Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 43
Þegar sjónum er beint að þeim
þætti í þroska barna, sem nefndur
hefur verið vitsmunaþroski eða
greind, er augljóst, hvernig hug-
myndir fræðimanna hafa breyst á
síðastliðinni öld eftir því sem þekk-
ing innan ýmissa fræðigreina hefur
aukist. Franski sálfræðingurinn
Binet, sem starfaði í París um og
eftir aldamótin 1900 og er höfund-
ur fyrsta greindarprófsins, skil-
gi-eindi greindarhugtakið á þann
hátt, að greind væri það sem próf
hans mældi.
Síðan þessi einfalda og frum-
stæða skilgreining var sett fram
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Hugmyndir fræðimanna um vits-
munaþroska eða greind hafa
þróast frá því að líta á greind sem
óljósa, illa skilgreinda starfsemi
mannshugans yfir í það, að líta á
vitsmuni sem samsetta færni úr
fjölmörgum þáttum. Sumir þess-
ara þátta lúta að tungumálinu, t.d.
máltjáningu, skilningi og rökhugs-
un. Aðrir varða skynjun af ýmsu
tagi, t.d. sjón- og heyrnarskynjun
og minni. Nýjustu skilgreiningar á
greind ná einnig til félagslegrar
aðlögunar og hegðunarþátta,
þ.e.a.s. þess hvernig einstaklingur
aðlagast því samfélagi sem hann
býr í. Leiðin frá fyrstu skilgrein-
ingum á eðli vitsmunaþroska tO
nýjustu hugmynda er því löng.
Deilur um greind þjóðanna,
hnignandi eða batnandi eftir atvik-
um, sem rætur áttu að rekja til
hugmyndafræði um kynbætur í
Evrópu og í Ameríku á fyrri hluta
og um miðbik tuttugustu aldar,
heyra nú að mestu sögunni tO. Sem
betur fer hefur áhugi manna á úr-
eltri umræðu af því tagi farið ört
minnkandi og er nú hverfandi. Það
er hins vegar áhugavert að velta
því fyrir sér, hvers vegna aðferðir
til að meta þroska barna og ung-
linga, bæði heildrænt og afmark-
aða þætti hans, eru gagnlegar og í
raun nauðsynleg forsenda vand-
aðrar meðferðar. Aður en að því
verður vikið er rétt að velta fyrir
sér, á hvern hátt frávik í þroska og
hegðun geta birst hjá börnum og
unglingum.
Frávik í þroska og hegðun
Lengi hefur verið vitað, að
þroskaframvinda barna er misjöfn
og þroskafræðilegir erfiðleikar af
ýmsu tagi bæði algengir og marg-
víslegir. Um getur verið að ræða
væg frávik, t.d. í málþroska, og
einnig fatlanir, sem eru fremur fá-
tíðar. Má þar t.d. nefna þroska-
hömlun, einhverfu, hreyfihömlun,
blindu og heyrnarleysi. Oft er talað
um, að 3%-5% fæddra barna eigi
við alvarlega fötlun af einhverju
tagi að stríða. Sé miðað við, að
u.þ.b. fjögur þúsund börn fæðist á
íslandi á ári hverju, er fjöldi fatl-
aðra barna í árgangi u.þ.b. 120-
200.
Vægari frávik í þroska, sem leitt
geta til erfíðleika í námi, eru mun
algengari. Talið er, að a.m.k. 10%
barna í hverjum árgangi þurfi
stuðning af einhverju tagi vegna
námserfiðleika. Orsakir námserfið-
leika eru fjölmargar og þekking á
þeim eykst stöðugt, bæði m.t.t. or-
saka, einkenna og aðferða, sem lík-
legar eru til að skila árangri í með-
ferð og kennslu. Fyrir ekki svo
löngu síðan var lesblinda samheiti
yfir margvíslegar orsakir, sem
leiða til erfiðleika við lestrarnám.
Orsakir lestrarerfiðleika eru hins
vegar sjaldnast sjónræns eðlis,
eins og ætla má út frá lesblindu-
hugtakinu. Um getur verið að ræða
erfiðleika í heyrnarskynjun, minni,
málskilningi o.fl. Sértækir erfið-
leikar geta einnig komið fram í
stærðfræði, skrift og fleiri náms-
greinum. Enn sem fyrr má rekja
framfarir í þekkingu á orsökum
erfiðleika af þessu tagi til aukinnar
þekkingar á starfsemi heilans.
Tíðni og fjölbreytileiki frávika í
hegðun hjá börnum eru einnig
mikil. Slíkir erfíðleikar ganga und-
ir mismunandi nafngiftum, talað er
um geðræna erfiðleika barna,
hegðunarerfiðleika og atferlistrufl-
anir. Ekki er unnt að fara nánar út
í forsendur mismunandi hugtaka-
notkunar hér, en vakin athygli á
því, að oft höfða þau til sama veru-
leika.
Þunglyndi barna hefur verið gef-
inn vaxandi gaumur undanfarið og
ætla má, að u.þ.b. 2% barna eigi við
erfiðleika af því tagi að stríða. Nú á
síðustu árum hefur þekking á
hegðunarerfiðleikum barna, sem
nefndir eru ofvirkni og athyglis-
brestur, aukist til muna. Um er að
ræða ástand, sem getur haft afdrif-
aríkar afleiðingar fyrir barnið og
fjölskyldu þess. Ætla má að 3-5%
barna eigi við ofvirkni og athyglis-
brest að stríða. Orsakir ofvirkm og
athyglisbrests má rekja til ójafn-
vægis á boðefnum í heila.
