Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 58
58 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
<
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Þúsund ára afmælis kristnitöku á íslandi verður minnst í Útskálakirkju á morgun, sunnudag, kl. 13.30. Hátíðin
er tileinkuð séra Sigurði B. Sívertsen sem m.a. stofnaði einn þriggja elstu barnaskóla á landinu í Garðinum.
Safnadarstarf
Sívertsenhátíð
í Garðinum
á sunnudag
ÚTSKÁLASÓKN minnist 1000 ára
afmælis kristnitöku á íslandi, með
því að halda sérstaka hátíð nk.
sunnudag, 19. marz . Hátíðin er sam-
starfsverkefni Útskálasóknar og
Gerðahrepps og hefst með hátíðar-
guðsþjónustu í Útskálakirkju kl.
13.30. Að lokinni messu eða um kl.
14.30 verður kaffisamsæti í sam-
komuhúsinu.
Hátíðin er tileinkuð séra Sigurði
Br. Sívertsen, en hann þjónaði Út-
skálakirkju frá 1837 til 1887. Árið
1871 stóð sr. Sigurður fyrir byggingu
Útskálakirkju, því húsi sem enn
stendur og gaf margt góðra muna til
kirkjunnar, auk þess sem hann gaf
mikið fé til byggingarinnar. Hann
stofnaði bamaskólann í Garði, sem er
einn þriggja elstu barnaskóla á land-
inu, sem starfað hafa frá stofnun, en
skólinn er 128 ára á þessu ári. Sr. Sig-
urður lét margt fleira gott af sér
leiða, því m.a. styrkti hann fátæk
böm og unglinga til náms og lagði
stund á lækningar meðal sóknar-
bama sinna.
Eftir sr. Sigurð liggur mikið af
skrifuðum heimildum, m.a. Suður-
nesjannáll, sem fjallar um ýmsa við-
burði s.s. árferði, aflabrögð, mann-
tjón o.m.fl. Einn sérstakur atburður í
lífi sr. Sigurðar lifir enn í hugum
fólks, enda enn til n.k. minnisvarði
um þann atburð. Þannig var að Sr.
Sigurður var á leið heim til sín frá
Keflavík, að kvöldi dags 22. janúar
1876, en þar hafði hann skírt barn,
skall þá á ofsaveður og varð prestur-
inn viðskiia við fylgdarmann sinn og
lét fyrirberast yfir nóttina í heiðinni
fyrir ofan Leiru. Um morguninn er
hann fannst, var hann með rænu og
nokkru fjöri. Þakkaði hann Guði líf-
gjöfina og sagði að sér hefði fundist
eins og tjaldað væri yfir sig. Stuttu
síðar lét hann hlaða vörðu á þeim stað
sem hann fannst og höggva 9. vers úr
4. Davíðssálmi í stóra steinhellu, sem
sett var í vörðuna. Fyrir rúmum 20
ámm fundu þeir Ragnar Snær Karls-
son og Hjörtur Magni Jóhannsson
(síðar Útskálaprestur) vörðuna. Hell-
an lá þá eins og á grúfu þar hjá og
veltu þeir henni við og var letrið þá
iillæsilegt vegna mosa. Ragnar fór
aftur á staðinn um veturinn og setti
snjó í letrið og gat þá lesið versið.
Eiga þeir félagar þakkir skildar fyrir
framtakið, því nú geta þeir sem
áhuga hafa, gengið að vörðunni og
orðið vitni að því mikla trúartrausti
sem felst í þessu verki sr. Sigurðar
Br. Sívertsen.
Það er ósk þeirra, sem að hátíðinni
standa, að sem flestir sjái sér fært að
vera viðstaddir þennan viðburð og
minnast um leið 1000 ára afmælis
kristnitöku á Islandi.
