Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Amaldur Bjarni Júlíusson hefur gripið lax konu sinnar, Þördísar Klöru Bridde, fyrsta stangarveidda laxinn í ár. T.h. er Ólafur Vigfússon. Róleg byrjun í Norðurá LAXVEIÐI fór rólega af stað í Norðurá í Borgarfirði á fimmtu- dagsmorguninn, en að þessu sinni var hún eina áin sem var „opnuð“ 1. júní. Alls veiddust fimm laxar fyrsta daginn og í gærmorgun bættist einn við. Allt voru þetta vænir fiskar, sá stærsti um 14 pund. Að sögn Kristjáns Guðjóns- sonar formanns SVFR hafa skil- yrði verið erfið, vatn minnkandi og kuldi að undanförnu hefur dregið úr göngum. „Við höfum ekki séð mikið, en það hafa þó verið skot í gangi. í gærvöldi var t.d. skyndilega líflegt á Stokkhylsbroti, þá settu tveir úr okkar hópi í fjóra laxa og náðu tveimur. Sama kvöld sást mikið af fiski fara um í Stekknum og þar settu menn í tvo en misstu því miður báða,“ sagði Kristján. Fyrsti lax sumarsins var tæp- lega 8 punda hrygna Þórdísar Klöru Bridde sem setti í laxinn klukkan 7:38 fyrsta morguninn á Eyrinni. Þórdís var með stóra Black Sheep túpu. Bjami Ó. Ragnarsson veiddi stærsta lax- inn, um það bil 14 punda hrygnu á Randalín túpu i Almenning- num. Jón G. Baldvinsson veiddi einnig rígvænan fisk, 13 punda hæng, grálúsugan, á Stokkhyls- broti. Urriðaveiði fór vel af stað í Laxá í Þingeyjarsýslu, bæði í Mývatnssveit og Laxárdal. Hólmfríður á Arnarvatni, um- sjónarmaður Laxár í Mý- vatnssveit, sagði 30 fiska komna í bók og annað eins væri óskráð enn. „Fimmtudagurinn var mjög góður og það var að veiðast um alla á. Mest veiddist á púpur með kúluhausa og flotlínur," sagði Hólmfríður. Fiskur var vænn og þeir stærstu 5 punda. María Kristjánsdóttir, húsráð- andi og veiðivörður að Rauðhól- um í Laxárdal, sagði fyrsta dag- inn hafa gefið um 5 fiska, mest 2 til 5 punda fiska. „Veiðimenn eru mjög sáttir með sinn hlut og þetta er mjög þokkalegur fiskur enn sem komið er,“ sagði María. Líflegt víðar Silungsveiði byrjaði víðar á fimmtudaginn og var ansi lífleg. T.d. veiddust 38 bleikjur og urr- iðar á eina stöng á neðsta svæði Breiðdalsár og var helmingur aflans vænn 2-3 punda fiskur. Þá byrjaði veiði í Litluá í Kelduhverfi og var nokkur veiði á sumum svæðum. Nokkuð vant- ar upp á nákvæmar upplýsingar í bili, en þó fréttist af 6 fiskum á einu svæði og 8 stykkjum á öðru. Á þessum tíma vertíðar- innar veiðist með sjóbirtingur. ^oDE4JUC Töskur fyrír unga fólkið IMI Mál og menning Síðumúla 7-9 Sími 510 2515 * Olga vegna starfsloka Björns Grétars Sveinssonar Asakanir um valda- rán og bakstungu Miklar deilur eru komnar upp innan Verka- mannasambandsins vegna starfsloka Björns Grétars Sveinssonar, fyrrv. for- manns. Saka stuðningsmenn hans nokkra ______________ / _____ forystumenn VMSI og Flóabandalagsins um valdarán. Hervar Gunnarsson mótmæl- ir þessu og segir að starfslokin hafí verið efnd á loforði sem Birni Grétari var gefíð í vetur. Omar Friðriksson kynnti sér málið. STARFSLOK Björns Grétars Sveinssonar sem formanns Verka- mannasambandsins hafa vakið mikl- ar deilur og óánægju innan sam- bandsins. Beinist gagnrýnin aðallega að vinnubrögðum og að- draganda málsins. Ber viðmælend- um þó engan veginn saman um að- draganda málsins. Hervar Gunnarsson, ritari VMSI, mótmælir því að um einhvers konar samsæri hafi verið að ræða, heldur hafi hann, Sigurður Ingvarsson, for- seti Alþýðusambands Austurlands, og Björn Snæbjömsson, formaður Einingar/Iðju á Akureyri, einfald- lega verið að efna loforð sem Birni Grétari var gefið í vetur um að sam- ið yrði við hann um starfslok ef í ljós kæmi að hann nyti ekki stuðnings í formennsku hins nýja landssam- bands sem stofna á í haust. Unnið er að sameiningu VMSÍ, Landssam- bands iðnverkafólks og Þjónustu- sambands íslands í