Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 49
UMRÆÐAN
Um dóminn í máli
PricewaterhouseCoopers
Endurskoðendafyr-
irtækið Pricewater-
houseCoopers ehf. og
Gunnar Sigurðsson
löggiltur endurskoð-
andi, sem hjá því fyr-
irtæki starfar, voru
fyrr í vetur dæmdir
sameiginlega til að
greiða til Nathan &
Olsen hf. skaðabætur
vegna fjárdráttar
gjaldkera N&O árum
saman. Hæstiréttur
kvað dóminn upp 9.
desember sl. og komst
að þeirri niðurstöðu
að endurskoðandinn
og fyrirtæki hans,
sem annast höfðu og selt N&O
endurskoðunar- og sér-
fræðiþjónustu um árabil, ættu að
hluta til sök á því að ekki komst
fyrr upp um fjárdráttinn en raun
bar vitni og þar með hefði tjón
N&O orðið meira en þurft hefði að
vera, ef öðruvísi hefði verið staðið
að verki við endurskoðun reikninga
félagsins. Dómurinn vakti verð-
skuldaða athygli, ekki síst í við-
skiptalífinu, enda hafði Héraðs-
dómur Reykjavíkur áður sýknað
endurskoðendur af bótakröfu
N&O.
Nú ber svo við að umrætt mál
PricewaterhouseCoopers er „tekið
upp að nýju“ á opinberum vett-
vangi á afar óvenjulegan hátt, svo
ekki sé meira sagt. Fram á ritvöll-
inn geysist Stefán Svavarsson, lög-
giltur endurskoðandi og dósent í
Háskóla Islands, í fimm síðna grein
í 2. tbl. Frjálsrar verslunar 2000.
Hann lýsir því þar yfir að Hæsti-
réttur hafi misskilið sumt og kosið
að „líta framhjá öðru“ í dómi sín-
um! Óhjákvæmilegt er að gera at-
hugasemdir við dæmalausa umfjöll-
un Stefáns og Frjálsrar verslunar.
Megintilgangur greinarinnar er
augljóslega sá að gera hlut endur-
skoðendanna í þessu máli fegurri
en efni standa til samkvæmt dómi
Hæstaréttar. Að sama skapi er
leynt og ljóst reynt að koma því
inn hjá lesandanum að stjórn og
stjómendur Nathan & Olsen hafi
sloppið alltof vel, vegna „misskiln-
ings“ Hæstaréttar.
Hinir dæmdu í málinu, þ.e. end-
urskoðendafyrirtækið Prieewater-
houseCoopers og Gunnar Sigurðs-
son endurskoðandi, eru HVERGI
nefndir á nafn í greininni. Nafn
fyrirtækisins Nathan & Olsen kem-
ur hins vegar TÓLF sinnum fyrir í
þessu tölublaði Frjálsrar verslun-
ar! Þar af eru birtar ekki færri en
þrjár ljósmyndir af firmamerki fé-
lagsins, m.a. á forsíðu. Þannig er
látið líta út sem þetta mál allt
snúist um N&O en ekki vanrækslu
og ábyrgð PricewaterhouseCoop-
ers og endurskoðanda þess. Grein-
arhöfundur reynir síðan að styrkja
þessa ímyndarsköpun sína með því
að veitast að stjórn N&O með held-
ur ósmekklegum hætti.
Efnistökin í greininni eru ámæl-
isverð. Ekki er rétt farið með mik-
ilvæg atriði málsins og á önnur er
ekki minnst til að fá þá niðurstöðu
sem stofnað er til með skrifunum.
Greinarhöfundur lætur til dæmis
eiga sig að nefna að hinn dæmdi
endurskoðandi hafi áritað reikn-
inga N&O athugasemdalaust öll
fjögur árin sem stórfelldur fjár-
dráttur átti sér stað í fyrirtækinu
og staðfest að þeir væru endur-
skoðaðii' „í samræmi við góðar
endurskoðunarvenjur". I leiðbein-
andi reglum um grundvallaratriði
endurskoðunar á ársreikningum
hlutafélaga er sagt að markmið
endurskoðunar sé að kanna hvort
„eignir" í efnahagsreikningi séu
fyrir hendi og í eigu félags, færðar
og metnar í samræmi við lög og
góðar reikningsskilavenju. Þessi
grundvallarregla „góðrar" endur-
skoðunarvenju var brotin ár eftir
ár í endurskoðunarvinnu á vegum
PricewaterhouseCoop-
ers hjá N&O og er
meginforsenda skaða-
bótadómsins títt-
nefnda frá 9. desem-
ber sl.
Ótrúleg er eftirfar-
andi fullyrðing eða
öllu heldur útúrsnún-
ingur greinarhöfund-
ar: „hvergi er í lögum
að finna fyrirmæli í þá
veru að endurskoð-
endur skuli fyrir-
byggja og uppgötva
fjársvik. Málið snýst
ekki um það að endur-
skoðendur eigi að
„fyrirbyggja eða upp-
götva“ fjársvik. Eitt meginhlutverk
endurskoðenda að lögum er að
upplýsa stjórn félags um hvaðeina
sem veit að bókhaldi félagsins og
meðferð fjármuna þess sem hann
verður áskynja um að betur mætti
fara þannig að stjóm félags geti
brugðist við með réttum hætti.
