Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 51
UMRÆÐAN
Merkilegt menningarstarf
„Það er varla hægt að
hugsa sér betri fulltrúa
fyrir land sitt og menn-
ingu en syngjandi
æskufólk. Þannigfórust
Vigdísi Finnbogadóttur
fyrrverandi forseta orð
þegar Drengjakór
Laugarneskirkju, undir
stjóm Rolands Tumer,
hélt í sína fyrstu utan-
landsferð árið 1992, þá
aðeins tveggja ára gam-
all. Þessi orð eiga ekki
síður við í dag þegar
drengjakórinn fagnar
10 ára afmæli sínu.
Það á vel við á þessu
menningarári, árið
2000, þegar hróður Reykjavíkur og
landsins alls berst víða, að minnast
þess merka starfs sem unnið er hjá
þessum „yngsta kirkjukór" landsins.
Á þeim tíu ámm sem liðin em frá
stofnun kórsins hafa um 150 drengir
á aldrinum 6-20 ára lagt honum lið.
Þeir hafa stillt saman strengi sína
með miklum glæsibrag, hlotið þjálfun
í raddbeitingu, nótnalestri og tón-
heym og sungið óheyrilegan fjölda af
lögum, andlegum jafnt sem verald-
legum. Þar hljóma
Bach og Beethoven,
Mozart og Musorgskij
og textar jafnt frá Kol-
beini Tumasyni sem
Þórbergi Þórðarsyni.
Það má því með sanni
segja að í kómum fari
fram mikilvægt uppeld-
is- og menningarstarf
sem krefst einbeitni og
aga, vinnusemi og
stundvísi um leið og það
fræðir og fóstrar og
vekur yndi og áhuga.
Kórinn hefur sungið sig
inn í hjörtu lands-
manna, sungið fyrir for-
seta og fósturjörð, í
kirkjum og kontómm, á tónleikum og
á götum úti, í sjónvarpi og útvarpi.
Hann hefur einnig sungið sem glæst-
ur fulltrúi lands síns í Danmörku, Sví-
þjóð, Englandi og Bandaríkjunum
þar sem hann vann til þrennra gull-
verðlauna. I sumar liggur svo leiðin
til Austurríkis, „Mekka drengjakór-
anna“. Kórinn hefur einnig gefíð út
tvo geisladiska með söng sínum. Það
er sannarlega ekki lítið starf sem
liggui- eftir Drengjakór Laugames-
Tímamót
Það á vel við á þessu
menningarári, árið 2000,
segir Guðfínna Ragn-
arsdóttir, að minnast
þess merka starfs sem
unnið er hjá þessum
„yngsta“ kirkjukór
landsins.
kirkju þegar litið er til þeirra tíu ára
sem kórinn hefur starfað.
Æskan og framlag hennar til listar
og menningar vill oft gleymast eða
raðast í annan flokk. Þessu þarf að
breyta og hefja störf unga fólksins til
vegs og virðingar eins og það á skilið.
Því fátt er mikilvægara hverri þjóð en
hlúa vel að æskufólkinu og hrósa því
sem vel er gert. Með því að halda því
góða og fallega á lofti sköpum við fyr-
irmyndir sem öllum em svo nauðsyn-
legar, ekki síst þeim sem em að feta
sín fyrstu spor. Einkunnarorð kórs-
ins hafa frá upphafi verið þrjú:
„Syngja eins og englar, hegða sér
eins og herrar, og leika sér eins og
böm.“ Innan þessa ramma hafa 150
drengir í Drengjakór Laugames-
kirkju vaxið og dafnað með list, aga
og leik í mátulegum hlutföllum sér og
þjóð sinni til yndis og ánægju. Jón
Ásgeirsson segir í Mbl. 18. desember
1998: „Einn af athyglisverðustu kór-
um landsins er tvímælalaust
Drengjakór Laugameskirkju og
undir stjóm Friðriks S. Kristinsson-
ar hefur kórinn eflst... og ljóst er að
Drengjakór Laugameskirkju hefur
náð þeim áfanga að teljast einhver at-
hyghsverðasta uppeldisstofnun á
sviði söngs, sem starfar hér á landi.“
Um leið og ég óska kómum til
hamingju með 10 ára afmælið og
minnist ótal ánægjustunda með
drengjunum hvet ég alla til að styðja
við bakið á þessu merka uppeldis- og
menningarstarfí og minni á afmælis-
tónleika kórsins laugardaginn 18.
mars næstkomandi.
Höfundur er menntaskólakennari
og fyrrverandi stjórnannaður í
foreldrafélagi kórsins.
Guðfínna
Ragnarsdóttir
iS
%
afsláttur
r
Rafknúin farar-
tæki, vetnisrafal-
ar eða rafgeymar
í LJÓSI þess, að sú
hugmynd virðist vera
að komast á kojipinn,
að vetnisvæða Island,
hvað svo sem það
merkir, finn ég mig
knúinn til að setja
nokkrar línur á blað.
