Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
VIKll
MORGUNBLAÐIÐ
S . i - -
Vísindavefur Háskóla Islands
Hvenær kviknaði llf
á jörðinni?
Vísindi
Nú hafa Vísindavefnum, vis-
_______________________________ indavefur.hi.is, borist um
1000 spurningar og svör eru
oróin um 200 talsins af fjölmörgum fræöasviöum. Frá og með
síðustu hetgi hafa gestir getað skoðað spurningar og svör
flokkuð eftir fræðasviðum. Vegna fjölda spurninga og svara var
orðin brýn þörf á slíku. Þá eru kostir veftækninnar nýttir í vax-
www.opinnhaskoli2000.hi.is
andi mæli, til dæmis með tenglum milli svara um skyld efni, með tenglum í annað efni á verald-
arvefnum, þar á meðal margmiðlunarefni, og með myndefni til skýringar og ánægju í svörunum sjálfum.
Hér fara á eftir tvö svör sem hafa birst nýiega á Vísindavefnum.
Hvenær kviknaði líf á jörðinni
og hvers vegna?
SVAR: Leifar örvera hafa fundist
með vissu í jarðlögum sem eru um
3100 milljón ára gömul og mjög
sterkar líkur eru á því að þær megi
líka greina í 3450 milljón ára göml-
um jarðlögum. Þessi gömlu jarðlög
eru í Ástralíu og Suður-Afríku.
Menn hafa reyndar fundið enn eldri
en ekki alveg örugg merki um líf í
um 3800 milljón ára gömlum jarð-
lögum frá Isua á Grænlandi. Það má
því segja að mjög sterkar líkur séu á
því að líf hafí verið á jörðinni fyrir
um 3500 milljónum ára en ef til vill
hafi það verið komið til sögunnar
nokkur hundruð milljón árum fyrr.
Aldur jarðarinnar er talinn vera um
4500 milljónir ára.
Hvernig kviknaði lífið
á jörðinni?
Þetta er enn mikil ráðgáta.
Reyndar er hugsanlegt að líf jarð-
arinnar hafi ekki kviknað hér heldur
hafi það borist til jarðarinnar utan
úr geimnum. Til dæmis er hugsan-
legt að það hafi borist hingað með
loftsteinum frá reikistjörnunni
Mars. Miklu ólíklegra er að það hafi
borist frá öðru sólkerfí þótt ekki sé
hægt að útiloka það með öllu. En
það er sama hvort lífið hefur hafist á
jörðinni eða annars staðar; - það
þarf að skýra hvernig það hefur
fyrst myndast.
í náttúrunni er ekki til
neitt millistig milli lífs og
dauðs efnis. Blanda þeirra líf-
rænu efnasambanda sem
finnast í lífverum er
steindauð. Lífverur,
jafnvel smæstu bakter-
íur, eru mjög flóknar að bygg-
ingu. Allar lífverur hafa erfða-
efni sem gert er úr kjamsýr-
unni DNA. Erfðaefnið flytur á
milli kynslóða boð um gerð prótína
(próteina) en prótín (nánar tiltekið
ensím) hvata flest þau efnahvörf
sem fram fara í lifandi frumu. Jafn-
vel smæstu bakteríur þurfa á miklu
erfðaefni og mörg hundruð ólíkum
prótínum að halda. Líf þeirra er
ekki einfalt!
Margir telja nú líklegt að lífið hafi
kviknað við heita hveri í sjó eða í
heitu umhverfi undir yftrborði jarð-
ar. Þar hafa verið efni eins og vetn-
issúlfíð og járnsúlfíð og er hugsan-
legt að efnahvörf þeirra hafi gefið
næga orku til myndunar lífrænna
sameinda af ýmsu tagi. Það er hins
vegar mikil ráðgáta hvernig erfða-
efni hefur fyrst myndast.
Fyrsta erfðaefnið hefur
ef til vill verið kjarnsýran
RNA sem er mjög lík DNA en
er mun óstöðugri.
