Morgunblaðið - 18.03.2000, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Islandsmeistaramót
í Svarta Pétri
T’OLFTA íslandsmeistaramótið í
Svarta Pétri fer fram á Sólheimum í
Grímsnesi í dag, laugardag. Keppni
hefst klukkan 15.00 og lýkur um
klukkan 17.30. Stjórnandi mótsins
verður Edda Björgvinsdóttir leik-
kona.
Keppt er um titilinn „Islandsmeist-
ari í Svarta Pétri“ og veittur er far-
andbikar auk fjölda verðlauna. Allir
þátttakendur fá viðurkenningarskjal.
Hlé verður gert á mótinu og mun þá
verða boðið upp á pylsur og gos og
nokkrir skemmtikraftar troða upp.
Eins og áður verða settir saman
tveir stokkar af spilum, þannig að
eins spil parast (karlkyn-karlkyn og
kvenkyn-kvenkyn), allir eiga að hafa
tækifæri á að vera með. Aðstoðarfólk
verður við hvert spilaborð. Mótið er
opið öllum! Þátttökugjald er það
sama og verið hefur eða kr. 500 á
mann.
Innifalið í verðinu er pylsur, gos og
sælgæti. Austurleið-SBS mun bjóða
upp á sætaferðir frá Umferðarmið-
stöðinni í Reykjavík kl. 12.30, verð kr.
1000 báðar leiðir, og frá Fossnesti
Selfossi kl. 13.30, verð kr. 500 báðar
leiðir.
Steinblómið og hópferð
til Síberíu í MIR
KVIKMYNDASÝNING verður að
venju í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk.
sunnudag, 19. mars kl. 15. Sýnd
verður gömul, rússnesk ævintýra-
mynd „Steinblómið" (Kamenníj
svétok). Mynd þessi var gerð í
Moskvu árið 1946, leikstjóri A. Ptút-
sko. Meðal leikenda er Tamara
Markova.
Efni kvikmyndarinnar er sótt í
gömul ævintýri og þjóðsögur frá
Ural-héruðum í Rússlandi, þar sem
er afar auðugt steinaríki og eða-
lsteinar finnast. Myndin er sýnd
ótextuð en stuttum efnisútdrætti
dreift til áhorfenda. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill á þessa
kvikmyndasýningu, sem og sýningu
af myndbandi frá hópferð MIR til
Sovétríkjanna 1985, en þá var farið
til Síberíu og ferðast með Síberíu-
hraðlestinni allt til borgarinnar
Khabarovsk austur undir Kyrra-
hafi, síðan lá leiðin til Uzbekistan,
Sotsí við Svartahaf og Moskvu.
Þessi mynd verður sýnd í sýningar-
salnum á Vatnsstígnum á sunnudag-
inn kl. 17.30.
Fjallað um heilsu og
lífsgæði í Grafarvogi
HEILSA og lífsgæði er þema
fræðsludags sem Menningarhópur
Grafarvogsráðs stendur fyrir laug-
ardaginn 18. mars kl. 12.00-15.30 í
Rimaskóla. Fræðsludagurinn er
einn liður í menningarverkefninu
Ljósbrot sem er á dagskrá hjá
Reykjavík menningarborg Evrópu
árið 2000. Þennan dag verður boðið
upp á dagskrá um heilsu og lífsgæði
og kaffihúsastemmningu.
Dagskráin skiptist í þrennt: Um-
hverfismál verða í sviðsljósinu fyrsta
klukkutímann, síðan verður boðið
upp á erindi um næringu og hreyf-
ingu og í lokin verður fjallað um lÓs-
Félagsvist í
Sandgerði
UNGLINGADEILD knattspymu-
deildar Reynis í Sandgerði ætlar að
halda félagsvist. Verður það
þriggja kvölda keppni sem hefst
sunnudagskvöldið 19. mars nk. og
síðan 26. mars og 2. apríl. Spilað
verður í sal Grunnskólans í Sand-
gerði og byrjað kl. 20. Verðlaun
verða veitt fyrir hvert kvöld og síð-
an fyrir öll kvöldin samanlagt.
