Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 126. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Meintir strfðsglæpir NATO Enginn grund- völlur fyrir rannsókn Sameinuðu þjóðunum. Reuters. CARLA Del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti öryggisráði sam- takanna í gær að enginn grundvöllur væri fyrir því að hefja rannsókn á meintum stríðsglæpum Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í loftárásum þess á Júgóslavíu á síðasta ári. „Þótt NATO hafi orðið á nokkur mistök er ég sannfærð um að hvorki var ráðist á almenna borgara né óréttmæt skotmörk af ásetningi í loftárásum bandalagsins," sagði hún. Stríðsglæpadómstólnum hafa bor- ist nokkrar umkvartanir á undan- fórnum misserum, m.a. frá lögmönn- um júgóslavneskra og rússneskra þingnefnda. Sagði Del Ponte að embættismenn dómstólsins hefðu farið yfir öll kvörtunarefni en gögn bentu ekki til þess að rannsóknar væri þörf. Vildi hún ekki lýsa því í hverju ásakanirnar fólust en í ellefu vikna loftárásum bandalagsins á Júgóslavíu létust tugir borgara er sprengjur fóru aðra leið en ætlað var. Féllu sprengjur bandalagsins m.a. á sendiráð Kína í Belgrad með þeim afleiðingum að nokkrir starfs- menn þess biðu bana. Reuters Vilja að Elian fari strax til Kúbu TALIÐ er að hálf milljón kúbverskra kvenna hafi í gær tekið þátt í kröfugöngu í Havana, höfuðborg Kúbu, sem farin var vegna drengsins Elians Gonzalez. Konurnar kröfðustþess að hann fengi tafarlaust að snúa aftur til Kúbu frá Bandaríkjunum en þar hefur drengurinn dvalið frá því hann fannst á hjólbarðaslöngu í hafinu undan strönd Flórída eftir að bátur með kúbverska flóttamenn innanborðs sökk þar í lok siðasta árs. Meðal þeirra sem þátt tóku í kröfugöngunni var Fidel Castro, leiðtogi Kúbumanna, sem heilsar hér einni kvennanna, tónskáldinu og söngkonunni Söru Gonzalez. Áfrýjunardómstóll bandaríska alríkisins kvað nýlega upp þann úrskurð að ættingjar Elians í Bandaríkjunum hefðu ekki rétt til að fara fram á pólitfskt hæli þar fyrir hans hönd. Ættingjamir hafa þegar áfrýjað úrskurðin- um til hæstaréttar Bandarfkjanna. ■ Áfangasigur/33 Clinton veitt verðlaun fyrir að stuðla að einingu og friði í Evrópu Skorar á Evrópuríki að auka tengslin við Rússland Aachen. Reuters, AFP, AP. AP Bill Clinton Bandaríkjaforseta fagnað í þýska bænum Aachen þar sem honuni voru veitt Karlamagnúsarverðlaunin í gær. BILL Clinton Bandaríkjaforseti hvatti í gær ráðamenn í Evrópuríkj- um til að auka tengslin við Rússland og lönd í Suðaustur-Evrópu til að tryggja frið og stöðugleika í álfunni. „Ekki er hægt að loka dyrum fyrir Rússlandi, hvorki Atlantshafsbanda- lagsins né Evrópusambandsins," sagði Clinton í ræðu sem hann flutti í þýska bænum Aachen þegar honum voru veitt verðlaun, sem eru kennd við Karl mikla eða Karlamagnús, fyrir störf í þágu einingar og friðar í Evrópu. Hann bætti við að ef nánari tengslum við Rússland yrði hafnað „myndi það leiða til skaðlegrar sam- keppni milli Rússlands og Vestur- landa og gera vonir okkar um óskipta álfu að engu“. Ráðamenn á Vesturlöndum yrðu að gera allt sem þeir gætu til að efla tengslin við Rússland „vegna þess að svo mikið er í húfi“. Clinton hvatti einnig til þess að Evrópusambandið hæfi viðræður um aukin tengsl við ríki í Suðaustur- Evrópu, m.a. Tyrkland og lönd gömlu Júgóslavíu. Þá lagði hann áherslu á að náið samstarf Evrópul- anda og Bandaríkjanna, sem hefði tryggt frelsi og lýðræði í Evrópu eft- ir síðari heimsstyrjöldina, væri jafn mikilvægt nú þegar treysta þyrfti lýðræðið í Rússlandi í sessi og tryggja frið á