi,
að sögn vegna þess að friðvænlegra
sé orðið í héraðinu. Stjórnmálaskýi--
endur segja að með aðgerðinni sé
verið að fara að tillögu írsku stjórn-
arinnar sem telji að fækkunin muni
auðvelda IRA að slaka til.