Reynt hefur verið að halda því
fram, að orsakir ofvirkni og athygl-
isbrests megi rekja til ofnæmis,
óþols af einhverju tagi eða jafnvel
skorts á vítamínum. Slíkar vanga-
veltur styðjast ekki við niðurstöður
vísindalegra'' rannsókna. Gildi
í þessari grein verður sjónum
beint að þroskaferli barna,
einkum þeim fjölinörgu erfíð-
leikum í þroska og hegðun
sem fram geta komið hjá
börnum og unglingum og til-
gangi með markvissri athug-
un á slíkum erfíðleikum. Síð-
ar verður fjailað um það, á
hvern hátt lagt er mat á
þroska og hegðun með hlut-
lægum aðferðum sálfræðinn-
ar og tengslum á milli grein-
ingar og meðferðar. Að
lokum verður fjallað um
þjónustu við börn, sein eiga
við þroska- eða hegðunar-
vandamál að stríða, einkum
innan skóla- og heilbrigðis-
kerfísins. Ekki er um að ræða
fræðilega umfjöllun með
beinum tilvitnunum í heim-
ildir, heldur upplýsingar
Þyggðar á kenningum um
þroska bama, vísindalegri
þekkingu á sálfræðilegum
mælitækjum og starfí undir-
ritaðs undanfarna áratugi
með böm sem eiga við
þroska- og hegðunarerfíð-
leika af ýmsu tagi að stríða.
lyfjagjafar, sem getur haft afger-
andi áhrif til hins betra á líðan
barnsins, er jafnframt oft dregin í
efa. Það er að sjálfsögðu afar mikil-
vægt að beita ekki lyfjameðferð
nema hún skipti miklu máli fyrir
líðan barnsins og velferð í nútíð og
framtíð. Jafnframt er mikilvægt að
eftirlit með lyfjagjöf sé gott og
sálfræðilegri meðferð beitt sam-
hliða til að auka líkur á árangri
meðferðarinnar.
Geðrænir erfiðleikar barna og
unglingageta átt sér margvíslegar
orsakir. I sumum tilvikum er fyrst
og fremst um að ræða líffræðilegar
orsakir, _eins og í dæminu hér að
framan. I öðrum tilvikum má rekja
vanlíðan af ýmsu tagi hjá börnum
til umhverfisaðstæðna. Þetta á t.d.
oft við, þegar um er að ræða
hræðslu og kvíða. Líkamleg ein-
kenni má oft rekja til tilfinninga-
legra þátta, einkum þegar börn
eiga í hlut. Rétt er einnig að vekja
athygli á því, að þroskavandamál,
bæði þau sem eru væg og alvarleg,
auka líkur á félags- og tilfinninga-
legum erfiðleikum hjá börnum.
Þetta á t.d. við um börn með sér-
tæka námserfiðleika, sem vegnar
illa í skóla og fá oft ekki þann
stuðning, sem nauðsynlegur er.
Tilgangur greiningar frávika
Sú spurning vaknar óhjákvæmi-
lega, m.a. eftir lestur greina sem
birst hafa í Morgunblaðinu undan-
farið, hvers vegna nauðsynlegt er
að greina frávik í þroska og hegðun
hjá börnum. Einnig hvaða próf-
tæki eru best fallin til slíkrar
greiningar?
Vönduð greining, sem fram-
kvæmd er í samræmi við alþjóð-
lega viðurkennd vinnubrögð, leiðir
til þekkingar á því, hvernig þroska-
og hegðunarerfiðleikar birtast og
er jafnframt mikilvægt innlegg í
greiningu á orsökum vandans.
Greining veitir einnig mikilvægar
upplýsingar um líklega þróun erf-
iðleika af ýmsu tagi, t.d. framför,
stöðnun eða afturför í þroska. Síð-
ast en ekki síst hefur greining
beina skírskotun til meðferðar.
Með gildum rökum má halda því
fram, að án vandaðrar greiningar
sé líklegt, að þær aðgerðir, sem
gripið er til, séu illa grundaðar
fræðilega, óvandaðar og skili því
ekki tilætluðum árangri. Þar
breytir engu, hvort sá aðili, sem
veitir meðferðina, hvort sem hún
er kennslufræðileg eða annars eðl-
is, ber hag barnsins fyrir brjósti.
Sömu rök gilda, þegar um er að
ræða geðræna erfiðleika barna og
unglinga. Að þessu verður nánar
vikið í næstu grein.
Höfundur er doktor frá Parísar-
háskóla ogyfírsálfræðingur, Grein-
ingar- og ráðgjafarstöð rikisins.
Íti&NÝTJ)
nti
Handmáluð brúðhjónaglös
Ný sending af antik-húsgögnum
Opið kl. 10-18 mánud. til föstud., laugardag frá kl. 10-14.
Ármúla 7
LAUGARDAG
0PIÐ: 10-16
SloHuvogfi 11 * Stmi 568 5588
Jói Fel
1,óa fcl
Kleppsvegur 152
franslair um helgina
llmandi Croissants, Podánes og Baguettes trauö
angandi ostar og forvitnileg kynning
á Trönsku rauðvini. Komdu í ilmandi franska
sælkerastemmningukjá Jóa Fel um helgina.
Ferskfiskdagar í Frakklandi!
29.- 31. mars 2000
Lokafrestur skráningar er til mánudagsins 20. mars á slóðinni www.utn.stjr.is/vur
VUR • Rauðarárstíg 25 • 150 Reykjavlk • S(mi 560 9930 • Bréfsfmi 562 4878 • vur@utn.stjr.is • www.utn.stjr.is/vur
VUR
HNOTSKÓGUR / EFLIR VUR 301-00