Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Risastórir maurar
með geislabyssur
LEIKIR
Rare gaf nýlega út leikinn Jet
Force Gemini. Leikurinn er skot-
leikur í þrívídd fyrir Nintendo 64
og ætlað að verða stærsti skotleik-
ur sem gefmn hefur verið út fyrir
tölvuna.
SAGAN hefst á geimskipi þeirra
Juno, Vela og hundsins Lupo nálægt
heimaplánetu Juno. Risastórir
maurar hafa ráðist á skipið og eru í
þann mund að ráðast á plánetuna.
Juno, Vela og Lupo ná naumlega að
komast í flóttaflaugar skipsins en
lenda á þrem mismunandi stöðum.
Spilendur verða að koma hverjum
fyrir sig á sama staðinn á plánet-
unni, einum í einu.
Borð leiksins eru mjög stór og
einu staðirnir þar sem spilendurnir
geta verið í friði er í þorpum lítilla
bangsa sem reyna að hjálpa þeim
eftir fremsta megni. Bangsarnir
meina vel en eru ótrúlega þreytandi
til lengdar og það er ekki hægt að
skjóta þá, einn af stærri göllum
leiksins.
Óvinir leiksins eru risastórir
maurar, eins og áður er getið, með
geislabyssur. Þeir eru vel skipulagð-
ir og ráðast á leikendur úr felum eða
í hópum. Maurarnir eru mismun-
andi hátt settir í hernum og sést það
á lit þeirra. Stjórn leiksins er óþægi-
leg og frekar asnaleg. Myndavélin
fer oft í tómt rugl svo afar þreytandi
getur verið að lenda í aðstöðu þar
sem óvinirnir eru bæði fyrir aftan
og framan spilandann. Þótt ótrúleg-
ur metnaður hafi verið lagður í
hönnun leiksins klikkar hann á ótrú-
legustu hlutum. Til dæmis er ekki
hægt að labba upp margar af tröpp-
um leiksins heldur verður að hoppa
upp þær eina tröppu í einu.
Grafík leiksins er afar vel gerð og
þá sérstaklega óvinirnir. Stundum
hægir tölvan þó töluvert á sér ef
mikið er í gangi á skjánum á sama
tíma. Hljóð leiksins er frábært og
stór plús við leikinn. Ef vel er hlust-
að heyrast oft endurhljóðblönduð
lög eins og Star Wars-lagið og lagið
úr myndinni Alien og fleiri.
Jet Force Gemini er enn eitt
dæmið um klassískan Nintendo 64
leik, lítur út ótrúlega vel áður en
hann kemur út en stenst svo ekki
væntingar fólksins sem kaupir
hann. Miðlungsleikur sem gæti þó
batnað í lokaútgáfunni.
Ingvi Matthías Árnason
Leikjatölva
Microsoft
SÖGUR af X-boxinu, leikjatölvu
Microsoft, hafa farið fjöllum
hærra undanfarna mánuði þrátt
fyrir að fyrirtækið hafi hvorki
viljað neita né játa því að slík
tölva væri í smíðum. Á leikja-
hönnuðaráðstefnu vestur í
Bandaríkjunum fyrir nokkrum
dögum ljóstraði Willam Gates
III. si'ðan upp um tölvuna vænt-
anlegu, skýrði frá innvolsi og
bað leikjasmiði og útgefendur
vinsamlegast um að láta hendur
standa fram úr ermum í smíði
leikja fyrir fyrirbærið.
Ekki er langt síðan það var
mál manna að dagar pésans sem
leikjatölvu væru taldir, ekki síst
í ljósi þess hve leikjatölvur
hefðu tekið afgerandi stökk
framúr þeim í afli og grafískri
getu. Þar var fyrst til
Dreamcast-tölva Sega og si'ðan
Playstation II, sem kom út í
Japan fyrir stuttu og er öflug-
asta leikjatölva heims um þessar
mundir. Þegar við bættist að
Nintendo er með í smíðum enn
öflugri tölvu sem kemur á
markað fyrir áramót er varla
nema von að mörgum finnist
PC-samhæfðar tölvur heldur
hallærislegar leikjatölvur.
Að sögn Gates verður í X-
boxinu Intel Pentium III ör-
gjörvi, en ekki er ljóst hvaða
hraði verður á honum. Sem
stendur spá menn því að hann
verði 600 MHz, en ef áætlanir
standast um að fyrstu tölvurnar
komi á markað á næsta ári gæti
hraðinn eins verið vel yfir 1
GHz. Grafíkina sér nVidia Ge-
Force örgjörvasett um, stýri-
kerfið verður Windows 2000
kjarni með DirectX 8.0, minni
64 MB, liljóð 64 radda, fjögurra
hraða DVD-drif, 8 GB harður
diskur, fjögur tengi á vélinni,
innbyggt 10/100 Ethernet-
nettengi og úttak fyrir VGA-
skjá, flatan kristalsskjá, sjón-
varp eða háskerpusjónvarp.
