Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Lítill munur
á stefnu for-
setaefnanna
á Taívan
Lítill munur vlrðist vera á afstöðu helstu
frambjóðendanna í forsetakosningunum á
Taívan í deilunni við kínversku stjórnina.
Allir hafna þeir sameiningarskilmálum kín-
verskra stjórnvalda en vilja bæta samskipt-
in við þau. Aðeins einn þeirra hefur verið
hlynntur því að Taívan lýsi yfír fullu sjálf-
stæði, en hann hefur fallið frá þeirri stefnu.
Skoðanakannanir sem gerðar
hafa verið fyrir forseta-
kosningamar á Taívan í
dag benda til þess að lítill
munur sé á fylgi þriggja helstu for-
setaefnanna - Liens Chans, fram-
bjóðanda stjórnarflokks þjóðernis-
sinna, Kuomintang, Chen Shui-bian,
forsetaefnis Lýðræðislega framfara-
flokksins, og James Soongs, óháðs
frambjóðanda.
Lítill munur virðist einnig vera á
stefnu forsetaefnanna. Þeir hafa all-
ir hafnað skilmálum kínversku
stjórnarinnar fyrir sameiningu Kína
og Taívans og segja að eyjan sé þeg-
ar sjálfstæð og fullvalda í raun. Að-
eins einn þeirra, Chen Shui-bian,
hefur verið hlynntur því að Taívan
lýsi formlega yfir fullu sjálfstæði, en
hann hefur fallið frá þeirri stefnu
fyrir löngu.
Allir segjast þeir vilja bæta sam-
skiptin við stjórnina á meginlandinu
og þeir hafa lofað að efla lýðræðið á
eyjunni, koma á umbótum á stjóm-
kerfinu og skera upp herör gegn
spillingu stjómmálamanna, sem em
sakaðir um þjónkun við glæpasam-
tök og stórfyrirtæki.
Eftirlæti yfirstéttarinnar
Lien Chan, varaforseti Taívans,
er gamall bandamaður Lees Tengs-
hui, fráfarandi forseta, sem valdi
hann til að halda uppi merki Kuom-
intang. Lien nýtur stuðnings auð-
ugra og valdamikilla Taívana, en
þeir sem hafa gagnrýnt hann efast
um að leiðtogi úr yfirstéttinni beri
skynbragð á brauðstrit venjulegra
borgara.
Lien Chan er 63 ára og kominn af
virtu og voldugu fólki og það hefur
greitt fyrir stjómmálaframa hans
frá því hann var skipaður sendi-
herra í E1 Salvador árið 1975 eftir
að hafa kennt stjómmálafræði við
háskóla á Taívan og í Bandaríkjun-
um í mörg ár.
Hann var kjörinn varaforseti árið
1996 í fýrstu lýðræðislegu forseta-
kosningunum í landinu eftir að hafa
gegnt embættum forsætisráðherra,
landstjóra Taívans, utanríkisráð-
herra og fjarskiptaráðherra.
Lien fæddist ekki á Taívan, en er
af taívönskum ættum þótt móðir
hans hafi fæðst á kínverska megin-
landinu. Afi hans, Lien Ya-tang, sem
fæddist á Taívan, var þekktur sagn-
fræðingur sem ferðaðist oft til meg-
inlandsins og lést í Shanghai. Faðir
Liens Chens, Lien Chen-tung, barð-
ist með kínverskum þjóðemissinn-
um við japanska innrásarliðið á
meginlandinu.
Lien Chan fæddist í Shanxi-hér-
aði í miðhluta Kína árið 1936 og fjöl-
skylda hans flutti búferlum til Taív-
ans þegar hann var drengur. Faðir
hans var í stjórn Kuomintang og
þegar hann lést árið 1986 erfði Lien
Chan öll auðæfi hans og varð einn af
ríkustu mönnum eyjunnar. Auðæfi
fjölskyldunnar em talin vera um 15
milljarðar taívanskra dala, andvirði
36 milljarða króna.
Lien og eiginkona hans, Fang Yu,
fyrrverandi fegurðardrottning, eiga
fimm böm.
Leikbrúða Lees?
I kosningabaráttunni hefur Lien
lofað að beita sér fyrir umbótum
innan Kuomintang og stjómarinnar
í anda ,/riðsamlegrar byltingar"
læriföður síns, Lees forseta, sem
kom á lýðræði eftir áratuga einræði
Kuomintang.
Nokkrir stjómmálaskýrendur
óttast hins vegar að Lien verði leik-
brúða fráfarandi forseta og ráð-
herra hans, sem hafa verið sakaðir
um þjónkun við glæpasamtök og
stórfyrirtæki.
Lien hefur lofað að bæta sam-
skiptin við stjómina í Kína, sem
snarversnuðu í fyrra þegar Lee for-
seti lýsti því yfir að líta bæri á samn-
ingaviðræður milli Kína og Taívans
um hugsanlega sameiningu sem við-
ræður tveggja jafnrétthárra ríkja.