Balkanskaga. „Ég tel að Evrópuríkin ættu að efla banda- lag okkar jafnvel þótt þau eflist sjálf,“ sagði hann í hallargarði við hliðina á 1.200 ára gamalli dómkirkju í Aachen þar sem Karl mikli stjórn- aði ríki sínu eftir að hafa látið Leó páfa krýna sig keisara Hins heilaga rómverska keisaradæmis árið 800. Schröder varar við eldflaugavarnakerfínu Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, lauk lofsorði á Clinton við verðlaunaafhendinguna og tíund- aði störf forsetans í þágu friðar í Evrópu, frá Kýpur til Norður-ír- lands og Balkanskaga. Schröder varaði hins vegar Clin- ton við því að áform Bandaríkja- manna um að koma upp eldflauga- varnakerfi gætu raskað hemaðarjafnvæginu í heiminum. Kanslarinn sagði að þótt Banda- ríkjamenn hefðu rétt á að taka þær ákvarðanir sem þeir þyrftu til að tryggja eigið öryggi ættu þeir að hafa samráð við bandamenn sína í Evrópu um varnarkerfið þar sem það myndi „hafa áhrif langt út fyrir Bandaríkin". Þetta er í fyrsta sinn sem banda- rískur forseti er sæmdur Karla- magnúsarverðlaununum, sem hafa verið veitt frá árinu 1949. Aðeins tveir aðrir Bandaríkjamenn hafa fengið verðlaunin, þeir George Marshall og Henry Kissinger. Clinton hélt til Berlínar eftir ræð- una og situr þar í dag þriggja klukkustunda langa ráðstefnu ráða- manna frá fjórtán ríkjum um hvern- ig hægt sé að aðlaga velferðarstefnu vinstrimanna alþjóðavæðingu og aukinni samkeppni í heiminum. Hann heldur síðan til Rússlands í dag til að ræða við Vladimír Pútín, forseta landsins. ■ Lítils vænst/34 Bandaríkin Merki um minni þenslu New York. Reuters, AP. GENGI hlutabréfa í Bandaríkjunum hækkaði verulega í gær eftir að birtar voru nýjar hagtölur sem bentu til þess að dregið hefði úr þenslunni í landinu. Fjáifestar vona að þetta verði til þess að bandaríski seðla- bankinn hækki ekki vexti sína írekar í bráð. Hlutabréfaviðskiptin tóku mikinn kipp eftir að bandaríska vinnumála- ráðuneytið gaf út skýrslu þar sem fram kom að atvinnuleysi hefði aukist í 4,1% í maí úr 3,9% sem var minnsta atvinnuleysi í landinu í þijá áratugi. Þá skýrði viðskiptaráðuneytið frá því að sala á bandarískum framleiðslu- vörum hefði minnkað meira í apríl en nokkur dæmi væru um í tæpan ára- tug. Spum eftir raftækjum minnkaði meira en nokkru sinni íýrr. Þykir þetta benda til þess að sex vaxtahækkanir seðlabankans írá því í júní í fyrra séu nú famar að draga úr þenslunni. „Þetta minnkar líkumar á því að seðlabankinn hækki vextina frekar í júní,“ sagði Guy Truicko, fram- kvæmdastjóri verðbréfadeildar Unity Management í New York. „Menn telja að bankinn þurfi ef til vill ekkert að gera til að draga úr verðbólgu á næstunni.“ Nasdaq hækkar um rúm 6% Nasdaq-vísitalan hækkaði um rúm 230 stig, eða um 6,44%, vegna hærra gengis hlutabréfa í hátæknifyrirtækj- um. Er þetta þriðja mesta hækkun vísitölunnar í stigum frá upphafi og hún hefur hækkað um 19% á einni viku. Dow Jones-iðnaðarvísitalan hækkaði um 142 stig, eða 1,34%. Spánn Minnsta atvinnu- leysi í 20 ár Madrid. AFP. ATVINNULEYSIÐ á Spáni minnkaði í maí og hefur ekki verið minna í tvo áratugi, að sögn spænska vinnu- málaráðuneytisins í gær. Atvinnuleysið hefur minnkað um rúman helming frá því það var mest. Ríflega 1,5 milljónir manna vora án atvinnu í maí eða um 9,16% vinnuaflsins og hefur at- vinnulausum fækkað um 7,15% á einu ári eða um 118.000 manns. Efnahags- og framfarastofn- unin (OECD) spáði því í mars að atvinnuleysið á Spáni yrði 14,1% í lok ársins og 12,9% í lok næsta árs. MORGUNBLAÐK) 3. JÚNÍ 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.