Reynisfélagar og stuðningsmenn
Reynis sem og aðrir sem gaman
hafa af að spila við unglingadeild
knattspyrnudeildar Reynis eru vel-
komnir og styðja þá um leið.
------*-H-----
Safnaramarkað-
ur á sunnudag
MYNTSAFNARAFÉLAG íslands
og Félag frímerkjasafnara halda
safnaramarkað sunnudaginn 19.
mars nk. í húsakynnum félaganna.
Á boðstólum verður ýmislegt
góðra gripa svo sem: Mynt, seðlar,
frímerki, minnispeningar, barm-
merki, umslög, smáprent og margt
fleira. Þessir markaðir hafa heppn-
ast mjög vel og er aðsóknin alltaf að
aukast, segir í fréttatilkynningu.
hamingju. Einnig verður boðið upp á
skemmtun fyrir börn og yoga-
kennslu fyrir börn sem fullorðna.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
----------------
Skíðaferð
Gufunesbæjar
GUFUNESBÆR, frístundamiðstöð
ÍTR í Grafarvogi, stendur fyrir
skíðaferð íyrir unglinga í 10. bekk í
Grafarvogi helgina 17.-20. mars.
Ferðinni er heitið til Akureyrar þar
sem unglingamir munu skemmta
sér í Hlíðarfjalli á skíðum og snjó-
brettum.
Á laugardagskvöldið verður haldið
snjófestival í fjallinu þar sem hægt
verður að renna sér í takt við tónlist-
ina. Gerð hefur verið sérstök heima-
síða fyrir ferðina sem verður reglu-
lega uppfærð alla helgina. I gegnum
heimasíðuna geta foreldrar, vinir og
aðrir áhugasamir fylgst með skíða-
ferðinni, sent kveðjur og skoðað
myndir.
Nokkrir auglýsendur styrkja síð-
una en slóðin er: http://www.gufu-
nes.is.
------♦-♦-♦-----
Aðalfundur
og fyrirlestur
um Kúbu
VINÁTTUFÉLAG íslands og
Kúbu heldur aðalfund í dag, laugar-
daginn 18. mars kl. 14 á veitingahús-
inu Klaustrinu, fundarstofu á neðri
hæð. Að loknum reglubundnum að-
alfundarstörfum kl. 15 verða um-
ræður um starf félagsins næsta ár.
Ögmundur Jónsson háskólanemi
flytur frásögn af heimsókn til Kúbu
í febrúar og alþjóðlegri bókasýn-
ingu þar. Rétt til aðalfundarsetu
hafa allir sem greitt hafa árgjald
1999, en seinni hluti fundarins er
öllum opinn.
Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= e/TTHVZAÐ A/ÝT7
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Höfundur
vísunnar
fundinn
JÓN Hnefill Aðalsteins-
son hafði samband við Vel-
vakanda vegna fyrir-
spurnar um vísuna „Hver
er þessi eina á/sem aldrei
frýs“, sem birtist í Velvak-
anda fyrir skömmu. Hann
segir að vísan sé eftir Pét-
ur B. Jónsson, sem var
lengi starfsmaður Iðunnar
á Akureyri í þessu
verksmiðjuhúsi sem áin
rann úr. Gerð var grein
fyrir þessu í Velvakanda
fyrir nokkrum árum.
Þekkir einhver
vísuna?
GUÐJÓN Bjarnfreðsson
biður þá sem kannast við
eftirfarandi vísubrot að
hafa samband við sig í
síma 563-3364.
