Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 47
MINNINGAR
+ Leó Jósefsson
fæddist á Fjalla-
lækjarseli í Þistil-
firði 17. júní 1913, en
fiuttist með foreldr-
um sínuin að Kúðá í
sömu sveit á sínu
fyrsta aldursári og
dlst þar upp. Hann
lést á Nausti, dvalar-
heimili aldraðra á
Þórshöfn, 7. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Jósef
Vigfússon, f. 5. aprfl
1891, d. 24. septem-
ber 1966 og Halldóra
Jóhannsdóttir, f. 28. janúar 1882,
d. 21. aprfl 1940. Systkini hans
eru Ingibjörg, f. 8. mars 1915;
Vigfús, f. 24. júlí 1917; Benjamín,
f. 11. ágúst 1925. Dóttir Halldóru
fyrir giftingu var Lára Framars-
dóttir, f. 12. janúar 1902, látin
fyrir nokkrum árum. Árið 1939
kvæntist Leó Steinunni Stein-
þórsdóttur, f. 29. mars 1921 og
hófu þau sinn búskap að Ytra-
Álandi. Þaðan lá leiðin að Kúðá,
Elskulegur frændi okkar er látinn
og okkur langar til að minnast hans í
örfáum orðum. Leó eða Lelli eins og
hann var nú oftast kallaður var hæg-
látur maður sem flikaði ekki skoðun-
um sínum, þótt hann hefði oft
ákveðnar skoðanir á málunum. Lella
var líka margt til lista lagt og mun-
um við þá sérstaklega eftir vettling-
unum og ullarsokkunum sem hann
prjónaði á efri árum og sendi svo
norður til bróður síns. Þó að sam-
skiptin hafi minnkað seinustu árin
munum við alltaf eftir því hve gaman
var að heimsækja þau, hann og
Steinunni, eftirlifandi konu hans.
Okkur var tekið opnum örmum og
boðið til veislu í hvert skipti sem við
komum á heimili þeirra. Yngra fólk-
inu fannst ekki leiðinlegt að hlusta á
hann segja sögumar sínar og hann
átti heldur ekki í vandræðum með að
setja saman smá ljóðlínu eða heilu
ljóðin ef því var að skipta. Kæri
frændi, við kveðjum þig nú með
þessu Ijóði Valdimars Briem og biðj-
um góðan Guð að geyma þig.
Kalliðerkomið,
kominernú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja,
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margseraðminnast,
margter héraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guði þerri tregatárin stríð.
siðan að Hagalandi
og svo að Svalbarðs-
seli. Árið 1966 hættu
þau búskap og
byggðu Austurveg
12 á Þórshöfn þar
sem þau bjuggu allt
til ársins 1999. Síð-
ustu árum ævi sinn-
ar eyddi Leó á
Nausti. Börn þeirra
eru: Dóra, f. 12. des-
ember 1938; Lína, f.
29. desember 1940;
Jósep, f. 24. mars
1944; Friðbergur, f.
4. júlí 1946; Svandís,
f. 12. mars 1948; Lára, f. 16. júní;
Björg, f. 7. mars 1954; Hrönn, f.
16. nóvember 1955; Steinunn, f.
14. júlí 1958 og Fjóla, f. 1. desem-
ber 1959, en alls eru afkomendur
Leós og Steinunnar 70 talsins.
Leó var mjög barngóður og veru-
lega stoltur af sínum stóra barna-
hóp.
títför Leós fer fram frá Sval-
barðskirkju í Þistilfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkstþúmeð Guði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem)
Elsku Steinunn og fjölskylda,
Benjamín, Vigfús og Ingibjörg, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf, Thelma og íjölskyldur.
Hryggjast og gleðjast hér um fáa
daga. Heilsast og kveðjast það er
lífsins saga.
Nú hefur Leó vinur minn og
vinnufélagi lokið sinni tilvist hér.
Með honum er horfinn einhver sá
skemmtilegasti og fjölfróðasti mað-
ur sem ég hef þekkt auk þess að hafa
allt sem góður vinur og traustur
maður á. Það var ekki leiðinlegt að
koma á Austurveginn til þeirra Leós
og Steinunnar, þau voru alveg ein-
stök; gestrisnin gamanmálin og allt
sem þar bar á góma var hrein vítam-
ínsprauta. Leó var mjög vel penna-
fær hvort heldur um var að ræða
bundið eða óbundið mál. Dýrmæt
eru mér bréfin sem ég fékk frá hon-
um eftir að ég flutti burt, og ef ég fer
í fýlu eða finnst eitthvað leiðinlegt þá
tek ég þau fram og les, þá léttist
brúnin. Við áttum það til að skrifast
á og alltaf hlakkaði ég til að fá bréfin
frá Lella en það var hann kallaður af
vinum og kunningjum. Hann gaf út
tvö ljóðakver og auðvitað sendi hann
mér þau. Það er gjöf sem mér þykir
vænt um. Hann var mikil félagsvera
og kunni að skemmta sér eins og á að
skemmta sér og njóta þess sem í boði
var og vera með. Hann var gæfu-
maður, átti þann besta lífsförunaut
sem ég held að nokkur maður geti
eignast og stóran afkomendahóp.