RNA er enn erfða-
efni vissra veira
(en veirur teljast yfirleitt ekki til
lífvera). Sýnt hefur verið fram á að
RNA getur hvatað viss efnahvörf
líkt og ensím. Það hefur því bæði
getað gegnt hlutverki erfðaefnis og
lífhvata, ef til vill með hjálp ósér-
hæfðra prótína. Þessar RNA-lífver-
ur hljóta að hafa verið einfaldar í
sniðum, en á næsta stigi hafa þróast
aðferðir til þess að túlka erfðaboð
þannig að gen erfðaefnisins ákvarði
gerð sérhæfðra prótínsameinda,
ensíma. Loks hefur DNA tekið við
af RNA sem erfðaefni. Þá var komið
það skipulag lífsstarfseminnar sem
einkennir lífverur enn þann dag í
dag. Þessu marki hefur að öllum lík-
indum verið náð fyrir 3500 milljón-
um ára eða jafnvel fyrr.
Það eru fyrstu skref lífmyndunar
sem allra erfiðast er að skilja og þar
er stór eyða í þekkingu okkar. Það
er langt frá því augljóst að líf þróist
úr „súpu“ lífrænna efna jafnvel þótt
þúsundir milljóna ára séu til stefnu.
Við vitum því ekki hversu líklegt
það er að líf myndist við aðstæður
eins og voru á jörðinni í árdaga. Því
síður getum við fullyrt neitt um lík-
ur þess að líf líkt okkar lífi fmnist
annars staðar í alheimi.
Guðmundur Eggertsson
Sjá einnig svör við öðrum spurn-
ingum á Vísindavefnum um upphaf
lífs eftir sama höfund: „Hvers vegna
er ekki hægt að búa til lífveru úr
súpu lífrænna efna eins og talið er
hafa gerst við upphaf lífsins?" og
„Samrýmist það vísindalegri hugsun
að lífverur, og þar á meðal hinn viti-
borni maður, hafi þróast úr dauðum
jarðefnum án þess að nokkur sköp-
unarmáttur hafi verið þar að verki?“
Af hverju er lífrænt ræktað
grænmeti hollara en annað
og hvers vegna er það svona
dýrt?
SVAR: Aðalástæða þess að líf-
rænt ræktaðar vörur eru taldar
hollari en aðrar er sú að þær inni-
halda minna af varnarefnum, en
notkun þeirra er bönnuð í lífrænni
ræktun. Menn eru þó ekki á einu
máli varðandi hollustu lífrænt rækt-
aðra matvæla og telja sumir að líf-
rænt ræktað hráefni innihaldi mikið
magn af gerlum sem gætu verið
skaðvaldar. Það er aðallega út frá
umhverfissjónarmiðum sem menn
aðhyllast lífræna ræktun. Minni
notkun eiturefna og tilbúinna efna
leiðir til umhverfisvænni ræktunar.
Varðandi næringarefnainnihald í líf-
rænt ræktuðu grænmeti og græn-
meti sem ræktað er á hefðbundinn
hátt ber rannsóknum ekki saman.
Sumar rannsóknir benda til að
magn lífsnauðsynlegra næringar-
efna sé meira í lífrænt ræktuðu og
stundum snýst þetta við. Það er því
ekki hægt að segja sem svo að líf-
rænt ræktað grænmeti innihaldi
meira af lífsnauðsynlegum næring-
arefnum en annað grænmeti. Nær-
ingarefnainnihald í grænmeti er að
jafnaði mjög breytilegt. Nokkrar
rannsóknir hafa bent til þess að
meira sé af sykrum í lífrænt rækt-
uðu grænmeti og er þá lengri vaxt-
artími talinn hugsanleg ástæða.
Nýlega var gerð úttekt á lífrænt
ræktuðu grænmeti á íslandi og kom
það mjög vel út hvað varðar útlit og
bragð, en ekki var teljandi munur á
næringarefnainnihaldi í lífrænt
ræktuðu grænmeti og venjulegu
grænmeti.
