Morgunblaðið - 04.04.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000 27
ERLENT
Fellibylur
stefnir á
Mósambík
ÖFLUGUR fellibylur fór yfír
norðurhluta Madagaskars á
sunnudag og í gær fór hann út
Mósambík-sund og stefndi á
Mósambík. Var búist við, að
hann kæmi inn yfir landið á
morgun og talið er að honum
fylgi mikið úrfelli. Er viðbúið að
það muni auka enn á hörmung-
amar í landinu en stórir hlutar
þess eru enn undir vatni eftir
flóðin í síðasta mánuði. Talið er,
að þau hafi kostað 700 manns líf-
ið til þessa og hugsanlega miklu
fleiri.
Óánægja með
upplýsingalög
MIKIL óánægja er innan
breska Verkamannaflokksins
með ný upplýsingalög, sem rík-
isstjómin ætlai' að leggja fyrir
þingið í dag. Hugsanlegt er tal-
ið, að allt að 60 þingmenn flokks-
ins greiði atkvæði gegn þeim.
Þegar Jack Straw innanríkis-
ráðherra kynnti drögin fyrst var
þeim almennt fagnað en síðan
hafa verið gerðar á þeim margar
breytingar. Nú er t.d. lagt til, að
ráðherrar og forystumenn í
sveitarfélögunum geti beitt neit-
unarvaldi gegn birtingu upplýs-
inga og nú kemur það ekki leng-
ur í veg fyrir birtingu upp-
lýsinga, að það geti reynst
„mjög skaðlegt“ fyrir ákveðna
aðila, heldur er nóg, að þær geti
, ,komið sér illa“ fyrir þá.
Mannskæðar
veiðar
ALLS féliu 42 menn á síðustu
veiðivertíðinni í Frakklandi og
191 særðist eða slasaðist. Skýrði
talsmaður frönsku veiðimála-
stofnunarinnar frá þessu í gær
en vertíðin stendur frá 1. sept-
ember til 28. febrúar ár hvert.
95% slysanna áttu sér stað er
menn vom á veiðum en hin fimm
prósentin þegar veiðimennfrnir
vora að hreinsa byssumar.
10 skotnir
í Kasmír
INDVERSKIR lögreglumenn
skutu 10 manns og særðu 12 í
Kasmír í gær er tO mikilla mót-
mæla kom þar. Var efnt til
þeirra vegna ásakana um, að
indverskar öryggissveitir hefðu
myrt 35 sikha 20. mars sl. í þvi
skyni að kenna múslímskum að-
skilnaðarsinnum í Ksmír um
morðin. Krafðist fólkið þess, að
líkin yrðu grafin upp og málið
kannað. Indverjar fullyrða, að
aðskilnaðarsinnar með aðsetur í
Pakistan hafi myrt mennina.
Um 25.000 manns hafa týnt lífi í
óöldinni í Kasmír sl. 10 ár.
„Rauði Ken“
rekinn
REKA átti Ken Livingstone,
„Rauða Ken“, formlega úr
breska Verkamannaflokknum í
gær en hann ákvað að bjóða sig
fram í borgarstjórakosningun-
um í London 4. maí nk. þótt
flokkurinn hefði valið annan
frambjóðanda. Samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnun verðm-
hann kjörinn borgarstjóri með
61% atkvæða. Næstur honum
kemur Frank Dobson, hinn op-
inberi frambjóðandi Verka-
mannaflokksins, með 16.
Talið er að leiðtogar dómsdagssafnaðarins í Úganda séu enn á lífí
Fégræðgi að
baki morðunum?
Kanungu. AFP.
STJÓRNVÖLD í Úganda telja, að
leiðtogar dómsdagssafnaðarins,
sem bera hugsanlega ábyrgð á
dauða um 1.000 manna, séu enn á
lífi. Þá segir fólk, sem þekkti þá,
að ekki hafi neitt annað vakað fyr-
ir þeim en gróðafíkn.
Speciosa Kazibwe, varaforseti
Úganda, sagði á sunnudag, að lík-
lega væru leiðtogar safnaðarins
enn á lífi.
Þá má ráða af framburði vitna,
að hinn eiginlegi leiðtogi safnaðar-
ins hafi verið Credonia Mwerinde,
sem kölluð var „skipuleggjandinn“,
en ekki Joseph Kibwetere, sem
kallaður var „spámaðurinn".
Credonina Mwerinde lýsti sjálfri
sér sem fyrrverandi vændiskonu,
sem er augljóslega skírskotun til
Maríu Magðalenu, og sagði, að
Mai'ía guðsmóðir vitjaði sín reglu-
lega.
Með þennan boðskap að vopni
fengu þau marga til að fylgja sér
en þó því aðeins, að fólk gæti
greitt aðgangseyrinn að söfnuðin-
um, rúmar 5.000 ísl. krónur.
Mwerinde sagði berum orðum, að
það væri ekkert pláss fyrir fátækl-
inga í söfnuðinum. Þá lagði hún að
fólki að selja allar eigur sínar og
gefa söfnuðinum.
Fólkið vildi fá
eigurnar aftur
Þau Mwerinde og Kibwetere
spáðu því á sínum tíma, að dóms-
dagur yrði 1992 en þegar það
frestaðist átti hann að vera nú um
áramótin síðustu.
Af því varð ekki heldur og talið
er, að þá hafi komið upp mikill
kurr meðal safnaðarfólksins, sem
vildi margt fá eigur sínar aftur.
Við því hafi verið brugðist með því
að myrða fólkið.
725 lík hafa
fundist
Vitað er með vissu að leiðtogar
safnaðarins urðu 725 manns að
bana en yfirvöld í Úganda telja að
talan kunni að hækka í um 1.000.
Að minnsta kosti 330 manns létu
lífið í eldi í kirkju safnaðarins 17.
mars. 395 lík til viðbótar hafa ver-
ið grafin upp í fjöldagröfum við
byggingar í eigu safnaðarins í hér-
uðunum Rukingere og Bushenyi.
NOTAÐIR BÍLAR ! NOTAÐIR BÍLAR ! NOTAÐIR BÍLAR
Allt að 30% afsláttur! Allt á að seljast!
Grjóthálsi 1
Umboðsaðilar: Bílasala Keflavíkur, Bílás Akranesi, Bílaval Akureyri. Sími: 5751230.