Steinunn mín, ég votta þér og fjöl-
skyldu þinni mína samúð, Lelli minn
hafðu þökk fyrir allt, blessuð sé
minning þín.
Festar hefur ferjan losað, farþegi
er einn um borð.
Una.
Nú ertu farinn frá okkur, elsku afi
minn, ég trúi því að þú sért á betri
stað og að þér líði vel. Þegar svo
elskuð persóna eins og þú fellur frá
getur enginn komið í staðinn og fyllt
það tómarúm sem myndaðist í til-
veru okkar. Ég vona að það sé satt
sem fólk segir að við hittumst öll aft-
ur handan við móðuna miklu, það
væri mér mikil huggun að vita af því.
Ég náði ekki að kveðja þig, en ég
vil nota tækifærið og kveðja nú ynd-
islegan mann sem öllum þótti vænt
um og var í miklu uppáhaldi hjá öll-
um sínum afa- og langafabörnum,
ekki síst hjá mér.
Svo margar minningar sækja nú á
hugann og allar eru þær góðar. Það
var alltaf mikið tilhlökkunarefni að
fara norður á sumrin að heimsækja
afa og ömmu. Og það var alltaf jafn
gott að vera hjá ykkur.
Ég man hvað það var notalegt að
sitja hjá þér í stofunni og tala við þig
um aÚt og ekkert. Það var alveg
sama hvað ég tók mér fyrir hendur,
þú sýndir því öllu jafn mikinn áhuga,
sama hversu ómerkilegt það var.
Ég á eftir að sakna sárt samveru-
stunda okkar. Þó þær hafi ekki verið
jafn margar og ég hefði viljað, þá
voru þær mér allar jafn mikils virði.
Ég vona að þú vitir, elsku afi minn,
að minning þín mun lifa björt í hjarta
mínu svo lengi sem ég lifi.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt
Kg umvefji blessun og bænir,
égbiðaðþúsofirrótt
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þásælteraðvitaafþví
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
éghittiekkiumhríð,
Þá minning er ljós sem lifir
Og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð blessi þig.
Þín
Oddný.
Far þú 1 fnði,
friður Guðs þig blessi,
Gróðrarstöðin ^
mttm •
Hús blómanna
Blómaskreytingar
við öll tækifæri.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
frá Túni.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Suðurlands og heimahjúkrunar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480
Ruth Margrét Friðriksdóttir.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tældfæri
Skólavörðustíg 12,
á liorni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
VILBORGAR VALGEIRSDÓTTUR,
Hagatúni 5,
Hornafirði.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og útför
BJÖRNS SÆMUNDSSONAR
bifreiðastjóra,
Skáleyjum,
Breiðafirði.
Magdalena Brynjúlfsdóttir, Sæmundur Björnsson,
Kristbjörg Björnsdóttir Podlech, Horst Podlech,
Magdalena Berglind Björnsdóttir, Auðunn Steinn Sigurðsson,
Sæmundur Björnsson, Hilde Marie Birkelid,
Sigurgeir Jóhannes Björnsson,
Stephanie, Katrin, Kristófer Skúli, Margret Rún,
Brynjúlfur Sæmundsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Ásta Ásdís Sæmundsdóttir, Magnús Björnsson
og fjölskyldur.
t.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR VILBORGAR GÍSLADÓTTUR,
Þórunnarstræti 134,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á B-gangi dval-
arheimilisins Hlíðar fyrir frábæra umönnun og
til heimahjúkrunar á Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Gísli Sigfússon,
Helga Sigfúsdóttir, Rúnar H. Sigmundsson,
Gunnar Örn Rúnarsson, Bryndís Valgarðsdóttir,
Sigrún Rúnarsdóttir, Magnús Magnússon,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Elín Sveinsdóttir,
Guðrún Rúnarsdóttir, Sigfús Arnar Karlsson
og langömmubörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓNS INGÓLFSSONAR,
Dverghamri 13,
Vestmannaeyjum.
Halldóra Hallbergsdóttir,
Þuríður Jónsdóttir, Jóel Þór Andersen,
Bergþóra Jónsdóttir, Óskar Óskarsson,
Hallbjörg Jónsdóttir, Róbert Gíslason,
Berglind Jónsdóttir, Steinar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Firði,
Múlasveit,
Hraunteigi 23,
Reykjavík.
Bergljót Aðalsteinsdóttir, Björgvin Kjartansson,
Steinunn Aðalsteinsdóttir, Skúli Magnússon,
Ingibjörg Aðalsteinsdóttir,
Hulda Aðalsteinsdóttir, Ólafur Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
INGA ÞÓRÐARSONAR,
Safamýri 38,
Reykjavík.
»
Kristín Óskarsdóttir,
Sigrún Ósk Ingadóttir, Kristján Sigurðsson,
Eva Aðalheiður Ingadóttir, Bjöm Sigtryggsson
og barnabörn.