Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 55
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 55
UMRÆÐAN
umst fyrst, eftir næstum níu ára
bréfaskipti, fyrir þremur árum.
Það var á Karólínsku stofnuninni
föstudaginn 21sta marz 1997.
Þegar við loksins hittumst tók-
umst við í hendur og ljómuðum. En
bara örskotsstund. Hann tók til
máls: „Eg hef þrjár spurningar.
Eitt. Wittgenstein segir í dagbók
sinni frá 1929...“. Hann vildi vita
hvað mér þætti um dagbókarfærslu
heimspekingsins. Ég ætla ekki að
rekja hana hér. Af hinum spurning-
unum tveimur varðaði önnur
bandaríska málfræðinga sem hafa
sumir hverjir reifað mjög umdeil-
anlegar efasemdir um þróunar-
kenninguna. Georg fékk mér doðr-
ant að lesa um þetta efni, ljómandi
bók heimspekingsins Daniels
Dennett um Darwinskenninguna.
Eftir að við höfðum skemmt okkur
góða stund yfir spurningunum
þremur kom Eva inn á skrifstofu
manns síns og spurði umsvifalaust:
„Hverju slepptuð þið úr Niflunga-
hríngnum í Reykjavík 1994?“ Ein
leiðin til að ljá hverju andartaki
inntak er að stilla sig um kurt-
eisishjal eins og „Hvernig var ferð-
in frá Kaupmannahöfn?" og
„Hvernig fer um þig í íbúðinni?" og
„Finnst þér ekki kalt í Stokk-
hólmi?“
Þegar Niflungahrínginn bar á
góma nefndu þau Lars Lönnrot,
prófessor í íslenzkum bókmenntum
í Gautaborg. Hann skrifaði á sínum
tíma um íslenzka Hringinn í
Svenska Dagbladet. Ég sagðist þá
hafa kynnzt Lars í Reykjavík 1994
og okkur hefði komið saman eins
og húsi í ljósum logum. Þetta er
enskt orðtak - „to get on like a
house on fire“ - sem þau hjónin
reyndust ekki hafa heyrt áður.
Þeim þótti það gott. Síðan rök-
ræddum við af kappi í næstum tvo
tíma, ýmist um málfræði, heim-
speki, líffræði eða óperur Wagners.
Þá keyrði Georg mig heim. Það var
hríð í Stokkhólmi og færðin slæm.
Þegar ég var kominn út úr bílnum
heima hjá mér spurði hann mig í
kveðjuskyni: „Vorum við ekki eins
og hús í ljósum logum?“
Enska orðtakið er að ég veit bezt
aðeins haft um gott samkomulag
tveggja eða fleiri manna. En ég er
ekki viss um að Eva og Georg Klein
þurfi endilega annarra við til að
vera eins og hús í ljósum logum.
Svo virðast logarnir vera óslökkv-
andi.
Höfundur er prófessor.
Einvígið á akbrautinni
SKELFILEG þró-
un í umferðinni á Is-
landi á sér langan að-
draganda í samdrætti
á umferðarlöggæslu,
bæði hér á höfuðborg-
arsvæðinu og úti á
landi, samfara mikilli
aukningu ökutækja,
hraðskreiðari og bet-
ur búnum bílum með
ákveðnum og tillits-
lausum ökumönnum í
alltof mörgum tilfell-
um. Fólk hefur þver-
brotið reglur, ekki
virt reglur um fram-
úrakstur, hætt að gefa
stefnumerki, engan
gaum gefið yfirborðsmerkingum
og sumt af þessu kostar ekki neitt.
- Rangar áherslur á undanförnum
árum endurspegla ástandið, sem
lýsir sér í miklum fjölda árekstra,
umferðarslysa og banaslysa í um-
ferðinni. Umferðaröryggisáætlun-
in, sem fv. dómsmálaráðherra
hleypti af stað til ársins 2001 hefur
reynst haldlítil og jafnvel skapað
meira öngþveiti í umferðarmálum
en lausnir. En hvers vegna?
