Morgunblaðið - 18.03.2000, Page 70
70 LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
i
>
*>
>
ERLENDAR
Skúli Helgason
fjallar um plötu skosku hljóm-
sveitarinnar Travis,
„The Man Who“.
Radíóhaus
með sírópi
SETTU Bítlana og
Radiohead í
hakkavél og út-
koman gæti orðið eitt-
hvað nálægt Travis.
Frábærar melódíur,
seiðandi skýjarokk með
„feedbacki og öðru
kryddi til að halda blóð-
inu gangandi. Travis
var spútnik síðasta árs í
Bretlandi, nýja platan
„The Man Who“, fór í
1. sæti vinsældalistans,
hefur selst í 2,1 milljón-
um eintaka í landinu
(sjöfold platfnuplata) og
er enn í 1. sæti eftir 42
vikur á lista. Fjögur lög af plötunni
hafa klifíð smáskífulistann til þessa
og í síðustu viku fengu Travis tvenn
Brit verðlaun, fyrir bestu breiðskífu
ársins og verðlaun sem besta hljóm-
sveit Bretlands.
Travis eru rétt að slíta barns-
skónum, kvartettinn varð til í
Glasgow, Skotlandi vorið 1996.
Travis varð fyrsta hljómsveitin sem
fékk samning hjá nýju fyrirtæki
Andy McDonald: Independiente
sem áður stýrði Go-Disc. Fyrsta
breiðskífan: Good Feeling kom út
1997, seldist vel af sveinsstykki að
vera, náði inn á top 10 og gat af sér
fimm lög sem náðu inn á top 40
smáskífulistann. Gagnrýnendur
kvörtuðu sumir undan því að sveitin
væri nett geðklofin á plötunni, þar
ægði öllu saman og stefnan væri
fráleitt skýr.
Travis sendi gagnrýnendum
kveðju með nafngift næstu plötu:
„The Man Who“, sem er vísun í
stórmerka bók taugasálfræðingsins
Olivers Sachs um geðklofa: „The
Man Who Mistook His Wife for a
Hat“. Bókin hefur að geyma sannar
sögur af fólki með geðhvarfasýki,
þar á meðal tónlistarmanninum sem
glataði hæfileikanum til að greina
hluti, hætti að þekkja andlit og
ruglaði saman dauðum hlutum og
lifandi: klappaði „krökkum" á koll-
inn sem við nánari eftirgrennslan
reyndust vera brunahanar og rugl-
aði saman hatti sínum og höfði eig-
inkonunnar. Konan mátti þola það
ítrekað að bóndinn greip þéttings-
fast um höfuð henni og reyndi að
losa það af búknum til að setja á
koll sér eins og hverja aðra der-
húfu!
Travis kæfa allar raddir um
ruglugang í fæðingu á „The Man
Who“. Platan er óhemju heilsteypt
þó hún hafi verið tekin upp á mun
lengri tíma en sú fyrri, sex mánuð-
um í sex hljóðverum í stað fjögurra
daga á einum stað. Nefndir hafa
verið ýmsir áhrifavaldar, s.s. John
Lennon og Plastic Ono Band, Simon
og Garfunkel, Jacques Brel, David
Bowie, Ennio Morricone og svo auð-
vitað Radiohead. Það vekur strax
athygli að upptökustjóri er Nigel
Godrich, sá sami og vann með Rad-
iohead á „OK Computer" (og hefur
líka unnið með REM, Beck, Pave-
ment og fleirum) og þeir notuðu líka
Mike Hedges sem hefur stjórnað
upptökum hjá Manic Street
Preachers. Hluti plötunnar var
hljóðritaður í stúdíói Hedges í
Normandí og hafa Travis lýst sam-
skiptunum við þessa tvo heiðurs-
menn sem sérlega skapandi.
Travis eru í fyrsta lagi eðalfínir
lagasmiðir, þau 10 lög sem eru á
plötunni eru hvert öðru betra og
fyrstu sjö lög plötunnar eru allt
skotheldar melódíur sem gætu sómt
sér vel í hvaða félagsskap sem er.
Andinn á plötunni er fremur tempr-
aður, textarnir gjarnan um brostnar
ástir, söknuð og blús en laglínurnar
það sterkar að platan verður aldrei
niðurdrepandi. Það er greinilegt að
Travis samsama sig frekar gömlu
meisturunum en samtímasveitum,
Bítlamir, Neil Young og fleiri eru í
guðatölu en falleg orð hafa líka fall-
ið um Radiohead úr þeirra ranni.
Það er til lítils að vera að tíunda
einstök lög þau eru meira og minna
öll góð, en „Why Does It Always
Rain On Me“ er hápunktur, sömu-
leiðis „Writing To Reach You,“
„Driftwood" og Turn sem sjálfur
Paul McCartney spilaði í sjónvarps-
þætti á dögunum. Það verða að telj-
ast góð meðmæli frá poppkóngin-
um. Ónnur lög láta minna yfir sér
en vaxa við hverja hlustun.