Vindur blæs og voðir fyllast
breiðar
varpar skipið ströndum ísa
frá
Lifa fyrir smæðina,
en ekki af smæðinni
í BÓK Matthíasar
Johannessen um Ólai'
Thors á bls. 420 segir: í
samþykkt landsfundar
Sjálfsstæðisflokksins 1951
segir meðal annars, „að
kristileg áhrif aukist með
þjóðinni." Þetta var ekki
síst í anda Ólafs Thors
sem hafði líka mikinn og
óbrenglaðan metnað fyrir
hönd þjóðar sinnar en var-
aði við talhlýðni og undir-
gefni annars vegar og á
hinn bóginn stífni og
hroka. Meðalhófið væri
vandratað. Ólafur sagði
líka: „Ósk okkar og krafa
á að vera sú, að fá að lifa
þrátt fyrir smæðina en
ekki af smæðinni.“ Þetta
var sá flokkur sem ég
fylgdi og kaus í 40 ár, en
því miður, sá flokkur sem
Davíð Oddsson með sínum
taglhnýtingum hefur mót-
að, á ekkert sameiginlegt
með flokki Jóns Þorláks-
sonar og Ólafs Thors,
nema nafnið og lista-
bókstafinn. (Kannski
stendur D núorðið fyrir
Davíð). Þennan flokk hef
ég ekki kosið síðustu tvö
kjörtímabil.
Ég þakka Illuga Jökuls-
syni og Agli Helgasyni
fyrir þeirra frábæru út-
varpsþætti og Ingólfi S.
Sveinssyni fyrir greina-
skrif í Morguinblaðinu 16.
mars sl. Þeir eru frábærir
og alls óhræddir að segja
meiningu sína. Ég er sam-
mála hverju orði þeirra.
Guðlaug 070131-4049.
Léleg þjónusta í
Sparisjóði Vélstjóra,
Borgartúni 18
ÞANNIG er mál með
vexti, að ég er með þjón-
ustufulltrúa í Sparisjóði
Vélstjóra, Borgartúni 18.
Þjónustufulltrúinn á að
millifæra mánaðarlega yf-
ir í annan banka. Þetta
gengur aldrei nema ég
hringi og reki á eftir
þessu. Mér finnst þetta af-
skaplega léleg þjónusta.
Birgitta Aradóttir.
Þakkir til
Hótel Arkar
VIÐ hjónin, ásamt vinum
okkar dvöldum á Hótel
Örk dagana 5.-10. mars sl.
Dvölin var okkur sérlega
ánægjuleg, frábær matur,
góð þjónusta, Árni Norð-
fjörð sá um skemmtun og
afþreyingu með miklum
sóma. Með kærri þökk
fyrir ánægjulega daga.
Stefanía og Jón.
Aðgát skal höfð
ÉG VAR að lesa grein eft-
ir Jón Steinar Gunnlaugs-
son í Morgunblaðinu 16.
mars sL, þar sem hann tal-
ar um, að talsmaður Ör-
yrkjabandalagsins Garðar
Sverrisson, hafi veist með
mjög sérkennilegum og
heiftúðlegum hætti að for-
sætisráðherranum Davíð
Oddssyni. Hann talar líka
um hagsmuna- og þrýsti-
hópa sem kalla eftir fjár-
framlögun á skattfé ríkis-
ins, á því hljóti þó að vera
mörk. Jú, mikil ósköp, en
veit Jón Steinar hversu
mjög þrengt hefur verið
að öryrkjum í stjórnartíð
núverandi ríkisstjórnar.
Þetta fólk verður að leita
aðstoðar hjálparstofnana
til að reyna að draga fram
lífið, því sá tími mánaðar-
ins lengist sífellt, sem ör-
yrki hefur ekki milli hnífs
og skeiðar. Sú ríkisstjórn
sem var á undan byrjaði
að skera niður hjá þessu
fólki, en þá voru erfiðir
tímar, en núna er góðæri,
en samt hefur verið ósköp
lítið gert til þess að bæta
kjör þessa fólks. Forsæt-
isráðherra talaði um í
kringum 20% hækkun á
bótum, en þegar nær
helmingur af því fer í
skatt kemur hitt að litlu
gagni. Öryrkjar eru með í
kringum 60 þús. á mánuði
og hvernig í ósköpunum á
að vera hægt að lifa af því?