Samfara auknum bifreiðafjölda
og vegagjöldum, tiltölulega lítið
bættu vegakerfi sem þingið ber
ábyrgð á, meiri hraða og aukinni
spennu var dregið úr umferðar-
löggæslu, sérstaklega hér á höfuð-
borgarsvæðinu og með því að
leggja niður þjóðvegalögregluna,
sem var gerð út frá umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík og þjón-
aði miklu hlutverki í að viðhalda
öryggi á þjóðvegunum. Með þessu
átti að spara peninga fyrir þjóðfé-
lagið, en sá sparnaður hefur dregið
dilk á eftir sér. Ef til vill hafa verið
þarna á ferð misvitrir ráðgjafar,
sem reynast afar dýrir á fóðrum
þegar til lengdar lætur.
Umferðarráð
Umferðarráð hlaut nýjan for-
mann nokkru fyrir aldamót, hann
leiðir starfsemina sem hefur aukist
að vöxtum og peningaveltu. Um-
ferðarráð hefur umsjón með öku-
kennslu, rekur ökunámsdeild, út-
varpsstöð og er ráðgefandi um
umferðarmál. Létt spjall í útvarp
kemur ekki í stað virkra lögreglu-
aðgerða og ráðið er í fríi um helg-
Gylfí
Guðjónsson
ar. - Laugardaginn
12. febr. sl. urðu mörg
óhöpp á Vesturlands-
vegi norðan við Mos-
fellsbæ, eftir hríðar-
veður. Vegurinn var
lokaður í Kollafirði og
Ríkisútvarpið greindi
frá því. Enginn ábyrg-
ur aðili virtist fylgjast
með þessu, en lög-
regla frá Reykjavík
kom á staðinn og lok-
aði veginum eftir að
ég hafði komið ábend-
ingum til Ríkisút-
varpsins um ástandið.
- Helgina eftir fóru
fram mestu mann-
flutningar á íslandi síðan í Eyja-
gosi 1973, en nú gaus Hekla. For-
stjóri Almannavarna ríkisins kom
fram í sjónvarpi og kvaðst vona að
fólkið yrði jafngott og Hekla. Ekk-
ert heyrðist frá Umferðarráði,
þegar fólk sat þúsundum saman
fast á Suðurlandsvegi um Þrengsli,
þrátt fyrir viðvaranir Veðurstofu.
Þetta er tómarúm á örlagastund-
um.
Lækkaður hefur verið æfinga-
akstur í 16 ára aldur, en í þess stað
hefði mátt hækka ökuprófsaldur í
18 ár í áföngum, til samræmis við
Evrópu. Ekki er að sjá að æfinga-
aksturinn skili sér, en hann hefur
staðið í fjögur ár og engar niður-
stöður birtar. Innra eftirlit Um-
ferðarráðs er ekki sem skyldi, við
bókleg próf eru lögð fram notuð
prófgögn sem rugla nemendur og
margar spurningar orka tvímælis.
Nú hefur dómsmálaráðherra stað-
fest nýja námskrá fyrir almenn
ökuréttindi, sem Umferðarráð hef-
ur tekið saman og er það fram-
faraspor, en þar fennir fljótt í förin
ef ekki koma víðtækari ráðstafanir.
Embætti
ríkislögreglustjóra
í huga margra var embætti rík-
islögreglustjóra stofnað til þess að
samræma og stefnumóta lög-
regluna í landinu, vera stuðnings-
aðili og bakhjarl lögregluliða um
landið. Nú þegar ber á þenslu í
fjármálum og mannafla og að em-
bættið dragi til sín reynda lög-
reglumenn frá öðrum lögregluem-
bættum og jafnvel keppi um
Umferðin
Fólk þarf einhvern sem
vill og hefur styrk, segir
Gylfí Guðjónsson, til að
halda verndarhendi yfír
því í umferðinni.
verkefnin, en þetta hefur ekki góð
áhrif. Embættið hefur á sinni
hendi allar lögreglubifreiðar lands-
ins og leigir þær út á þvflíkri leigu
að önnur embætti eru í vandræð-
um að fjármagna eftirlit sitt. Því
má segja að samkeppni sé komin
um fjármagn á lögreglumarkaðn-
um og þar vinnur sá sterki.