Næsta Travis plata er væntanleg
síðar á árinu og fyrsta smáskífan:
„Coming Around" kemur út í júní.
Þar er Nigel Godrich áfram við
takkaborðið. Travis munu væntan-
lega koma fram á Glastonbury tón-
leikahátíðinni og fleiri hátíðum í
Evrópu í sumar.
Travis munu vera hlédrægir tón-
listarmenn sem leggja höfuðáherslu
á sköpunina en síður á sjálfa sig.
Alltof margir popparar eru eins og
myndlistarmenn sem standa fyrir
framan verk sín og segja hróðugir:
Sjáið þetta gerði ég! Travis segja:
Burt með þig, þú skyggir á verkið!
Frelsi undan hégóma er ein mesta
blessun sem listamanni getur hlotn-
ast.
„The Man Who“ er skotheld
poppplata og á skilið miklu meiri at-
hygli en hún hefur fengið hér á
landi. Eins og gúrúinn sagði
forðum: Eg gef þessari plötu hik-
laust fjórar stjömur.
S
Páll Qskar Hjálmtýsson kom fram í Berlín
Nýskriðinn úr
eggj askurn
Páll Óskar kom fram í Universal Hall
í Berlín fyrir tvö þúsund manns um
síðustu helgi. Framundan er söngur
með Dönu International í Eurovision-
partíi, smáskífur og Vatikanið. Pétur
Blöndal fylgdist með í Universal Hall
og spjallaði við Pál Óskar.
TVÖ þúsund karlmenn á sænskum
skemmtistað í höfuðborg Þýska-
lands þar sem íslensk poppstjarna
treður upp. Að því er virðist for-
múla sem gengur upp, því það er
húsfyllir. Búið er að flytja heilan
skemmtistað, Propaganda, með
barþjúnum, dyravörðum, fataheng-
isklerkum, gestum, öllum sem vett-
lingi geta valdið frá Stokkhólmi til
Berlínar.
_ Á veggjum hanga plaköt af Páli
Óskari, geisladiskar eru seldir við
innganginn og myndast hefur röð
út á götu þótt staðurinn, Universal
Hall, taki vel við. Þegar komið er
fram undir miðnætti ljómar Peo
Manestad, framkvæmdastjóri
skemmtistaðarins, eins og tungl í
fyllingu enda ljóst að uppákoman
ætlar að heppnast vonum framar.
Hann segir ástæðuna fyrir því að
Páll Óskar hafi verið fenginn alla
leið frá Fróni til að syngja, þá að
hann sé vinsæll og gott orð fari af
honum f Berlín.
Mættu með plötusafnið
„Þótt það kunni að hljóma ein-
kennilega þá er hann þekktari í
Þýskalandi en Svfþjóð," segir hann.
„Við vonumst til að bæta úr því í
maí næstkomandi, þegar Eurovis-
ion verður haldin í Stokkhólmi. Þá
ætlum við að halda gríðarstórt
Propaganda-partí og fá Pál Óskar
til að syngja ásamt Dönu Interna-
tional."
Það ætlar allt um koll að keyra
þegar Páll Óskar stígur loks á svið
um tvöleytið. Sænski fáninn er í
bakgrunni ásamt tíu litlum reður-
styttum þegar Páll Óskar syngur af
miklum móði. Eftir uppklappið og
þriðja og síðasta lagið gengur hann
fram í sal og veitir eiginhand-
aráritanir á plaköt og geisladiska.
Það vekur athygli blaðamanns að
sumir aðdáenda hans mæta með
allt safnið, þar á meðal eldri plötur
með Casino og Milljónamæringun-
um.
Eins og í sumarfríi
Það liggur vel á honum tveim
döguni síðar þegar blaðamaður
mælir sér mót við hann í Berlín.
Enda hefur hann slakað vel á, náð
að sofa heilmikið og segir það mik-
inn mun að ná að losna úr stressinu
á Fróni. „Það er svo mikið að gera
heima,“ segir hann. „Dr. Love er
farinn að taka svo mikinn tíma.
Fyrst útvarpsþátturinn, svo Fókus
og eftir að sett var á fót símalína þá
er þetta orðin mín aðaltekjulind.
Fólk á öllum aldri hringir inn. Ég
hélt fyrst að þetta yrðu aðeins ung-
lingar, en svo virðist sem eldra fólk
ætli einnig að hringja mikið, enda
vill það kannski ekki að röddin
heyrist í útvarpinu."
Þar fyrir utan heldur Páll Óskar
fyrirlestra í skólum og er DJ á
Spotlight um helgar. „Það fyrsta
sem rann upp fyrir mér þegar ég
kom hingað til Berlínar var: „Vá,
djöfull er ég þreyttur og djöfull er
gott að sofa.“ Mér Ieið eins og
kjúklingi sem er nýskriðinn úr
eggjaskurn, ég var svo þreyttur.