GeForce-örgjörvinn sem notað-
ur verður kallast NV15, keyrir á
300 MHz og skilar 300.000.000
þríliyrningum á sekúndu.
Samkvæmt þessum tölum tek-
ur vélin nýja Playstaytion II í
nefið í flestu og ekki bara
Playstation, heldur líka Dolphin-
tölvu Nintendo, sem kemur út
fyrir jól ef að líkum lætur og
verður þó öflugri en Playstation
II. Að sögn Microsoft-manna er
vélin nýja meira en tvöfalt
hraðvirkari en Playstation II, en
sumir hafa gengið svo langt að
segja að hún verði að minnsta
kosti þrefalt hraðvirkari, aukin-
heldur sem hún verður fimm til
tíu sinnum hraðvirkari en hröð-
ustu pésar dagsins í dag.
Margir hafa orðið til að lýsa
vantrú sinni á að Microsoft tak-
ist að skila vélinni á svo skömm-
um tíma, enda er mikil vinna
framundan í að tálga utan af
W2K kjarnanum allan óþarfa til
að hann henti í leikjatölvu og
Microsoft er frægt fyrir að
standa ekki við útgáfuáætlanir.
Aðrir benda á að losnað hafi um
mikinn mannskap þegar Micro-
soft loksins kom Windows 2000
frá sér og því muni ekki skorta
hendur til verksins. Ymislegt
fleira þarf að gera en að fitu-
skerða kjarnann, því fella þarf
DirectX 8 að öllu saman, skrifa
rekla og svo má telja. Allt verð-
ur þetta að vera komið af þró-
unarstigi þegar í lok þessa árs
eða byrjun þess næsta, ef mönn-
um á að auðnast að semja leiki
fyrir tölvuna fyrir jólin 2001.
Leikjaframleiðendur hafa tek-
ið tölvunni vel og allir helstu
lýst því yfir að þeir muni fram-
leiða leiki fyrir hana, til að
mynda Activision, Acclaim, Info-
grames, Midway, Konami og
Sierra. Þannig eru forritarar
Activision þegar byrjaðir á X-
box gerð Tony Hawk’s Pro
Skater, sem á að nýta tölvuna
nýju til fulls.
Sagan hermir að frumgerð
Alvöru heimilis-
tölva fyrir fjöl-
skylduna.Vélin er
með stórum
hörðum diski og
miklu innra minni
og getur því
tekist á við alla
vinnslu. Beint á
netið á topp
hraða.
I I 3U COMPUTERS
SIEMENS
iniokia
Fujitsu mús
Fujitsu lyklaborð
16 bita hljóðkort
Fujitsu hátalarar
466MHz Intel Celeron
17" skiár
64MB innra minni
8,4GB harður diskur
3,5" disklingadrif
40x geisladrif
8MB skjákort
Vinsælasti GSM-sími allra tíma.
Traustur sími sem býður upp á allt
sem þarf. __
• Þyngd 170 grömm. (
_ nlAtimí -»llt aA 77n kkt f
Merking tryggja gæðin - BT tryggir verðið. Þú gerir
vart betri kaup í myndbandstæki.
56KV90 mótald
USB tengi
Öflugur hugbúnaðarpakki
• Biðtlmi allt að 270 klst
• Taltími allt að 5 klst.
• 250 númer í símaskrá.
• SMS skilaboð,
númerabirtir og /
kíukka. / ,
• 30 símhringingar. / í
• 3 innbyggoir /
leikir. /~a
TAL12 er mánaða Mf
GSM áskrift greidd /W/
með kreditkorti Ijjjr
eðaVeltukorti.
TALkort kostar
1.999.- oger Mv-jl
greittfyrirþað
aukalega. Kt
Nú hafa Tölvusiminn og
BT hafið samstarfs og
munuCULUCORTfrá
Tólvusimanum fylgja
öllum tölvum i mars.
30 mlnútna Heimsókn
tölvuhjálp í starfsmanns
sima Tölvusímans
.MENS
Barnalæsing ”
Háhraða spólun
Tveggja hausa tæki
LongPlay spilun
Fjarstýring
Virkar sem
afsláttarkort
Aðgerðir á skjá ofl. ofl.
USB er framtíðin. Engin straumsnúra.
Einn þunnur USB kapall sem ber bæði
jrafstrauminn og gögnm „ M mynd|esari
milli töivu og • 600 x 1200 raunuppl.
36 bita litadýpt
USB tengi fylgir
' Hugbúnaður:
PhotoSuite /
PhotoDeluxe (
TextBridge \
(JOO--------------------
BT Hafnarfirði - S: 550-4020
BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - 5: 421-4040 • BT Akureyri - 5: 461-5500
BT Skeifunni - 5: 550-4444