Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 52
52 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Verkefni óbyggða-
nefndar og málefni
þjóðlendna hafa verið tii
umfjöllunar í fjölmiðl-
um undanfama mánuði.
I þeirri umræðu hefur
borið á misskOningi um
tvö grundvallaratriði. í
^ fyrsta lagi hafa ýmsir
talið að kröfur um þjóð-
lendur séu settar fram
af óbyggðanefnd. í öðru
iagi hefur því verið
haldið fram að lög um
þjóðlendur og ákvörðun
marka eignarlanda,
þjóðlendna og afrétta
(hér eftir nefnd þjóð-
lendulög), nr. 58/1998,
feli í sér að menn séu sviptir eign
sinni. Ástæða er því til að upplýsa um
helstu staðreyndir þessa mikilvæga
máls.
Hið rétta er að kröfur ríkisins um
þjóðlendur eru lögum samkvæmt
settar fram af fjármála-
ráðherra fyrii’ hönd rík-
isins. A vegum fjár-
málaráðherra er vinnu-
nefnd sem kölluð hefur
verið „þjóðlendunefnd"
og heflir það hlutverk
að undirbúa málið af
hálfu ráðuneytisins.
Þessari vinnunefnd
fjármálaráðherra hefur
í opinberri umræðu
þráfaldlega verið ruglað
saman við óbyggða-
nefnd. Auk fjármála-
ráðherra, fyrir hönd
ríkisins, hafa bændur
og aðrir sem telja sig
eiga eignarréttarlegra
hagsmuna að gæta á svæðinu sett
fram kröfur sínar.
Óbyggðanefnd er sjálfstæð
stjórnsýslunefnd sem starfar sam-
kvæmt þjóðlendulögum, auk al-
mennra stjórnsýslulaga. Nefndar-
Óbyggóanefnd
Hið rétta er, segir Sif
Guðjónsdóttir, að kröf-
ur ríkisins um þjóðlend-
ur eru lögum sam-
kvæmt settar fram
af fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkisins.
menn eru þrír og skulu fullnægja
skilyrðum til að gegna embætti hér-
aðsdómara.
Hlutverk óbyggðanefndar er þrí-
þætt:
1. Að kanna og skera úr um hvaða
land telst tii þjóðlendna og hver séu
mörk þeirra og eignarlanda.
2. Að skera úr um mörk þess hluta
þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur.
3.Að úrskurða um dgnarréttindi
innan þjóðlendna. Óbyggðanefnd
byrjar á því að afmarka það svæði
sem til meðferðar er, kallar því næst
eftir kröfum fjármálaráðherra og
annan-a sem þar telja til réttinda,
auglýsir þær, aflar gagna, iætur fara
fram málflutning og úrskurðar loks í
málinu. I úrskurðinum felst að dregin
er „þjóðlendulína" á milli eignarlanda
og þjóðlendna, þar sem þær teljast
vera fyrir hendi, og kveðið á um rétt-
indi einstakiinga og lögaðila innan
þjóðlendna, þar á meðal afmörkuð af-
réttarsvæði.
Þess má geta að ýmsir hafa mis-
skilið kort óbyggðanefndar sem sýnir
kröfur allra málsaðila í norðanverðri
Arnessýslu.
Þannig hefur kröfum fjáimálaráð-
heira fyrir hönd ríkisins verið ruglað
saman við úrskurð óbyggðanefndar,
en hann liggur alls ekki fyrir.
Úrskurður óbyggðanefndar er
endanleg afgreiðsla innan stjómsýsl-
unnar og verður því ekki kærður til
ráðherra sem æðra stjómvalds. Sá
sem ekki vill una úrskurði óbyggða-
nefndar getur hins vegar höfðað
einkamál fyrir dómstólum innan sex
mánaða frá lögformlegri birtingu
hans.