Stöðugleikinn sem ríkis-
stjórnin talaði um fyrir
síðustu kosningar er að
engu orðinn og allt hefur
hækkað mikið. Þetta fólk
getur ekki veitt sér neitt
sem öðru fólki þykir sjálf-
sagt. Þetta fólk einangrar
sig og brotnar niður, þar
sem samfélagið sópar því
út í horn. Mörgum öryrkj-
um líður hræðilega illa
núna og mér finnst ekkert
skrýtið þótt talsmaður Ör-
yrkjabandalagsins hafi
látið þung orð falla í hita
leiksins, því eftir því sem
mér var sagt, hafi forsæt-
isráðherra kallað öryrkja
smælingja. Ég vildi óska
þess að forsætisráðherra,
ríkisstjórnin og Öryrkja-
bandalagið tækju höndum
saman og bættu kjör ör-
yrkja.
Sigrún.
Yfirgangur
lögreglunnar í
Hafnarfírði
ÞAÐ vakti furðu mína, að
fyrir stuttu síðan lét lög-
reglan fjarlægja bíl, sem
orðið hafði olíulaus á
Hafnarfjarðai'veginum.
Bílnum var lagt út í kant
og utan akbrautar. Þetta
staðfesta ökumaður, far-
þegi og maður, sem feng-
inn var til aðstoðar, með
áratuga reynslu af um-
ferðarmálum og löggæslu.
Þegar komið var að bíln-
um aftur eftir rúma
klukkustund, var bíllinn á
bak og burt. Engin tilraun
virðist hafa verið gerð til
að hafa upp á eiganda bíls-
ins. Það er undarlegt ef
maður verður að hringja í
lögregluna til þess að fá
frið með bíl sem skilinn er
eftir. Ég veit ekki hvort
þetta er yfirgangur eða
hvað, en sumir lögreglu-
þjónar virðast hafa það
eitt að markmiði að ná
sem flestum. Samanber
þann sem var spurður eft-
ir verslunarmannahelgi
hvort eitthvað hefði verið
að gera, 17 teknir ölvaðir
við akstur, en ég náði eng-
um.
120851-2419.
Tapað/fundið
„Fílófax“ týndist
„FÍLÓFAX" týndist mið-
vikudaginn 15. mars sl.
Eigandinn hefur sennilega
lagt það á toppinn á bíln-
um og ók svo frá Seilu-
granda inn Sæbrautina að
Njörvasundi. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við
Birnu í síma 898-1061.
Lítill blár poki
týndist
LÍTILL, blár poki merkt-
ur Snyrtivöruverslunin
Libra, týndist við Hring-
braut 29, Hafnarfirði, eða
við Jófríðarstaðaveg 10,
Hafnarfirði.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI verður að játa að
hann hafði ákveðnar efasemdir
um að það væri sniðug hugmynd að
breyta KR-búningnum'og hélt raun-
ar, þegar hann heyrði fyrst af þessu,
að þetta væri lélegur brandari kokk-
aður upp í eldhúskróknum að Hlíð-
arenda. Svo reyndist þó ekki vera og
þá fór Víkverji að ímynda sér að
þessi afleita hugmynd væri runnin
undan rifjum nýútskrifaðs markaðs-
fræðings, sem líklega væri alinn upp
í Safamýrinni, og að forsvarsmenn
KR hefðu látið glepjast af hugmynd-
inni í einhverju stundarbrjálæði. En
svona má maður auðvitað ekki hugsa
og þar sem Víkverji þekkir forystu-
menn KR aðeins að góðu einu
treystir hann því að þeir viti hvað
þeir eru að gera. Víkverji bíður því
spenntur eftir að sjá nýja búninginn,
í trausti þess að KR-ingar verði
„alltaf röndóttir þó þeir verði
kannski eilítið minna röndóttir en
þeir voru þegar þeir voru hvað mest
röndóttir", svo vitnað sé í orð fram-
kvæmdastjóra rekstrarfélags KR.