Ríkislögreglustjóri hefur gefið
út fyrirskipanir að allir lögreglu-
menn klæðist einkennisbúningum,
jafnvel menn sem starfa að skrif-
stofustörfum hjá embættinu sjálfu.
Rannsóknarlögreglumenn í
Reykjavík hljóta sömu örlög og er
það óskiljanlegt, þeir vinna við-
kvæm störf sem þola ekki auglýs-
ingu og hún á ekki við. Hins vegar
hefur embættið sent lögreglumenn
út um land með óeinkennda bfla,
tekið myndir af hraðabrotum og
sent gögnin inn á héraðslögreglu-
stöð til vinnslu, í stað þess að
vinna málið sjálfir. Þeir sem fá síð-
an sektirnar sendar heim, hafa
aldrei séð lögreglu á ferð sinni og
eru undrandi yfir málsmeðferðinni.
Það er furðuleg afstaða að nauð-
synlegra sé að sýna skrifstofu-
menn einkennisklædda hvern fyrir
öðrum en lögreglumenn meðal al-
mennings á þjóðvegunum. Nýlega
var sýndur í sjónvarpi þátturinn
Nýjasta tækni og vísindi. Þar var
greint frá rannsóknum á gervilög-
reglumönnum og sýndur vegalög-
reglumaður í einkenndri bifreið
sem var án tækja innanborðs. Bif-
reiðin stóð á varðsvæði sínu og
sýndu rannsóknir að slysum fækk-
aði um 50%.
Niðurstöður
Byggja þarf upp með sérhæfðum
lögreglumönnum umferðardeildina
í Reykjavík, en meðan tennurnar
voru dregnar úr henni voru nýjar
smíðaðar upp í Umferðarráð og
íleiri, á sama tíma hafa orðið
stjórnlausir árekstrar og slys.
Nýja útrásarstöð fyrir lögregluna
þarf að byggja uppi við Arbæjar-
hverfí, þar sem auðveld útgöngu-
leið er til allra átta fyrir umferðar-
lögreglu og almenna lögreglu.
Koma þarf upp fjarskiptakerfi við
bifreiðar landsins þannig að rjúfa
megi útsendingu og senda inn að-
vörun. Vegalögreglan færi út frá
umferðardeildinni í Reykjavík um
sunnanvert landið og frá lögreglu-
embættum um norðanvert landið,
en þar er komin góð reynsla af *
samstarfi embætta frá Hólmavík
að Húsavík um vegaeftirlit. Lög-
regluembættin um landið eru of fá-
menn og verða að fá meira svig-
rúm. Nokkur hundruð milljóna til
löggæslu í umferðinni skila sér til
baka. Ef eitthvað nálægt þessu
gengur eftir mun umferðarslysum
fækka verulega á næstu árum og
borgarar landsins halda fastar ut-
an um umferðarreglur.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra, tekur við slæmu búi.
Hún er eini þingmaðurinn sem hef-
ur lýst yfir áhyggjum að undan-
förnu vegna alvarlegrar stöðu og
boðar til ráðstefnu varðandi um-
ferðarmál og er það fagnaðarefni. a
Fólk þarf einhvern sem vill og hef-
ur styrk til að halda verndarhendi
yfir því í umferðinni.