Þjóðlenda er skilgreind í þjóð-
lendulögum sem „landsvæði utan
eignarlanda þó að einstaklingai’ eða
lögaðilar kunni að eiga þai' takmörk-
uð eignarréttindi." í þessari skil-
greiningu kemur skýrt fram að þjóð-
lendulög gera ekki ráð fyrir að raska
eignarlöndum manna. Þjóðlendur era
utan eignarlanda. Eignarland er hins
vegar skilgi-eint í þjóðlendulögum
sem „landsvæði sem er háð einka-
eignarrétti þannig að eigandi landsins
fer með öll venjuleg eignan-áð þess
innan þeirra marka sem lög segja til
um á hverjum tíma“.
Fram að gildistöku þjóðlendulaga
vora til landsvæði á Islandi sem eng-
inn eigandi var að. Um það vitna þeir
dómar Hæstaréttar á liðnum áratug-
um sem öðra fremur voru kveikjan að
setningu þjóðlendulaganna. Með
þjóðlendulögunum var íslenska ííkið
lýst eigandi slíkra svæða og þau
nefnd þjóðlendur.
I greinargerð með framvai-pi til
þjóðlendulaganna kemur fram að
gert er ráð fyrir að hér sé um að ræða
landsvæði sem nefnd hafa verið nöfn-
um eins og hálendi, óbyggðir, afréttir
og almenningar, allt að því tilskildu að
utan eignarlanda sé. Aukin og breytt
nýting á slíkum svæðum var talin
kalla á skýrar reglur um eignarráð.
Nákvæmlega hvaða landsvæði
urðu þjóðlendur við gildistöku þjóð-
lendulaganna liggur hins vegar ekki
fyrir á þessu stigi máls, það skýrist
Um óbyggðanefnd
og þjóðlendur
Sif
Guðjónsdóttir
AT V IISI M LJ -
AUGLÝSINGAR
Lúgusjoppa á stór-
Reykjavíkursvæðinu
óskar eftir að ráða starfskraft.
Um er að ræða 70—100% vaktavinnu.
Nánari upplýsingar gefur Helgi í síma 696 5885
á milli kl. 8.00 og 12.00 og 14.00 og 16.00 alla
virka daga.
Háseti óskast
Háseta vantar á 300 lesta línuskip, sem frystir
aflann um borð. Upplýsingar í síma 420 5700.
Vísir hf.
HÚSNÆÐI í BO0I
Leiguskipti
Til leigu rúmgott einbýlishús meðtvöföldum
bílskúr á Sauðárkróki í skiptum fyrir húsnæði
með bílskúr á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 453 5476, Kristín eða
Þorvaldur.
FUIMOIR/ MANNFAGNAOUR
Náttú ru lækni ngafél ag
Reykjavíkur,
Laugavegi 7, 101 Reykjavík,
sími 552 8191
Aðalfundur NLFR
Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur
verður haldinn laugardaginn 25. mars nk.
v kl. 14.00. Fundurinn verður haldinn í Þórshöll,
Brautarholti 20, 2. hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Veitingar í boði félagsins.
Stjórnin.
íslensk Grafík — Aðalfundur
Félagið íslensk Grafík boðar til aðalfundar
í húsnæði félagsins íTryggvagötu 15,
Reykjavík, föstudaginn 7. apríl kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar:
* 1. Skýrsla formanns.
2. Ársreikningar.
3. Inntaka nýrra meðlima.
4. Önnur mál.
5. Kosning nýrrar stjórnar.
Boðið verður upp á léttar veitingar að góðum
sið og að hætti hússins.
* Félagsmenn eru hvattirtil að mæta.
VERKSTJÓRAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Aðalfundur
Verkstjórafélags Reykjavíkur 2000
verður haldinn í dag, laugardaginn 18. mars
2000, í Hvammi á Grand Hóteli Reykjavík, Sig-
túni 38 og hefst fundurinn kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Stjórn Verkstjórafélags
Reykjavíkur.
UPPBOD
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppbods á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Miðás 19—21, ásamt lóðarr., tækjum, vélum o.fl., Egilsstöðum, þingl.
eig. Vökvavélar hf., gerðarbeiöendur Austur-Hérað og Fjárfestingar-
banki atvinnulífsins hf., miðvikudaginn 22. mars 2000 kl. 14.00.