Kristni- og
endurvígsluhátíð
á Reyðarfirði
Hixm 19. mars nk. verður haldin
kristnihátið á Reyðarfirði. Hefst há-
tíðin með hátíðarmessu í Reyðar-
fjarðarkirkju kl. 14. Um leið verður
kirkjan endurvígð eftir umfangsmikl-
ar gagngerar endurbætur að innan
og stækkun ásamt tengingu við safn-
aðarheimili. Þegar safnaðarheimilið
var byggt við kirkjuna og vígt 1994
var jafnframt steyptur kór, sem síðar
átti að opna þegar tímar liðu og efni
rýmkuðust. A síðasta hausti var í það
verk ráðist og fenginn til þess Jón
Kristinn Beck trésmíðameistari á
Reyðarfirði ásamt flokki vaskra
manna. Margt hefur á þessum tíma
verið unnið bæði innandyra og utan
ásamt viðbyggingu við safnaðarheim-
ili, en sjón er sögu ríkari. Við upphaf
hátíðarmessu verður gengið í prós-
essíu í kirkju með kirkjugripi og mun
vígslubiskupinn í Skálholtsstifti,
herra Sigurður Sigurðarsson, endur-
vígja kirkjuna. Sóknarprestur mun
prédika og þjóna fyrir altari ásamt
biskupi. Kór kirkjunnar syngur undir
stjóm organistans Gillian Haworth
og munu hljóðfæraleikarar, nemend-
ur og kennarar annast m.a. undirleik
og syngja einsöng. Að athöfn í kirkju
lokinni verður kaffisamsæti í safnað-
arheimilinu. Kaffiveitingar í boði
sóknamefndar og Kvenfélags Reyð-
arfjarðar. Að auki verður boðið upp á
tilheyrandi dagskrá, tónlist, söng og
talað mál. Til að minnast kristnitöku
verða m.a. settar upp sýningar í safn-
aðarheimilinu og gefur þar að líta
sýnishom af handverki nemenda
gmnnskóla Reyðarfjarðar, gert í
þemaviku um kristnitöku sl. haust.
Þá er þar farandsýning, Kirkjur á
Austurlandi, sett saman af Pétri Sör-
enssyni, ljósmyndara, að tilstuðlan
Kristnitökuhátíðamefndar á Austur-
landi. Síðast en ekki síst er mynda-
sýning, ágrip af sögu Hólmasóknar,
tilurð fríkirkju og stofnun Eskifjarð-
ar- og Reyðarfjarðarsókna, myndir
af prestum sem þjónað hafa frá miðri
19. öld. Síðast talda sýningin er fram-
lag menningamefndar Fjarðabyggð-
ar til kristnihátíðar í prestakallinu og
unnin í samstarfi við Hilmar Bjama-
son, safnvörð á Eskifirði, Minjasafn
Austurlands og Pétur Sörensson,
ljósmyndara. Verður fólki gefinn
kostur á því að njóta hennar a.m.k.
fram eftir ári.
Sóknarprestur,
Davíð Baldursson.
Undirbúnings-
samkoma
sunnudagaskóla
Hafnarfjarðar
á Þingvöllum
í vetur hafa verið starfræktir
sunnudagaskólar á vegum Hafnar-
fjarðarkirkju í kirkjunni sjálfri og í
Hvaleyrarskóla. Ráðgert er að fara
með öll sunnudagaskólabömin og
foreldra þeirra til Þingvalla sunnu-
daginn 26. mars þar sem haldin verð-
ur kristnitökuhátíð fyrir þau.
Á morgun, sunnudaginn 19. mars,
verður undirbúningssamkoma fyrir
Þingvallaferðina í Hásölum Hafnar-
fjarðarkirkju. Hefst samkoman kl.ll.
Allir sem tekið hafa þátt í sunnudaga-
skólum vetrarins á vegum Hafnar-
fjarðarkirkju era velkomnir, bæði
böm og fiillorðnir. Allir leiðtogar
taka þátt, en prestur er sr. Þórhallur
Heimisson sem einnig verður leið-
sögumaður til Þingvalla þann 26.
mars.
Námskeið um
lofgj prðartónlist
í Islensku
Kristskirkjunni
Haldið verður námskeið um lof-
gjörðartónlist í kristilegu starfi dag-
ana 20.-23. mars. Það era meðlimir
World Wide Worship Band sem hing-
að koma frá Little Rock í Arkansas
undir stjóm Mark og Carrie Tedder.