eitt landssam- band. „Skil því ekki þetta fjaðrafok" Björn Grétar lýsti yfir í Morgun- blaðinu sl. fimmtudag að hann væri óánægður með hvernig beiðni um afsögn hans bar að. Þeim skilaboð- um hafi verið komið til sín í gegnum Hervar Gunnarsson að þess væri ekki óskað að hann yrði formaður hins nýja sambands. „Með starfslokasamningnum taldi ég mig vera að efna við hann [Björn Grétar] loforð og hann hefur í sjálfu sér aldrei þrætt fyrir það við mig,“ segir Hervar Gunnarsson. „Loforðið var þess efnis að ef það kæmi í ljós að hann nyti ekki óskoraðs trausts til þess að verða formaður nýs sam- bands, sem verður væntanlega stofnað í haust, þá óskaði hann eftir að gerður yrði starfslokasamningur við sig. Ég skil því ekki þetta fjaðra- fok. Eg gerði grein fyrir þessu í framkvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins og það var engin athugasemd gerð þar við að gengið yrði frá starfslokasamningi við hann,“ segir Hervar. Hann mótmælir því að um einhvers konar sam- særi hafi verið að ræða gegn Birni Grétari eða að forystumenn innan VMSÍ hafi stungið hann í bakið eins og sumir viðmælenda blaðsins halda fram. „Það er ekki að koma í bakið á mönnum að segja þeim sannleikann, sérstaklega þegar þeir hafa óskað eftir því sjálfir að fá að vita hver staðan er og óskað eftir sérstakri meðferð sinna mála í framhaldi af því. Það er ekki að koma í bakið á mönnum að efna það,“ segir Hervar. Hann segir þetta mál hafa átt sér langan aðdraganda. Ástæða þess að loforðið hafi verið efnt við Björn Grétar núna sé sú að um síðustu helgi hafi komið í ljós að hann nyti ekki stuðnings í embætti formanns landssambandsins sem stofna á í haust. Hervar segist hafa áhyggjur af því að sú ólga sem nú er komin upp vegna þessa máls hafí í för með sér að vinna að sameiningu landssam- bandanna verði erfiðari en ella og setji sameiningarmarkmiðið í hættu. Taka fleiri viðmælendur blaðsins undir það, en stefnt er að því að und- irbúningi sameiningarinnar verði lokið fyrir 15. september. Segja starfslokin ekki hafa verið að ósk Björns Grétars Stuðningsmenn Björns Grétars fullyrða hins vegar að starfslok Bjöms Grétar nú um mánaðamótin hafi ekki farið fram að ósk hans. Bjöm Grétar hafi eingöngu greint frá því í þröngum hópi í haust að hann hefði fyrst og fremst áhuga á að takast mætti að sameina lands- samböndin þrjú og að hann væri til- búinn að víkja fyrir nýjum formanni ef í ljós kæmi að ekki yrði samstaða um hann sem formann hinna nýju samtaka. Nokkrir viðmælenda sögðu að flestir hefðu litið svo á að Björn Grétar myndi sitja sem formaður fram á næsta haust og léti þá hugs- anlega af störfum með reisn. At- burðarásin varð hins vegar önnur. Sl. þriðjudag sneri Bjöm Grétar aft- ur til starfa hjá Verkamannasam- bandinu eftir erfið veikindi. Sama dag var haldið aukaþing Verka- mannasambandsins. Skv. upplýsing- um blaðsins kom Hervar Gunnars- son á fund Björns Grétars um morguninn, skömmu áður en þingið hófst, og bauð honum starfsloka- samning þar sem gert var ráð fyrir að hann léti af störfum nú um mán- aðamótin. Ekki var greint frá þessu á auka- þinginu en Björn Grétar mætti ekki til þingsins. Var þess getið að hann væri fjarverandi vegna veikinda. Að þinginu loknu var svo haldinn fund- ur í framkvæmdastjórn sambands- ins og þar greindi Hervar frá því að afráðið hefði verið að gera starf- slokasamning við Björn Grétar að beiðni hans. Kom til snarpra orðaskipta á fund- inum vegna máls- ins. Bæði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusam- bands Vestfjarða, og Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfé- lags Húsavíkur, mótmæltu þessum vinnubrögðum og spurðu hvort ver- ið væri að setja Bjöm Grétar af. Var einnig gagnrýnt harðlega að málið hefði ekki verið tekið til