Lien segist vilja að Kína og Taív-
an sameinist þegar fram líða stundir
og hafnar því að Taívanar lýsi form-
lega yfir fullu sjálfstæði. Hann legg-
ur hins vegar áherslu á að ekki komi
til greina að fallast á sameiningar-
skilmála kínversku kommúnista-
stjórnarinnar.
„Við þurfum frið og ró til að koma
á umbótum, fullt sjálfstæði myndi
leiða til átaka og aðeins valda hörm-
ungum í landi okkar,“ sagði hann
nýlega.
Varaforsetinn hefur boðist til að
fara í friðarferð til Kína verði hann
kjörinn forseti og lofað að bæta
samskiptin við Kínverja að því til-
skildu að þeir fallist á að ræða við
Taívana sem fullvalda þjóð á jafn-
réttisgrundvelli. Kínverska komm-
únistastjómin hefur hafnað þessu
skilyrði þar sem hún lítur enn á eyj-
una sem uppreisnarhérað og óað-
skiljanlegan hluta Kína.
Vinsæll borgarstjóri
af bændaættum
Chen Shui-bian er kominn af fá-
tækum bændum í suðurhluta Taív-
ans og pólitísk frægðarsól hans reis
þegar hann var kjörinn borgarstjóri
Taípei, sem er áhrifamesta embætti
sem félagi í Lýðræðislega framfara-
flokknum hefur gegnt.
Chen þykir mælskur og hnyttinn
og naut mikillar lýðhylli á þeim fjór-
um ámm sem hann stjórnaði höfuð-
borginni. Ef marka má skoðana-
kannanir voru rúmlega 70%
borgarbúanna ánægð með störf
hans á þessum tíma.
Vinsældimar má m.a. rekja til
þess að honum tókst að bæta rekst-
ur borgarinnar, stemma stigu við
glæpum, vændi og klámi og ráða bót
Reuters
Chen Shui-bian, forsetaefni Lýðræðislega framfaraflokksins, og varaforsetaefni hans, Annette Lu, á síðasta
kosningafundi þeirra í Taipei í gær.
Lien Chan, frambjóðandi stjórn-
arflokks þjóðernissinna, Kuom-
intang.
á umferðarmálum borgarinnar sem
vom í ólestri.
Eiginkona hans, Wu Shu-chen,
lamaðist fyrir neðan mitti í bílslysi
árið 1985 og tryggð hans við hana
vakti aðdáun margra kjósenda.
Þrátt fyrir þessa miklu lýðhylli
beið Chen ósigur þegar hann sóttist
eftir endurkjöri árið 1998. Kjósend-
umir snemst þá á sveif með fram-
bjóðanda Kuomintang.
Chen og félagar hans í Lýðræðis-
lega framfaraflokknum vom í farar-
broddi í baráttunni fyrir lýðræði á
Taívan þegar Kuomintang var ein-
ráður á eyjunni. Þeim hefur hins
vegar verið kennt um vaxandi sund-
urþykkju milli innfæddra Taívana
og þeirra sem fæddust á meginland-
inu og flúðu til eyjunnar með her-
sveitum þjóðernissinna árið 1949
þegar kommúnistar komust til valda
í Kína.
Chen fæddist á Taívan, ólíkt
tveimur helstu keppinautum sínum í
kosningunum. Þrátt fyrir ósigurinn í
borgarstjórakosningunum þótti
hann tilvalið forsetaefni fyrir Lýð-
ræðislega framfaraflokkinn vegna
vinsældanna, persónutöfra hans og
taívanska uppmnans.
Hann býr einnig að mikilli reynslu
af stjómmálum. Aður en hann varð
borgarstjóri sat hann á þingi á ár-
unum 1989-’94, gat sér þá orð fyrir
að vera ötulasti þingmaður eyjunnar
og var einkum þekktur fyrir að af-
hjúpa hneykslismál og spillingu.
Aður átti hann sæti í borgarstjórn
Taípei á ámnum 1981-85 og á þeim
tíma ritstýrði hann tímariti, „Form-
ósa“, sem barðist gegn stjóm
Kuomintang. Hann var dæmdur í
fangelsi árið 1985 fyrir meiðyrði
vegna greinar þar sem taívanskur
prófessor var sakaður um meinsæri.
Eftir að hafa afplánað fangelsisdóm-
inn starfaði Chen sem aðstoðarmað-
ur eiginkonu sinnar, sem sat þá á
þinginu fyrir Lýðræðislega fram-
James Soong, óháður frambjóð-
andi í forsetakosningunum
faraflokkinn, og undirbjó næsta
pólitíska áhlaup sitt.