Höfundur er ökukennari og fyrrver-
andi lögreglumaður.
uppbygging og rekstur á raf-
magnsknúinni járnbraut á leiðinni
Reykjavík - Reykjanesbær myndi
skila ágætum arði. Samkvæmt út-
tekt iðnrekstrarfræðingsins Stein-
gríms Ólafssonar er járnbraut því
raunverulegur valkostur í sam-
göngumálum, þvert á það sem áður
hefur verið haldið fram. Reynist
þetta rétt markar það þáttaskil í
þróun þeirrar umræðu sem nú fer
Járnbraut
Með tilkomu járn-
brautarinnar, segir
Hrannar Björn Arnars-
son, breytast mikilvæg-
ar forsendur í umræð-
unni um flutning
Reykj avíkurflugvallar
úr Vatnsmýrinni.
fram um framtíðarskipan sam-
göngumála á suðvesturhorninu.
Kostir járnbrautar
Rekstur á þessari rafmagns-
knúnu járnbraut hefur ýmsa góða
kosti umfram það að vera hag-
kvæmur. Þar má fyrst telja að með
tilkomu hennar yrði stórt skref
stigið í þá átt að draga úr notkun
innflutts mengandi eldsneytis og
nýta í staðinn innlenda umhverfis-
væna orkugjafa. Þá myndi tilkoma
járnbrautarinnar draga stórlega úr
því mikla álagi sem fyrirsjáanlegt
er á umferðarmannvirki svæðisins
og þannig færa mikinn ávinning í
formi færri slysa, minna eigna-
tjóns, sparnaði í uppbyggingu og
viðhaldi umferðarmannvirkja og
greiðari umferð. Síðast en ekki síst
breytast með tilkomu járnbrautar-
innar mikilvægar forsendur í um-
ræðunni um mögulegan flutning
Reykjavíkurflugvallar úr Vatns-
mýrinni.
Hingað til hafa helstu rök þeirra
sem andmælt hafa flutningi vallar-
ins verið þau að bygging nýs flug-
vallar væri of dýr og að flutningur
innanlandsflugsins til Keflavíkur
væri ekki mögulegur vegna fjar-
lægðar frá höfuðborgarsvæðinu.
Samhvæmt skýrslunni tæki það
járnbrautina innan við 30 mínútur
að ferðast frá Reykjavík til Kefla-
víkur og þyrfti fargjaldið ekki að
verða hærra en 650 krónur. Slíkt
ferðalag efast ég um að stoppi
nokkurn mann og því þyrftu for-
sendur fyrir rekstri innanlands-
flugs lítið að breytast við flutning
þess til Keflavíkur ef járnbrautin
yrði að veruleika.
Flugvöllurinn burt úr Vatns-
mýrinni?
Með járnbrautinni vakna því
nýjar vonir. Annarsvegar um að
framundan sé nýr og umhverfis-
vænn valkostur í samgöngumálum
og hinsvegar um að almenn sátt
geti orðið um brotthvarf flugvallar-
ins úr Vatnsmýrinni, þannig að
hægt verði að nýta það dýrmæta
landsvæði undir blómlega byggð í
hjarta borgarinnar. Möguleikar
járnbrautarinnar verða því skoðað-
ir af fyllstu alvöru í þeirri upp-
byggingu almenningssamgangna
sem framundan er á vegum
Reykjavíkurborgar. í þeirri vinnu
verður ríkisvaldið að leggja sitt af
mörkum, ekki síst í ljósi þess
takmarkaða fjármagns sem það
ætlar sér að óbreyttu að leggja
fram til uppbyggingar á umferðar-
mannvirkjum höfuðborgarsvæðis-
Höfundur er borgarfulltrúi.
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
www.sjonarholl.is ótrnctetlboð
Silkibolirnir fást í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60, sími 551 2854.
Boðað er til hluthafafundar í
Búnaðarbanka íslands hf.
mánudaginn 27. mars kl. 16:00.
Fundurinn verður haldinn í matsal
bankans, Hafnarstræti 5, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Tillaga um heimild til bankaráðs
til kaupa á eigin hlutum í
bankanum, sbr. 55. gr.
hlutafélagalaga.
2. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á
fram á fundinum skulu
hafa borist í hendur stjórnar með
skriflegum hætti,
eigi síðar en sjö dögum fyrir
hluthafafund.
® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF