Morgunblaðið - 04.04.2000, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov og Indveijinn Anand tefldu til úrslita í heimsmötinu um helgina þar sem heimsmeistarinn hafði betur.
••
Oruggur sigur Kasparovs á
bráðskemmtilegu Heimsmóti
SKAK
Salurinn, tónlist-
arhiís Kópavogs
HEIMSMÓTIÐ
í SKÁK
1.-2 apríl 2000
LEITA verður langt aftur í tímann
til að fmna jafn eftirminnilegt og vel
sótt skákmót og Heimsmótið í skák,
sem haldið var í Salnum í Kópavogi.
Skákáhugamenn fylltu Salinn og
fjölmargir urðu að láta sér nægja að
standa eða fylgjast með á fjölmörg-
um sjónvarpsskjám sem voru utan
skáksalarins. Auk þess gerðu fjöl-
miðlar skákmótinu góð skil og Skjár-
^einn var með beina útsendingu frá
mótinu. Þá er búið að setja upp nýja
skáksíðu á strik.is þar sem fréttir af
framvindu mála voru birtar eftir
hverja umferð og OZ.COM sýndi
skákimar beint á vef sínum.
En það voru ekki einungis íslend-
ingar sem höfðu áhuga á mótinu og
gátu fylgst með því. Þúsundir skák-
áhugamanna út um allan heim fylgd-
ust með skákunum á ICC skákþjón-
inum jafnóðum og þær voru tefldar
og allar helstu skáksíður á Netinu
fluttu fréttir af mótinu. Reyndar létu
ýmsir erlendir skákáhugamenn sér
ekki nægja að fylgjast með mótinu í
gegnum Netið, heldur mættu í Kópa-
voginn til að fylgjast með.
Fyrirfram var búist við að barátt-
an um sigur á mótinu mundi standa á
milli þeirra Kasparovs og Anands og
sú varð raunin. Heimsmótið hófst
með undankeppni sem háð var í
tveimur 6 manna riðlum. Skipt var í
riðla eftir ákveðnum reglum sem
miðuðu að því að gera mótið sem
skemmtilegast fyrir áhorfendur. Það
kom ekki á óvart, að Kasparov sigr-
aði í A-riðli, en hins vegar vakti
frammistaði íslendinganna í riðlin-
um athygli. Margir bjuggust við því,
að Friðrik Ólafsson mundi eiga erfitt
uppdráttar á mótinu, enda hefur
hann teflt minnst allra keppendanna
á undanfömum árum. Hann sýndi þó
strax í fyrstu umferð, að hann átti
fullt erindi á mótið þegar hann gerði
jafntefli við Jan Timman. I þriðju
umferð bætti hann síðan um betur og
lagði sjálfan Viktor Korchnoi að velli
í æsispennandi skák. Þetta er ekki
lítið afrek þegar haft er í huga að
Korchnoi gerði jafntefli við heims-
meistarann Kasparov í fyrstu um-
ferð, en Kasparov vann alla aðra and-
stæðinga sína. Korchnoi varð
reyndar að lokum að sætta sig við tap
gegn öllum þremur Islendingunum í
riðlinum, en auk Friðriks tapaði hann
fyrir Helga Ólafssyni og Margeiri
Péturssyni. Margeir kom ánægju-
lega á óvart með því að ná öðru sæt-
inu í riðlinum á eftir Kasparov og
komast þannig í úrslitakeppnina.
I B-riðli féll efsta sætið Anand í
skaut eins og búist var við. Eins
merkilegt og það kann að virðast þá
urðu íslensku keppendumir í neðstu
sætunum þrátt fyrir að þeir Hannes
Hlífar og Jón L. Ámason væru þeir
einu sem náðu jafntefli gegn Anand.
Það var Ivan Sokolov sem reyndist
íslendingunum erfiðastur í þessum
riðli, en hann vann þá alla þrjá. Pól-
verjinn Alex Wojtkewicz fylgdi An-
and áfram í úrslitakeppnina.
í undanúrslitum mætti Margeir
Anand, en Kasparov tefldi við Wojt-
kewicz, sem hafði unnið sér rétt til
þátttöku á mótinu í undankeppni
OZ.COM á ICC skákþjóninum.
Tefldar voru atskákir eins og í fyrri
umferðum. í fyrri umferðunum lauk
báðum skákunum með jafntefli. Þótt
Margeir hefði svart var hann ekki í
neinum erfiðleikum með að halda
taflinu. I seinni skákinni fómaði An-
and skiptamun sem Margeir þáði.
Fáir treystu sér til að dæma um
hvort bætumar sem hann fékk væm
nægar, þótt smám saman sýndi An-
and fram á það með góðri tafl-
mennsku, að fórnin virtist eiga rétt á
sér. Skákin varð æsispennandi, en
Margeir virtist halda í horfinu án
þess þó að geta skapað sér gagnfæri.
Anand teflir hins vegar öðmm mönn-
um hraðar og það kom að því að Mar-
geir lenti í tímahraki. Hann gætti sín
þá ekki á mátneti Anands og varð að
játa sig sigraðan. Meðan á þessu stóð
sigraði Kasparov Wojtkewicz ömgg-
lega með enn einu heimabmgginu í
Sikileyjarvöm. Þar með varð Ijóst að
Kasparov og Anand mundu tefla um
efsta sætið á mótinu, en Margeir og
Wojtkewicz tefldu um þriðja sætið.
Þeir Margeir og Wojtkewicz vom
greinilega báðir sáttir við að hafa náð
svo langt í keppninni og sömdu um
stutt jafntefli í sínum skákum og
deildu þar með þriðja sætinu. Þeir
Anand og Kasparov börðust hins
vegar hart um sigurinn á mótinu. An-
and hafði hvítt í fyrri skákinni sem
lauk með jafntefli eftir mikla baráttu.
Þeirri seinni lauk einnig með jafntefli
eftir spennandi viðureign, en ljóst
var á látbragði Kasparovs að hann
var ekki ánægður með taflmenn-
skuna. Til þess að skera úr um sigur
á mótinu tefldu þeir Anand og Kasp-
arov næst fimm mínútna hraðskákir.
Kasparov hafði hvítt í fyrri skákinni,
en Anand barðist hetjulega og virtist
ná að jafna taflið. Aldrei þessu vant
lenti hann hins vegar í tímahraki og
féll að lokum á tíma. Þetta þýddi að í
seinni skákinni kom ekkert annað en
sigur til greina. Anand tefldi mjög
djarft, en Kasparov varðist af skyn-
semi og þegar allar sóknarleiðir lok-
uðust sá Anand að frekari barátta
var vonlaus og gafst upp. Þar með
hafði Kasparov sigrað á mótinu.
Ljóst er að íslenskir jafnt sem er-
lendir skákáhugamenn hugsa hlýtt
til skipuleggjenda mótsins, Skák-
sambands Islands, OZ.COM,
Islandssíma og Ericsson. Tæknileg
útfærsla mótsins hefur skapað nýja
viðmiðun fyrir þau alþjóðlegu skák-
mót sem haldin verða hér á landi í
framtíðinni. Mótið hafði upp á allt
það að bjóða sem hægt er að óska
sér. Salurinn í Kópavogi hentar einn-
ig vel til skákmótahalds og hlaut mik-
ið lof frá erlendum skákfréttaritur-
um.
Framkvæmd mótsins var þó ekki
gallalaus, en þegar tekið er tillit til
þess að skipuleggjendur þess voru
fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og
fjarskipta er það athyglisvert að það
voru einungis tæknilegu þættirnir
sem finna mátti að. Þar vantaði ein-
faldlega betri verkefnisstjórn, þótt
tæknibúnaðurinn sem slíkur væri
hinn fullkomnasti. M.a. liggja skákir
frá mótinu ekki enn fyrir á tölvutæku
formi þegar þetta er skrifað.
Daði Örn Jónsson
Heimsmótiö í Kópavoq . 1.. 2. apríl 20C 0. A-riðili
Nr. Nafn 1 2 3 4 5 6 Vinn. Röö
1 Helgi Ólafsson Ya 0 1 1 0 21/a 3.-4.
2 Jan Timman y2 0 y2 y2 1 21/a 3.-4.
3 Gary Kasparov 1 1 y 1 1 41/a 1.
4 Victor Korchnoi 0 % 1/2 0 0 1 6.
5 Friðrik Ólafsson 0 y2 0 1 0 iy2 5.
6 Margeir Pétursson 1 0 0 1 1 3 2.
Heimsmótið í Kópavoqi. 1.- 2. a príl 2000. B-riöill
NrJ Nafn 1 2 3 4 5 6 VinnJ Röö
1 Jóhann Hjartarson ■ l4 1 0 0 0 1% 5.
2 Hannes H. Stefánss. Y| 1 % 0 1/2 214 4.
3 Jón L. Árnason 0 0 0 0 1/2 y2 6.
4 Alex Wojtkewicz 1 1/2 1 1 0 314 2.
5 Ivan Sokolov 1 1 1 0 0 3 3.
6 Viswanathan Anand 1 1/2 y2 1 1 4 1.
" Sterkustu sveitirnar
í úrslitakeppnina
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Það var mikil spenna í lokaumferðinni í C-riðli undankeppninnar.
