Morgunblaðið - 18.03.2000, Blaðsíða 76
ZJ»
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyða tíma
starfsfólksins í biö?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biða!
Tölvukerfi sem virkar
Netþjónar
og tölvur
COMPACL
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGL UNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 18. MARS 2000
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Grunnur samkomulags SA og RSI handsalaður í gærkvöld
Kjarasamningur sem
gildir fram í febrúar 2004
GRUNNUR að kjarasamningi milli Samtaka at-
vinnulífsins og Rafiðnaðarsambandsins var
handsalaður í húsakynnum sáttasemjara í gær-
kvöld. Stefnt er að undirritun samningsins á mið-
vikudag og mun hann gilda fram í febrúar árið
2004 eða í tæp fjögur ár. Pað er eitthvert allra
lengsta samningstímabil sem um getur á almenna
vinnumarkaðnum hér á landi.
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, sagðist í gærkvöldi vera mjög
ánægður með þann samning sem væri í deiglunni.
„Með þessu náum við fram helstu baráttumálum
okkar og með það hlýt ég að vera ánægður. Enn er
eftir að útfæra ákveðin atriði og ganga endanlega
frá samningstexta," sagði hann.
Guðmundur sagði erfitt á þessu stigi að nefna
hver hækkun launa yrði í prósentum talið á samn-
ingstímanum; slíkt þyrftu hagdeildir samnings-
aðila að reikna út nákvæmlega næstu daga. M.a.
væri slíkt misjafnt eftir því hvar menn væru bú-
settir á landinu.
Ein aðalkrafa RSÍ í viðræðum við SA snerist
einmitt um hvernig skila mætti einhverju af launa-
skriði undanfarinna ára til rafiðnaðarmanna á
landsbyggðinni. „Kannanir okkar sýndu allt að
25% mun á launum félagsmanna á suðvesturhorn-
inu og á landsbyggðinni og við teljum okkur hafa
náð áfanga í baráttunni gegn slíku misrétti," sagði
Guðmundur ennfremur.
Líkur samningi Flóabandalagsins
Heimildir Morgunblaðsins herma að væntan-
legur samningur muni í ýmsum meginatriðum
verða líkur þeim sem Flóabandalagið gerði við SA
á dögunum, aðeins sé þannig áherslumunur á
ákvæðum um veikindarétt og hækkun framlags
vinnuveitenda í séreignalífeyrissjóði launþega.
Ekki verði um jafn mikla hækkun lægstu launa að
ræða en á móti komi að lægstu laun rafiðnaðar-
manna hafi ekki verið jafn lág og í tilviki Flóa-
bandalagsins.
Samkomulag um lágmarkslaun í stórfram-
kvæmdum mun einnig í sjónmáli, en það felur í sér
að erlendum fyrirtækjum verði gert skylt að
greiða starfsmönnum sínum íslensk markaðslaun
við stórframkvæmdir - geti með öðrum orðum
ekki skákað í skjóli undirboða og lágra launa.
Aðilar hittast aftur eftir helgi
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, staðfesti í
gærkvöldi að vel hefði gengið í viðræðunum og
ekki væri óraunhæft að reikna með samningi um
miðja næstu viku. Hann sagði þó að enn ættu at-
vinnurekendur eftir að fara yfir nokkur mikilvæg
atriði og kanna hvort þau gengju upp. Hann vildi
ekki fara út í einstök atriði væntanlegs samnings,
sagði aðeins að umræðan í gær hefði snúið að ýms-
um atriðum sem héngju saman og launaliðurinn
væri eitt þeirra.
Samningsaðilar hittast næst á þriðjudag. Þá
munu þeir bera saman bækur sínar og meta end-
anlega framlag hvor annars. Að öllu óbreyttu
verður svo skrifað undir nk. miðvikudag.
im
Nýtt
íslenskt
flugfélag
MD-flugfélagið nefnist nýtt
flugfélag í eigu nokkurra ís-
lendinga sem annast mun far-
þegaflug fyrir ferðaskrifstof-
ur í Svíþjóð og víðar erlendis.
Framkvæmdastjóri félagsins
er Ingimar H. Ingimarsson,
sem rak MK-flugfélagið, sem
einkum sinnti fraktflugi en
hefur nú verið lagt niður.
MD-flugfélagið hefur tekið
á leigu þrjár MD-þotur sem
SAS átti og munu flugmenn
SAS fljúga vélunum. Eigandi
vélanna er fyrirtæki Gunnars
Björgvinssonar í Liechten-
stein.
Farþegaflug
hefjist í apríl
Gert er ráð fyrir að far-
þegaflugið geti hafist í byrjun
næsta mánaðar, einkum fyrir
ferðaskrifstofur í Svíþjóð, en
verkefni eru einnig í uppsigl-
ingu víðar. Ekki er þó ætlun-
in að stunda flug frá Islandi.
Aðaleigandi MD-flugfélags-
ins er Ingimar H. Ingimars-
son en meðal annarra hlut-
hafa eru Ómar Benediktsson,
framkvæmdastjóri íslands-
flugs, og Gunnar Þorvalds-
son, stjórnarformaður þess.