afgreiðslu á aukaþinginu fyrr um daginn. Féllu þung orð og komu jafnvel fram ásakanir um lögbrot. Heimildarmenn innan verkalýðs- hreyfingarinnar, sem eru ósáttir við vinnubrögðin, halda því fram að rekja megi þessa atburði til þeirra heiftarlegu deilna sem komu upp í vetur, þegar við lá að Verkamanna- sambandið klofnaði í kjölfar þess að svonefnd Flóabandalagsfélög (Efl- ing, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og Hlíf) ákváðu að fara eigin leið í kjarasamningunum. Halda þessir sömu viðmælendur því fram að á undanförnum vikum hafi Hervar Gunnarsson, Björn Snæbjörnsson og Sigurður Ingvars- son unnið að samkomulagi við Flóa- bandalagsfélögin um að bæta sam- starfið á nýjan leik og vinna að undirbúningi að stofnun hins nýja landssambands. I þessu samkomulagi hafi falist að Björn Grétar myndi víkja úr foryst- unni. Þessu til stuðnings benda þeir hinir sömu á að á fundinum sl. þriðjudag hafi verið gengið frá hverjir tækju sæti fyrir hönd VMSI í níu manna vinnuhópi, sem mun hafa yfirumsjón með sameiningar- ferlinu í sumar. Þessir fulltrúar komi allir úr Flóabandalaginu eða séu bandamenn þess. Var samþykkt tillaga um efirtalda í vinnuhópinn: Hervar Gunnarsson, Sigurð Ing- varsson, Kristján Gunnarsson, for- mann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, Björn Snæbjörnsson og Sigurð T. Sigurðsson, formann Hlíf- ar. Jafnframt mun vera gert ráð fyr- ir að Sigurður Bessason, sem tók við formennsku Eflingar sl. miðviku- dagskvöld, og Halldór Björnsson fyrrverandi formaður Eflingar, verði í vinnuhópnum sem fulltrúar Þjónustusambandsins og af hálfu Landssambands iðnverkafólks þeir Guðmundur Þ. Jónsson, formaður sambandsins, og Þorsteinn Arnórs- son varaformaður. „Þessi níu manna hópur kemur allur úr hreyfingunni í kringum Flóabandalagið. Oðrum er ekkert hleypt að,“ segir einn viðmælandi. „Þetta snýst bara um völd og pers- ónulega óvild. Menn líta á þetta sem valdarán og gíslatöku annarra fé- laga, sem hafa ekkert fengið um málið að segja,“ segir hann. Skv. upplýsingum blaðsins hafa fjölmargir forystumenn verkalýðs- félaga á landsbyggðinni sem eru óánægðir með brotthvarf Bjöms Grétars borið saman bækur sínar á síðustu dögum um að grípa til ein- hvers konar aðgerða vegna málsins, birta yfirlýsingu honum til stuðn- ings eða boða til fundar „þeirra fé- laga sem standa utan við þetta vald- arán“, eins og einn forystumaður orðaði það í gær. „Fjaðrafok út af engu“ Aðrir heimildarmenn, innan Flóa- bandalagsins og víðar í verkalýðs- hreyfingunni, vísa með öllu á bug að eitthvert ráðabrugg hafi átt sér stað og saka félaga sína í hreyfíngunni um að búa til fjarðafok út af engu. Hervari Gunnarssyni hafi einfald- lega verið fengið umboð til að ganga frá starfslokum Bjöms Grétars eins og hann hafi sjálfur óskað eftir, en með því að lýsa svo óánægju sinni í fjölmiðlum hafi Björn Grétar ekki staðið við sam- komulag sem gert var, en það hafi m.a. kveðið á um að engin eftirmál yrðu vegna þessa máls af beggja hálfu. Áhugp á að leita sátta Kristján Gunnarsson segir að þær samsæriskenningar sem settar hafi verið fram séu algerlega úr lausu lofti gripnar og hann segir það mjög orðum aukið að mikil óánægja sé innan verkalýðshreyfingarinnar út um landið vegna þessa máls. Skv. traustum heimildum blaðsins er, þrátt fyrir hinar harðvítugu deil- ur, einnig kominn fram áhugi á að reyna að lægja öldurnar og leita leiða til sátta á næstu dögum. Em menn sagðir líta svo á að ekki verði aftur snúið og þrátt fyrir allt séu flestir sammála um það markmið að sameina landssamböndin þrjú í haust í eitt 40 þúsund manna lands- samband. „Egtaldi mig vera að efna við hann lof- orð“ Spurðu hvort verið væri að setja Björn Grétar af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.