Þau hafa 12 ára reynslu af því að
starfa í Evrópu og halda slík nám-
skeið. Námskeiðið er haldið í sam-
starfi nokkurra kirkna, sem vilja efla
og styrkja slík námskeið.
Námskeiðið er í samstarfi nokk-
urra kirkna, sem vilja efla og styrkja
lofgjörð í söfnuðum sínum, og er öll-
um opið sem áhuga hafa. Kennt verð-
ur um: almenna lofgjörð, persónu-
lega lofgjörð, blandaða lofgjörð,
hefðbundna tónlist og tónlist dagsins
í dag, notkun ásláttarhljóðfæra, það
að vinna með söngfólki, leiða lofgjörð
o.fl. Námskeiðið er haldið í Islensku
Ki’istskirkjunni mánudag, miðviku-
dag og fimmtudag, en í Fríkirkjunni
Veginum á þriðjudag og hefst kl.
19.30 öll kvöldin. Námskeiðsgjald er
500 kr. fyrir hvert einstakt kvöld, en
1500 fyrir öll kvöldin fjögur.
Kvöldmessa í
Grensáskirkju
Á morgun, sunnudagskvöldið 19.
mars, verður kvöldmessa í Grensás-
kfrkju og hefst hún kl. 20. Lagt er
upp úr því að móta andrúmsloft
kyrrðar og hlýju. Messuform er allt
mjög einfalt og sungnir léttir sálmar
við píanóundirieik. Orð Guðs er boð-
að og við komum í bæn fram fyrir
Drottin okkar.
I þessari kvöldmessu verður einnig
altarisganga. Að messu lokinni gefst
tækifæri til að fá sér kaffisopa eða
safa. í lok helgar er tilvalið að eiga
slíka stund áður en erill hversdagsins
tekur aftur við daginn eftir. Komum
því í hús Drottins til samfélags við
hann og hvert annað.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Heimsókn fólks
af sambýlum
í Hafnarfirði
Sunnudaginn 19. mars nk. kl.
15.00-17.00 mun heimilisfólk á sam-
býlum í Hafnarfirði eiga samvera-
stund í Strandbergi, safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju. María Eiríks-
dóttir kennari sér um hana ásamt sr.
Gunnþóri Ingasyni, sóknarpresti.
Settur verður upp helgileikur í leik-
rænni tjáningu. Sagt verður frá
Tojohiko Kagawa, einum mesta vel-
gjörðarmanni Japana. Boðið verður
upp á hressingu, djús, kaffi, kökur og
sælgæti, og tekið þátt í Taizemessu
kl.17.00, sem er stutt helgistund er
einkennist af látlausum og einföldum
Bænasöngvum.
Hátíðamessa,
sýning, aftan-
söngur og erindi í
Langholtskirkju
Sunnudaginn 19. mars verður há-
tíðamessa kl. 11 í Langholtskirkju.
Er hún liður í hátíðahöldum vegna
1000 ára kristnitökuafmælis á ís-
landi. Sungin verður hátíðamessa
skv. Grallara Guðbrands biskups
Þorlákssonar frá 1594,og verður hún
að hluta til sungin á latínu. Kór Lang-
holtskirkju syngur undir stjóm Jóns
Stefánssonar. Ekkert orgel var notað
á þessum tíma og svo verður ekki á
sunnudaginn. Ólafur Skúlason bisk-
up predikar. Sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti og djákna. Lesið verður
upp úr biblíunni sem Guðbrandur
biskup gaf út 1584 og sungið úr
sálmabók Guðbrands frá 1589. Aft-
ansöngur verður á laugardag kl. 18.
Á sunnudagsmorgun og fram yfir
hádegi verður sýning í Langholts-
kirkju á myndum af handritum úr
stofnun Árna Magnússonar sem og á
bókum frá því um 1600. Miðvikudag-
inn 22. mars kl. 18 heldur dr. Einar G.