Gamli búningurinn hefur vissulega
dugað vel og verið tákn Knattspymu-
félags Reykjavíkur svo lengi sem
elstu menn muna. í hugum margra
er svart-hvíti röndótti búningurinn
fallegasti búningur sem hannaður
hefur verið og KR-ingar hafa hingað
til almennt verið sammála um að þar
verði ekki bætt um betur. Víkveiji
hefur fyllt þann flokk manna svo
lengi sem hann man eftir sér.
Menn mega þó ekki vera svo for-
pokaðir og fastir í fortíðinni að ljá
ekki máls á neinum breytingum án
þess að kynna sér málið fyrst. Vita-
skuld verður að fara afar varlega í
allar svona breytingar og ef til vill
hefði farið betur á því að kynna þess-
ar hugmyndir fyrir viðkvæmum
stuðningsmönnum félagsins áður en
ákvörðun var tekin því Víkverji hef-
ur undanfama daga hitt marga eld-
heita KR-inga sem em miður sín
vegna þessa máls. En eins og Vík-
veiji gat um hér að framan ber hann
fyllsta traust til forystumanna KR
hvað varðar réttar ákvarðanir í
þessum efnum og hvetur alla vini
sína úr röðum KR-inga að gæta still-
ingar og fella ekki dóma fyrr en þeir
hafa séð nýja búninginn. Víkverji
hefur nefnilega hlerað að hann sé
„þrælflottur og stíll yflr honum“, svo
notuð séu orð heimildarmanns Vík-
veija.
XXX
VÍKVERJI hefur stundum áður í
pistlum sínum kvartað undan
verðlagningu á bensíni og verið af-
skaplega pirraður í hvert sinn sem
bensínverð ber á góma, sem von er.
Þetta er auðvitað svo yfirgengilegt
að engu tali tekur og alltaf standa
neytendur berskjaldaðir gagnvart
þessum hremmingum. En ef til vill
er nú von til að samstaða náist um að
taka í taumana.
Víkverja barst nefnilega bréf í
tölvupósti sínum nú í vikunni þai-
sem hvatt er til aðgerða gagnvart
bensínokrinu. Frumútgáfa bréfsins
virðist hafa borist frá Svíþjóð og því
bersýnilegt að það er víðar en á Is-
landi sem menn eru orðnir lang-
þreyttir á þessu ástandi. Bréfið
hefst á eftirfarandi herópi: „Nú skub
um við sýna þeim að við erum til!“ I
bréfinu eru svo boðaðar mótmælaað-
gerðir sem ganga út á að enginn taki
bensín eða díselolíu þann 30. apríl
næstkomandi. Síðan segir
í bréfinu að verðhækkanir hafi
orðið mjög miklar upp á síðkastið og
löngu tímabært að gera eitthvað í
málinu vegna þess að samtímis verð-
hækkunum séu milljónir lítra settar
á lager. „Olíuframleiðsluríkin hafa
ákveðið að draga úr framleiðslu til
að hækka verðið, ekki til þess að
vernda umhverfið. Ef við sleppum
því að dæla á bílana okkar í einn dag
komum við ójafnvægi á olíumarkað-
inn, þó svo það sé bara um stundar-
sakir,“ segir í umræddu herópi til
neytenda.
Víkverja líst ágætlega á þessa
hugmynd. Ef samstaða næst um
þetta í öðrum löndum gæti svona að-
gerð komið við kauninn á olíufram-
leiðendum og ef til vill þokað málum
áleiðis í baráttunni gegn bensínokr-
inu. Víkveiji tekur því undir þetta
heróp og hvetur sem flesta til að
hlýða kallinu og taka ekki eldsneyti
á bíla sína þann 30. apríl næstkom-
andi.