í nýlegri erlendri yfirlitsgrein eru
gæði lífrænt ræktaðs og hefðbund-
ins grænmetis borin saman. Þar er
komist að þeirri niðurstöðu að
venjulega sé talsvert minna nítrat í
lífrænt ræktuðu grænmeti en því
hefðbundna. Nítrat er efni sem hef-
ur sýnt sig geta valdið magakrabba-
meini. Nítrat í lífrænt ræktuðum ís-
lenskum kartöflum og tómötum var
ekki áberandi frábrugðið því sem
mældist fyrir hefðbundið grænmeti.
Aftur á móti var greinilega minna
nítrat í lífrænt ræktuðum gúrkum
en þeim hefðbundnu.
Lífrænt ræktað grænmeti er að
jafnaði dýrara en annað grænmeti
vegna þess að við ræktunina eru
ekki notuð eiturefni og ræktunin
krefst því meiri vinnu, til dæmis við
að reyta arfa. Vaxtarhraðinn er síð-
an ef til vill minni, sem leiðir til þess
að framleiðslan er minni á tímaein-
ingu, sem orsakar hærra verð.
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Hemingway og
Vopnin kvödd
Þess var víða minnst í júlímánuði á nýliðnu ári að 100 ár voru liðin
frá fæðingu bandaríska rithöfundarins Ernests Hemingways og
lífshlaupi hans gerð góð skil. Bergljót Ingdlfsdóttir fjallar hér um
baksvið skáldsögunnar Vopnin kvödd.
HEMINGWAY var 18 ára
og nýliði í blaða-
mennsku þegar hann
gerðist sjálfboðaliði í
hernum undir lok fyrri heims-
styrjaldarinnar. Hann var sendur
til Ítalíu og ók þar sjúkrabíl Rauða
krossins. Sá starfi þótti honum
ekki nógu áhættusamur og fékk
sig færðan nær víglínunni. Þar
fékk hann skot í fótinn og var
lagður inn á hersjúkrahús í Míl-
anó.
Reynsla Hemingways í stríðinu
er efniviður bókar hans Vopnin
kvödd (A Farewell to Arms) sem
kom út árið 1929. Bókin vakti
mikla athygli á höfundinum og
honum var spáð mikilli veglengni á
ritvellinum.
Árið 1941 gaf Mál og menning
bókina út í íslenskri þýðingu Hall-
dórs Laxness. Þeir eru vísast
margir sem lesið hafa þessa bók á
frummálinu, í íslensku útgáfunni
eða séð kvikmyndir gerðar eftir
sögunni.
Fyrsta kvikmyndin gerð eftir
Vopnin kvödd er frá árinu 1932
með þeim Helen Heyes og Gary
Cooper í hlutverkum hjúkrunar-
konunnar og liðsforingjans. Önnur
mynd er frá árinu 1956 með Jenni-
fer Jones og Rock Hudson í fyrr-
nefndum hlutverkum. Nýjasta
myndin er frá árinu 1996 með
Söndru Bullock og Cris O’Donnell
í aðalhlutverkum. Sú mynd endar
á annan hátt en bókin og heiti
hennar er í ást og stríði (In Love
and War). Myndin var sýnd í
sjónvarpinu, á Stöð 2, fyrir
nokkru. í umsögn sem birtist í
dagblaði, eftir þá sýningu, var
myndin útþynntur Hemingway að
mati gagnrýnanda.
Breska hjúkrunarkonan
Það er ekki að efa að lýsingar
Hemingways á stríðinu í Vopnin
kvödd eru byggðar á eigin reynslu.
En öðru máli gegnir með ástarsög-
una, sem þar er fléttuð inn í, þar
sem ungur maður og átta árum
eldri kona fella hugi saman. Var
það raunveruleiki eða aðeins drau-
mórar ungs manns í einsemdinni?
Á sjúkrahúsinu, þar sem Hemin-
gway var lagður inn, voru breskar
hjúkrunarkonur við störf, og á
meðal þeirra var Agnes von Kur-
owsky, 27 ára að aldri. Hún var
sögð bráðfalleg, grönn, bláeygð
með rauðbrúnt hár og höfðu allir
hermennirnir orðið hrifnir af
henni.