Jónsson, vísindamaður hjá Árna-
stofnun, erindi í Langholtskirkju og
fjallar þar um Guðbrand biskup.
Langholtskirkja er helguð minningu
Guðbrands biskups, en árið 1984,
þegar Langholtskirkja var vígð, voru
liðin 400 ár frá því Guðbrandsbiblía
var gefin út.
Kristni- og
endurvígsluhátíð
á Reyðarfírði
Á morgun 19. mars verður haldin
kristnihátíð á Reyðarfirði. Hefst há-
tíðin með hátíðarmessu í Reyðar-
fjarðarkirkju kl. 14. Um leið verður
kirkjan endurvígð eftir umfangsmikl-
ar gagngerar endurbætur að innan
og stækkun ásamt tengingu við safn-
aðarheimili. Þegar safnaðarheimilið
var byggt við kirkjuna og vígt 1994
var jafnframt steyptur kór, sem síðar
átti að opna þegar tímar liðu og efni
rýmkuðust. Á síðasta hausti var í það
verk ráðist og fengin til þess Jón
Kristinn Beck trésmiðameistari á
Reyðarfirði ásamt flokki vaskra
manna. Margt hefur á þessum tíma
verið unnið bæði innandyra og utan
ásamt viðbyggingu við safnaðarheim-
ili, en sjón er sögu ríkari. Við upphaf
hátíðarmessu verður gengið í prós-
essíu í kirkju með kirkjugripi og mun
vígslubiskupinn í Skálholti, herra
Sigurður Sigurðarson, endurvígja
kirkjuna. Sóknarprestur mun
prédika og þjóna fyrir altari ásamt
biskupi. Kór kirkjunnar syngur undir
stjóm organistans Gillian Haworth
og munu hljóðfæraleikarar, nemend-
ur og kennarar annast m.a. undirleik
og syngja einsöng.
Að athöfn í kirkju lokinni verður
kaffisamsæti í safnaðarheimilinu.
Kaffiveitingar í boði sóknamefndar
og Kvenfélags Reyðarfjarðar. Að
auki verður boðið upp á tilheyrandi
dagskrá, tónlist, söng og talað mál.
Til að minnast kristnitöku verða m.a.
settar upp sýningar í safnaðarheimil-
inu. Kaffiveitingar í boði sóknar-
nefndar og Kvenfélags Reyðarfjarð-
ar. Að auki verður boðið upp á
tilheyrandi dagskrá, tónlist, söng og
talað mál.
Til að minnast kristnitöku verða
m.a. settar upp sýningar í safnaðar-
heimilinu og gefúr þar að líta sýnis-
hom af handverki nemenda grann-
skóla Reyðarfjarðar, gert í þemaviku
um kristnitöku sl. haust. Þá er þar
farandsýning, kirlqur á Austurlandi,
sett saman af Pétri Sörenssyni, ljós-
myndara, að tilstuðlan Kristnitöku-
hátíðamefridar á Austurlandi. Síðast
en ekki síst er myndasýning, ágrip af
sögu Hólmasóknar, tilurð fríkirkju
og stofnun Eskiijarðar- og Reyðar-
fjarðarsókna, myndir af prestum sem
þjónað hafa frá miðri 19. öld. Síðast
talda sýningin er framlag menning-
amefndar Fjarðabyggðar til kristni-
hátíðar í prestakallinu og unnin í
samstarfi við Hilmar Bjamason,
safnvörð á Eskifirði, Minjasafn Aust-
urlands og Pétur Sörensson, ljós-
myndara. Verður fólki gefinn kostur
á því að njóta hennar a.m.k. fram eft-
fr ári.
Sóknarprestur,
Davíð Baldursson.
Kirkjudagur
safnaðarfélags
Asprestakalls
Áriegur Kii-kjudagur safnaðarfé-
lags Ásprestakalls er á morgun, 19.
mars. Um morguninn verður barna-
guðþjónusta í Áskfrkju kl. 11 og síðan
guðþjónusta kl. 14. Garðar Thor
Cortes syngur einsöng, sóknarprest-
ur predikar og kirkjukór Áskirkju
syngur undir stjórn Kristjáns Sig-
tiyggssonar organista.