Greinarhöfundur getur þess hvergi
Endurskoðun
Kjarni málsins er auð-
vitað sá, segir Jónas A.
Aðalsteinsson, að
Jónas A.
Aðalsteinsson
Hæstiréttur misskildi
ekki nokkurn skapaðan
hlut, endurskoðendafyr-
irtækið og endur-
skoðandi þess gerðu sig
seka um vanrækslu í
starfi.
að undir rekstri málsins kom fram
að endurskoðandinn varð þess ár-
lega var, við gerð ársreiknings fé-
lagsins, að gjaldkerinn lét honum
ekki í té umbeðin gögn varðandi
bókhald félagsins. Fram kom að
endurskoðandinn lauk samt gerð
ársreikninga félagsins og endur-
skoðun þeirra athugasemdalaust
öll árin án þess að gera stjórn,
stjórnendum eða hluthöfum félags-
ins grein fyrir þessari vitneskju
sinni á aðalfundum þess. Þá fundi
sat hann alla og gerði grein fyrir
reikningum félagsins. Hann fylgdi
þessari vitneskju sinni heldur ekki
eftir með frekari athugunum eða á
annan hátt.
Greinarhöfundur getur þess
hvergi að endurskoðandinn sendi
stjórn N&O bréf á hverju ári til
innfærslu í endurskoðunarbók um
að hann hefði kannað sérstaklega
innra eftirlit fyrirtækisins og rétta
meðferð eigna þess og að niður-
staða hans væri sú að hvort
tveggja væri í góðu lagi. í þeim
bréfum var aldrei gerð athugasemd
um störf bókara og gjaldkera fyrir-
tækisins en undir rekstri málsins
kom fram að sami háttur var á
þeim málum hjá N&O og Pricewat-
erhouseCoopers sjálfum. Hluthafar
félagsins, stjórn og stjórnendur
treystu því að sú hin árlega úttekt
endurskoðendanna væri rétt.
Hæstiréttur hefur talað í þessu
máli um verklag og ábyrgð lög-
giltra endurskoðenda. Við þann
dóm verða menn að una, einnig
endurskoðendur. Skrif Stefáns
Svavarssonar sem löggilts endur-
skoðanda benda hins vegar til þess
að einhverjir í röðum endurskoð-
enda ætli ekki að sætta sig við
Hæstaréttardóminn og telji sig
geta rétt sinn hlut með því að
„áfrýja“ til dómsstigs götunnar og
heitu pottanna. Eg dreg reyndar í
efa að umfjöllun Frjálsrar verslun-
ar sé í umboði Pricewaterhouse-
Coopers eða endurskoðandans en
ef svo er muni þeir einnig tapa
málinu á því dómsstigi.
Kjarni málsins er auðvitað sá að
Hæstiréttur misskildi ekki nokk-
urn skapaðan hlut, endurskoðenda-
fyrirtækið og endurskoðandi þess
gerðu sig seka um vanrækslu í
starfi, sú vanræksla leiddi til þess
að tjón Nathan & Olsen varð meira
en þurft hefði að vera hefðu endur-
skoðendurnir staðið öðruvísi að
verki, svo sem segir orðrétt í dóm-
inum. Af hálfu Nathan & Olsen hf.
lauk málinu með dómi Hæstaréttar
íslands.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
og fomiaður stjórnar Nathan & Ol-
sen hf.
Bændafundir til kynningar d nýjum sauðfjdrsamningi
Landbúnaðarrdðuneytlð og Bændasamtök íslands boða til funda til
kynningar d nýjum sauðfjdrsamningi d eftirtöldum stöðum:
Staður Dagsetn. Tími Frummælendur
Þverholt 3, Mostellsbæ 22. mars kl. 20.30 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri BÍ
Hótel Borgarnes 21. mars kl. 21.00 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra^ Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri BÍ
Breiðablik, Snæfellsnesi 21. mars kl. 21.00 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
Dalabúð, Búðardal 20. mars kl. 21.00 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri BÍ Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
Vogaland, Króksfjarðarnesi 21. mars kl. 13.30 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
Rabba-bar, Patreksfirði 27. mars kl. 13.00 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra_ Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri BÍ
Hótel ísafjörður 27. mars kl. 13.00 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Ari Teitsson formaður Bl.
Sævangur, Strandasýslu 23. mars kl. 14.00 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
Ásbyrgi í Miðfirði 20. mars Kl. 13.00 Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri BÍ Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
Félagsheimilið Blönduósi 21. mars kl. 21.00 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Miðgarður í Skagafirði 21. mars kl. 13.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Fosshótel KEA, Akureyri 20. mars kl. 20.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Ýdalir, S.-Þing. 20. mars kl. 13.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Fjallalamb, Kópaskeri 19. mars kl. 17.00 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Mikligarður, Vopnafirði 20. mars kl. 13.30 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, form. LS
Golfskálinn, Ekkjufelli, Fellum 20. mars kl. 20.30 Sveinbjörn Eyjólfsson, aðstoðarm. ráðherra Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, form. LS
Hrollaugsstaðir, Suðursveit. 24. mars kl. 13.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Hótel Kirkjubæjarklaustur 23. mars kl. 20.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli 22. mars kl. 20.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Hótel Selfoss, Selfossi 23. mars kl. 13.30 Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra Ari Teitsson, formaður BÍ
Landbúnaðarráðuneytið - Bændasamtök Islands