Morgunblaðið - 18.03.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000 69
FÓLK í FRÉTTUM
Púkinn og húsmóð-
irin hjartagóða
Ljósmynd/Friðrik Öm
Samúel (Eggert Þorleifsson) er leiðtogi sértrúarsafnaðar og Steingerð-
ur (Margrét Ákadóttir) er saklaus húsmóðir.
I kvikmyndinni Fíaskó
er mikið um litríkar
persónur sem allar virð-
ast vera að leita að ást-
---------------7----------
inni. Margrét Akadóttir
leikur húsmóður sem
elskar trúarleiðtoga sér-
trúarsafnaðar. Eggert
Þorleifsson leikur trúar-
leiðtogann sem elskar
sjálfan sig. Birgir Örn
Steinarsson átti nægi-
lega ást til að deila með
þeim báðum.
í SÍÐASTA hluta kvikmyndarinnar
Fíaskó mætir ein minnsta og sak-
lausasta sál kvikmyndasögunnar
mannandskota sem er forstöðu-
maður og leiðtogi sértrúarsafnaðar.
Steingerður, leikin af Margréti
Ákadóttur, er skilningsrík með ein-
dæmum og ætti skilið doktorsgráðu
úr húsmæðraskólanum fyrir ein-
staka hæfni sína og vilja á þeim
sviðum. Samúel, leikinn af Eggerti
Þorleifssyni, er eigingjarn maður
sem hefur náð að mynda sér heilt
sólkerfi veraldlegra nautna þar
sem hann situr í hásæti sólguðsins.
Hans rétta eðli brýst samt fram í
hausverkjum þunnra morgna þegar
hin veraldlegu gæði gærkvöldsins
eru runninn af honum. Þá vantar
hann vana húsmóður á heimilið til
að taka til í húsi sínu sem hefur
eyru og vorkunn til að hlýða á
aumkunarvert hjal sitt. Þar kemur
Steingerður til sögunnar og virðast
þau með nær óhugnanlegum hætti
ná saman á þennan hátt. Gæti
þetta verið lykill hins fullkomna
sambands?
Trúarleiðtoginn Samúel
„Mér finnst það alveg með ólík-
indum hvað fólk trúir á svona vit-
leysinga í sértrúarsöfnuðum,“ segir
Eggert spurður um heilagleika
Samúels. „Ég held að það sé bara
fólk sem er eitthvað reikult og leit-
andi í lífinu sem sækir svona sam-
komur. En þarna er þó fólk sem er
tilbúið að hjálpa því og samkom-
urnar eru á vissan hátt nær fólki,
hversdagslegri og auðskiljanlegri
en hjá svartstökkunum í kirkj-
unni.“
Samúel er predikari með sýndar-
mennskubrjálæði sem minnir einna
helst á bandaríska „sjónvarps-
skemmtikrafta-verkamenn" sem
við þekkjum öll af kristinlegu
sjónvarpsstöðvunum. „Ég held að
þeir vinni ekki mikil kraftaverk,
ekki nema það sé kraftaverk að
vinna hylli fólks og peninga," segir
Eggert ákveðinn.
Ætli Samúel eigi sér einhverja
fyrinnynd úr íslensku samfélagi?
„Ég veit það ekki. Ekki eins og ég
lék hann. Hann er miklu meira í
ætt við Benny Hinn.“ Maður hefði
haldið að trúarleiðtogi eins og Sam-
úel er væri búinn að finna lífsham-
ingjuna. „Er einhver hamingjusam-
ur í þessari mynd?“ spyr Eggert
undrandi á svip.
Steingerður hin einfalda
„Ég gef mér að hún beri til hans
sterkar tilfinningar og henni finnst
hann vera stórkostlegur leiðtogi.
Hún á bágt með að trúa nokkru illu
upp á hann og á erfitt með að láta
hann gjalda fyrir það að gera mis-
tök því henni finnst hann svo
merkilegur." Þannig lýsir Margrét
Ákadóttir sambandi Samúels og
Steingerðar. „Ég held samt að
Samúel sé ósköp samviskulaus
karlmaður sem er ekkert óskaplega
spenntur fyiir Steingerði. Hann er
meira fyrir ungar næturstúlkur."
Steingerður trúir því eflaust að
vinnuaðferðir Drottins séu mönn-
um óskiljanlegar og óbrjótandi um-
burðarlyndi hennar er tilbúið að
horfa fram hjá göllum Samúels.