Eftir guðþjónustuna og fram eftir
degi verður kaffisala í safnaðarheim-
ili Áskirkju. Allur ágóði af kaffisölu
kirkjudagsins rennur til fram-
kvæmda við kirkjuhúsið og til öflunar
kirkjumuna en kirkjudagurinn hefur
lengi verið einn helsti fjáröflunardag-
ur safnaðarfélags Ásprestakalls.
Eins og jafnan á kirkjudaginn
verða glæsilegar veitingar á boðstól-
um og vona ég að sem flest skólaböm
og velunnarar Áskirkju leggi leið sína
til hennar á sunnudaginn og styðji
starf safnaðarfélagsins. Bifreið mun
flytja íbúa dvalarheimila og annarra
stærstu bygginga sóknarinnar að og
frá kirkju.
Ami Bergur Sigurbjörnsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barna-
og unglingakórinn ásamt hljómsveit
flytur söngleikinn Líf og friður í
kirkjunni laugardag og sunnudag kl.
17. Stjómendur: Sigríður Ása Sig-
urðardóttir og Öm Amarson. Bama-
samkoma sunnudag kl. 11.
Umsjón: Sigríður Kristín, Öm og
Edda. Einar Eyjólfsson.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
kl. 12.30. Sýnd verður danska gaman-
myndin „Mor kommer hjem“ með ís-
lenskum texta. Fram verður borin
tvíréttuð máltíð. Þátttaka tilkynnist í
síma 511-1560 kl. 10-12 og 16-18 til
föstudags. Allir velkomnir
Fríkirkjan Vegurinn. Fjölskyldu-
hátíð kl. 11, fögnuður og gleði í húsi
drottins. Léttar veitingar eftir sam-
komuna. Samkoma kl. 20. Gleði,
lausn og frelsi. Michael A Cotten
predikar. Allfr hjartanlega velkomn-
ir.
Boðunarkirkjan. Hlíðarsmára 9,
Samkoma kl. 11. I dag er Steinþór
Þórðarson með predikun og einnig
með biblíufræðslu. Samkomunum er
útvarpað beint á Hljóðnemanum FM
107. Á laugardögum starfa bama- og
unglingadeildir. Súpa og brauð eftfr
samkomuna. Allir velkomnir. Á
morgun, sunnudag, kl. 17 er 9. hluti
10 vikna námskeiðis í Damelsbók.
leiðbeinandi dr. Steinþór Þórðarson.
Námskeiðið kostar ekkert. Daníels-
bók er útvarpað beint á Hljóðneman-
um Fm 107.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skólikl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Stjóm-
andi Elín Jóhannsdóttir.
Útskálakirkja. Sameiginlegur
kirkjuskóli sóknanna í Garði. Farið
verður í rútu frá safnaðarheimilinu
Sandgerði kl. 13 að samkomuhúsinu í
Garði þar sem nemendur Gerðaskóla
sýna airakstur þemadagana.
Kálfatjarnarsókn. Munið kirkju-
skólann laugardag 18. mars kl. 11:00,
í Stóra-Vogaskóla.
Foreldrar velkomnir með bömum
sínum.
Prestarnir
KEFAS, Dalvegi 24. Samkoma í
dag kl 14. Ræðumaður Björg R Páls-
dóttir. Þri.: 21 mars bænastund kl
20:30. Mið.: 22 mars, samverustund
unga fólksins kl 20:30. Föst.: 24 mars
bænastund unga fólksins kl 19:30.
Hjálpræðisherinn: Kl. 13. Laugar-
dagsskóli fyrir krakka.
Hvitasunnukirkjan Fíladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11, ræðumaður
Hreinn Bemharðsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30, umsjón „Menn með
markmið" sem er karlastarf
kirkjunnar. Ungbama- og barna-
kirkja fyrir eins til 12 ára böm meðan
á samkomu stendur. Allir hjartan-
legavelkomnir.