Morgunblaðið/Golli
Harður
árekstur á
Hellisheiði
HARÐUR árekstur varð á Hellis-
heiði um klukkan 18.30 í gærkvöld.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
skullu jeppi og fólksbfll saman með
þeim afleiðingum að farþegi í fólks-
bflnum slasaðist alvarlega og var
hann fluttur með sjúkrabifreið á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Ekki fengust upplýsingar frá sjúkra-
húsinu um líðan mannsins en hann er
um þrítugt.
Tildrög slyssins voru þau að öku-
maður jeppans missti stjórn á hon-
um í miklum krapa á veginum og
lenti á öfugum vegarhelmingi með
fyrrgreindum afleiðingum.
KEA selur 20%
hlut sinn í
Hiísasmiðjunni
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur selt
hlut sinn í Húsasmiðjunni og er
kaupandinn íslandsbanki F&M. Ei-
ríkur S. Jóhannsson, kaupfélags-
stjóri, segir viðskiptin vera mjög
hagstæð fyrir KEA og ástæða söl-
unnar sé fyrst og fremst sú að fyrir-
tækið sé að innleysa fjármagn. Hann
vill ekki gefa upp söluverðið en segir
að söluhagnaðurinn af hlutnum hafi
verið verulegur. Tilkynnt verði á að-
alfundi félagsins hver hann hafi orð-
ið.
í fréttatíma Ríkissjónvarpsins í
gærkvöldi kom fram að kaupverðið
hefði numið einum milljarði króna.
Guðmundur Tómasson, fram-
kvæmdastjóri íslandsbanka F&M,
segir bankann ekki líta á kaupin sem
langtímafjárfestingu og að væntan-
lega muni skýrast á næstu dögum
hvað gert verði við hlutinn.
Unnið í
rysjóttri tíð
ÞÓTT tfðin hafi verið rysjótt und-
anfarið láta menn það ekki aftra
sér frá vinnu. Þessi maður vann
hörðum höndum við olfuleiðslu á ol-
íubryggjunni í Orfirisey þegar ljós-
myndari átti leið hjá og lét veður-
haminn ekki á sig fá.
Samtök atvinnulífsins gagnrýna forsvarsmenn VMSI
Fjarri lagi að kröfur takmarkist
við 15 þúsund kr. hækkun á ári
SAMTÖK atvinnulífsins (SA) gagn-
rýna forsvarsmenn Verkamanna-
sambands íslands (VMSÍ) fyrir að
MITSUBISHI
MITSUBISHI
- demantar í umferO
HEKLA
-íforystuánýrriöld!
tala opinberlega eins og launakröfur
þeirra takmarkist við 15 þúsund
krónur á mánuði. Segja SA að það sé
þó fjarri lagi.
Á fréttasíðu SA á Netinu er greint
frá gangi viðræðnanna við VMSÍ og
þar kemur þetta fram. Tekið er
dæmi af kröfum vegna starfsfólks í
mjölbræðslum: „Þar er krafa um
sérstaka hækkun („leiðréttingu")
metin á 9 þúsund ki-ónur á mánuði og
krafa um álag á staðna vakt metin á
11 þúsund krónur. Að viðbættum 15
þúsund krónunum eru það því 35
þúsund á mánuði sem krafist er á 98
þúsund króna grunnlaun, eða tæp
36% hækkun á fyrsta ári. Þá eru
ótaldar ýmsar kröfur, t.d. um leng-
ingu orlofs og hækkaðs framlags í líf-
eyrissjóð, en bara þessar tvær kröf-
ur hækka kostnaðinn um tæp 9% til
viðbótar," segir á síðunni.
Undarlegt að félögin miðli ekki
ítarlegri upplýsingum
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, sagði í gær, að þetta sýni að
kröfur VMSI snúist um annað og
meira en 15 þúsund króna hækkun á
ári: „Sumir forsvarsmenn sam-
bandsins, t.d. Aðalsteinn Baldursson
[form. Verkalýðsfélagsins Baldurs á
Húsavík og formaður fiskvinnslu-
deildar VMSÍ] hafa látið í það skína.
Það er undarlegt að félögin miðli
ekki ítarlegri upplýsingum til félags-
manna sinna sem nú greiða margir
hverjir atkvæði um verkfall."
Hann segir að aðeins sé tekið
dæmi um fólk í mjölverksmiðjum.
„Þar er vinna að vísu oft mikil, en sé
litið á meðalmánaðarlaun í þeirri
grein sést að kröfumar nú myndu
þýða hækkun mánaðarlauna um 80
þúsund krónur, fremur en hækkun
launa upp í 80 þúsund krónur."
Ágætlega hefur miðað í viðræðum
SA og VMSÍ undanfarna daga, en á
þriðjudag hittust samninganefndir
þeirra í fyrsta sinn eftir að hlé varð á
viðræðunum hjá sáttasemjara. Sam-
komulag náðist um að ræða í bili allt
annað en launaliðinn og segir Ari að
viðræðurnar hafi gengið mjög vel
undanfarna daga.
„Ég hef sagt það áður og ítreka
það enn, að miðað við þann góða
gang sem er í viðræðunum nú, hefði
ég talið betra að menn kæmu af alefli
að samningaborðinu í stað þess að
steypa málum í einhvern átakafar-
veg,“ bætti Ari við og vísaði til þess
að atkvæðagreiðsla um boðun verk-
falls stendur yfir innan landsbyggð-
arfélaga VMSI. Verði hún samþykkt
skellur á verkfall um mánaðamótin.