Hún aðstoðar hann í einu og öllu í
þeirri blindu trú að hér sé um vilja
Guðs að ræða, þrátt fyrir að Sam-
úel þurfi að losa sig við lík nektar-
dansmeyjar sem liggur í nuddpotti
hans. „Hún er ekkert að dæma
hann fyrir það að skemmta sér með
næturklúbbastúlku. Eins og svo
margar góðar konur gera. Þær
vilja ekki gera karlmennina ábyrga
fyrir mistökunum. Það eru náttúru-
lega konurnar sem eru að freista
þeirra í líki djöfulsins,“ útskýrir
Margrét kaldhæðnislega.
Samúel ristir djúpt inn í sálarlíf
Steingerðar og ímynd hans hverfur
sjaldan úr huga hennar. „Ég held
að þetta sé einhver lotning, en hún
er mjög hrifin af honum og hana
langar í hann. Ég held að Steing-
erður sé bara alltof saklaus og
vernduð kona til þess. Hún er
kannski ekki með villta kynóra í
tengslum við Samúel. Ég held að
henni hljóti að finnast slíkt syndsa-
mlegt,“ útskýrir Margrét glettilega
að lokum.
----------------------------------------------
.ýí/i nœlisþ akki r
Innilegar þakka ég þeim, sem komu tilfagnaðar
í safnaðarheimili Bústaðakirkju á 80 ára afmœli
mínu 4. mars sl.
Einnig kœrar þakkir mínar til allra, sem með
gjöfum, skeytum, símtölum og heimsóknum
gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Gcefa og hamingja fylgi ykkur.
Svanfríður Örnólfsdóttir.
s
%
Júlíu.
Björn: Hilmar er venjulegur strák-
ur að mörgu leyti og það getur reynd-
ar verið erfitt að leika venjulega
menn.
En mér fannst í flestum tilfellum
skemmtilegt að leika þessa persónu,
en það er langt frá því að vera alltaf
skemmtilegt. Ég var ekki í besta
skapi í heimi þegar ég var rennandi
blautur og allsber að reyna að halda
einbeitingu. Jafnvel hangandi utan í
bryggju í Reykjavíkurhöfn. Meira að
segja í stúdíóinu vai’ skítkalt og mér
var eiginlegt kalt alla myndina og það
er það sem ég man mest eftir; að vera
kalt.“
Silja: Skítkalt á nælondruslum...
Björn: En það er nú bara þannig að
þegar maður er að gera bíó á íslandi,
þá er maður alltaf að drepast úr
kulda.
Björn: Hilmar myndi gjarna vilja
vera með Júlíu, en ég held að það sé
ekki gott fyrir hana. Hún er að ganga
í gegnum þetta tímabil í lífinu, þegar
maður lærir af mistökunum.
Silja: Já, hún gerir það þarna, mis-
tökin sem hún gerir voru henni sár og
tóku mjög á hana. Hún er því ákveðin
í að læra af þeim og er sjálfsagt núna
í lýðháskóla í Noregi að finna sig eftir
þessa miklu leit.
Björn: Hún er með miklu eldri
gæjum sem era ekkert sniðugir íyrir
hana. Gulli verður alltaf undirtylla og
það verður ekkert úr Hilmari.
Kannski að hann opni vídeóleigu í
Njarðvíkum þegai’ hann verður fer-
tugur. Júlía þarf einhvern sem hent-
ar henni betur þegar hún er búin að
finna sig sjálfa.
Silja: Það verður ekki strax.
Kannski í Fíaskó 3...
/sí/aAja/asL
www.litla.is
Funahöfoa 1 - Sími 587 7777- Fax 587 3433
Til sölu fullbreyttur lúxusjeppi
Toyota Land Cruiser VX 4.2 dísel turbo,
intercooler, árg. 1994, sjálfsk., leðurinnr.,
sóllúga, mjög góð hijómflutningstæki, gps,
2 sfmar, talstöð o.fl., 38" breyttur (1999),
álfelgur, aukatankur, aukarafkerfi, spil, o.fl.,
d-grænn, ek. 111 þ. km, innfl. af umboði.
Verð 4.400 þús. stgr.
Hillusamstæða kr. 34.900.-stgr.
F0CUS hillusmstæður fúst bæði í beyki og kirsuberjuvið
Opiðídagfrákl. 10-14
□□□□□[!]
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVlKURVEGI 66 HAFNARFIRÐI SlMI 565 4100