Þessir tónleikar á laugardaginn
Morgunblaðið/Pétur Blðndal
Páll Óskar á sviðinu í
Universal Hall.
um það. Það er í verkahring um-
boðsmannsins. Ég verð aðeins að
vera nógu auðmjúkur til að laga
mig að reglum Þjóðveijanna, ekki
síst þar sem ég kann ekki tungu-
málið. Ef ég ætlaði að vera með ein-
hveija íslenska stæla kæmi það mér
í koll. Jaðarmarkaðurinn hefur tek-
ið mér vel, þar á meðal „gay“-
senan, og nú ætla ég að vona að ég
geti vent kvæði mínu í kross og
helst endað á forsíðunni á Bravó.
Það væri eðalástand, en hvort það
rætist hef ég ekki hugmynd um.“
Einhvern veginn er það svo að ís-
lenskir tónlistarmenn á borð við
Emiliönu Torrini og Gus Gus virð-
ast eiga góðan hljómgrunn í Frakk-
landi ogÞýskalandi. Það sama á við
um Pál Óskar. Hann er til að mynda
fáanlegur í WOM, stærstu hljóm-
plötuversluninni í Berlfn. „Ég get
ekki neitað því að maður verður
svolítið montinn þegar maður sér
það, enda hef ég aldrei gefið neitt
opinberlega út í Þýskalandi. Það er
því meira mál að finna plötur með
mér heldur en einhverri Britney
Spears. Það má líkja þessu við að
leita heima að nýjustu plötunni með
indversku prinsessunni Leoncie;
manneskju sem allir vita hver er.
Engu að siður þarf að hafa svolítið
fyrir því að finna plötu með henni.
Ég geri mér grein fyrir að þetta er
bara blábyrjunin á afar löngu
ferli.“
Það fór vel á með Páli Óskari og kynni kvöldsins baksviðs.
voru bara sumarfrí, iss, ekkert mál.
Ég var ánægður með þá, var bara
eins hress og hægt var.“
Hann segir ekkert mál að verða
sér úti um svona tónleika erlendis
og það sé góður byrjunarpunktur.
„Þetta er ekkert ósvipað Lúdó,
maður kemst ekki í hringinn nema
fá sex og þetta er besta leiðin til
þess að fá að kasta. Ég gerði mjög
mikið af þessu eftir Eurovision, í
Þýskalandi, á Norðurlöndunum og í
Englandi. Þá komst ég að því að
maður getur ekki ætlast til þess að
nokkuð gerist hjá sér fyrr en mað-
ur er kominn með safn af lögum og
frumsömdu efni til að gera út á.
Þegar sumar- og vetrarlínan er
komin, þá fyrst fara þeir að kaupa
mann. En það sakar samt ekki að
prufukeyra efnið undir svona
kringumstæðum og það kom mér á
óvart, þar sem ég hef ekki verið
hérna síðan 1997, hversu margir
Þjóðverjar mundu eftir mér. Það
var mjög góð tilfinning.“
Endar á forsíðu Bravó?
Að sögn Páls Óskars er hann ekki
frekar en heima að stíla inn á
ákveðinn markað. „Ég hugsa aldrei
að nú ætli ég að taka unglingana
eða útvarp Matthildi. Það sem gild-
ir er að vinnusemi og síðan hið
fomkveðna að gott lag er gott lag.
Vissulega er kallað á sérhæfni á
stærri mörkuðum eins og í Þýska-
landi, en það er ekki mitt að hugsa
Treður upp við Vatikanið
Um næstu helgi heldur Páll Ósk-
ar tónleika í Miinchen og um leið og
heim kemur ætlar hann að ijúka
beint í stúdíó. „Ég fer til Parísar í
byrjun maí og kem fram á stærsta
skemmtistaðnum þar, Le Scorpion.
Svo var verið að bjóða mér að vera
viðstaddur Eurovision í Stokkhólmi
13. maí og syngja svo í risastóru
þúsund manna partíi ásamt Dönu
International. Ég get lofað þér því
að Stokkhólmur breytist í annað
land þessa viku sem Eurovision
verður haldin. Bærinn umturnast af
þátttakendum og aðdáendum.
Seinna í sumar er ég bókaður í Róm
þar sem fram fer fyrsta World Gay
Pride. Samkynhneigðir hvaðanæva
úr heiminum mæta fyrir framan
Vatikanið í Róm og ég treð upp fyr-
ir hönd Islands. Þess vegna væri
mjög gott að vera með smáskífu
eða eitthvað til að kynna fyrir fólki,
fyrst það er ekki alveg búið að
gleyma mér.“
Páll Óskar segist vonast til að
næsta plata verði einskonar Great-
est Hits með endurhljóðblöndun á
lögum af fyrri plötum ásamt Euro-
vision-laginu. „Ég held að það yrði
kraftmikið,“ segir hann. „En ég
ætla að byrja á einni smáskífu og ef
hún gengur vel þá gef ég út aðra og
svo kannski stóra plötu árið 2001.
Ferlið er það langt og maður verð-
ur bara að passa sig á því að vera
þolinmóður og taka lffinu með ró.“