Chen er lögfræðingur að mennt
og vakti fyrst athygli þegar hann
varði leiðtoga andófsmanna sem
vora ákærðir fyrir uppreisnaráróð-
ur vegna óeirða sem blossuðu upp í
borginni Kaohsiung á sunnanverðri
eyjunni. 140 lögreglumenn særðust í
óeirðunum og um 50 andófsmenn
vom handteknir.
Féll frá þjóðaratkvæði
um sjálfstæði
Lýðræðislegi framfaraflokkurinn
hefur verið hlynntur sjálfstæði og
kínversk stjómvöld hafa varað taív-
anska kjósendur við því að kjósa
Chen þótt hann hafi fyrir löngu fall-
ið frá þeirri stefnu að Taívanar lýsi
yfir fullu sjálfstæði. Hann kveðst
vilja stuðla að friðsamlegri sambúð
Kína og Taívans en hafnar samein-
ingarskilmálum kínversku stjórnar-
innar.
Chen segir að fari hann með sigur
af hólmi í forsetakosningunum verði
hann ekki knúinn til samninga við
Kínverja. Hann hefur hins vegar
lagt áherslu á að hann hyggist ekki
stofna öryggi Taívans í hættu með
því að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um fullt sjálfstæði þar sem
eyjan sé nú þegar sjálfstæð og full-
valda í reynd.
Bandatnaður Lees varð
að erkióvini hans
James Soong var áður einn af for-
ystumönnum Kuomintang en er nú
erkióvinur stjórnarflokksins og tal-
inn líklegur til að verða þjóðemis-
sinnunum að falli.
Það er þó ekki vegna þess að hann
sé öraggur um sigur, heldur vegna
þess að hann hefur stuðlað að klofn-
ingi innan Kuomintang og um leið
styrkt stöðu Chens Shui-bians.
Soong býður sig fram sem óháður
eftir að honum var vikið úr forystu
Kuomintang, sem hann segir nú
spilltan og hunsa vilja þjóðarinnar.
Hann var eitt sinn nánasti banda-
maður Lees forseta en er nú hættu-
legasti óvinur hans.
Soong var leiðtogi landstjórnar
Taívans, sem fer með málefni
byggðarlaga utan borganna Taípei
og Kaohsiung, í rúm fimm ár og
naut þá veralegs stuðnings meðal al-
mennings.
Þegar Soong gekk úr stjórnar-
flokknum eftir að Lien Chan var til-
nefndur forsetaefni hans var hann
talinn mjög sigurstranglegur í for-
setakosningunum og naut stuðnings
um 40% kjósendanna.
Vinsældir hans minnkuðu hins
vegar eftir að forystumenn Kuomin-
tang sökuðu hann um að hafa dregið
sér fé úr sjóðum flokksins, en það
mál hefur ekki enn verið upplýst.
Soong hefur lofað að bæta sam-
skiptin við Kína og hefja viðræður
við stjómina í Peking að því tilskildu
að þær fari fram á jafnréttisgrand-
velli.
Hann hefur gagnrýnt Lee fyrir að
ögra Kínverjum með því að lýsa því
yfir að Kína og Taívan séu tvö að-
skilin ríki en heldur því samt fram
að eyjan sé sjálfstæð og fullvalda.
Soong varð fyrstur frambjóðend-
anna til að leggja til að gerður yrði
friðarsamningur við Kína og segir
að íbúar Taívan eigi rétt á frelsi og
lýðræði. Hann hefur einnig lofað að
sætta innfædda Taívana og þá sem
eiga ættir að rekja til meginlands-
ins.
Forsetanum stafaði ógn af
landstjóranum
Soong fæddist í Hunan-héraði á
meginlandinu og kom með foreldr-
um sínum til Taívans árið 1949, þá
sjö ára að aldri.
Hann varð doktor í stjórnmála-
fræði við Georgetown-háskóla áður
en hann hóf störf fyrir Kuomintang.
Hann var yfirmaður Upplýsinga-
skrifstofu stjórnarinnar á árunum
1979-’84, talsmaður stjórnarflokks-
ins 1984-’87 og síðan framkvæmda-
stjóri flokksins 1989-’94.
Soong var ritari Chiang Ching-
kuo, fyrrverandi forseta, sem lést
1988, og síðan Lees forseta. Hann
aðstoðaðí einnig Lee við að koma á
umbótum innan stjórnarflokksins,
sem fólust m.a. í því að öldruðum
þingmönnum flokksins var gert
skylt að draga sig í hlé, en þeir gátu
áður setið eins lengi og þeir vildu á
þinginu.
Lee launaði Soong hollustuna með
því að beita sér fyrir því að hann
yrði kjörinn landstjóri Taívans í
fyrstu almennu kosningunum til
embættisins árið 1994. Fljótlega
kom þó í Ijós að forsetanum stóð ógn
af vinsældum landstjórans.
Valdabarátta þeirra varð til þess
að völd landstjórans voru skert og
Soong lét af embættinu í lok ársins
1998 þegar forsætisráðherrann
skipaði nýjan landstjóra.