Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
I MAPE amistake,chuck..
I APMIT IT...LUCV IS THE
UJORST PLAVER. I'VE EVER 5EEN!
YOU 60TTATAKE HER 5ACK..
Mér urðu á mistök, Kalli, ég viður-
kenni það. Lísa er versti leikmaður
sem til er, þú verður að taka
hana aftur.
I KNOUi YOU TRAPEP HER TO
MEFORMARCIEANPAPIZZA,
8UT NOWIUUANNACALLTHE
PEAL OFF..UAPPYA 5AV, CHUCK?
Ég veit að þú lést mig fá hana fyrir
Möggu og pitsu að auki. En nú vil ég
draga kaupin til baka.
Hvað segirðu um það, Kalli.
En ég er búinn
að borða pitsuna.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Krakkar eru óútreiknanlegir. Ökum því hægt um íbúðahverfin. Þau
gætu birst skyndilega við framhornið á næsta bíl.
Orðsending til gang-
andi vegfarenda
Frá ungum ökumönnum í Skilaboð frá okkur bílstjóruin
ökuskóla Sjóvár-Almennra: til gangandi vegfarenda
VIÐ erum tveir hópar sem sóttu um-
ferðarskóla Sjóvár-Almennra fyrir
unga ökumenn í janúar. Við veltum
fyrir okkur mikilvægum þætti er
snertir öryggi okkar og annarra í
umferðinni. Hvemig öryggi gang-
andi vegfarenda sé best tryggt í um-
ferðinni.
Hvað þurfum við bflstjórar
að varast?
Við þurfum að sýna tillitssemi
gagnvart þeim gangandi. Ekki aka
hratt fram hjá þeim því þeim bregð-
ur e.tv. og í bleytu þurfum við að
muna að skvetta ekki á þá sem eru
gangandi. Við þurfum að sýna sér-
staka athygli við gangbrautir og
aldrei aka framúr kyrrstæðum bíl
við þær aðstæður. Við vitum aldrei
hvar og hvenær þeir gangandi birt-
ast framan við bílinn. Við þurfum að
muna að gangandi vegfarandi á for-
gang þegar við beygjum á gatnamót-
um, m.a. á beygjuljósum. Við öku-
menn skulum nota stefnuljós svo
þeir gangandi viti betur hvert við
ætlum. Við skulum sýna börnum,
fötluðum og öldruðum tillitssemi
hvar sem er í umferðinni. Hugum að
umferðarhraðanum. Sé ekið á gang-
andi vegfaranda á 30 km hraða eru
5% hætta á banaslysi. Við 50 km
hraða er sú hætta 45% en hún eykst í
85% á 70 km hraða.
Við hvetjum ykkur til að halda
ykkur á gangstígum eins og hægt er
og notið skilyrðislaust endurskins-
merki svo við sjáum ykkur betur í
myrkri.
Varhugavert er að fara yfir götur
þar sem umferð er hröð nema þar
sem gangbrautir eru. Verið samt á
varðbergi því bíll á 60 km hraða
nálgast ykkur um 17 metra á hverri
sekúndu meðan þið eruð að fara yfir.
Vert er að rifja upp reglurnar um
að horfa í báðar áttir áður en farið er
yfir götu og nota gangbrautir þar
sem þær eru fyrir hendi. Nokkuð
hefur borið á misnotkun gangbraut-
arljósa. Að sjálfsögðu ber að bíða þar
til græni karlinn kviknar og við biðj-
um ykkur að ýta ekki á takka á gang-
brautarljósum nema þið ætlið yfir.
Það er útbreiddur misskilningur
að gangandi vegfarendur eigi alltaf
„réttinn" í umferðinni. Ef ekið er á
gangandi vegfaranda eru eigandi og
ökumaður bíls gerðir ábyrgir fyrir
fjárhagslegu tjóni en sá gangandi
getur lent í sök og fengið sektir, auk
þess sem ekki er víst að heilsan fáist
aftur. Förum því ætíð varlega.
Með kveðju frá ungum ökumönn-
um í ökuskóla Sjóvár-Almennra í
Reykjavík í janúar.
EINAR GUÐMUNDSSON,
forvarnafulltrúi Sjóvár-Almennra.
• •
Oryrkjar - Hvernig' væri
að fara leið aldraðra?
Frá Valgerði Einarsdóttur:
ELDRI borgarar eiga með sér sam-
tök, Landssamband eldri borgara
(LEB). Þau berjast fyrir afar svipuð-
um málum og Öryrkjabandalagið,
þ.e. hækkunum á bótum almanna-
trygginga o.s.frv. LEB hafa ekki
hlíft stjórnvöldum og gagnrýnt þau
hart þar sem samtökin eru ósátt við
þau. Gagnrýnin hefur hins vegar
verið með allt öðru sniði en gagnrýni
Öryrkjabandalagsins, þ.e. ekki
beinst persónulega að tilteknum ein-
staklingum, og verið uppbyggilegri.
Það er líka augljóslega hlustað mun
meira á LEB en Öryrkjabandalagið.
T.d. kom upp úr viðræðum LEB við
stjómvöld talsverð hækkun til al-
mannatrygginga í byrjun síðasta árs
utan hefðbundinna hækkana. LEB
hefur reglulega samráðsfundi með
ráðherrum í ríkisstjórn og virðist ná
sínum málum þokkalega fram. Sýnir
það ekki að baráttuaðferð Öryrkja-
bandalagsins, hin harða og persónu-
lega gagnrýni sem persónugerð er í
formanninum, hefur algjörlega
brugðist í samanburði við hina hörðu
en uppbyggilegu baráttuaðferð
LEB?
Á heimasíðu MS félags íslands
stendur: „Ef Öryrkjabandalagið átt-
ar sig ekki á þessu og tekur á málinu
hjá sér er hætta á að hið ágæta hug-
sjónabandalag snúist upp í and-
hverfu sína og breytist í skrímsli sem
gleymir tilgangi sínum og markmið-
um.“
Hér sýnist mér að menn þurfi að
passa sig á að gera ekki söguleg mis-
tök heldur taka aldraða til fyrir-
myndar.
VALGERÐUR EINARSDÓTTIR,
Kirkjusandi 5, Reykjavík
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.