Hér gera spilarar í Hlíðarlyöri upp siðasta hálfleikinn sem var já-
kvæður og kom þeim í úrslitin. Talið frá vinstri: fsak Örn Sigurðsson,
Selfyssingarnir Helgi E. Helgason, Kristján Már Gunnarsson og það
er Rúnar Einarsson sem á hnakkann sem skyggir á miðju borðsins.
Fasteignasalan Bakki 115
Spiluðu aðeins 6 leiki
en komust samt í úrslit
í D-riðli sigraði Ferðaskrifstofa
Vesturlands en sveit Gísla Þórarins-
sonar varð önnur þrátt fyrir að spila
aðeins 6 leiki af 7! Einn sveitar-
meðlima varð fyrir því að sofa yfír
sig á sunnudag og mættu því aðeins
3 spilarar til leiks og tapaðist þá
leikur 0-18. Eins og áður sagði kom
þetta ekki að sök þar sem sveitin
vann alla hina leiki sína.
Lokastaða efstu sveita í D-riðli:
Ferðaskrifstofa Vesturlands 131
Gísli Þórarinsson 128
Arni Bragason 112
Roche 108
I E-riðli voru tvær sveitir í sér-
flokki og röðuðu sér af öryggi í efstu
sætin en þar var lokastaðan þessi:
Þrír frakkar 147
Jóhann Þorvarðarson 142
Nettó 107
Sparisjóðurinn í Keflavík 101
Mótið fór ágætlega fram undir
styrkri stjórn Sveins Rúnars
Haukssonar keppnisstjóra.
Arnór G. Ragnarsson
BRIDS
Bridsliöllín
Þönglabakka
UNDANÚRSLIT í
SVEITAKEPPNI
31. mars - 2. apríl. Aðgangur
ókeypis.
ALLAR sterkustu sveitir lands-
ins munu spila til úrslita um Is-
landsmeistaratitilinn í brids, sem
fram fara um bænadagana, en und-
ankeppni 40 sveita var spiluð um
helgina. Þetta eru sveitir Skeljungs,
Flugleiðir frakt, Subaru-sveitin, Is-
lensk verðbréf, Samvinnuferðir/
Landsýn, Hlíðakjör, sveit Ferða-
skrifstofu Vesturlands, sveit Gísla
/sjjórarinssonar, sveit Þriggja frakka
óg sveit Jóhanns Þorvarðarsonar.
Mótið um helgina var spilað í
fimm 8 sveita riðlum og voru það
helst Austfirðingar og Selfyssingar
sem klóruðu í hæla Reykvíkinga.
Það var helzt í A-riðlinum sem
spennan var mikil en þar urðu
Gunnar Þórðarson og félagar hans
■£rá Selfossi að sætta sig við að kom-
„Jæja, strákar, þið eruð bara komnir í úrslitin.“ Jón Baldursson ræðir
við Gisla Þórarinsson og Þórð Sigurðsson í mótslok.
ast ekki í úrslit þrátt fyrir að ná
sama stigafjölda og Flugleiðir frakt
en þeir höfðu tapað innbyrðisleik
liðanna.
Lokastaða efstu sveita í A-riðli:
Skeljungur 142
Flugleiðir frakt 128
Gunnar Þórðarson 128
Esja kjötvinnsla 106
í B-riðlinum var engin spenna og
stigahæstu sveitimar unnu sann-
færandi.
Lokastaða efstu sveita í riðlinum:
Subaru-sveitin 147,5
íslensk verðbréf 134
Olís 102,5
Strax matvöruverslanir 100
í C-riðlinum var mikil spenna í
lokaumferðinni þar sem Hlíðakjör
og Austfirðingamir í Herði hf. börð-
ust um annað sætið í riðlinum.
Sunnanmenn höfðu betur eftir hörk-
ukeppni en lokastaðan varð þessi:
Samvinnuferðir/Landsýn 154
Hlíðakjör 127
Herðir hf. 121