Það var einmitt Agnes sem tók á
móti Hemingway þegar hann kom
til sjúkrahússins. Hún tók piltinn
undir sinn verndarvæng, hjúkraði
honum og dvaldi títt við sjúkrabeð
hans. Það fannst sumum ekki við-
eigandi og þegar hárspennur
hennar fundust undir kodda hans
vakti það nokkurt umtal.
I bréfunum sem Hemingway
sendi heim til sín, frá sjúkrahús-
inu, sagði hann að honum liði eins
og hann væri í himnaríki og Agnes
hjúkrunarkona væri sannkallaður
engill.
Agnes var send til starfa í Flór-
ens áður en Hemingway útskrifað-
ist af sjúkrahúsinu. Hann skrifaði
henni bréf á hverjum degi, stund-
um tvö á dag. Hemingway komst
til heilsu og var sendur heim til
Bandaríkjanna. Þar hélt hann
áfram að skrifa Agnesi og gerði
sér vonir um að hún myndi giftast
honum.
En Agnes kynntist forríkum
greifa frá Napólí, Domenico Carr-
accilo, og trúlofaðist honum. Hún
skrifaði Hemingway I mars árið
1919 og tjáði honum að hún myndi
bráðlega ganga í hjónaband. Hún
sagði að henni þætti vænt um hann
- en frekar eins og móðir en kær-
asta -, enda væri hann hálfgerður
krakki.
Hvernig sem sambandi þeirra
var háttað varð Hemingway fyrir
miklu áfalli og menn vildu kenna
því um misheppnuð sambönd hans
við konur síðar á lífsleiðinni, þ.á m.
við fjórar eiginkonur sínar. Þær
vissu allar um ástarsorgina sem
hann hafði orðið fyrir sem ungur
maður. Sjálfur sagðist Hemingway
aðeins hafa elskað eina konu, Agn-
esi von Kurowsky.
Hemingway svipti sig lífi árið
1961, við hlið hans látins lágu bréf-
in frá Agnesi sem hann hafði varð-
veitt. Þá voru liðin meira en 40 ár
frá því að leiðir þeirra skildi.
Chris O’Donnell og Sandra Bull-
ock fara með aðalhlutverk í nýj-
ustu kvikmyndinni sem gerð var
eftir sögunni Vopnin kvödd.
En það er af Agnesi að segja að
ítalski greifinn hætti við að kvæn-
ast henni vegna mótbára móður
hans sem taldi stúlkuna dæmigert
ævintýrakvendi.
Að styrjöldinni lokinni var Agn-
es við hjúkrunarstörf í Rúmeníu
og á Haítí. Hún kynntist banda-
rískum manni á Kúbu, þau gengu í
hjónaband en það stóð stutt. Síðar
giftist hún öðrum Bandaríkja-
manni, Bill Stanfield, það hjóna-
band entist á meðan bæði lifðu.
Þau voru barnlaus.
Þegar Agnes var á efri árum
spurð, í blaðaviðtali, um samband
sitt við Hemingway gerði hún lítið
úr því og eyddi talinu.
Ágnes lést árið 1984, níræð að
Agnes von Kurowsky hjúkrun-
arkona.
aldri, og var jarðsett í Arlington-
hermannagrafreitnum í Washing-
ton.
„Týnd dagbók“ og bréf
Þegar Hemingway lá á sjúkra-
húsinu í Mílanó var 18 ára gamall
Bandaríkjamaður, Henry Villard, í
næstu stofu þjáður af malaríu.
Hann varð síðar hátt settur í utan-
ríkisþjónustu Bandaríkjanna. Vin-
fengi var með honum og Agnesi og
Bill Stanfield.
Þegar Agnes lést var eiginmanni
hennar mikið í mun að hún yrði
jarðsett í Arlington-kirkjugarðin-
um. Hann leitaði ásjár Henrys
Villards sem gekk hart fram til að
svo mætti verða.