Lagarbraut 7, norðurendi, Fellabæ, þingl. eig. Herðir hf., fiskvinnsla,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Islenskar sjávarafurðir hf., miðvik-
udaginn 22. mars 2000 kl. 16.30.
Smárahvammur 2, Fellabæ, þingl. eig. Hrefna Hjálmarsdóttir og
Stefán Ásgrímsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
22. mars 2000 kl. 13.30.
Spilda úr landi Ekkjufellssels, ásamt vélum, tækjum o.fl., Fellahr.,
þingl. eig. Herðir hf., fiskvinnsla, gerðarbeiðendur Fjárfestingarbanki
at- vinnulífsins hf. og (slenskar sjávarafurðir hf., miðvikudaginn
22. mars 2000 kl. 16.00.
Verkstæðishús v/Vallarveg, ásamt vélum, tækjum o.fl., Egilsstöðum,
þingl. eig. Dagsverk efh., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og
Gúmmívinnustofan ehf„ miðvikudaginn 22. mars 2000 kl. 17.00.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Aðalgötu 7,
Stykkishólmi, þriðjudaginn 21. mars 2000 kl. 10.00 á eftirfar-
andi eignum:
Borgarbraut 6, íbúð 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Þorsteinn Bjarki
Ólafsson, gerðarbeiðandi ibúðalánasjóður.
Brautarholt 21, Snæfellsbæ, þingl. eig. Reynir Jónsson og Margrét
S. Ingimundardóttir, gerðarbeiðandi ibúðalánasjóður.
Bæjartún 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Vigfús K. Vigfússon, gerðarbeið-
andi Samvinnusjóður fslands hf.
Helluhóll 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ársæll Kristófer Ársælsson og
Aðalsteina Erla L. Gísladóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður,
Lífeyrissjóður versiunarmanna og Olíufélagið hf.
Hraunás 11, hluti, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þröstur Kristófersson, gerð-
arbeiðandi Ingvar Helgason hf.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
17. mars 2000.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð þeim
sjálfum sem hér segir:
Hásteinsvegur 45, efri hæð og ris, þingl. eig. Þorvaldur Guðmundsson,
gerðarbeiðendur Bifreiðar og landbúnaðarvélar og Búnaðarbanki
Islands, Austurstr., miðvikudaginn 22. mars 2000 kl. 14.30.
Miðstræti 28, austurendi og miðhluti, þingl. eig. Sigtryggur H. Þrast-
arson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga, miðvikudag-
inn 22. mars 2000 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
17. mars 2000,
Karl Gauti Hjaltason,
sýslumaður.
Hraunás 12, Snæfellsbæ, þingl. eig. Magnús Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Ibúðalánasjóöur.
Snæfellsás 7, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þorbjörg A. Höskuldsdóttir,
gerðarbeiðandi Byko hf.
Stekkjarholt 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þórunn Björg Einarsdóttir
og Kristján Björn Ríkharðsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
17. mars 2000.
KENNSLA
Stangaveiðimenn athugið
Nýtt námskeiö í fluguköstum, það síðasta í vetur,
hefstsunnudaginn 19. mars. íTBR-húsinu,
Gnoðarvogi 1, kl. 20.00.
Kennt verður 19. og 26. mars, 2., 9. og 16. apríl.
Við leggjum til stangir. Takið með ykkur inniskó
(íþróttaskó). Mætið tímanlega.
Skráning á staðnum gegn greiðslu.
KKR, SVFR og SVFH.
tt 11 / i iTBnh
■ ■ I 6 Kmm KmS ImmF ImmJ / imJ S SmmB «m«I KmJ
Útboð
Grindavíkurbær leitar eftir tilboðum í skóla-
húsgögn:
Um er að ræða skólahúsgögn í Grunnskóla
Grindavíkur, borð og stóla fyrir nemendur, kenn-
araborð, húsgögn á kennarastofu og fleira.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu
Grindavíkur, Víkurbraut 62, 240 Grindavík, frá
og með miðvikudegi 22. mars 2000.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
kl. 11.00 þriðjudaginn 4. apríl nk. og verða þau
þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Húsgögn skulu afhent 31. júlí 2000.
Bæjartæknifræðingurinn
í Grindavíkurbæ.