Vetni er ekki orku-
gjafi þar sem það fyr-
irfinnst sjaldan óbund-
ið í náttúmnni, heldur
þarf orku til að vinna
það úr samböndum.
Þeir vagnar, sem
hugmyndin er að flytja
hingað til landsins, em
í raun rafknúin farar-
tæki. Þeir ganga fyrir
rafmagni, sem kemur frá vetnisraf-
ölum (fuel cells).
Við skulum líta á hvernig það raf-
magn er fengið.
Orka
Vinnsla á vetni með
raforku er mun meira
orkukrefjandi, segir
Gísli Júlfusson, en
með öðrum aðferðum,
svo sem úr lífmassa,
olíu eða gasi.
Vetnið er unnið úr vatni með raf-
greiningu, og þarf um það bil 3,3
kílówattstundir af rafmagni til að
vinna 1 kílówattstund af vetni. Það
merkir að nýtnin er um 30%. Síðan
er þetta vetni notað til að vinna raf-
magn í vetnisrafala, sem sam-
kvæmt bestu vitneskju hefur um
50% nýtni. Það merkir, að 2 kíló-
wattstundir af vetni þarf til að fá 1
kwst af rafmagni til að knýja raf-
hreyfil í strætisvagninum. Þannig
að nýtnin á rafmagninu, sem notað
er, er um 15%.
Vinnsla á vetni með raforku er
mun meira orkukrefjandi en með
öðrum aðferðum, svo sem úr líf-
massa, olíu eða gasi.
Berum þetta saman við vagn,
sem nýtir rafgeyma. Nýtni á
hleðslutækjum er nú um 75%, og
nýtni rafgeyma um 75%, og verður
heildarnýtnin þá um
56%. Þegar notaðir
eru rafgeymar, eru
rafhreyflarnir notaðir
sem rafalar til að
hemla, og hlaða þeir
þá inn á rafgeymana,
og einnig til að hlífa
hemlunum.
í tilraunum, sem
hafa farið fram í
Mendrisio í Sviss síð-
astliðin 5 ár, er reynsl-
an sú, að með því að
nýta endurvinnsluna
frá hreyflunum, verð-
ur meðalnýtnin 76%.
Á þennan hátt
reiknast mér til, að
með því að nota vetni á vetnisrafala
í stað þess að nota rafmagn á raf-
geyma, þurfi að vinna 5-falt meiri
raforku.
Þetta er því ekki mjög umhverf-
isvænt miðað við notkun rafgeyma,
þar sem virkja þarf fimmfalt meira.
Ég hef áður skrifað um, að raf-
geymaknúnir strætisvagnar séu
orðnir þróaðir og notaðir víða.
Einnig eru þeir mun ódýrari en
vetnisknúnir.
Þróun á rafgeymum og hleðslu
þeirra er þannig, að þá má hlaða
upp í 50% á 5 mínútum og 80% á 15
mínútum. Einnig hefur það komið í
ljós, að geymarnir endast mun bet-
ur við hraðhleðslu.
Það ætti því ekki að valda nein-
um vandræðum að halda góðri
hleðslu allan daginn með vel dreifð-
um hleðslustöðvum.
Notkun rafbíla er talin henta vel
aðilum, sem þurfa flota af bílum,
sem ekki þurfa að aka langar vega-
lengdir daglega, svo sem veitum
sveitarfélaga, pósti ofl.
í Mendrisio, þar sem 200 bílar
hafa ekið 1 milljón kílómetra, hefur
komið í ljós, að rafbíllinn takmark-
ar ekki hreyfanleika notenda. Þrátt
fyrir mjög fjöllótt landslag og kulda
á vetrum er orkunotkun aðeins einn
þriðji miðað við venjuleg farartæki.
Þær upplýsingar, sem koma fram
hér, eru að mestu fengnar úr tíma-
ritinu „Electrical & Hybrid vehicle
technology", 97, 98 og 99, og riti frá
TUV Bayern Group.
Höfundur er rafmagnsverk-
fræðingur.
Gísli
Júlíusson
Hafðu ,
hraðana
með Olívettí prenturum
og faxtækjum
Smith & Norland eykur enn vöruval sitt og
býður nú Olivetti prentara og faxtæki sem
eru afkastamikill og traustur búnaður.
ítölsk hönnun eins og hún gerist best.
Bjóðum einnig gott úrval af Fujitsu Siemens
tölvum.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • Fax 520 3011 • www.sminor.is
fKorgimMfifeíifo AUGLYSINGADEILD Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110 VH> mbl.is
Netfang: augHSmbl.is allta/= errrntSAO /vÝm
AFSLÁTTUR AF
TRIUMPH UNDIRFATNAÐI
Ivmpíi
Kringlunni 8-12 sími 553 3600
-#f
TILB0Ð I MARS
á tjöruhreinsi
fyrir bíla
Jákó sf.
sími 564 1819
Auðbrekku 23
Nettoú<c
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Innréttingar
Frí teiknivinna og tilbobsgerb
I Friform
| HÁTÚNI6A (í húsn. Fðnix) SÍMI: 552 4420